Morgunblaðið - 21.08.2003, Page 14
ERLENT
14 FIMMTUDAGUR 21. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
DANSAÐU HANDFRJÁLS
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
T
O
Y
21
88
6
0
8/
20
02
Handfrjáls búnaður Samlituð vindskeið Hágæða hljómtæki Lúxus innrétting
COROLLA - MOBILE Vertu í góðu sambandi. Komdu strax. Prófaðu nýjan Corolla Mobile með handfrjálsum búnaði, Sedan,
Hatchback eða Wagon. Corolla Mobile er hlaðinn nýjungum, innréttingin er ríkuleg og tónlistin dunar í hágæða hljómtækjum með 6 hátölurum. Corolla
Mobile er glæsilegur bíll að utan sem innan. Við bjóðum þér upp.... í reynsluakstur. www.toyota.is
Matti
Vanhanen
MATTI Vanhanen, forsætisráð-
herra Finnlands, og danskur starfs-
bróðir hans, Anders Fogh Rasm-
ussen, sögðu nýlega á
sameiginlegum blaðamannafundi í
Helsinki að þeir myndu sameina
krafta sína til að freista þess að fá
ákveðnar breytingar gerðar á drög-
um að nýjum stjórnarskrársáttmála
Evrópusambandsins (ESB), á ríkja-
ráðstefnu sambandsins sem um þau
munu fjalla í Róm í haust.
Meðal helztu markmiða með hin-
um nýja sáttmála er að tryggja skil-
virkni í ákvarðanatöku og stofnana-
uppbyggingu sambandsins eftir að
aðildarríkin verða orðin 25 og síðar
fleiri, en tíu ríki bætast í raðir sam-
bandsins á vori komanda, 1. maí
2004.
Vissar áhyggjur
af stofnanaþætti
„Við höfum vissar áhyggjur af
stofnanaþættinum; af áformunum
um að koma á embætti varanlegs
forseta leiðtogaráðsins; og af áform-
uðu hlutverki leiðtogaráðsins sem
ESB-stofnunar,“ sagði Vanhanen.
Í leiðtogaráði ESB sitja ríkis-
stjórnarleiðtogar allra aðildarríkj-
anna. Það hittist a.m.k. tvisvar á ári
og tekur ákvarðanir með samhljóða
samþykki.
„Og hvernig högum við skipan
framkvæmdastjórnarinnar? Þetta
eru erfiðustu atriðin hvað varðar
stofnanaþáttinn sem við þurfum að
ræða á ríkjaráðstefnunni,“ sagði
Vanhanen. Á ríkjaráðstefnunni, þar
sem ráðamenn hinna 15 núverandi
og 10 verðandi aðildarríkja sam-
bandsins munu koma saman í Róm
hinn 4. október næstkomandi, er
ætlunin að leggja lokahönd á nýja
stjórnarskrársáttmálann, en sér-
stök undirbúningsráðstefna, svo-
nefnd Framtíðarráðstefna ESB,
lagði fram drög að henni í sumar
eftir rúmlega árslangt starf.
Í drögunum er m.a. lagt til að
nýtt embætti varanlegs forseta leið-
togaráðsins komi í stað þess að að-
ildarríkin skiptist á um ESB-for-
mennskuna á hálfs árs fresti; að
stofnað verði nýtt embætti utanrík-
isráðherra ESB; að málefnasviðum
verði fækkað þar sem ákvarðanir
eru teknar með samhljóða sam-
þykki og að skilvirkni fram-
kvæmdastjórnarinnar skuli tryggð
með því að aðeins viss kjarni með-
lima hennar fari með vald til
ákvarðanatöku.
Rasmussen sagði dönsku stjórn-
ina almennt geta sætt sig við flest í
sáttmáladrögunum, en tók þó fram
að það væru viss atriði sem hún
myndi vilja fá hnikað til. Minntist
hann í þessu sambandi á útfærsluna
á hlutverki væntanlegs utanríkis-
ráðherra ESB og um hlutverka-
skiptingu milli meðlima hinnar
breyttu framkvæmdastjórnar.
Varast beri lokaða kjarna
Báðir lýstu forsætisráðherrarnir
vanþóknun sinni á þróun lokaðs
varnarmálasamstarfskjarna innan
ESB, eins og Frakkar, Þjóðverjar,
Belgar og Lúxemborgarar hafa lagt
drög að. Lögðu þeir Vanhanen og
Rasmussen áherzlu á að slíkt sam-
starf yrði að vera opið öllum aðild-
arríkjunum.
Ríkjaráðstefna um stjórnarskrársáttmála ESB framundan
Danir og Finnar
stilla saman strengi
Helsinki. AFP.
Anders Fogh
Rasmussen
FÓLK sem lifði af kjarnorku-
sprenginguna í Híroshíma í Japan
fordæmdi í gær áform Bandaríkja-
manna um að stilla Enolu Gay, flug-
vélinni sem kjarnorkusprengjunni
var varpað úr á borgina þann 6.
ágúst 1945, upp til sýnis fyrir al-
menning.
„Í okkar augum jafnast Enola
Gay á við kjarnorkusprengjuna
sjálfa,“ sagði Suna Tsuboi, 78 ára
gamall framkvæmdastjóri Samtaka
kjarnorkusprengjuskaðaðra í Hír-
oshíma-sýslu. „Að stilla flugvélinni
upp til sýnis er ekki aðeins móðgun
við okkur heldur líka til þess fallið
að varpa dýrðarljóma á
kjarnorkusprengjuárásina,“ sagði
hann.
Flugvélin, ein af 15 B-29-vélum
bandaríska flughersins sem árið
1945 var breytt sérstaklega til að
geta tekið þátt í kjarnorkuárás, á
að verða einn aðalsýningargrip-
urinn í nýju húsnæði loftferða- og
geimvísindadeildar Smithsonian-
safnsins við Dulles-alþjóðaflugvöll-
inn í Washington, en hið uppgerða
„fljúgandi virki“ var sýnt fjölmiðla-
fólki á mánudaginn.
Samtök bandarískra upp-
gjafahermanna sem börðust í síðari
heimsstyrjöld hafa gagnrýnt að-
standendur nýju sýningarinnar –
sem ætlunin er að opna formlega
þann 15. desember nk. – fyrir að
beina sjónum um of að þjáningum
japanskra fórnarlamba kjarn-
orkuárásanna. Þeir segja að beiting
hins nýja vopns hafi þvingað Jap-
ana til uppgjafar og bundið þar
með enda á heimsstyrjöldina síðari.
Reuters
Enola Gay glampar sem ný í nýju húsnæði loftferða- og geimvísindadeildar
Smithsonian-safnsins. Hefur endurnýjun flugvélarinnar kostað 300.000
vinnustundir en hún er með 43 metra vænghaf og vegur rúmlega 62 tonn.
Fordæma að Enola
Gay verði til sýnis
Tókýó. AFP.
FASTEIGNIR mbl.is