Morgunblaðið - 21.08.2003, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 21.08.2003, Blaðsíða 16
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 16 FIMMTUDAGUR 21. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI VIÐ Vesturbakka Reykjavíkur- tjarnar hefur undanfarna viku stað- ið hvítt tjald. Hefur tjaldið vakið forvitni vegfarenda, enda stingur það dálítið í stúf við umhverfi sitt. Innandyra geta gestir skoðað bækl- inga og horft á heimildarmyndir framleiddar af friðarsinnum og ým- iss konar umbótasinnum um stríðs- rekstur Vesturlanda og þá aðallega Bandaríkjanna. Nokkrir ungir hugsjónamenn standa fyrir tjaldinu og segir Stef- án Þorgrímsson, friðarsinni og for- svarsmaður „Margmiðlunartjalds- ins“, markmið þeirra að koma á framfæri staðreyndum sem sjaldan koma fram í fjölmiðlum hér á landi. „Hér er um að ræða mótvægi við einhliða fréttaflutning erlendra fréttastofa sem síðan er lapinn upp gagnrýnislaust af íslenskum fjöl- miðlum.“ Stefán segir tjaldið munu standa við Tjörnina út ágúst, „og lengur ef vel gengur“. Nú standa yfir sýningarnar: Ketilhúsið. 1x1, samsýning lista- manna á Akureyri. Lýkur 24. ágúst. Lystigarðurinn á Akureyri. Sam- sýning 13+3. Café Karólína. Jónas Viðar. Bögglageymslan. Jóna Hlíf Hall- dórsdóttir og Baldvin Ringsted. Ath. opið frá kl. 17. Kompan, Kaupvangsstræti 23. Kristján Guðmundsson sýnir eitt verk gert úr plasti og gulli. Einnig er til sýnis og sölu bókverkið (DOKT- ORSRITGERÐ) eftir Sigrúnu Þor- steinsdóttur og Kristján. Safnasafnið á Svalbarðsströnd. Sýning á svipmyndum af Ragnari Kjartanssyni, myndhöggvara. Fimmtudagur 21. ágúst Djass í Deiglunni kl. 21.30. Heitur fimmtudagur. Kvartett Kidda og Gúa. Kristján Guðmundsson, píanó, Gunnar Ringsted, gítar, Jón Rafns- son, bassa og Ingvi Rafn Ingvarsson, trommur. Miðaverð 800 kr. Föstudagur 22. ágúst Tangó í föstudagshádegi í Ketil- húsinu kl. 12. Salonhljómsveitin L’amour fou. Leikin verður skemmtitónlist í anda 3. og 4. ára- tugar síðustu aldar, argentínskir tangóar og kvikmyndatónlist, ásamt vel þekktum íslenskum dægurlög- um. Hljómsveitina skipa: Hrafnhild- ur Atladóttir, fiðla, Guðrún Hrund Harðardóttir, víóla, Hrafnkell Orri Egilsson, selló, Gunnlaugur T. Stef- ánsson, kontrabassi, og Tinna Þor- steinsdóttir, píanó. Laugardagur 23. ágúst Klæðaburðarsýning fatahönnuða í Ketilhúsinu kl. 17. Þátttakendur eru: Þuríður Helga Kristjánsdóttir, Mó- heiður Hlíf Geirlaugsdóttir, Guðjón Sigurður Tryggvason, Dagmar Atla- dóttir, Hrafnhildur Ósk Marinós- dóttir og Tinna Kvaran. Þau eru öll í eða hafa lokið mynd- listarnámi. Tónlist og vídeó í takt við fötin setur svip á sýninguna. Sunnudagur 24. ágúst Söngdagskrá í Akureyrarkirkju kl. 17. Líkfylgd Jóns Arasonar – minningartónleikar. Jón Arason var trúarleiðtogi og eitt fremsta skáld sinnar tíðar. Þess er minnst með dagskrá sem tvinnar þetta tvennt saman auk annarra laga frá kaþólsk- um tíma. Flytjendur: Gerður Bolla- dóttir, sópran, Kári Þormar, orgel, Hjörtur Pálsson, upplestur. VERKSMIÐJA Vífilfells á Akureyri annar vart eftirspurn á hitaeininga- snauðum bjór sem hún er með í framleiðslu, vegna mikillar sölu í sumar. Unnsteinn Einar Jónsson, verk- smiðjustjóri hjá Vífilfelli á Akureyri, sagði