Morgunblaðið - 21.08.2003, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 21.08.2003, Blaðsíða 41
FÆREYJAR – ÍSLAND MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. ÁGÚST 2003 41 Eftir góða byrjun náðum við ekkiað fylgja sterkri stöðu okkar vel eftir. Færeyingar voru hræddir við okkur í fyrri hálfleik og höfðu uppi litla til- burði til sóknar. Við fengum hins vegar færin, m.a. skallaði Pétur [Marteinsson] framhjá og Eið- ur Smári [Guðjohnsen] fékk upplagt færi, en var truflaður, svo eitthvað sé nefnt af færum sem við fengum til að bæta við mörkum, en það tókst ekki,“ segir Ásgeir og segir leik liðsins hafa verið ágætan á köflum í fyrri hálfleik. „Knötturinn gekk oft vel á milli manna og skiptingar gengu vel, en í síðari hálfleik vantaði þessi atriði í leik okkar á köflum. Þegar öllu er á botninn hvolft var þetta bara einn af þessum leikjum þar sem menn vinna þrátt fyrir að þeim takist ekki að sýna allar sínar bestu hliðar. Það er hið já- kvæða sem við tökum fyrst og fremst með okkur úr þessum leik. Markmið okkar um níu stig í þremur leikjum hefur náðst og um leið ná efsta sæti riðilsins. Það er góður áfangi sem ég vil lýsa yfir sérstakri ánægju með.“ Ásgeir segir að gaumgæfilega verði farið yfir leikinn með leikmönnum og leitað að orsökum þess að ekki tókst sem skyldi að stilla saman strengina allan tímann. Þannig verði lærdómur dreginn af því sem að baki er. „Við verðum að bæta okkur töluvert fyrir leikina við Þjóðverja sem framundan eru, það er ljóst. Það gerum við hins vegar í rólegheitum á næstunni, nú er hvorki staður né stund til þess að benda á það neikvæða í liðinu. Und- irbúningurinn fyrir þennan leik við Færeyinga var erfiður og reyndi verulega á taugarnar. Markmiðið náðist og það er jú aðalmálið á þessari sigurstundu.“ Ásgeir sagði að næsta verk væri að leggjast yfir leikina við Þjóðverja sem framundan eru og hvernig tekið verði á þeim. Á þessari stundu væri of snemmt að segja til um hvernig fyrri leikurinn, sem fram fer á Laugardals- velli, verður lagður upp. „Ég þekki Þjóðverja nokkuð vel og veit að þeir ná yfirleitt toppárangri þegar á þarf að halda, þannig að við erum enn litla Ís- land, við megum ekki gleyma því. Það má hins vegar reikna með því að við reynum að gera eitthvað óvænt,“ segir Ásgeir Sigurvinsson landsliðsþjálfari. Himinlifandi yfir sigrinum „Við vissum að þetta yrði erfitt en eftir að við komumst yfir snemma leiks áttum við að láta kné fylgja kviði, ekki koma okkur í þá þröngu stöðu sem kom upp í síðari hálfleik,“ sagði Logi Ólafsson landsliðsþjálfari léttur á brún í leikslok og greinilegt að þungu fargi var af honum létt. „Við fengum ágæt færi í fyrri hálfleik sem við áttum að nýta til þess að auka for- skotið, það tókst ekki. Í síðari hálfleik gerðum við þau mistök að hleypa Færeyingunum inn í leikinn og þá lentum við í vandræðum og þeir jöfn- uðu leikinn. Sem betur fer sýndi ís- lenska liðið, þrátt fyrir að hafa ekki leikið sérlega vel, geysilegan kraft með því að rífa sig upp og komast yfir á nýjan leik. En að mínu mati féllum við „taktískt“ of aftarlega á völlinn í stað þess að sækja. Um leið vorum við ekki nógu rólegir þegar við vorum með boltann, Færeyingar hlupu mik- ið um völlinn og ollu okkur miklum erfiðleikum. Við aftur á móti máttum vera mun hreyfanlegri til þess að bjóða þeim leikmönnum sem voru með boltann hverju sinni upp á fleiri möguleika. Þessi atriði sitja eftir þeg- ar litið er yfir hinn taktíska hluta leiks okkar,“ sagði Logi en undirstrikaði að þrátt fyrir allt hefði markmiðið náðst. „Við ætluðum okkur að vinna þrjú stig og komast í efsta sæti riðilsins og það tókst. Það hafa fleiri og stærri spámenn knattspyrnunnar lent í vandræðum með Færeyinga hér á Tórsvelli, þannig að þegar upp er staðið er ég himinlifandi með sigur- inn. Ég efast um að íslenskt landslið hafi unnið þrjá leiki í röð í riðlakeppni stórmóts eins og nú er staðreynd, hvað þá að setjast í efsta sæti síns rið- ils þegar tveimur leikjum er ólokið,“ sagði Logi. Hvernig stóð á því að ekki tókst að fylgja fyrsta markinu eftir þegar Færeyingar virtust slegnir út af lag- inu? „Við ræddum þetta mál í hálfleik, að það vantaði þennan herslumun hjá okkur þegar Færeyingar gáfu eftir. Okkur hafði tekist að slá vopnin úr höndum þeirra en vegna nokkurra mistaka náðum við ekki að fylgja góðri stöðu eftir. Fyrst og fremst var það vegna þess að við hörfuðum of aftarlega á völlinn með þeim afleið- ingum að Færeyingar komust inn í leikinn. Það átti ekki að gerast, en átti sér eigi að síður stað. Þetta er lær- dómur sem draga verður af viður- eigninni.