Morgunblaðið - 21.08.2003, Síða 31

Morgunblaðið - 21.08.2003, Síða 31
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. ÁGÚST 2003 31 ✝ Kristín Böge-skov djákni fæddist í Reykjavík 17. ágúst 1935. Hún lést á gjörgæslu- deild Landspítala Fossvogi 15. ágúst síðastliðinn. af völd- um umferðarslyss er varð 21. júlí. For- eldrar hennar voru hjónin Sören Böges- kov bóndi í Reykja- vík, f. á Fredriks- bergi í Kaupmanna- höfn 22. maí 1893, d. 17. jan. 1979, og Ágústa S. Bögeskov húsfreyja, f. í Lágu-Kotey í Meðallandi 7. ágúst 1909, d. 26. júní 2000. Systur Kristínar eru Marie Bögeskov, f. 12. júní 1934, gift Hilmari Björns- syni og eiga þau þrjú börn og Lilja Bögeskov, f. 15. des. 1937, og á hún tvo syni. Hinn 10. mars 1956 giftist Kristín Birni Sigurðssyni, f. á Möðruvöllum í Hörgárdal 9. maí 1934, síðar lögregluvarðstjóra í Reykjavík. Foreldrar hans voru Sigurður Stefánsson, f. á Bjargi á Grímsstaðaholti 10. nóv. 1903, sóknarprestur á Möðruvöllum og síðar vígslubiskup Hólastiftis, d. 8. maí 1971, og María Ágústsdótt- ir cand.phil. prestsfrú, f. 30. jan. Vallaðsdóttir í Reykjavík. Dætur þeirra eru Ólöf verkfræðinemi, f. 18. jan. 1980, í sambúð með Pétri Vilhjálmssyni, og Kristín Rut nemi, f. 25. nóv. 1983. 4) Björn Ágúst pípulagningameistari í Hveragerði, f. 23. jan. 1963, kvæntur Elísu Nielsen Eiríksdótt- ur, f. í Vestmannaeyjum 15. des. 1961. Börn þeirra eru Halldór Atli rafvirki, f. 18. maí 1979, í sambúð með Fanneyju Friðþórs- dóttur, Hákon Davíð bakari, f. 7. apríl 1982, Karen Ósk, f. 27. júlí 1989, Ágúst Kaj, f. 15. jan. 1991, og Jóel Dan, f. 7. sept. 1994. 5) María Kristín meinatæknir í Kaupmannahöfn, f. 15. sept. 1968, gift Robert Lacy Shivers, f. í Chicago 22. nóv. 1957. Sonur þeirra er Steven Björn Lacy Shiv- ers, f. 15. des. 1996. Kristín varð stúdent 1985. Lauk síðar prófum frá heimspekideild Háskóla Íslands, BA í íslensku og dönsku. Síðan settist Kristín í guðfræðideild og útskrifaðist í hópi fyrstu djákna. Hún vígðist djákni að Neskirkju og starfaði þar í fimm ár. Þá starfaði hún um tíma hjá Hjálparstofnun kirkjunn- ar og síðast hjá félagsmálastofn- un Kópavogsbæjar. Einnig sat hún lengi í stjórn Hestamanna- félagsins Gusts og var formaður þess um tíma. Í stjórn Djákna- félags Íslands sat hún um skeið og sótti fundi og ráðstefnur á vegum þess innanlands og utan. Útför Kristínar verður gerð frá Digraneskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. 1904, d. 18. ágúst 1967. Börn Kristínar og Björns eru; 1) Ágústa stúdent og skrifstofumaður, f. 22. júní 1955, gift Hallgrími Kristins- syni frá Vífilsmýrum í Önundarfirði, f. 8. júlí 1951, d. 1. júní 1994. Synir þeirra eru Kristinn Logi lækna- nemi, f. 6. ágúst 1980, í sambúð með Söru Hlín Sigurðardóttur, og Björn Þór nemi, f. 21. sept. 1987. 2) Sig- urður söðlasmíðameistari á Rauðalæk, f. 28. júlí 1957. Var kvæntur Ágústu Hjaltadóttur frá Raftholti, f. 6. jan. 1967, sonur þeirra er Hjalti, f. 26. maí 1994. Sonur Sigurðar og Sigríðar Páls- dóttur frá Litlu Sandvík er Páll nemi, f. 24. ágúst 1984, dóttir Sig- urðar og Bjargar Thorberg í Reykjavík er Björg Thorberg nemi, f. 9. feb. 1986. 