Morgunblaðið - 21.08.2003, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 21.08.2003, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. ÁGÚST 2003 27 kjúklingabænda eru það samt ekki síður sauðfjárbændur sem blæða fyrir ástandið á kjötmarkaðinum. Segja má að samkeppnisaðilarnir séu smátt og smátt að verðleggja lambakjötið út af markaðinum. Sal- an minnkar og minnkar þrátt fyrir að afurðasölufyrirtækin lækki verð á lambakjötinu. Svigrúm þeirra til að lækka kjötið er þó minna en framleiðenda svínakjöts og kjúk- linga. Afurðasölufyrirtækin skuld- binda sig á haustin til að greiða sauðfjárbændum tiltekið verð fyrir kjötið og þeir staðgreiða það að hluta. Þegar svo almennt verð á kjöti lækkar eiga þeir erfitt með að lækka verðið því þeir eru þá búnir að greiða bændum fyrir lambakjöt- ið. Verðlækkun þýðir einfaldlega að afurðasölufyrirtæki selja kjötið með tapi. Staða margra þeirra er mjög tæp. Norðlenska tapaði t.d. 250 milljónum í fyrra og sumir smærri sláturleyfishafar, eins og Ferskar afurðir á Hvammstanga, treysta sér ekki til að hefja slátrun í haust. Allt bendir til að afurðasölufyr- irtækin greiði sauðfjárbændum 6– 10% lægra verð fyrir lömb í haust en þeir gerðu í fyrra. Í fyrradag var haldinn fundur í Markaðsráði lambakjöts um hvaða tillögu bæri að gera um útflutningshlutfall lambakjöts í haust. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins voru á fundinum ræddar tillögur um að hækkað hlutfallið upp í 35%, en hlutfallið var 25% í fyrra. Engar ákvarðanir voru þó teknar. Verð sem fæst fyrir lambakjöt erlendis er lægra en verð sem fæst innan- lands þannig að ef fer sem horfir verða bændur skyldaðir til að selja meira til útlanda og þar með lækka tekjur þeirra ennfrekar. 11% meiri birgðir af lambakjöti nú en í fyrra Á síðasta ári lagði Markaðsráðið til að útflutningshlutfallið yrði 28% en landbúnaðarráðherra féllst ekki á það og ákvað að það yrði 25%. Hann vildi með þessari ákvörðun hvetja bændur til að selja meira lambakjöt á innanlandsmarkaði. Þó að salan hafi verið allgóð sl. haust og í upphafi árs er niðurstaðan fyrir tímabilið í heild sú að um 8% minna hefur selst en á sama tímabili í fyrra. Birgðir í upphafi sláturtíðar eru því meiri en sl. haust. 1. ágúst sl. voru birgðir af lambakjöti um það bil 2.000 tonn. Þar af á eftir að flytja út á erlenda markaði tæplega 160 tonn. Þetta er um 11% meiri birgðir en á sama tíma fyrir ári. Búist er við að Bændasamtökin leggi fram tillögu um útflutnings- hlutfall á allra næstu dögum. End- anleg ákvörðun er í höndum land- búnaðarráðherra. gjaldþrots tjón lán- ja fyrir- 600 millj- óðursölu- serum, en kum með greiðslur kun á af- ánastofn- ánveiting- narækt á ljóst að tæki eru milljóna um. Ekki st til að að miklir misserum vast ekki. nú á fjár- ænda og Morgunblaðið/RAX ðfjár- kar nkar egol@mbl.is nokkru leyti af lágu verði en verð á kjúklingi var 21% lægra í júlí sl. en í júlí í fyrra. Birgðasöfnun hef- ur verið á kjúklingum að und- anförnu og hafa framleiðendur verið að reyna að minnka birgðir með því að setja kjúkling á út- sölu. Heldur hefur dregið úr þess- um tilboðum og sýna mælingar Hagstofunnar að verð á kjúkling- um er umtalsvert hærra í ágúst en það var í júlí. Frá því í ársbyrjun 2002 hefur vísitala neysluverðs hækkað um 2,2%. Á sama tíma hefur verð á kjöti lækkað um 6,8%. Nokkuð mismunandi er milli kjöttegunda hvað verðlækkunin er mikil. Nautakjöt hefur lækkað um 3,3%, svínakjöt um 26,4%, lambakjöt um 15,5%, fuglakjöt um 8,2% og unnar kjötvörur, pylsur, álegg og fleira, um 0,9%. Þess má geta að fiskur hefur á sama tímabili hækkað um 8,6%. SALA á