Morgunblaðið - 21.08.2003, Side 36
36 FIMMTUDAGUR 21. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
KÆRI Hjálmtýr Heiðdal og aðrir
kvikmyndagarpar.
Þótt ég þykist vita að þú og sam-
starfsfólk þitt sækist eftir „upphefð
að utan“ þá megið þið ekki traðka á
móðurmáli og fótumtroða feðra-
tungu. „Short and Doc“ er í hæsta
máta óviðeigandi sem kynningar-
heiti kvikmyndaviku. Langafi þinn
Þorlákur Johnson var ekki í vand-
ræðum þegar hann auglýsti varning
sinn. Hann talaði um „Þjóðfrelsis
whiskýið“ og „brjóstsykurinn ljúfa“
... Ættingjar hans forðuðust að bera
ættarnafn hans fram á engilsaxnesk-
an máta. Ekkert „dj“ í nafninu John-
son. Enda hverfur ættarnafnið í eng-
ilsaxneska múginn með þeim
framburði. Með okkar framburði
verður ættarnafnið einstakt og held-
ur sérstöðu sinni.
„Johnson & Kaaber“ þekktu allir
Reykvíkingar áður fyrr. Einar
Benediktsson taldi að íslensk tunga
ætti orð yfir allt sem er hugsað á
jörðu.
Þegar þið, ungir og framgjarnir
kvikmyndagerðarmenn, sækið fram
á alþjóðavettvangi hvílir rík ábyrgð
á herðum ykkar. „Vandi fylgir veg-
semd hverri“. „Skyrpokalatur“ lá á
meltunni og gerði ekki annað en
gapa og slafra í sig næringu sem
honum barst án eigin fyrirhafnar.
Hverfið frá kalkipappírs- eða ljósrit-
unarmenningu að frjórri og skap-
andi hugsun og verkum.
Við þurfum að losna úr heljar-
greipum engilsaxneska framburðar-
ins. Vigdís forseti á ekki að segja:
Júnesco. Hún á að segja Únesco.
Stofnunin heitir það. Sama gildir um
Eurocard. Evrópa er ekki Júróp. Sá
framburður á ekki stoð í móðurmáli
Íslendinga.
Um leið og ég bið Morgunblaðið
að birta þessa ábendingu vil ég beina
þakklæti til Sjónvarpsstöðvarinnar
Omega. Ég hafði samband við síma-
stúlku, sem svaraði kurteislega og
tók þegar til greina vinsamleg til-
mæli. Ég bað hana að óska þess að
fólk „hringdi“ en ekki að það
„hringdi inn“. Það eru amerísk áhrif.
Stúlkan svaraði kurteislega og
breytti tilmælunum þegar í stað.
Slíkt hið sama ættu aðrar stöðvar að
gera.
Silli og Valdi auglýstu: „Bara
hringja – svo kemur það“. Þetta
nægði þeim. Svona eiga kaupmenn
að vera. Og sýslumenn líka.
PÉTUR PÉTURSSON þulur,
Garðastæti 9,
101 Reykjavík.
Íslenskur
framburður
Frá Pétri Péturssyni þul:
EINS og heimspekingurinn Hans
Koppler hefur löngum haldið fram,
þá skiptist mannþjóðin í þrjá aðal
hópa; ungt fólk,
miðaldra fólk og
eldra fólk. Nátt-
úran leyfir ein-
faldlega ekki
aðra hópa að
sögn Kopplers.
Áhugasvið þess-
ara hópa eru og
hafa alltaf verið
misjöfn, ungt fólk
hefur aðallega
áhuga á heilalausu léttmeti eins og
sést á því efni sem er matreitt ofan í
það í sápukúlumiðlum ljósvakans (án
þess að ég nefni nein nöfn). Sú lág-
kúrulega sápukúlumenning hefur
sjaldan sokkið eins djúpt og en ein-
mitt nú. Annar hópurinn, miðaldra
fólk, er sá hópur sem mest hefur ver-
ið hvað mest sinnt af Ríkisútvarpi og
sjónvarpi (bláskjá) af mikilli alúð og
kostgæfni. Hefur sú grasrótarstarf-
semi sem þar hófst með fyrstu út-
sendingum á öldum ljósvakans loks
skilað sér í því að ala upp löghlýðið
og sómakært fólk. Þriðji hópurinn,
eldra fólkið, er sá hópur sem á hvað
mest skilið að fá aðhlynningu á sviði
útvarps og sjónvarps. Ríkið hefur
vanrækt þennan hóp lengi (Enda
ræður hér bláa höndin ríkjum). Það
sést vel hvaða aðili er best til þess
fallinn að standa í útvarpsrekstri
þegar sú staðreynd er skoðuð að Rás
1 er eina stöðin sem sinnt hefur elsta
hópnum að einhverju marki. Ekki er
hægt að segja það sama um Bláskjá
sem hefur aðallega verið að eltast við
sápukúluverksmiðju hins svokallaða
„frjálsa“ markaðar. Einfaldast væri
að sjálfsögðu að ríkið sæi alfarið um
sjónvarps- og útvarpsrekstur og
ræki eina útvarps- og sjónvarpsstöð
fyrir hvern hópinn fyrir sig. Þetta
væri einfaldara fyrir þjóðina þar sem
hver einstaklingur fyrir sig börn,
fullorðnir og aldraðir, greiðir þartil-
gert gjald fyrir aðgang að miðlum
við þeirra hæfi. Fólk þarf ekki leng-
ur að líða ágang og ofríki fjölmiðla
sem reknir eru af gróðafýsn einni
saman. Svo væri einnig hægt að taka
fólk í þroskapróf til að komast að nið-
urstöðu um hvaða flokki það tilheyr-
ir og þarmeð hvað það skal greiða í
gjald. Einnig væri hentugt fyrir ríkið
að koma að kristilegum boðskap og
gildum, þá sérstaklega í miðla unga
fólksins. Ungt fólk þarf svo sannar-
lega á þeim boðskap að halda nú þeg-
ar gróðafíkn og auðsöfnunarárátta
grípur landið heljartökum úr vestri.
Það væri einnig æskilegt að ríkið léti
loka á stöðugt áreiti áróðurs og inn-
rásarstöðva sem stöðugt dynja á
landsmönnum, þá á ég sérstaklega
við útsendingar frá hinum heims-
valdasinnuðu Bandaríkjum Norður-
Ameríku undir stjórn stríðsherrans
Bush. Ég sendi því kaldar kveðjur til
hinna háu herra í Stjórnarráðinu og
Hvíta húsinu.
GUÐJÓN HELMUT
KERCHNER, söngvari,
Gatzstrasse 65,
D-12099 Berlin.
Hóparnir þrír
Frá Guðjóni Helmut Kerchner
í Berlín:
Guðjón Helmut
Kerchner