Morgunblaðið - 21.08.2003, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 21.08.2003, Blaðsíða 30
MINNINGAR 30 FIMMTUDAGUR 21. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ M ér líður stundum eins og ég geti breytt mér í aðra menn og hluti, sett mig í spor þeirra í nútíð og framtíð, mátað mig án fyrirvara í allskonar að- stæður eða tækifæri sem verða á vegi mínum. Sumir myndu kalla þetta að vera með fjörugt ímyndunarafl, aðrir segðu mig áhrifagjarnan, enn aðrir teldu þetta skort á ein- beitingu, þetta bæri vott um aðlög- unarhæfni, mikilmennskubrjál- æði, eða geðveiki og líklega dytti einhverjum í hug að ég væri hald- inn meðvirkni á háu stigi. Tökum kvikmyndir sem dæmi. Ég sit í kvikmynda- húsi með popp og Yankee í kjöltunni. Smám saman og eftir því sem sög- unni vindur fram hef ég lagað mig að karlkynsaðalpersónunni og á leiðinni út úr bíóhúsinu finnst mér ég vera orðinn hún. Þegar ég horfði á Matrix varð ég Neo hinn ósigrandi og leið eins og ég gæti bjargað heiminum frá glötun. Þeg- ar ég gekk út af Hulk leið mér eins og ég gæti skoppað um allar jarðir og heima við rumdi ég og spennti vöðvana lengi á eftir. Þessi merki- legi eiginleiki minn hefur gengið svo langt að mig langaði að verða útlifaður sprautufíkill eftir að hafa horft á Ewan McGregor í Trains- potting, fannst það bara helv. töff. Einn af ókostunum við þetta er að ég á sérlega erfitt með að horfa á pyntingaratriði í bíómyndum og þar af leiðandi eru gloppur í kvik- myndaminni mínu, t.d. vantar mig ákveðin atriði í Resorvoir Dogs og Silence of the Lambs sem dæmi. Doddi, segir fólk við mig, þetta er bara leikið. Þetta er ekki alvöru. Ég veit það, svara ég, ég bara get ekki að þessu gert, og gægist síðan upp fyrir stólbakið eða innan úr eldhúsi (ef ég er að horfa á víd- eó) til að athuga hvort að atriðinu sé ekki að fara að ljúka. Ég veit til dæmis ekki ennþá hvernig Braveheart endaði. Ég horfði spenntur á alla mynd- ina, fílaði mig eins og sjálfur Will- iam Wallace í baráttunni gegn Englendingum, síðhærður, blár í framan og kolbrjálaður. Ég var hann í fangelsinu þegar kærastan ætlaði að gefa honum sljóvgandi pillu til að deyfa sársaukann af væntanlegum pyntingum. Ég var Wallace þegar hann gekk út að píningarbekknum og ég var áfram hann þegar óvinirnir strengdu hann upp á krossinn. Þegar þarna var komið sögu sá ég í hvað stefndi. Meira veit ég ekki um Brave- heart. Ég geri ráð fyrir því að Wallace hafi verið slitinn í sundur, enda hefði aldrei verið gerð um hann bíómynd annars. Ég hef oft verið að því kominn að spyrja vini mína að því hvernig myndin endaði. Einu sinni gerði ég það mjög óformlega, næstum því í framhjáhlaupi; já hvernig var þetta þarna í Braveheart, þegar Englendingar drápu hann Wallace þarna…Jú hann dó, fyrir málstað- inn og eitthvað. Þá tók þessi við- mælandi minn þetta ekki meira nærri sér en svo að hann mundi varla hvernig Wallace var tekinn af lífi, en á meðan er ég ein- hvernveginn allur að slitna í sund- ur. Hvíl í friði William Wallace, von- andi í heilu lagi. En svona er þetta. Þetta heilkenni mitt er ekki bundið við bíómyndir eingöngu. Það er bundið við allt sem ég geri. Þegar ég geng á grasinu vona ég að ég hafi ekki valdið því var- anlegum skaða. Þegar ég set bíl- inn upp í 4000 snúningana held ég í alvöru að ég sé að pína hann áfram. Ég tala nú ekki um þegar mig grunar að hann sé að verða ol- íulaus. Þá verð ég ofsalega þyrstur og ek að lokum inn á bensínstöð. Er nóg olía á honum? spyr ég bensínafgreiðslumanninn. Hef ég ofhitað hann? Afgreiðslumaðurin tékkar á olíunni og segir að það sé nóg eftir. „Bíll er dauður hlutur,“ segir hann. Ég veit, svara ég, ég get ekki að þessu gert. En þó að þessi eiginleiki geti á stundum angrað mann eða