lambakjöti hefur dregist saman um 8,4% á síðustu 12 mán- uðum samanborið við sömu mán- uði þar á undan. Mikil söluaukn- ing hefur hins vegar verið í kjúklingum og svínakjöti og er nú svo komið að lítið vantar á að svínakjöt sé mest selda kjöt á Ís- landi, en lambakjöt hefur verið sú kjöttegund sem landsmenn hafa neytt í mestu magni í yfir 1.100 ár. Greinilegt er á sölutölum að lambakjötið hefur látið verulega undan síga í sumar. Salan í maí, júní og júlí er 280 tonnum minni en hún var sömu mánuði í fyrra. Kjötsala á sumrin er yfirleitt mjög góð, en þá neyta landsmenn grillmatar í miklum mæli. Í sum- ar hafa landsmenn valið svína- kjötið á grillið miklu frekar en aðrar kjöttegundir. Þetta þarf ekki að koma á óvart ef haft er í huga að samkvæmt tölum Hag- stofu Íslands var verð á svínakjöti í júlí sl. 25,6% lægra en í júlí í fyrra. 8,6% lækkun á verði lamba- kjöts á sama tímabili virðist ekki hafa dugað til að ná þeirri sölu sem sauðfjárbændur vonuðust eftir. Nautgripakjöt hefur einnig að nokkru leyti orðið undir í sam- keppninni í sumar, en sala á því minnkaði um 12,8% í júlí. Verð á nautakjöti er nánast það sama nú og það var fyrir 12 mánuðum. Í júlí í fyrra gekk sala á lamba- kjöti nokkuð vel og jókst miðað við sölu í júlí 2001 um 14,7%. Sal- an í júlí í ár er hins vegar 33,7% minni en í júlí í fyrra. Þetta sýnir vel hversu sauðfjárbændum hefur gengið illa að verjast samkeppni frá svínakjötinu í sumar. Sala á kjúklingum hefur einnig aukist mikið að undanförnu. Sölu- aukningin á síðustu 12 mánuðum er 36%. Þessi aukning skýrist að / 0 1 " 1 / / 2 3 4 ! 5 / 0 1 " 1 / / 2 3 4 ! 5   >" '8)&8"!" !) '8) 7'8)67-$%& '  8 !( '8) ?0, '8) &  '8) # $%  & & 9 $%& ' $ 7  %$# : %& ' $;, (<     = > ?   '- @  '($ %  &   ,' 3%& ,' "-  ,' ! '$ ,'  ,' 3 ' A+ ' ( 0$ #  B$7'  (* ( 3  B$7'  (* ( :=99< 9=< ;=: =;9 :9 ;=<;<  . 9 <: . @ <. @  ;. 9=<; 9= ;=9 =;:: ;<; =9 @: <.  9. 9 . @ . @9 . 9 <. 0$ #  -$   (; ; ?; )=;> ;? (>; Offramboð einkennir kjötmarkaðinn Sala á lamba- kjöti hefur minnk- að um 8,4% Verð á svínakjöti hefur lækkað um rúmlega 25% á einu ári nan hátt. ti,“ segir ð- landinu, sé að ra. að til nabænd- erði m, en tjón mboð á að það miklar. eð tilliti væri æða inn ið út- um ætti ð, en þá na g“ mu sauð- u með- uði. bústærð svert 500–600 ámu að ð 2001 tekjur á kiptast 4 millj- ærðar N Ý lög um ríkisborg- ararétt tóku gildi hér á landi 1. júlí síðastliðinn þar sem meginbreytingin var sú að heimilaður var tvöfaldur rík- isborgararéttur. Tilgangurinn var einkum að heimila íslenskum rík- isborgurum að halda íslensku rík- isfangi þó að þeir öðluðust ríkis- borgararétt í öðru ríki. Hið sama gildir um ógift börn undir 18 ára aldri sem viðkomandi hefur forsjá fyrir. Enn eru nokkur ríki sem heimila ekki tvöfalt ríkisfang og önnur gera það með vissum skil- yrðum. Þannig er tvöfaldur ríkisborg- araréttur á Norðurlöndum aðeins heimill í Svíþjóð og Finnlandi, auk Íslands. Dönsk stjórnvöld hafa til þessa alfarið verið mótfallin þess- um réttindum en tvöfaldur rík- isborgararéttur hefur verið til skoðunar hjá norskum stjórnvöld- um. Eitt meginsjónarmiðið gegn tvöföldum ríkisborgararétti hefur til þessa verið að koma í veg fyrir að fólk geti gegnt herskyldu í tveimur ríkjum. Önnur Evr- ópuríki sem heimila ekki tvö- faldan ríkisborg- ararétt, að því er fram kemur í fylgiskjali með lagafrumvarpinu frá Alþingi, eru Þýskaland, Belgía, Austurríki, Búlgaría, Lúx- emborg og Tékkland. Í þessum löndum eru vissar undantekn- ingar, t.d. er tvöfalt ríkisfang heimilt í Belgíu fyrir einstaklinga sem eiga foreldra sem hafa hvor sinn ríkisborgararéttinn. Í