Morgunblaðið - 21.08.2003, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 21.08.2003, Blaðsíða 37
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. ÁGÚST 2003 37 RHnet Iceland University of Education COMPUTING SERVICES Rá ›stefna um tölvunet og notkun fleirra Nordunet 2003 Alþjóðleg ráðstefna um tölvunet verður haldin í Háskólabíói dagana 24. til 27. ágúst nk. Rann- sókna- og háskólanet Íslands, RHnet, heldur ráðstefnuna í samvinnu við önnur slík net á Norðurlöndum. Meðal efnis er: Nýtt skipulag neta og næstu kynslóðir leiðstjóra (routers), þráðlaus net, öryggi netkerfa og vírusar, innleiðing á nýjum samskiptastaðli fyrir Internetið, gagnaveitur, samvinna og aðgengi að netum, það nýjasta í ljósleiðaratækni og ýmsir framtíðarmöguleikar. Á fimmta tug fyrirlestra verða á ráðstefnunni og þátttakendur eru frá um tuttugu þjóðum. Aðalfyrirlesarar eru Vinton G. Cerf frá Bandaríkjunum, Bill St. Arnaud frá Kanada og Rolf Stadler frá Svíþjóð. Í tengslum við ráðstefnuna verður boðið upp á þrjú þriggja tíma námskeið. Á þessi námskeið er hægt að skrá sig sérstaklega: • Hvernig standa skal að og framkvæma myndfundi (videoconferencing). • Aðferðir til að auka aðgangsöryggi í þráðlausum netum. • Ljósleiðarakerfi neðansjávar. Nýi ljósleiðarastrengurinn til Íslands, FARICE. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu ráðstefnunnar og þar er einnig hægt að skrá sig: www.nordunet2003.is PR E N TS N IÐ Nýjar leiðir til að stjórna erfðavís- indunum David Winickoff ætlar að fjallar um nýjar leiðir til að stjórna erfðavísindunum (New Models in Genomic Governance), í sal 101 í Odda í dag, fimmtudaginn 21. ágúst kl. 17. Erindið er flutt á ensku. Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeyp- is. David Winickoff dvaldi hér á landi í nokkra mánuði meðan hann var í laganámi við Harvard, og kynnti sér gagnagrunnsmálið og fleira sem var að gerast hér og hefur skrifað grein- ar um þessi mál í fagtímarit. Grein um þetta efni eftir David birtist á næstunni í læknisfræðitímarit New England Journal of Medicine, segir í fréttatilkynningu. Draugaganga um Elliðaárdal verð- ur farin í dag, fimmtudaginn 21. ágúst. Haldið verður á slóðir drauga, álfa, skrímsla og afbrotamanna í Elliðaárdal. Lagt verður upp frá miðasölu Árbæjarsafns kl. 21 og tek- ur gangan rúmlega klukkustund. Þátttaka er ókeypis. Leiðsögumaður er Helgi M. Sigurðsson, sagnfræð- ingur og deildarstjóri á Árbæj- arsafni. Í DAG NEMENDUR Hólabrekkuskóla 1978–1979, árgerð 1963, halda bekkj- armót laugardaginn 6. september í veislusal Kiwanis, Engjateig 11. Miðaverð er 2.900 kr. Greiðslu skal leggja inn á reiking 0322-13-1963, kt. 090963-4149. Setja skal kennitölu greiðanda á greiðsluseðilinn og kvittunin gildir sem aðgöngumiði. Greiðslufrestur er til og með 29. ágúst. Undirbúningsnefndin hefur opnað heimasíðu, slóðin er www.geoci- ties.com/holabrekka. Bekkjarmót í Hólabrekkuskóla BLÓMSTRANDI dagar verða haldn- ir í Hveragerði helgina 22.