Morgunblaðið - 21.08.2003, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 21.08.2003, Blaðsíða 33
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. ÁGÚST 2003 33 Elskulegur faðir minn, tengdafaðir og afi, GUTTORMUR SIGURBJÖRNSSON fyrrverandi forstjóri, lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð, Kópavogi, mánudaginn 11. ágúst. Útförin fer fram frá Digraneskirkju föstudaginn 22. ágúst kl. 13.30. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Sunnuhlíðarsamtökin eða önnur líknarfélög. Ingvi Kristján Guttormsson, Herdís Þórisdóttir, Guttormur Arnar Ingvason, Eva Írena Ingvadóttir, Áki Elí Ingvason, Hilmir Már Ingvason. Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, KRISTJÁN MAGNÚS ÞÓR JÓHANNESSON, Hjallabraut 33, Hafnarfirði, áður til heimilis í Hellisgötu 7, Hafnarfirði, lést á St. Jósefsspítala sunnudaginn 17. ágúst. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði föstudaginn 22. ágúst kl. 15.00. Anna M. Þorvaldsdóttir, Kristjana A. Kristjánsdóttir, Davíð I. Pétursson, Þorvaldur Kristjánsson, Anna Rut Antonsdóttir, Guðrún Kristjánsdóttir, Jóhannes Kristjánsson, Guðrún Bjarnadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, INGA ANNA GUNNARSDÓTTIR, Arnarhrauni 18, Hafnarfirði, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstu- daginn 22. ágúst kl. 10.30. Benedikt Guðmundsson og aðrir aðstandendur. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐMUNDUR ÓLAFUR BÆRINGSSON, Höfðagötu 17, Stykkishólmi, sem lést mánudaginn 11. ágúst, verður jarð- sunginn frá Stykkishólmskirkju laugardaginn 23. ágúst kl. 14.00. Kristbjörg Hermannsdóttir, Hermann Guðmundsson, Sigurlína Sigurbjörnsdóttir Bæring Jón Guðmundsson, Jóna Gréta Magnúsdóttir, Sigurþór Guðmundsson, Sigrún Hrönn Þorvarðardóttir, Kristinn Breiðfjörð, Elísabet Kristjánsdóttir, Ólöf Guðrún Guðmundsdóttir, Jón H. Gunnarsson, Ágústína I. Guðmundsdóttir, Gunnar Gunnarsson, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, systir, amma og langamma, ÁSTRÍÐUR ÓLAFSDÓTTIR, Klapparstíg 1, Reykjavík, lést miðvikudaginn 13. ágúst. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 22. ágúst kl. 15.00. Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á krabbameinslækningadeild Landspítalans. Guðrún Marta Torfadóttir, Björn Sævar Einarsson, Ólafur Davíð Stefán Torfason, Sigurbjörg Rósa Þórhallsdóttir, Ingigerður Torfadóttir, Jón Óttarr Karlsson, Kristín Torfadóttir, Gísli Sveinsson, Torfi Þorkell Torfason, María Sjöfn Reynisdóttir, Jóhannes Vilhelm Ólafsson, barnabörn og langömmubörn. Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, YNGVI GUÐMUNDSSON fyrrv. rafmagnseftirlitsmaður, Hlíf II, Ísafirði, sem lést föstudaginn 15. ágúst, verður jarð- sunginn frá Ísafjarðarkirkju laugardaginn 23. ágúst kl. 14.00. Þeim, sem vilja minnast hans, er vinsamlega bent á minningarkort MND félagsins, í síma 565 5727, eða í Bókaverslun Jónasar Tómassonar, Ísafirði. Sigrún Einarsdóttir, Þuríður Yngvadóttir, Guðmundur Jónsson, Auður Yngvadóttir, Einar Á. Yngvason, Emelía Þórðardóttir og barnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, GRÉTAR NÖKKVI EIRÍKSSON kaupmaður, Miðleiti 2, Reykjavík, sem lést miðvikudaginn 