Morgunblaðið - 21.08.2003, Síða 11

Morgunblaðið - 21.08.2003, Síða 11
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. ÁGÚST 2003 11 RÚMLEGA 600 manns hafa alla þessa viku tekið þátt í kafbátaleit- aræfingu Varnarliðsins á Keflavík- urflugvelli, sem lýkur á morgun. Alex Valentin, liðsforingi í banda- ríska flughernum, segir kafbátaleit mikilvægan þátt í nútímahernaði þar sem kafbátum sem sigli um höfin fjölgi stöðugt. Tækni sem notuð er til að fylgjast með ferðum kafbáta hefur ekki fleygt mikið fram síðustu árin en að- ferðirnar við að finna þá hefur þess í stað þróast hratt, að sögn Valentin. Þar af leiðandi þurfi stöðugt að þjálfa þann hluta liðsaflans sem hafi það hlutverk að fylgjast með og finna kafbáta á opnum hafsvæðum. Einn liður í þeirri þjálfun er samvinna með öðrum ríkjum Atlantshafs- bandalagsins (NATO) þar sem færni og samhæfing herdeildanna er æfð. Allt skipulag og stjórnun kafbáta- leitaræfingarinnar nú er í höndum John J. Waickwicz, yfirmanns bandaríska flughersins hér á landi. Fimm P-3 kafbátarleitarvélar Bandaríkjahers taka þátt í æfing- unni, Kanada, Noregur, Holland, Bretland og Frakkland leggja til eina leitarvél hvert auk þess sem dönsk freigáta og franskur kafbátur komu til landsins af þessu tilefni. Flugvélarnar skjóta hlustunar- duflum í sjóinn þar sem grunur leik- ur á að kafbátur sé á siglingu til að geta staðsett hann nákvæmlega. Sú aðferð hefur verið notuð lengi en Valentin segir erfiðara að finna kaf- bátana en áður þar sem þeir eru orðnir hljóðlátari. Ákvörðun um hvar þessum duflum er skotið í hafið fer eftir mörgum samverkandi þáttum að sögn liðsforingjans. Æfingin fer fram á skilgreindu hafsvæði rúmlega 160 kílómetra suð- ur af Íslandi. Þar hafa flugvélar það verkefni að finna franska kafbátinn við tilbúnar aðstæður, sem hafa orðið erfiðari eftir því sem liðið hefur á æf- inguna. Valentin, sem sjálfur hefur það hlutverk að finna kafbáta í einni af P-3 Varnarliðsins, segir Frakkana mjög færa í að leynast í djúpinu. Aðspurður segir hann að um 40 þjóðir eigi kafbáta sem notaðir eru í ýmsum tilgangi. Þar sem þetta séu dýr tæki hafi mörg ríki fundið þeim fleiri verkefni á hafi úti en áður. Flest þeirra eiga vinsamleg sam- skipti við Bandaríkin og bandamenn þeirra en samt þarf herinn að sögn Valentin að vera við öllu búinn þar sem kafbátar geta verið skæðir á sjó. Bæði geti þeir grandað herskipum og eins ógnað öðrum skipaferðum. Því þurfi að kortleggja vel ferðir allra kafbáta eftir því sem kostur sé. Alex Valentin segir Ísland henta mjög vel til svona æfinga. Nauðsyn- legt er fyrir flugmenn að þjálfa sam- skipti við flugumferðarstjóra utan heimalandsins, veður hér er fjöl- breytt og miðlun reynslu milli ólíkra herja mikilvæg. Þetta er í níunda skiptið sem kaf- bátaleitaræfing, með þátttöku bandalagsþjóða, er haldin. Sjö ríki NATO taka þátt í kafbátaleitaræfingu Varnarliðsins Leita að frönskum kaf- báti suður af landinu Morgunblaðið/Arnaldur P-3C Orion-kafbátaleitarvél