að bjórinn, sem kallast Viking Lite, hefði selst mun meira undan- farið en áætlanir hefðu gert ráð fyrir og þeir hafi ekki haft undan. „Við er- um um þrjár vikur að brugga hverja lögun, en það sem skiptir mestu máli eru umbúðirnar því það þarf að panta þær frá Svíþjóð og það ferli tekur um þrjár til fjórar vikur,“ sagði Unnsteinn. „Þó að salan hafi verið mikil und- anfarið er ekki um glænýja vöru að ræða því við byrjuðum að framleiða bjórinn í nóvember 2001. Í byrjun þessa árs breyttum við umbúðunum sem bjórinn er í og eftir það hefur hann selst gríðarlega vel. Nú sér fólk til dæmis á umbúðunum að um hita- einingasnauðan bjór er að ræða, en fyrir breytingar sást það ekki. Þetta er ekki stór tegund enn þá miðað við aðrar gerðir sem við erum að fram- leiða. En hann er á mjög góðri upp- leið og við höfum alltaf verið að reyna að elta hælinn á okkur vegna þessarar miklu eftirspurnar. Bjórinn er þeim eiginleika gæddur að hann er hitaeiningasnauður og til saman- burðar má nefna að í honum eru færri kaloríur en í undanrennu. Bjórinn er með 29 hitaeiningar í 100 g en undanrennan hefur 34. Það er alltaf gaman þegar nýjum tegundum er vel tekið af neytendum,“ sagði Unnsteinn. „Við erum ekki á leiðinni með neinar nýjungar, en það næsta sem kemur frá okkur er jólabjórinn sem við setjum alltaf á markað fyrir jólin. Undanfarið erum við búnir að vera að setja inn nýjar umbúðastærðir í reynslusölu. Nú er til dæmis hægt að fá litla flösku af Thule, en áður var einungis hægt að kaupa hann í hálf- slítra flöskum. Sú flaska er reyndar sú mest selda á landinu og virðist alltaf vera jafn vinsæl. Það er ekki á dagskrá hjá okkur að fara út í að nota plastflöskur, því eins og staðan er í dag þá er ekki þörf á því.“ 20% aukning í sölu „Fyrstu sjö mánuði ársins var um að ræða 20% aukningu í framleiðslu hjá okkur. Heildarframleiðslan í fyrra var 6,8 milljón lítrar en í ár reiknum við með að framleiða 7,5 milljón lítra og af því eru 7 milljónir bjór og léttöl. Með þeim búnaði sem við höfum yfir að ráða í dag höfum við þurft að keyra verksmiðjuna með toppafköst- um í allt sumar. Við erum að fara að stækka við okkur með því að auka við tankaplássið. Við ætlum að bæta við fleiri tönkum, en þeir munu koma á sama stað og þeir tankar sem eru fyrir á svæðinu. Meiningin er að steypa undir þá í haust og reisa þá svo næsta vor,“ sagði Unnsteinn að lokum. Morgunblaðið/Ásgrímur Örn Unnsteinn E. Jónsson stendur hér við þær fátæklegu birgðir sem verk- smiðjan á til á lager af Viking Lite. Bjórinn hefur selst gríðarlega vel eftir að umbúðunum var breytt. Vífilfell á Akureyri Hitaeiningasnauð- ur bjór vinsæll UNDANFARNAR vikur hafa veg- farendur í Austurstræti orðið varir við framkvæmdir í húsunum við Austurstræti 20 og 22, sem á síðustu öld hýstu m.a. Hressingarskálann og verslunina Karnabæ. Í Austurstræti 20 var síðast til húsa veitingastað- urinn MacDonalds og í Austurstræti 22 var síðast skemmtistaðurinn Astró. Nú hafa bæði húsin fengið nýja rekstraraðila og standa yfir miklar framkvæmdir. Til stendur að opna veitingastaði í báðum húsum. Í gamla Karnabæ verður opnaður skemmtistaðurinn Pravda, en gamli Hressingarskálinn verður nú opnaður aftur undir upp- runalegu nafni, eftir að