Morgunblaðið - 21.08.2003, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 21.08.2003, Blaðsíða 45
FÓLK Í FRÉTTUM MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. ÁGÚST 2003 45 TEIKNIMYNDIN um Sinbað sæfara er lauslega tengd hetjunni Sindbað farmanni, einni þekktustu sögupersónu arabíska ævintýra- bálksins 1001 nótt. Hollywood lagar söguna eftir sínu höfði en það sem skiptir öllu máli er að myndin hefur yfir sér óvenju sannan sagnablæ. Áhorfendum boðið upp á ósvikið ævintýri með sínum lygilega sögu- þræði, hetjum og skúrkum, fjár- sjóðum og fundarlaunum hættum og leyndardómum. Sindbað er hrokafullur, frækinn og fífldjarfur sjóræningi sem í myndarbyrjun hyggst ræna hinni ómetanlegu Friðarbók úr vörslu æskuvinar síns Próteusar prins. Þá kemur til skjalanna hin lævísa Eris, gyðja sundrungar og svikráða og rænir sjálf bókinni góðu sem hefur þá töfra að vernda friðinn meðal ríkja heims. Sindbað er grunaður um þjófn- aðinn og eru honum settir úrslita- kostir: Að heimta bókina og koma henni á ný í hendur konungsins ella. verði hann hálshöggvinn. Snúi hann hinsvegar ekki aftur verður það Prótesus vinur hans sem missir höfuðið. Sindbað á því ekki annarra kosta völ en að leggja upp í svað- ilför á enda veraldar til að sækja gripinn í heimkynni gyðjunnar. Til að fyrirbyggja að Sindbað svíkist undan merkjum er Marína, unnustu Proteusar, með í för og takast þau í sameiningu á við forynjur, ofviðri og furðuskepnur. Aukinheldur gerir gyðjan Eris þeim allt til bölvunar. Til að flækja málin enn frekar er Marína æskuástin þeirra vinanna beggja. Skemmtileg saga, rómantísk og ævintýraleg í meira lagi og trúrri hefðinni eins og hún er í ritmáli klassískra ævintýrasagna, en við eigum almennt að venjast frá hendi kvikmyndaiðnaðarins. Þá er hún teiknuð upp á gamla mátann sem ýmsir telja kost, aðrir nefna sem megin ástæðu fyrir því að hún gekk ekki sem skyldi í Vesturheimi. Ástæðan er öllu frekar sú að erfitt er að sjá hverjum hún er ætluð. Efnið er sjálfsagt full harkalegt fyrir yngstu börnin á bænum en gamaldags fyrir unglinga sem hafa alist upp við allt annað andrúm tengdara tölvuleikjum og -brellum en fyrirfinnst í þessari hófsömu æv- intýramynd. Sá sem þessar línur skrifar sá Sindbað sæfara með íslenskri radd- setningu sem er líkt og fyrri dag- inn, snurðulaus, unnin af vönu fag- fólki. Sú enska státar af nokkrum kunnustu röddum kvikmyndaheims- ins. Hvor sem verður fyrir valinu, er útkoman gamaldags, góð og ein- læg fjölskylduskemmtun með andblæ gamla sagnaheimsins í fyr- irrúmi. Sindbað heldur til hafs á ný. Sindbað í Hollívúdd KVIKMYNDIR Háskólabíó, Laugarásbíó, Sam- bíóin Álfabakka og Keflavík og Borgarbíó Akureyri SINDBAÐ SÆFARI /SINBAD: LEGEND OF THE SEVEN SEAS  Leikstjórar: Tim Johnson og Patrick Gil- more. Leikraddir í enskri útgáfu: Brad Pitt, Catherine Zeta-Jones, Joseph Fiennes, Michelle Pfeiffer og Christine Baranski. Íslenskar leikraddir: Atli Rafn Sigurðsson, Elma Lísa Gunnarsdóttir, Selma Björnsdóttir, Valur Freyr Ein- arsson, Ólafur Darri Ólafsson og Þórhall- ur Sigurðsson. 90 mínútur. DreamWorks. Bandaríkin 2003. Sæbjörn Valdimarsson KÍNSKVERSK kona komst á dögunum í heimsmetabók Guinness með því að mynda ein síns liðs lengstu röð af dóm- ínókubbum í Singapúr sem um getur. Það tók Ma Lee Hua, 24 ára, 45 daga, eða 13 klst. á dag, að mynda röð úr dómínókubbum en röðin varð alls 15 km áður en hún féll. Um 100 manns fylgdust með Ma í ráðstefnuhöllinni í Singapúr. Það tók kubbana fimmtán mínútur að falla en þó stóðu sjö þeirra eftir uppréttir. Með afrekinu sló Ma met sem sett var í Þýskalandi 1984 þegar 281.581 dómínó-kubbur var felldur. Lengsta röð dómínókubba sem um getur 303.628 kubbar AP Suður-kóreski sendiherrann í Singapore, Ryu Kwang-sok, setti röðina af stað en kubbarnir voru styrktir af fyrirtæki frá heimalandi hans. Kringlunni - Smáralind Laugavegi 95 - Kringlunni - Smáralind TOFFO ÚLPA 3.690GALLABUXUR VERÐ FRÁ 3.990 AR VÖRUR VIKULEGA AKUREYRI • REYKJAVÍK • KEFLAVÍK

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.