3) Kristján sóknarprestur í Vestmannaeyjum, f. 6. des. 1958, kvæntur Guðrúnu Helgu Bjarnadóttur, f. í Reykja- vík 6. apríl 1963. Synir þeirra eru Bjarni Benedikt, f. 1. feb. 1989, Sigurður Stefán, f. 22. nóv. 1990, og Björn Ásgeir, f. 2. júlí 2003. Fyrri kona Kristjáns er Sigrún Margt kemur upp í huga minn þegar ég sest niður á sextugasta og áttunda afmælisdegi móður minn- ar, tveimur dögum eftir andlát hennar. Þennan afmælisdag hafði hún skipulagt; okkur börnum hennar, tengdafólki og ömmubörnum var boðið í sumarhús í Munaðarnesi. Við hjónin erum að reyna að átta okkur á því hvenær hún hélt síðast upp á afmæli sitt með skipulögðum undirbúningi, en það rifjast ekki upp, sennilegast hefur henni þótt henta sér betur að vera á hestbaki, fjarri athygli afmælisgesta. Því fer þó fjarri að hún forðaðist samneyti við fólk og ég er alveg viss um að hún hefði viljað hafa okkur fólkið sitt meira í kringum sig. Ekki man ég eftir sorg og sút í samræðum okkar og gullasögu- tímar voru í uppáhaldi hjá henni. Oftar en ekki enduðu slíkir tímar á frábærum hlátri hennar, sem aftur endaði á einn og sama veg. Ekki man ég eftir öðru frá uppvaxtarár- um mínum en mamma væri heima og pabbi að vinna. Mamma hélt ást- ríkt og gott heimili og stjórnaði því á sinn hátt. Hún hefur litið á það sem hlutverk sitt að koma okkur til manna og síðar kæmi hennar tími. Fljótlega eftir að við vorum flog- in tók hún sig til og fór í Hamrahlíð- arskólann og tók þar stúdentspróf. Þaðan lá leiðin í háskólann og loks vígðist hún til djákna. Hvort þessi skólaganga hafi verið ákveðin löngu áður eða ekki er ljóst að hún var fullkomlega tilbúin til mennta þegar hún taldi það fært, heimilislífið með okkur börnin heima hafði forgang. Hún hafði ætíð tíma til að fylgjast með, en ekki var um óþarfa afskiptasemi að ræða og þegar ég hóf búskap með Elísu minni, þá 19 ára gamall, þótti henni það fullkomlega eðlilegt og studdi okkur með ráð og dáð ef að á þurfti að halda. Hestar voru hennar líf og yndi og fullkomnaðist það í hestaferðum um landið. Hún var einmitt að koma úr margra daga ferð um Snæfellsnes og var á heimleið ásamt föður mín- um þegar bíll þeirra valt. Mömmu beið mikil þrautarganga, jafnt and- lega sem líkamlega. Einhverra hluta vegna var henni ætlað að tak- ast á við allt það mótlæti sem mögu- legt virðist að leggja á nokkra manneskju. Ekki löngu fyrir hið ör- lagaríka slys áttum við mamma samtal, sem eftir á að hyggja lýsti mjög vel geðlagi hennar. Depurð barst í tal og þá kom hún með Pollý- önnu lífsskoðun sem fer vel við mína eigin: alveg sama er hvað upp á kemur, það getur jú alltaf verið verra. Daginn eftir slysdag fór ég að rifja þetta samtal upp við mömmu og hún hefði engu gleymt, það skyldi barist. Þó illa væri kom- ið, bugaðist ekki sálin, hún hafði ekki verið svift sínum helstu ein- kennum, viljastyrk og ákveðni, en það var einmitt það sem allir treystu á. Ég trúi og treysti því að hún hafi haldið í lífsskoðun sína allt til