heft framkvæmdagleði manns svona í dagsins önn, er af honum eitthvað gagn líka. Það hlýtur að vera gott að geta t.d. mátað sig í líf annarra manna til dæmis þegar maður er að velta fyrir sér hinum og þessum störf- um þegar maður skoðar atvinnu- auglýsingarnar, til að sjá hvert maður ætlar í framtíðinni. Það kallast að lifa lífinu fyrirfram og ákveða svo eftir það hvort að mað- ur á að feta þessa brautina eða hina. Fá nokkurskonar forsýningu á lífið. Í gær var til dæmis auglýst í Morgunblaðinu að fasanabúið á Tókastöðum væri til sölu. Doddi fasanabóndi, hugsaði ég sam- stundis og ég sá auglýsinguna. Það hljómar svo sannarlega ekki illa. Og takið eftir að á andartakinu sem ég sá auglýsinguna gleymdi ég umsvifalaust þeirri staðreynd að sérmenntun mín og hæfileikar eru ekki þeir heppilegustu fyrir fasanaræktun, hvað þá á Tóka- stöðum á Austur-Héraði. Ég sá mig fyrir mér með strá- hatt á höfði og korn í skjóðu hang- andi um axlirnar, dreifandi því til fasananna minna. Eins og bóndinn í Búnaðarbanka lógóinu – nema með hatt. Ég sá mig fyrir mér vinna fasanaræktun brautargengi hér á landi, stofna landssamtök fasanabænda, komast í heims- samtökin og hefja alþjóða dreif- ingu á íslensku fasanakjöti. Ég myndi setja þá í dósir, reykja þá, gera úr þeim steikur og buff og selja síðan um allan heim. Skrá fyrirtækið síðan á NYSE og græða á tá og fingri. Og ævikvöld- ið á Tókatöðum yrði ekki amalegt. Ég úti á verönd, sólin að setjast, barnabörnin skoppandi í kring eins og skopparaboltar, og mín yrði minnst sem mannsins með fasanana. Og þarna vakna ég og verð aftur ég sjálfur, hver sem það var nú aftur. Doddi á Tóka- stöðum Ég sá mig fyrir mér með stráhatt á höfði og korn í skjóðu hangandi um axlirnar, dreifandi því til fasananna minna. VIÐHORF Eftir Þórodd Bjarnason tobj@mbl.is ✝ Björn Kjartans-son fæddist í Kjartanshúsi á Stokkseyri 29. sept- ember 1911. Hann lést á Landspítalan- um Hringbraut 12. ágúst síðastliðinn. Foreldrar hans voru Kjartan Guðmunds- son, f. 16. júní 1870, d. 26. okt. 1942, og kona hans Pálína Björnsdóttir, f. 4. sept. 1879, d. 12. jan. 1946. Systkini Björns voru: Björn Kristinn, Guðmundur Marel, Jón, Magnús Ingibergur, Ársæll, Þrúður, Guð- munda, Guðjón, Kjartan Páll, Helgi, Þuríður Ásta, Ágúst og Gunnar, þau eru öll látin. Björn kvæntist 2. nóv. 1940 eft- irlifandi eiginkonu sinni Elínu Sigurðardóttur, f. 11. mars 1917. Foreldrar hennar voru Sigurður Bjarnason, f. 28. okt. 1884, d. 12. apríl 1959, og Sigríður Sigurðar- dóttir, f. 27. sept. 1891, d. 22. nóv. 1981. Börn þeirra eru: 1) Sóldís, f. 22. júní 1944, gift Svavari Tjörva- syni, börn þeirra eru a) Hrafnhild- ur, gift Guðmundi Óskarssyni og eiga þau Aron Geir og Tinnu Björk, b) Kjartan, kvæntur Mai- Lill Pedersen, dóttir þeirra er El- ín Rahel, c) María, gift Vilhjálmi Kjartanssyni, dætur þeirra eru Fanney Halla og Védís, og d) Bryndís. 2) Sigurður Páll, f. 7. jan. 1946, kvæntur Halldóru Guð- mundsdóttur, börn þeirra eru a) Elín, í sambúð með Alfreð Halldórssyni, b) Hrönn, gift Ólafi Jens Daðasyni og eiga þau Sigurð Pál og Helenu, c) Brynj- ar, í sambúð með Guðrúnu Sjöfn Ax- elsdóttur, d) Birgir, í sambúð með Berg- lindi Höllu Jónsdótt- ur og eiga þau Láru Björk, og e) Gísli Páll, kærasta hans er Sara Lovísa Hall- dórsdóttir. 