hafa legið niðri í rúman áratug. Bæði húsin eiga sér langa og merkilega sögu auk þess sem þau eru í hjarta bæjarins. Þess vegna má ætla að nokkrar væntingar séu meðal borgarbúa um vandaðan frágang og smekklega starfsemi í húsunum, starfsemi sem hæfi stöðu húsanna í sögu og skipulagi Reykja- víkurborgar. Miklar væntingar til Hressingarskálans Húsið við Austurstræti 20 var reist 1805 og var lengi bústaður sýslu- manna og fógeta. Húsið var gjarnan kallað Svenska húsið vegna þess að það var flutt til Íslands tilhöggvið frá Svíþjóð. Garðurinn inn af húsinu var ræktaður af Árna landfógeta, sem bjó í húsinu frá 1860 allt til dauðadags 1907 og var hann þekktur sem einn fegursti trjá- og blómagarður Reykjavíkur. Síðari hluta 20. aldar hýsti húsið síðan eitt frægasta kaffi- hús Íslands, Hressingarskálann. Fjöldi þjóðþekktra einstaklinga sótti Hressingarskálann á árum áður og má þar nefna Stein Steinarr, Jó- hannes Kjarval og Tómas Guð- mundsson borgarskáld auk fleiri nafntogaðra listamanna og stjórn- málamanna og var „Hressó“ jafnan vettvangur líflegrar þjóðmála- umræðu á sínum tíma. Magnús Ingvi Jósepsson, einn af eigendum Hressingarskálans, segir það markmið nýrra eigenda að Hressingarskálinn gangi í endurnýj- un lífdaga. „Við erum mjög meðvit- aðir um sögu hússins og finnum fyrir þeim væntingum sem fólk hefur gagnvart því. Þess vegna verður hér ekki um dæmigerðan næturklúbb að ræða, heldur leggjum við áherslu á að hafa hér fjölbreyttan veitingastað. Hér er gríðarlega fallegur garður sem hefur mikið sögulegt gildi og þetta hús á sér langa og merkilega sögu sem ber að virða. Okkar markmið er að fólk geti komið hingað á morgnana og daginn og upplifað þá stemmningu sem var á Hressingarskálanum í gamla daga. Á kvöldin skiptir staðurinn síðan um gír þar sem áherslan verður á tónlist og alþjóðlega stemmningu.“ Rík og merkileg saga hússins Eigendur Pravda segja vissulega mikilvægt að bera virðingu fyrir yfir 200 ára gömlum húsakynnum sem hýst hafa marga merkismenn í sögu Reykjavíkurborgar, þar á meðal Trampe Greifa og Jörund hunda- dagakonung. Húsið var lengi vel bú- staður ráðamanna konungsveldisins auk þess að gegna hlutverki dóms- salar. „Hér hefur auðvitað einnig ver- ið mikið af sögufrægum verslunum, til dæmis Haraldarbúð, Björnsbakarí og Karnabær og hvaðeina,“ segir Einar Ingvarsson, einn eigenda Pravda. „Þess vegna reynum við að hafa hér afar vandaðan stað og stefnum að því að hafa menninguna einnig að leiðarljósi. Það er í raun synd að húsið hafi ekki verið betur nýtt síðustu árin. Það átti visst nið- urlægingarskeið, en nú er kominn tími til að koma því aftur á réttan stall.“ Gömlu húsin við Austur- stræti lifna við á ný Reykjavík Morgunblaðið/Svavar Kunnuglegt merki Hressingarskálans blasir nú aftur við í Austurstræti 20 og er Magnús Ingvi Jósepsson hreykinn af því. Skemmtistaðurinn Pravda prufukeyrir með einkasamkvæmi á föstudags- kvöldið, en síðan verður opnað með pomp og prakt á laugardagskvöld. Morgunblaðið/Svavar Stefán Þorgrímsson segir hlutverk Margmiðlunartjaldsins að veita visst mótvægi við einhliða fréttaflutning fjölmiðla um stríð. Ungir hug- sjónamenn við Tjörnina Reykjavík

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.