13. ágúst sl., verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 22. ágúst kl. 15.00. Þeim, sem vilja minnast hans, er vinsamlega bent á Félag Hjartasjúklinga. Þorgerður Arnórsdóttir, Jón Páll Grétarsson, Margrét Jónsdóttir, Eiríkur Grétarsson, Anna Lilja Flosadóttir, Dagur Ingi, Nína og Alda Karen. Maja frænka er látin og það var sárt að heyra. Ég hringdi í Jón 2. ágúst til þess að láta hann og Maju og fjölskylduna vita af andláti föður míns sem varð þá um morguninn. Svo gerist það á jarðar- farardag pabba að Særún, frænka mín og æskuvinkona, hringir í mig og segir mér lát móður sinnar. Jón ræddi svo við mig á eftir. Mér þótti skammt stórra högga á milli. Það er ekki þægileg tilfinning sem maður reynir þegar missir bætist við missi og í þeim aðstæðum sem ég var skildi ég til fulls hvernig fjölskyldu MARÍA GUÐRÚN KONRÁÐSDÓTTIR ✝ María GuðrúnKonráðsdóttir fæddist í Garðhúsum á Skagaströnd 11. október 1930. Hún andaðist á Landspít- alanum við Hring- braut 9. ágúst síðast- liðinn og var útför hennar gerð frá Hafnarfjarðarkirkju 19. ágúst. frænku leið. Maja frænka mín var sérstök manneskja í mínum augum. Mér fannst svo aðdáunar- vert hvað hún gat verið jákvæð og glaðvær og gefandi í samskiptum, þótt heilsufarið væri löngum þannig að þar bættist hver raunin við aðra. Það eru aðeins hetjur sem halda velli með þeim hætti sem Maja frænka gerði. Ég man eftir svo mörgu frá þeim tíma þegar pabbi og mamma voru leigjendur hjá Jóni og Maju í Sænska húsinu. Það var fjör í okkur krökkunum þá og mikil umferð upp og niður stigann. Og þá var Maja frænka í essinu sínu. Henni þótti aldeilis varið í þá lífsgleði sem í gangi var og tók hjartanlega þátt í henni með okkur. Og þótt stundum keyrði eflaust úr hófi fram með ærsl- in var umburðarlyndið mikið hjá frænku og sennilega hugsaði hún þá oft með sér: „Þetta er ungt og leikur sér og þarf að eiga sínar gleðistund- ir!“ Löngu síðar þegar ég vann að end- urbótum á Sænska húsinu fann ég svo vel að frænka var enn hin sama, jafnfull af glaðværð og hjartahlýju sem fyrr. Og maður tók eftir traust- inu og tryggðinni milli þeirra hjónanna. Þar hafði sú taug verið hnýtt sem bar vitni um sanna lífstíð- arást. Þau lifðu fyrir fjölskylduna og hvort annað og það var yljandi að sjá hvernig elskan sýndi sig þar í öllu, allt niður í smáatriði lífsins. Frá upp- hafi kynna urðu allir í þessari fjöl- skyldu manni kærir, ekki endilega vegna skyldleikans, heldur vegna þess að fjölskyldan var bara þannig. Manni þótti strax vænt um hvern og einn þar og þannig hefur það alltaf verið. Og ég fann það svo innilega hjá Maju frænku hvað það var gagn- kvæmt alla tíð. Ég vil í þessum fáu orðum þakka fyrir mig, þakka fyrir svo margt sem er dýrmætt og gott, fyrir hugljúfar minningar sem ég á um góða frænku með stórt og gefandi hjarta. Þær munu lifa með mér meðan lífið varir. Ég bið Jóni, börnum þeirra hjóna og öllum ástvinum blessunar og trúi því að Drottinn gefi þeim styrk í sorg og mótlæti og leiði þau áfram um veg- inn í trú vonar og endurfunda. Rúnar Kristjánsson. Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur. Ég vissi alltaf að ég ætti mikið að eiga þig að. Samt sem áður hef ég komist að því að þetta eru orð að sönnu. Ég sakna þín svo mikið. Ég heyri enn glaðlega hláturinn þinn og sé enn brosið þitt. Ég hugsa enn: „Nei, ég verð að hringja í mömmu og segja henni frá þessu.“ Þegar síminn hringir finnst mér enn að það geti verið þú. Mér finnst svo óraunverulegt að þú sért farin. Við vorum búnar að skoða framtíðina mikið og þar varst þú alltaf inni í myndinni. Tilbúin að hvetja mig og gefa mér styrk eins og þú varst vön. Ég bíð ennþá eftir að einhver hnippi í mig og segi mér að þetta sé allt saman draumur. Að ég muni vakna upp og ganga fram í stofu. Þar sitjir þú og prjónir. Að þú spyrjir hvað við eigum að hafa í hádegismatinn. Að þetta sé venju- legur frídagur þar sem ég hef sofið fram eftir. Innst inni veit ég þó að svo er ekki. Ég verð að sætta mig við þá staðreynd að Guð hefur kall- að þig til sín. Þú varst yndisleg manneskja. Þú varst besta móðir sem hugsast get- ur. Fjölskyldan var þér allt. Það er sárt að hugsa til þess að þær góðu stundir sem við áttum saman verði ekki fleiri. Ferskastar eru minning- arnar um síðustu tvær helgarnar okkar saman. Þá dró ég ykkur SOFFÍA GUÐRÚN GUÐMUNDSDÓTTIR ✝ Soffía GuðrúnGuðmundsdóttir fæddist á Akureyri 3. júní 1961 en ólst upp á Ærlæk í Öxarfirði. Hún varð bráðkvödd á heimili sínu 1. júlí síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Skinnastaðar- kirkju í Öxarfirði 8. júlí. pabba með á rúntinn og í nammileiðangur löngu eftir ykkar venjulega háttatíma. Þú hlóst svo mikið. Helgina eftir það löbb- uðum við pabbi Jök- ulsárgljúfrin. Þú gerð- ir nesti fyrir okkur en beiðst svo í sumarbú- staðnum okkar og prjónaðir. Veðrið var gott og sólin skein. Minni og Heiða voru í heimsókn með dæt- urnar sínar. Þú elsk- aðir að vera í kringum börn. Og ævinlega þegar ég kom heim á Brávellina var húsið fullt af börnum eða öðrum gestum. Hjá þér voru allir velkomnir. Þú gast setið tímunum saman og spjallað við vini okkar Gumma þótt við vær- um fjarverandi. Þér þótti vænt bæði um menn og dýr. Afi á Ærlæk sagði mér sögu af þér sem lýsir þér vel. Hann var að koma vestur í fjárhús að vorlagi en þá stóð sauð- burður yfir. Heyrir hann þá söng inni í hlöðunni svo hann leit þar inn. Þá sér hann hvar þú sem varst þá sjö ára situr uppi á heystabb- anum og ert með lítið lamb í kjöltu þinni. Þú straukst því og syngur fyrir það „Inn milli fjallanna, hér á ég heima“. Svo kallaðirðu til afa: „Þetta er annað lambið mitt sem Golta fæddi af sér í gær.“ Minningarnar eru margar og nú rifjast þær upp hver á eftir ann- arri. Elsku mamma, ég get ekki verið annað en hamingjusöm með þann tíma sem ég fékk með þér. Þú gafst okkur gott veganesti í fram- tíðina. Minningarnar veita okkur gleði og þú lifir áfram í hjörtum okkar. Þú varst ljósið sem skein svo skært, þú varst lífið svo undurtært, þú varst allt sem ég ann svo kært, þú skalt mín kæra sofa vært. (K.Þ.) Guðný Jóna Kristjánsdóttir. Minningargreinum þarf að fylgja formáli með uppl. um hvar og hvenær sá sem fjallað er um er fæddur, hvar og hve- nær dáinn, um foreldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan útförin verður gerð og klukkan hvað. Formáli minning- argreina

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.