Varnarliðsins ræsir hreyfla sína og undirbýr flugtak í gær. Um borð í slíkum vélum er 11 manna áhöfn sem hefur það hlutverk að leita uppi kafbáta á Norður-Atlantshafi. RÍFANDI veiði er enn í Veiðivötn- um á Landmannaafrétti þó að veð- urfar hafi á stundum sett strik í reikninginn. Athyglisverð veiði hef- ur einnig náðst úr vötnum sunnan Tungnaár og af og til hafa enn- fremur borist fregnir af stórveiði manna á Arnarvatnsheiði. Alls höfðu veiðst 9.809 silungar í Veiðivötnum um miðja síðustu viku, skv. fréttum frá Veiðivatnavefnum, þar af 8.177 urriðar og 1.632 bleikj- ur. Litlisjór er langsamlega gjöf- ulasta vatnið, með 3.195 urriða, en athygli vekur að þrjú þeirra vatna sem eru meðal bestu vatnanna eru með mikla bleikjuveiði, t.d. er Skyggnisvatn með 992 fiska, þar af 836 bleikjur, Langavatn með 451 fisk, þar af 361 bleikju og Nýjavatn með 718 fiska, þar af 249 bleikjur. Af öðrum gjöfulum vötnum má nefna Stóra Fossvatn með 757 urr- iða, Snjóölduvatn með 522 fiska, þar af 17 bleikjur og Stóra Skála- vatn með 514 urriða. Mikið er af stórfiski í vötnunum, 9,6 punda hef- ur veiðst stærst í Hraunvötnum, 9,5 punda í Litlasjó, 9,4 punda í Litla Fossvatni, 9 punda úr Ónefndavatni og 8,5 punda úr Litla Breiðavatni. Sunnan Tungnaár Frostastaðavatn er áberandi gjöfulasta vatnið sunnan Tungnaár og hefur gefið 659 silunga, en síðan koma Löðmundarvatn og Ljótipoll- ur með 236 og 115 stykki hvort. Veiði hefur einnig fengist úr Blautaveri, Dómadalsvatni, Kíl- ingavötnum og Lifrarfjallavatni. Stærstu fiskarnir eru 4-5 punda. Skot á Arnarvatnsheiði Það hafa verið góð skot á Arn- arvatnsheiði, en nokkuð hefur dregið úr umferð þangað síðustu vikurnar. Morgunblaðið frétti þó af fjórum sem fóru saman og fengu 140 silunga, mest bleikju á bilinu 1-2 pund. Var hún feit og vel haldin og mest af henni dregið úr Arn- arvatni litla, Veiðitjörn og Veiði- tjarnarlæk. Einn í hópnum fékk líka mjög góða fiska í Arfavatns- læk. Annar hópur, skipaður þrem- ur köppum var með 90 fiska og var mest í Arnarvatni stóra og allra efstu veiðistöðum Austurár. Hér var einnig mest um 1-2 punda bleikju að ræða, en einn 5 punda urriði ku hafa slæðst með. ERU ÞEIR AÐ FÁ’ANN? Enn mok á fjöllum Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson Dröfn Magnúsdóttir með hluta af afla sínum í Veiðivötnum. BÁTUR Kjartans sem hlotið hef- ur nafnið Rödd hjartans, er 4,75 m á lengd og 1,5 m á breidd. Þyngd á tómum bátnum er 200 kg en 450 kg á honum fulllest- uðum. Skrokkur bátsins kemur frá Finnlandi og er tvöfaldur plastbátur. Yfirbyggingin og vatnsheld skilrúm eru hönnuð af bátasmiðjunni Knerri ehf. á Akranesi og Kjartani sjálfum. Knörr ehf. hefur séð um smíðar á yfirbyggingu bátsins en lokafrá- gangur er á hendi Kjartans. Yf- irbyggingin ásamt kjölfestu kemur bátnum sjálfkrafa á rétt- an kjöl þegar honum hvolfir. Svefnaðstaða er í aftari yf- irbyggingu bátsins. Þar verða helstu fjarskiptatæki til staðar ásamt hluta vista og neyðarbún- aðar. Siglinga- og