Morgunblaðið - 21.08.2003, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 21.08.2003, Blaðsíða 20
AUSTURLAND 20 FIMMTUDAGUR 21. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ Eigum líka tvo Elnach bíla til ráðstöfunar Húsbílar Umboð á Akureyri Sigurður Valdimarsson Óseyri 5 - Sími 462 2520 Vorum að fá tvo lúxus húsbíla frá Benimar. Einn með öllu Tangarhöfða 1 • 110 Reykjavík • Símar 567 2357 og 893 9957 Á DJÚPAVOGI undirbýr nú fisk- vinnslufyrirtækið Búlandstindur síldarvertíð á fullu stími. Verið er að laga og end- urnýja kælibúnað vinnslunnar, taka krapakerfin í gegn og bæta við ísvélum. Endur- bæturnar eru upp á tugi millj- óna króna og miða, segir Sveinn Ari Guð- jónsson, fram- kvæmdastjóri Búlandstinds, að því að gera góða vöru enn betri. Búlandstindur er í eigu Vísis í Grindavík, en að auki á Vísir helm- ingshlut í vinnslunni Fjölni á Þing- eyri og rúm 60% í Fiskiðjusamlag- inu á Húsavík. Skipafloti fyrirtækisins samanstendur af 7 línuskipum. Fullur snúningur í september Þrátt fyrir auglýst vinnslustopp í vor var unnið í allt sumar því vel fiskaðist hjá trillunum. Þeir sem vildu vinna héldu því áfram en aðrir fengu sér sumarfrí. Sveinn segir þetta hafa komið ágætlega út. „Í byrjun september er svo stefnt á fullan snúning og vonandi fer síldin vel af stað.“ Sveinn segir að í fyrra hafi Bú- landstindur tekið á móti um 8.500 tonnum af síld og 2.300 tonnum af fiski. Hann segir starfsmannafjölda sveiflast töluvert, þannig þurfi um 60 manns í síldina þegar unnið sé allan sólarhringinn en fastur mann- skapur sé í kringum 40. „Í fyrra veltum við um rétt undir milljarði hjá Búlandstindi, en slag- urinn er að ná milljarðinum. Láta eininguna reka sig á svoleiðis pakka.“ Mönnum var ekki rótt Skemmst er að minnast þess að mikill titringur varð þegar Vísir keypti Búlandstind og var mönnum á staðnum ekki rótt fyrr en þeir sáu að byrjað var að byggja við. Þannig þóttust menn merkja að ekki ætti að fara með vinnsluna burt af svæðinu. „Kannski var það eðlilegt að yrðu læti, en það eru nú alltaf einhverjir sem mála þetta heldur svart,“ segir Sveinn. „Þetta var auðvitað töluverð breyting. Við klipptum fyrirtækið í nokkra hluta. Þegar við komum hér var frystitog- ari, frystihús á Breiðdalsvík og hér á Djúpavogi, ásamt bræðslu. Við seldum bræðsluna, frystihúsið á Breiðdalsvík og frystitogarann. Einingin var bara ekki rekstrarlega hagkvæm eins og hún leit út þegar við keyptum þetta og nauðsynlegt að stokka upp spilin. Við höfum um 1.500 ígildi skráð hér á Búlandstind. Vísir veiðir bara sinn kvóta og skilar inn síldarkvót- um á móti. Við höfum verið í að kaupa upp heimildir til að hafa nóg í þessi fjögur hús hjá Vísi. Það var nú hugmyndafræðin í þessum kaup- um.