hins síðasta, en mótlæti sem á hana var lagt hafði betur. Ég og mitt fólk kveðjum með miklum söknuði, móður, tengda- móður og ömmu. Guð blessi þig og varðveiti. Björn Ágúst Björnsson. Stutt er milli gleði og sorgar. Yndislegri ferð í hópi vina lauk á hörmulegan hátt. Hestakonan dug- mikla lagði upp geislandi glöð í ferðalag á hestum um Snæfellsnes. Af tilviljun kvöddumst við hérna á hlaðinu við Gullsmára 7. Þetta var hennar síðasta ferð að heiman. Ferðalok urðu í bílslysi á Draghálsi 21. júlí sl. Á gjörgæslu- deild háði Kristín hetjulega baráttu fyrir lífi sínu, sem endaði 15. ágúst. Minningar, sem spanna næstum hálfa öld, eru margar. Árið 1954 kom til Möðruvalla í sumarvinnu ung Reykjavíkur- stúlka. Lítil og fíngerð, glaðleg og með einlægan svip. Fallegu greind- arlegu augunum var tekið eftir, úr þeim skein ákveðni og hlýja. Þessi stúlka var Kristín Bögeskov. Þetta sumar var sumarið þeirra Kristínar og Björns bróður míns. Ástir tókust með þeim og örlög þeirra ráðin áður en sumarið var á enda. Lagt var út í lífið með æskuþrótti og ást. Í hart- nær 50 ár stóðu þau saman í blíðu og stríðu. Hún Kristín kom oft á ávart og sýndi hvílík kjarnakona hún var. Hún hafði mikinn metnað og gerði kröfur til sjálfrar sín. Skyndilega var hún komin í öldungadeild og út- skrifaðist sem stúdent árið 1985. Svona lét hún langþráða drauma rætast. Næst var innritun í Háskóla Íslands. Þaðan útskrifaðist hún í fyrsta hópi djákna. Hún henti oft gaman að þessari menntunargleði, sagðist aldrei hafa getað þetta án stuðnings bónda síns, sem í senn er fullur af fróðleik og visku. Kristín fór ekki troðnar slóðir, gat verið hvatvís, ef henni fannst að sér veg- ið, hafði sterka réttlætiskennd, skoðanir annarra skiptu hana litlu, hún stóð ætíð fast með sjálfri sér. Stýrði styrkri höndu stóru búi, breiddi sig yfir mann sinn, börn og barnabörn. Hún var stoð og stytta í gleði og sorg. Ég er þakklát fyrir samfylgd hennar. Af Kristínu mátti margt læra, einlægni, hugrekki og festa eru góðir förunautar, sem hún átti gnægð af. Að gleðjast með glöðum og syrgjast með sorgmæddum. Oft var þessi eiginleiki hennar mér mikils virði. Gleði og sorg fylgjast að. Sá, sem ekki veitir gleði, skilur ekki eftir sig sorg. Ég bið, að guð gefi bróður mínum og þeim, sem sárast syrgja, styrk og æðruleysi. Og að þau, í minningu Kristínar, geti tekist á við lífið einn dag í einu. Guð gefi mér æðruleysi til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt, kjark til að breyta því sem ég get breytt og vit til að greina þar á milli. (Reinhold Niebuhr.) Blessuð sé minning Kristínar Bögeskov. Sigrún Sigurðardóttir. Kveðja frá Hestamannafélaginu Gusti Nafn Kristínar Bögeskov er sam- ofið sögu hestamannafélagsins Gusts frá því að félagið var stofnað 1965. Kristín var fyrsta konan til að gegna formennsku í Gusti á árinum 1980–1982 en hún hafði áður setið í stjórn félagsins. Hún hefur árum saman starfað í ferðanefnd Gusts og hún var upp- hafsmanneskja að því, ásamt Kol- brúnu Kristjánsdóttur, þáverandi Fákskonu, að konur í hestamanna- félögum