“ Nú hafa markmið náðst, en staðan er eigi að síður vandasöm; að vinna stig gegn Þjóðverjum til að eiga möguleika á öðru af tveimur efstu sætum riðilsins þegar upp verður staðið, ekki satt? „Ef við ætlum og viljum gera eitt- hvað meira í keppninni verðum við að vinna stig gegn Þjóðverjum. Það eru hins vegar fleiri leikir eftir í riðlinum sem geta haft áhrif á lokastöðuna, meðal annars eiga Þjóðverjar og Skotar eftir að eigast við í Þýskalandi. En það er ljóst að við þurfum á stig- um gegn Þjóðverjum að halda til að treysta stöðuna enn frekar. Ég vil ekki velta mér of mikið upp úr mögu- leikunum á þessari stundu, það koma síðar tímar til þess,“ segir Logi Ólafs- son, landsliðsþjálfari í knattspyrnu. Morgunblaðið/Kristinn Eiður Smári lætur skot ríða af í byrjun leiks og knötturinn hafnaði í netinu hjá Færeyingum. Helgi Sigurðsson í baráttu við varnarmann Færeyinga. Helgi sagði að það hefði verið erfitt að leika á vellinum í Þórshöfn, sem var blautur og þungur, en stigin þrjú væru ljúf. Þungu fargi af mér létt „ÞAÐ var þungu fargi af mér létt þegar flautað var til leiksloka og ég er alveg sérstaklega ánægður með að hafa unnið stigin þrjú,“ sagði Ásgeir Sigurvinsson, landsliðsþjálfari í knattspyrnu, þegar flautað var til leiksloka á Tórsvelli í Þórshöfn í gærkvöldi. Sætur sigur hafði unnist og um leið efsta sæti riðilsins í undankeppni EM. Framundan eru tveir leikir gegn þýska landsliðinu, silfurliði heimsmeist- arakeppninnar í fyrra, sem skera úr um efstu sætin tvö í riðlinum, – sætin verðmætu. Ívar Benediktsson skrifar frá Þórshöfn ÁRNI Gautur Arason, landsliðs- markvörður í knattspyrnu, hefur fengið tilboð frá austurríska úr- valsdeildarfélaginu Sturm Graz. Samningur hans við Rosenborg í Noregi rennur út að þessu tímabili loknu og þar sem Árni hefur ekki viljað semja á ný við norsku meist- arana hefur hann mest lítið fengið að spila með þeim í ár. „Þetta er allt í athugun ennþá en ef af þessu verður hjá Sturm fer ég þangað um áramótin. Ég á ekki von á því að Austurríkismennirnir fari að borga Rosenborg fyrir mig til að fá mig strax,“ sagði Árni við Morgunblaðið eftir landsleikinn í Þórshöfn í gærkvöldi. Sturm Graz hefur lengi verið eitt af fremstu liðum Austurríkis og komst í riðlakeppni Meist- aradeildar Evrópu ekki alls fyrir löngu. Liðið hefur byrjað þetta tímabil illa og er í næstneðsta sæti með aðeins eitt stig eftir fimm leiki. Árni Gautur Arason með tilboð frá Sturm Graz „VIÐ vorum okkar hættulegasti andstæðingur í leiknum með því að bjóða hættunni heim, líkt og í fyrri leiknum heima í vor,“ sagði Eiður Smári Guðjohnsen, fyrirliði íslenska landsliðsins og sá sem skoraði fyrra mark Ís- lands í leiknum í gær. „Við bökkuðum alltof mikið þegar á leikinn leið og gáfum Færeyingum tækifæri til sókn- ar. Reyndar léku þeir nokkuð skipulagðan leik, létu boltann ganga vel sín á milli og náðu einnig að skapa sér svæði til að leika sín á milli og sækja, eink- um í síðari hálfleik. Í þeim fyrri gerði færeyska liðið hins vegar ekki mikið og þá voru mögu- leikar okkar, en við unnum og það er aðalmálið,“ sagði fyr- irliðinn glaður í bragði. „Þegar á svona leik er litið reikna allir með að við vinnum, munurinn á að vera það mikill milli þjóðanna. Færeyingar hafa hins vegar sýnt að þeir geta staðið í flestum þjóðum og und- irstrikuðu það að þessu sinni. Hið jákvæða hjá okkur er sú staðreynd að við höldum frá Færeyjum með þau þrjú stig sem við ætluðum okkur að ná í.“ „Við vorum sjálfum okkur verstir“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.