“ Talið berst að bræðslunni á Djúpavogi, en Búlandstindur seldi hana útgerðarmanni í Grindavík og er Olíufélagið nú meirihlutaeigandi. Haft hefur verið í flimtingum að Ol- íufélagið muni fara með bræðsluna burt úr plássinu, en töluverður kvóti er á henni, m.a. um 5% af loðnukvótanum. Sveinn segist ekki hafa neinar áhyggjur af því að bræðslan fari, enda liggi fyrir traustir samningar sem komi í veg fyrir slíkt. Fiskur illa haldinn fyrir norðan Sveinn segir undarleg skilyrði í hafinu um þessar mundir og að hitastigið sé mun hærra en venju- lega. „Menn vilja meina að norsk- íslenska síldin fari að koma hér yfir og kolmunninn komi nær landinu en áður, en ég veit ekkert hvaða áhrif þetta hefur á síldina okkar núna. Fiskurinn hér er ágætlega hald- inn, en það er ekki ný saga að fisk- ur sé illa haldinn norður frá. Við sendum ekki skipin okkar á veiðar norðan við Vestfirðina, úti fyrir öllu Norðurlandi og suður fyrir Langa- nes. Það er til dæmis allt annar fiskur á Hornafjarðarsvæðinu og hér fyrir utan. Okkar skip eru mest þar og úti fyrir Vesturlandinu í ýsuveiði og svo suður í Köntum að taka keilu og löngu og þess háttar.“ Búlandstindur undirbýr síldarvertíð Djúpivogur Sveinn Ari Guðjónsson HALLGRÍMUR Magnússon, heilsu- gæslulæknir á Djúpavogi og Breið- dalsvík, er þekktur fyrir áhuga sinn á náttúrulegum lækningaaðferðum. Hann er jafnframt sérfræðingur í nál- astungum, svæfingum og deyfingum. Súrefni kemur þannig mikið við sér- grein Hallgríms og hefur leitt af sér sérstakan áhuga hans á notkun loft- tegundarinnar ósons til lækninga. Hann hefur á heilsugæslustofum á Djúpavogi og Breiðdalsvík sérstaka ósonklefa fyrir fólk. Höfuðið eitt stendur upp úr Fyrst er getið um óson í lækning- um 1898. Í dag eru til einföld tæki sem taka inn á sig loft og búa til úr því súrefni, O2. Það fer í gegnum rafskaut sem búa til úr því óson, eða O3. Ósonið er leitt inn í stóran lokaðan kassa sem manneskja rúmast ágætlega inni í, en höfuðið eitt stendur út úr. Kassinn er hitaður upp í u.þ.b. 40 gráður og myndast þá mikill raki og ósonið gengur þannig vel inn í húðina og æðakerfið og berst þannig í gegnum líkamann. Þessi meðferð getur haft áhrif á 250 mismunandi sjúkdóma að sögn Hallgríms. Mýmörg tilfelli séu um að börn hafi læknast af eyrnabólg- um með ósonmeðferð. Óson er einnig hægt að gefa í eyra, sprauta í æð, eða setja á afmarkaðan stað á húðinni, raunar er um 24 mis- munandi möguleika að ræða við óson- gjöf. „Líffræðileg virkni ósonsins er sú, að þegar það kemur í snertingu við líffræðilegar himnur brotnar það strax niður og annars vegar verður til súrefni O2 og svo einstakt súrefni,“ segir Hallgrímur þegar hann er spurður um hvað það eiginlega sé sem ósonið geri í líkamanum. „Þeir sem hafa rannsakað þetta hvað mest halda því fram að öll starfsemi líkamans og efnahvörf eigi sér stað fyrir atbeina einstaks súrefnis. Við vitum til dæmis að ósonið hvetur ónæmiskerfið til að vinna betur. Þetta er angi af náttúru- lækningum og var vitað í gamla daga og fram til 1956 þegar súlfalyf og pensilín fóru að koma á markaðinn. Fyrir þann tíma var alltaf litið á alla sjúkdóma á þann máta að þeir væru til vegna þess að líkaminn væri að segja okkur frá að það væri eitthvað vitlaust í kerfinu sem slíku. Það er ekki fyrr en á þessum seinni árum að lyfin fara að koma til sögunnar og við förum að horfa á hvern sjúkdóm fyrir sig og hin mikla sérhæfing í læknis- fræði á sér stað. Því segja náttúru- menn að orsök fyrir öllum sjúkdóm- um sé raunverulega sú sama, að grundvallarmekanisminn í líkaman- um, þ.e.a.s. súrefnisefnaskiptin séu í grundvallaratriðum röng, óhreinindi eða eiturefni safnist í vefi líkamans og síðan er bara spurningin hvernig þetta ójafnvægi birtist í líkamanum.