3) Björn, f. 12. júní 1952, kvæntur Heiðrúnu Jóhanns- dóttur, börn þeirra eru Sandra Björk, Björn Freyr og Ellen Dag- mar. Björn og Elín ólu upp bróð- urson Björns, Rúnar Ágústsson, f. 15. sept. 1938, börn hans eru a) El- ín Þóra, gift Erni Pálssyni og eiga þau Sigurð Rúnar, Jón Pál og Örn Inga, og b) Björn Rúnar, sambýlis- kona hans er Sólveig Anna Ein- arsdóttir og eiga þau Björn. Eig- inkona Rúnars er Sveindís Helgadóttir. Björn stundaði sjómennsku og önnur verkamannastörf þar til hann réð sig í Steiniðjuna sem síð- ar fékk nafnið Steinsmiðja S. Helgason en þar starfaði hann í 40 ár eða fram til ársins 1990, þá orð- inn 79 ára gamall. Útför Björns verður gerð frá Fríkirkjunni í Reykjavík í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Í dag kveðjum við hann afa og það er söknuður og margar fallegar minningar sem koma upp í huga okk- ar. Þegar við bjuggum á Hvamms- tanga var alltaf mikil eftirvænting í hjörtum okkar þegar von var á afa og ömmu í heimsókn. Við biðum úti í glugga eftir að sjá þau koma og alltaf komu þau færandi hendi. Ekki var eftirvæntingin minni þegar við fórum í heimsókn til þeirra til Reykjavíkur. Spenningurinn smá jókst eftir því sem leið á ferðina og þegar komið var í Tíðaskarð í Hvalfirðinum sást loks- ins til Reykjavíkur og fyrir endann á löngu ferðalagi. Alltaf tóku afi og amma vel á móti okkur á tröppunum á Langholtsveginum. Þegar kom svo að því að fara aftur heim þá kvöddu afi og amma á tröppunum á Lang- holtsveginum þar sem þau veifuðu okkur í sífellu þar til bíllinn var kom- inn í hvarf. Eftir að við fluttum til Reykjavíkur breyttist þetta, en alltaf var jafn notalegt að koma til afa og ömmu. Afi hafði ávallt mikla ánægju af því að vera afi sem lýsti sér vel í samskiptum við okkur börnin. Hann var ávallt blíður og gefandi í viðmóti við okkur. Megnið af sinni ævi hafði afi aldrei ekið bíl. En þegar hann var að verða 67 ára tók hann upp á því að taka bíl- próf og keypti nokkuð flottan Skoda. Þegar farið var í bílferðir með afa og ömmu var alltaf boðið upp á brjóst- sykur sem við kölluðum „Skoda- mola“. Seinna þegar afi var hættur að keyra var „Skoda-molinn“ samt áfram boðinn. Afi var mikill söng- maður, á sínum yngri árum með þátt- töku í kórum, en við minnumst hans sérstaklega syngjandi við flest sem hann tók sér fyrir hendur hvort sem það var uppvaskið, garðvinnan eða eitthvað annað.Í seinni tíð minnumst við hans sitjandi á gólfinu, syngjandi að leik við barnabarnabörnin. Afi skilur eftir sig margar yndis- legar minningar, hann tók alltaf á móti okkur með þremur kossum og kvaddi á sama hátt. Nú kveðjum við afa okkar með þremur kossum og þökkum fyrir allt. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Elsku amma, hugur okkar er hjá þér. Elín, Hrönn, Birgir, Brynjar og Gísli Páll. Það er afskaplega sárt að þú skulir vera búinn að kveðja þetta líf, elsku afi. Í hjarta okkar allra sem þekktum þig hvílir mikill söknuður og sorg og þá sérstaklega hjá henni ömmu sem ávallt reyndist þér með eindæmum trygg og trú. Hún var þér til halds og trausts og studdi við bak þér allt fram til lokadags. Þegar ég hugsa um þær stundir sem ég og þú áttum saman rennur fyrst upp í huga mér göngutúrarnir okkar sem áttu sér stað á mínum yngri árum. Þegar ég heimsótti ykk- ur ömmu bað ég þig oft um að fara með mér í göngutúr um Langholts- veginn þar sem þið bjugguð svo lengi og undantekningarlaust bað ég þig um að sýna mér stóru blokkirnar í Austurbrún. Fátt fannst mér jafn gaman en að fara með þér og skoða þessar stóru blokkir sem alla tíð síð- an þá hafa minnt mig á þig og göngu- túrana okkar. Alltaf varstu jafn já- kvæður og aldrei neitaðirðu mér um þessa labbitúra sem fyrir mér voru ævintýri líkastir enda var ég aðeins fimm ára gömul og trúi ég því í dag að þú sjálfur hafir einnig haft gaman af þessum ferðum okkar, afi minn. Þegar veður var gott varstu ekki lengi að taka gömlu góðu róluna þér í hönd og hengja hana upp á þvotta- staurinn í garðinum ykkar svo að við systkinin gætum leikið okkur með hana. Ég minnist þess einnig að þeg- ar ég heimsótti ykkur ömmu á Lang- holtsveginn færðir þú mér oft liti og litabók eða okkur systkinum Andr- ésblöð til lestrar. Mér fannst