Morgunblaðið - 21.08.2003, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 21.08.2003, Blaðsíða 21
LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. ÁGÚST 2003 21 fyrir fjölskylduna KRINGLAN  SMÁRALIND  AKUREYRI  EGILSSTAÐIR HALLÓ KRAK KAR - ÉG H EITI BOMM SI Sportskór frá kr. 2.495 Kuldaskór frá kr. 2.995 Moonboots frá kr. 2.995 Stígvél frá kr. 4.995 HALLÓ KRAKKAR NÚ ER MIKIÐ KOMIÐ AF SKÓLASKÓM Á ALLA KRAKKA.. OG BOMMSI HEFUR ÁKVEÐIÐ AÐ STYRKJA BARNASPÍTALA HRINGSINS MEÐ 100 KRÓNUM AF HVERJU SELDU BARNASKÓ PARI Í ALLAN VETUR! KOMIÐ OG KÍKIÐ Á ÚRVALIÐ .... Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Heimsferðir bjóða nú síðustu sætin til Verona þann 17. september, einnar fegurstu borgar Ítalíu á hreint ótrúlegum kjörum. Hér kynnist þú fegurð og sögu borgarinnar með íslenskum fararstjórum Heimsferða, skoðar svalir Júlíu, Arenuna, verslar í frægustu búðum Ítalíu, eyðir deginum við Gardavatn eða í Feneyjum. Tryggðu þér síðustu sætin í haust. Að auki getur þú valið um úrval hótela í hjarta Verona og bílaleigubíla frá Avis á einstaklega hagstæðu verði. Munið Mastercard ferðaávísunina Helgarferð til Verona frá kr. 29.950 17. september Verð kr. 29.950 Flug og skattar. Úrval hótela í boði. Lægsta verð á bílaleigubílum. Síðustu sætin í haust „JUST do it, do it yourself“ er heiti á sýningu sem Röðull Reyr Kára- son hélt á dögunum í Galleríi 10 á Húsavík. Sýningin vakti verðskuld- aða athygli þeirra fjölmörgu sem lögðu leið sína á hana, en flest verka hennar hafa tilvitnun í eitt af aðal- áhugamálum listamannsins, knatt- spyrnu. Röðull Reyr Kárason er upp al- inn á Húsavík og stundar nú nám við Listaháskóla Íslands, þar sem hann er hefja þriðja og síðasta árið. Námið er reyndar með smáútúrdúr því hann er á förum til Bremen í Þýskalandi þar sem hann tekur eina önn sem skiptinemi við listahá- skóla þar. Sýning Röðuls var sú síðasta sem sett var upp í Galleríi 10 á þessu sumri, en eigandi þess, Sunna Guð- mundsdóttir, heldur nú til Reykja- víkur þar sem hún nemur við Listaháskóla Íslands. Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Hér er eitt verka Röðuls á sýningunni Just do it, do it yourself. Röðull Reyr sýndi í Galleríi 10 Húsavík GÆSIRNAR á Blönduósi hafa haft það gott í sumar og hefur bærinn og íbúar hans sýnt þessum fuglum kærleik og umburðarlyndi þótt þeir fari ekki eftir öllum reglum samfélagsins. Myndin var tekin daginn áður en landslög hættu að vernda gæsirnar því að gæsaveiðitíminn er genginn í garð. Það gæti þó orðið þeim til lengingar lífs að halda sig innan bæjarmarka því þar er meðferð skotvopna óheimil. Nokkrar gæsir sem dvelja hálft árið á Blönduósi eru merktar bæði á fótum og einnig með hólk um háls sem hef- ur að geyma þrjá bókstafi sem auðvelt er að lesa af úr fjarlægð með kíki. Þeir sem sem verða svo ólánsamir að deyða slíkan fugl ættu að skila merkjum til Nátt- úrufræðistofnunar því saga er nánast á bak við hvern merktan fugl, saga sem segir heilmikið um ferðir þeirra milli Íslands og Bretlandseyja og með því að fá endurheimt merki af gæs bætist andlátsfregnin í ævisöguna. Friðartími gæsarinnar á enda Blönduós ERLENDUR ferðamaður á bíla- leigubíl var stöðvaður á 145 kílómetra hraða til móts við Strönd á Suður- landsvegi á Rangárvöllum, milli Hellu og Hvolsvallar, eftir hádegi í fyrra- dag. Lögreglan á Hvolsvelli stöðvaði ökumanninn og var hann látinn greiða 30 þúsund krónur í sekt, en hann fékk að fara að greiðslu lokinni. 90 kílómetra hámarkshraði er þar sem ökumaðurinn var stöðvaður. Stöðvaður á 145 km hraða Hella Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500. www.flis.is  netfang: flis@flis.is lím og fúguefni Síðumúla 34 - sími 568 6076 Antik er fjárfesting Antik er lífsstíll

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.