á höfuðborgarsvæðinu fóru að heimsækja hver aðra í svoköll- uðum kvennareiðum. Hefð sem enn er í hávegum höfð. Kristín var svo sannarlega hesta- kona fram í fingurgóma. Hún skipu- lagði og stjórnaði mörgum sumar- ferðum og hefur farið víða um land ríðandi. Á veturna reið hún út í Gusti og nágrenni, oftast með manni sínum, Birni Sigurðssyni. Fyrr á árum tók hún þátt í keppn- um á vegum félagsins og sýndi það og sannaði að hestamennskan var síður en svo bara fyrir karlmenn eins og þá var gjarnan haldið fram. Við samferðamenn hennar í Gusti dáðumst af kraftinum og atorkunni sem einkenndi Kristínu. Hún lá ekki á skoðunum sínum þegar kom að félagsmálum. Hún var virk fram á síðasta dag og vildi ávallt hag fé- lagsins mestan og bestan. Stjórn hestamannafélagsins Gusts þakkar Kristínu að leiðarlok- um öll hennar góðu verk í þágu fé- lagsins og sendir fjölskyldu hennar dýpstu samúðarkveðju. F.h. hesta- mannafélagsins Gusts, Þóra Ásgeirsdóttir. Kynni okkar hjóna og Kristínar voru að mestu leyti við stofnun Hestamannafélagsins Gusts og störfum í þágu félagsins. Vel lýsir það vináttu milli heimila að Guðlaug kona mín sat gæðing Kristínar á stórsýningu hestamannafélagsins. Kristín og Björn, maður hennar, hafa lengi verið í stjórn félagsins, var Kristín formaður um tíma. Einnig vann Kristín mikið að kirkjumálum, bæði í kirkju og út- varpi. Síðast hjá félagsstofnun Kópavogs. Látin er Kristín Bögeskov sem var ómissandi fjölskyldum sínum og allra sem þekktu hana. Fallin er frá merkiskona. Guð blessi minningu Kristínar og styðji fjölskyldur hennar og vini í sorg þeirra. Ragnar Bjarnason. Þín orð mitt lífga líf, líka þó deyi, þar við óbilug blíf, bregðast þau eigi. Því verður þelið hraust, þó dauðinn komi, lukkast mér lofað traust líká í Guðs dómi. Mína eg fundið fæ fagnaðar-glaða, sem blómgað sumarfræ sætra laufblaða. (H.P.) Guð blessi minningu mætrar konu. Lárus og María Ágústsbörn. Kristín eða Stína, mamma henn- ar Maju bestu vinkonu minnar, var einstaklega lífsglöð og kraftmikil kona. Hún var svo dugleg og rösk, var alltaf kát og hress. Hún var heiðarleg. Hrein og bein. Ég man ekki eftir að hún kvartaði eða segð- ist vera þreytt á öllum verkefnun- um, hún bara gerði hlutina, bros- andi og kát, með rauðar kinnar. Ég man svo vel eftir Stínu að þvo bakið á Bubba sínum. Ég man svo vel eft- ir henni, glæsilegri í reiðgallanum sínum á leið í hesthúsin. Ég man svo vel eftir Stínu við stóru pottana í eldhúsinu, að elda ofan í stóru fjöl- skylduna sína og líflegu matartím- unum og kaffitímunum þar sem tal- að var um stjórnmál og alls konar flókin mál, að mér fannst. Fjöl- skyldan var stór, en alltaf var pláss fyrir gesti, enda létu þeir mjög reglulega sjá sig á heimilinu við Hlíðarveg 21, sem var beint á móti þar sem ég átti heima. Ég var nefnilega svo heppin að besta vinkona mín átti heima í hús- inu á móti mínu. Ég var svo heppin að við Maja gátum verið saman allt- af þegar við vildum. Ég var svo heppin að fá að vera hluti af þessari stóru og skemmtilegu fjölskyldu. Að þeirra heimili var