líka fátt skemmtilegra en þegar þú spilaðir við mig á spil enda voru fáir aðrir en þú sem ég spilaði við á mínum yngri árum. Þú mátt svo sannarlega eiga það, afi minn, að þú varst ávallt ein- staklega ljúfur og góður við okkur systkinin hvað sem þú tókst þér fyrir hendur með okkur, hvort sem hét að spila, sýna okkur myndaalbúm eða fara með okkur í göngutúra. Þú og amma komuð alltaf í afmælisveislur okkar systkina þegar við vorum yngri og hafa fáir gefið okkur jafn veglegar jóla- og afmælisgjafir sem þið. Mér finnst afskaplega ljúft að hugsa til þess að þann dag sem þú kvaddir þetta líf fór amma með for- eldrum mínum og systkinum í hús eitt niðri í bæ þar sem nú er meðal annars staðsett lítið kaffihús. Í þessu húsi kynntust þið amma og eydduð saman ykkar fyrstu árum sem ábyggilega hafa verið ykkur mjög kær. Það hefur vonandi verið ömmu mjög kært og þýðingarmikið að heimsækja einmitt þennan stað á þessum örlagaríka degi þínum. Þó svo að þín síðustu ár hafi ábyggilega reynst þér erfið og heils- an farin að láta til sín segja, léstu aldrei bug á sjá. Þú varst með ein- dæmum sterkur og ákveðinn og allt- af virtist hugsun þín jafn skýr og skörp þrátt fyrir háan aldur. Þú gerðir þér alltaf grein fyrir þeim hlutum sem fram fóru í kringum þig og í mínum augum varstu sönn hetja allt fram til dauðadags. Á þennan hátt upplifði ég þig, afi minn. Nú kveðjum við systkinin þig með söknuð í hjarta og eftir lifir eilíf minning um einstaklega ljúfan og góðan mann sem reyndist okkur ávallt svo vel, hann afa. En svo hef ég hlerað og haft fyrir satt, þá hríðin tók að þér að sveigja og feigðin að hælum þér helskóna batt, sem hetja þú kunnir að deyja. (Theodóra Thoroddsen.) Sandra Björk, Björn Freyr og Ellen Dagmar. Amma og afi, órofa heild á Lang- holtsvegi 6. Ekkert gat raskað þeim kletti sem amma og afi mynduðu saman. Nú hefur afi lokið sinni lífs- göngu og horfið brott úr þessum heimi. Það var oft líf og fjör á Lang- holtsveginum enda urðu barnabörnin mörg. Úr kistu minninganna er margt að sækja, mörg atvik með afa og ömmu og ættingjum. Töfraveröld afa var líka niðri í kjallara þar sem hann geymdi verkfærin sín, allt var á sínum stað og hafði sinn ákveðna til- gang. Afi hafði byggt húsið sjálfur og þau ræktað lóðina saman af mynd- arskap. Maður var alltaf velkominn í faðm afa, það var alltaf tími fyrir börnin enda sagði amma það oft að hann hefði nú alltaf verið hjálpsamur með þeirra börn. Og það var eins og maður gæti fundið ástina á milli þeirra, séð hana og jafnvel snert. „Já, Ella mín,“ sagði afi við ömmu og orðin óma innra með manni. Afi var söngmaður, hann kunni mikið af lögum og var oft að syngja þannig að söngur afa meitl- aðist inn í barnsvitundina. Sú stund er afi söng fyrir mín börn var mér mikils virði. Afi bar velferð afkom- enda sinna fyrir brjósti, alla tíð hafði ég stuðning hans í því sem ég tók mér fyrir hendur, hvort sem það var húsbygging eða vetrardvöl á Hvera- völlum. Í einu og öllu studdi hann mig og barnabörn sín út á lífsins veg og var tilbúinn að grípa okkur ef við myndum misstíga okkur. Ást og um- hyggja afa fyrir sínu fólki var ómet- anleg. Já, það var margt sem hann afi bar með sér í þennan heim, gaf og kenndi. Það er nefnilega þannig, hvað sem heimsins prjáli, titlatogi og mannanna verkum líður, þá er það þinn innri maður sem uppi stendur. Mikið er ég þakklát því nesti sem hann afi minn lagði til með mér, kær- leikann vináttuna, ástina, virðinguna, stoltið, festuna og væntumþykjuna. Hann afi var einstakur maður. Guð gefi ömmu styrk og kærleik á þess- um erfiða tíma. Guð blessi þig, afi. Takk fyrir sam- fylgdina. María Svavarsdóttir. BJÖRN KJARTANSSON Sími 562 0200 Erfisdrykkjur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.