fjarskiptatæki verða bæði innan- og utandyra. Fjögurra manna gúmbjörg- unarbátur verður um borð ásamt björgunarflotgalla og neyðar- baujum. Búnaður verður um borð sem gerir mögulegt að fylgjast með ferðum bátsins allan sólarhringinn. Ræðari verður alltaf klæddur flotbúnaði og tengdur líflínum um borð. Rödd hjartans „ÞETTA er búið að vera í kollinum á mér fyrir alvöru í svona þrjú ár,“ seg- ir Kjartan Hauksson, 41 árs, sem ætlar í dag að leggja af stað í ferða- lag umhverfis landið. Þetta er hins vegar ekkert venjulegt ferðalag, því Kjartan mun róa á árabát réttsælis í kringum landið. Kjartan leggur af stað frá Reykjavíkurhöfn í dag kl. 15 og munu Þórólfur Árnason, borg- arstjóri og Guðríður Ólafsdóttir, for- maður Hjálparliðasjóðs Sjálfs- bjargar, leysa landfestar. Kjartan er ekki óvanur að takast á við Ægi, hann eignaðist fyrstu trilluna 15 ára gamall og hefur átt og gert út báta meira og minna síðan. Kjartan áætlar að ferðalagið taki um sex vikur. Hann ætlar að sofa í bátnum, róa að lágmarki 14 tíma á dag og aðeins fara í land til að sækja vistir. Markmið ferðarinnar er að vekja athygli almennings á ólíkum möguleikum fatlaðara og ófatlaðara til ferðalaga. Hjálparsjóður Sjálfs- bjargar, 1sf var stofnaður árið 1997 með það að markmiði að auðvelda hreyfihömluðum að ferðast. Á heima- síðu Sjálfsbjargar landssambands fatlaðara, www.sjalfsbjorg.is, verður að finna siglingakort þar sem hægt verður að fylgjast með róðri Kjart- ans og dagbók sem flytur reglulegar fréttir af ferð hans. Vanur ræðari Kjartan verður einn í bátnum en hann segist vanur ræðari og vel lík- amlega undirbúinn fyrir ferðina. „Þetta verður erfitt, ég veit það,“ segir Kjartan og telur veðrið hugsan- lega geta sett strik í reikninginn og vera stærsta óvissuþáttinn. „Ég hefði kosið að vera lagður af stað fyr- ir nokkru. Þannig að þetta verður erfitt, þetta verður mjög erfitt. Það verður mikið álag að fara hvergi í land og róa svona stíft marga klukku- tíma á sólarhring. Það er vonandi að skrokkurinn þoli þetta.“ Til að undirbúa sig fyrir ferðina hefur Kjartan synt mikið, stundað þrekæfingar af kappi og róið bátnum oft síðustu daga. Hann hlær létt þegar hann er spurður að því hvort hann sé ekki hræddur um að ferðin verði ein- manaleg. „Þetta verður það nátt- úrulega. Það er hluti af rauninni líka. Þetta er enginn lúxus. Maður verður aleinn og hefur engan annan til að treysta á en sjálfan sig. Jú, þetta gæti orðið einmanalegt.“ Kjartan vildi kanna hvort hann gæti ekki látið eitthvað gott af sér leiða með ferð sinni og hafði því sam- band við Sjálfsbjörg, í tilefni Evrópu- árs fatlaðra, og tók sambandið boði hans fagnandi. Hægt verður að fylgjast með ferð- um Kjartans, bæði á korti og í dag- bók, á heimasíðu Sjálfsbjargar, sjalfsbjorg.is. Ætlar að róa á árabát umhverfis landið á sex vikum „Einmana- leikinn hluti af þrek- rauninni“ Kjartan ætlar að leggja af stað í róðurinn í dag frá Reykjavíkurhöfn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.