nánast mitt annað heimili í mörg ár, að vera vel- komin öllum stundum og ganga allt- af að opnu húsi. Ég á Stínu mikið að þakka. Þær voru til að mynda ófáar næt- urnar sem ég fékk að gista hjá Maju, þar sem ég lærði fallegar bænir, eins og þessa sem gott er að fara með á sorgarstundu sem þess- ari: Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum.) Elsku Maja mín, Bubbi minn, Gústa, Siggi, Kiddi, Bjössi og Stev- en Björn litli, megi Guð og engl- arnir hans styrkja ykkur í sorginni. Ragna Sæmundsdóttir. KRISTÍN BÖGESKOV ✝ Gunnlaug MaídísReynis fæddist á Húsavík 24. júlí 1930. Hún lést á hjúkrunar- heimilinu Víðihlíð í Grindavík 15. ágúst síðastliðinn. Foreldr- ar hennar voru Einar Jósefsson Reynis, pípulagningamaður á Húsavík og síðar skrifstofumaður í Reykjavík, f. 25. nóv. 1892, d. 16. júní 1979, og kona hans, Arn- þrúður Gunnlaugs- dóttir Reynis, f. 9. ágúst 1897, d. 25. júní 1977. Systkini Gunnlaug- ar Maídísar eru Anna Soffía, f. 1923, Jósef Sigurður, f. 1925 og Arnhildur Hólmfríður, f. 1933. Gunnlaug Maídís giftist 21. júní 1952 Ólafi Valgeiri Sverrissyni skipstjóra, f. 29. maí 1932. Börn þeirra eru: 1) Guðmundur Sverrir, f. 3. maí 1952, kvæntur Guðmundu Jónsdóttur og eiga þau þrjú börn og þrjú barnabörn. 2) Arnþrúður Soffía, f. 6. ágúst 1953, gift Tryggva Leóssyni og eiga þau þrjú börn. 3) Einar Jón, f. 2. ágúst 1955, hann á tvö börn. 4) Jósef Kristinn, f. 23. jan. 1957, kvæntur Hildi Guðmundsdóttur og eiga þau þrjú börn og tvö barnabörn. 5) Sigurður, f. 5. júlí 1960, kvæntur Sigríði Ágústsdótt- ur og eiga þau þrjár dætur. 6) Arnar, f. 25. ágúst 1961, kvæntur Kolbrúnu Pálsdóttur og eiga þau einn son. 7) Valborg Anna, f. 15. okt. 1965, gift Elíasi Péturssyni og eiga þau þrjá syni. Útför Gunnlaugar Maídísar fer fram frá Grindavíkurkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Mér brá mjög, þegar hringt var og sagt að þú ættir jafnvel ekki eft- ir nema nokkra tíma Gullý mín. Það er erfitt að þurfa að kveðja þig, en vonandi líður þér betur þar sem þú ert núna. Þegar ég kom inn í þína fjöl- skyldu fyrir 22 árum, þá tókuð þið Óli á móti mér og dóttur minni, henni Sirrý, með mikilli alúð og hlýju í okkar garð. Síðan fluttum við í Grindavik og þá var oft mikið að gera. Yfirleitt á vorin voru settar nið- ur kartöflur og síðan teknar upp á haustin. Oft var farið í berjatúra í nágrenni Grindavíkur með kaffi og brauð. Þú hafðir alltaf nóg að gera, búa til sultu og saft og gerðir bestu rabbarbarasultu sem til er í heimi. Ekki stóð á því að passa barna- börnin, þú varst alltaf til taks og varst dætrum okkar Sigga einstak- lega góð amma. Þær voru alltaf að máta skóna þína, og nutu hverrar mínútu hjá þér og er þín sárt sakn- að af þeim. Takk fyrir allar sam- verustundirnar sem við áttum sam- an. Guð geymi þig og hvíl í friði. Sigríður Ágústsdóttir. Elsku amma. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (V. Briem.) Guð geymi þig, þínar sonardæt- ur Sigríður, Hekla Maídís og Anna Fanný. GUNNLAUG MAÍDÍS REYNIS

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.