Lúx- emborg missir þarlendur rík- isborgari ríkisfang sitt ef hann tekur erlent eftir 18 ára aldur. Það er svo meginregla tékkneskra laga að þarlendir hafi ekki annan ríkisborgararétt. Samkvæmt fylgi- skjali frumvarpsins eru á þessu ýmis frávik, s.s. þegar annað for- eldrið er erlent. Barn tékknesks foreldris fær þó alltaf tékkneskt ríkisfang. Á banni tvöfalds ríkis- borgararéttar í Þýskalandi eru ýmsar undantekningar. Þjóðverji sem tekur erlendan ríkisborgara- rétt getur eftir síðustu lagabreyt- ingu þar í landi haldið þýskum rétti í ýmsum tilvikum, einkum ef hann heldur tengslum við landið. Öll réttindi ekki sjálfgefin Í dómsmálaráðuneytinu fengust þær upplýsingar að ekki hefðu komið upp nein vafamál sem tengdust gildistöku nýrra laga. Lögð var áhersla á að þótt íslensk lög heimiluðu tvöfaldan ríkisborg- ararétt væri það í höndum við- komandi erlends ríkis, þar sem ís- lenskur ríkisborgari byggi, að samþykkja íslenska ríkisborg- araréttinn. Lagabreytingin gæti ekki gefið algjöra tryggingu fyrir tvöföldum ríkisborgararétti hvar sem væri. Þá er ekki sjálfgefið, samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins, að fólk með tvöfalt rík- isfang öðlist öll réttindi um leið í báðum ríkjum. Á þetta einkum við um kosningarétt þar sem gilda þá landslög í hverju ríki fyrir sig. Víða er gerð krafa um lág- marksbúsetu til að öðlast kosn- ingarétt og að fólk sé skráð með lögheimili í viðkomandi landi. Þannig eru íslensk lög um þing- kosningar að íslenskir ríkisborg- arar, sem fluttir eru af landi brott og sestir að erlendis, hafa kosn- ingarétt hér á landi í átta ár frá því að þeir fluttu lögheimili sitt, talið frá 1. desember næstum fyrir kjördag. Að þessum átta árum liðnum falla þeir af kjörskrá nema sérstaklega sé sótt um að fá að halda kosningarétti. Er sótt um það til Hagstofunnar sem veitir viðkomandi þá réttinn fjögur ár í senn. Kristín Völundardóttir, lögfræð- ingur hjá Útlendingastofnun, segir að í raun eigi ekki að vera hægt að vera með lög- heimili í tveim- ur ríkjum. Við- komandi einstaklingur eigi eingöngu að vera skráður á einum stað með fasta bú- setu og njóta þá þeirra rétt- inda sem viðkomandi ríki bjóði upp á. Tvöfalt ríkisfang heimilt í Bandaríkjunum og víða í Evrópu Bandaríkin heimila tvöfaldan ríkisborgararétt og þau Evrópuríki sem vitað er að gera það sömuleið- is eru Svíþjóð, Finnland, Bretland, Frakkland, Grikkland, Holland, Ír- land, Ítalía, Króatía, Kýpur, Malta, Pólland, Portúgal, Slóvakía, Spánn, Sviss, Tyrkland og Ungverjaland. Þessum ríkjum hefur verið að fjölga síðustu misseri, t.d. tóku ný lög gildi í Finnlandi 1. júní síðast- liðinn. Meðal annarra breytinga á ís- lensku lögunum um ríkisborg- ararétt, sem tóku gildi 1. júlí síð- astliðinn, er að íslenskur ríkisborgari sem tekið hefur rík- isborgararétt í öðru ríki og misst við það íslenska ríkisborgararétt- inn, án þess að það ríki hafi krafist þess, getur óskað eftir að fá ís- lenskt ríkisfang að nýju. Sækja þarf um það til dómsmálaráðuneyt- isins. Óbreytt er ákvæði 8. gr. laganna um að íslenskur ríkisborgari sem fæddur er erlendis og hefur ekki átt hér lögheimili eða dvalið hér í einhverju skyni missir íslenska ríkisfangið þegar hann verður 22 ára. Þessum borgurum er ekki heimilaður tvöfaldur ríkisborg- araréttur. Ný lög tóku gildi í sumar um tvöfaldan ríkisborgararétt Enn nokkur ríki sem heimila ekki tvöfalt ríkisfang Morgunblaðið/Kristinn Tvöfalt ríkisfang veitir fólki ýmis réttindi en þau gilda ekki í öllum löndum. )*+  $($ ( $  ,    - " ' $$& B& B+ $& 5 $ +C $ !$ $ DE  AF   

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.