–24. ágúst. Á föstudagskvöldinu kl. 20.30 verður unglingaball í íþróttahúsinu þasem hljómsveitirnar Á móti sól og Bú- drýgindi leika og er frítt á ballið. Kl. 22 verður djassað í Listaskálanum en þar verður Árni Scheving með hljóm- sveit sína og með þeim syngur Ragn- heiður Gröndal. Hátíðin verður form- lega sett á laugardaginn, 23. ágúst, á miðbæjartorgi kl. 14 með ávarpi. Á fjölbreyttri dagskrá verður m.a. markaðstorg, grillað verður fyrir gesti, bókamarkaður í Bókasafninu, lifandi tónlist með Sölvunum o.fl., trúðar koma í heimsókn og skátar sjá um tívolí. Slökkvilið Hveragerðis sýn- ir tækjakost sinn og býður börnum í ferð um bæinn. Kl. 21 verður dagskrá á Fossflöt, m.a. varðeldur og brekku- söngur sem Eyjólfur Kristjánsson stjórnar og Hjálparsveit skáta sér um flugeldasýningu. Dansleikur verður í íþróttahúsinu þar sem hljómsveitin Pass og Eyjólfur Kristjánsson leika fyrir dansi. Frítt er á dansleikinn og er aldurstakmark 18 ára. Á sunnudag kl. 16 verður Gospelhátíð í kirkjunni, þar sem Páll Rósinkrans, Gospelkór Reykjavíkur, Kirkjukór Hveragerðis, Edgar Smári o.fl. syngja undir stjórn Óskars Einarssonar. Blómstrandi dagar verða í Hveragerði Starfar hjá Friðriki Skúlasyni ehf. Í frétt um tölvuveiru í blaðinu í gær var ranglega sagt að Erlendur S. Þorsteinsson starfaði hjá tölvufyr- irtækinu Einari J. Skúlasyni ehf. Hið rétta er að Erlendur er verkefnis- stjóri hjá Friðriki Skúlasyni ehf. Beðist er velvirðingar á þessum mis- tökum. LEIÐRÉTT SEX félagar í Klúbbi mat- reiðslumeistara hjálpuðust að við elda pylsur með öllu tilheyrandi of- an í 2000 börn í dýragarði í Jóhann- esarborg í Suður-Afríku á dög- unum. Þar eru þeir staddir til að taka þátt í fjáröflun matreiðslu- manna viðsvegar að úr heiminum til styrktar hungruðum og veikum börnum í landinu. Í fyrrakvöld tóku íslensku mat- reiðslumeistararnir þátt í viðhafn- arkvöldverði sem haldinn var í einni stærstu ráðstefnuhöll Jóhann- esarborgar og rennur ágóði hans til barna sem búa við skort. Allir kokkarnir lögðu fram vinnu sína endurgjaldslaust, einn kokkajakka og tíu dollara seðil. Í kvöldverð- inum voru einnig ýmsir munir og gjafir, sem matreiðslumennirnir af- hentu, boðnir upp til styrktar þessu starfi. Gissur Guðmundsson, forseti Klúbbs matreiðslumeistara, segir í fréttatilkynningu að það sé þeim mikill heiður að taka þátt í þessu verkefni og þar með leggja sitt af mörkum til stuðnings hungruðum börnum í Suður Afríku. Gert er ráð fyrir að hátt í 200 matreiðslumenn taki þátt í þessu starfi að þessu sinni og haldi uppi sýnikennslu, styrktarkvöldverðum og ýmiskonar fræðslu í átta daga. Fjáröfluninni lýkur 24. ágúst. Klúbbur matreiðslumeistara Morgunblaðið/Jón Svavarsson Elda fyrir hungruð börn í Suður-Afríku Á ÞRIÐJA hundrað starfsmenn Samskipa undir stjórn Knúts G. Haukssonar forstjóra tóku fyrstu skóflustunguna að nýju húsnæði fé- lagsins sem rís við Kjalarvog í Reykjavík. Þar verða í framtíðinni undir einu þaki höfuðstöðvar Sam- skipa og öll meginstarfsemi félagsins innanlands. Starfsmenn Samskipa eru nú um 800 talsins, þar af 450 í Reykjavík. Vörumiðstöð Samskipa verður sú stærsta sinnar tegundar á Íslandi og öll nýjasta tækni í vöruhúsaþjónustu verður nýtt þar. Húsið, sem er stál- grindarhús, verður alls 25 þúsund fer- metrar að stærð og 240 metra langt, sem er þreföld lengd núverandi hús- næðis Samskipa við Holtabakka. Byggingin verður í senn vörumerki og ímynd Samskipa á svæðinu í krafti forms, stærðar, efnis og litavals en hugmynd arkitektanna hjá Arkís, sem hönnuðu húsið, er að það „teikni sig í landslagið, eins og skip sem lagt hefur verið við festar til affermingar“. Ístak annast byggingafram- kvæmdir og á verkinu að vera lokið í endaðan september á næsta ári. Kostnaður við verkið er áætlaður rúmlega 2,1 milljarður með virðis- aukaskatti, segir í fréttatilkynningu. Öll meginstarfsemi Samskipa undir eitt þak Um 300 starfsmenn tóku fyrstu skóflustunguna Morgunblaðið/Arnaldur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.