“ Ósonklefarnir vinsælir Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Hallgrímur Magnússon heilsu- gæslulæknir í ósonklefanum. Djúpivogur ÞÆR Jóna Kristín Sigurðardóttir, Berglind Elfa Gunnlaugsdóttir, Arna Einarsdóttir og Claudia Gomez voru að vinna síldarbita í Búlandstindi á dögunum. Þar á bæ eins og annars staðar búa menn sig undir síldarvertíð í byrjun næsta mánaðar. Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Síldin gaumgæfð TILRAUNIR Ósness ehf. á Djúpavogi með þorskeldi hafa enn sem komið er ekki skilað þeim árangri sem vonast var eft- ir. Ósnes er fjölskyldufyrirtæki sem sérhæfir sig í saltfiskflatn- ingu. Í fyrirtækinu vinna að jafn- aði átta manns. 300 tonn voru unnin hjá Ósnesi í fyrra en nú eru komin inn 400 tonn og fer fiskurinn á Spán og Grikkland. Elís Grétarsson er framkvæmda- stjóri og einn þriggja eigenda fyrirtækisins. Hinir tveir eru Tryggvi Gunnlaugsson sem stofn- aði fyrirtækið árið 1996 og Birgir Guðmundsson. Ósnes ehf. er einnig farið að reyna sig í áframeldi á þorski, fékk úthlutað þrjátíu tonnum, en treglega hefur gengið að ná í rétta stærð af fiski. Reynt er að veiða tveggja ára gamlan fisk, u.þ.b. 59 cm langan í áframeldið. „Þorskeldið hjá okkur hefur því miður gengið á afturfótunum frá því að við byrjuðum í maí,“ segir Elís. „Við höfum lítinn fisk fengið kvína og þurft að stríða við bil- anir. Ósnes er með tvær þorsk- eldiskvíar, eina á Fáskrúðsfirði og aðra í Berufirði og þetta er samstarfsverkefni með Skútu- klöpp á Stöðvarfirði og Loðnu- vinnslunni á Fáskrúðsfirði.“ Elís segir Tryggva vera úti að reyna að veiða þorskinn í snur- voð og einn bátur á Stöðvarfirði er að veiða á færi. „Það hefur gengið einna skást hjá honum, en lítið fæst í hvert skipti. Í kvíun- um eru núna rúmt tonn á Stöðv- arfirði og að nálgast svipað magn hér á Berufirðinum, þar sem eru að öllu jöfnu mjög góð skilyrði til kvíaeldis.“ Fiskurinn gengur öðruvísi „Þetta er búið að vera ansi sér- stakt ár,“ segir Elís, „því lítið æti er handa fiskinum og hann er að ganga eitthvað öðruvísi en hefur verið undanfarin ár. Þetta segja gamlir sjómenn. Þeir líkja þessu einna helst við að ferlið í sjónum sé mánuði á undan. Sjórinn er hlýrri og fer alveg upp í tólf gráður, en æskilegt að hann sé ekki mikið hlýrri en sjö gráður. Auðvitað hefur það líka áhrif á ætið og annað. En við ætlum nú að þrjóskast við í þorskeldinu og sjáum til eitthvað áfram,“ sagði Elís í Ós- nesi að lokum. Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Elís Grétarsson, framkvæmdastjóri Ósness ehf., ásamt starfsfólki. Fyrirtækið fletur saltfisk og er að reyna fyrir sér í áframeldi á þorski. Þorskeldið hefur ekki gengið nægilega vel Djúpivogur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.