Morgunblaðið - 21.08.2003, Page 44
FÓLK Í FRÉTTUM
44 FIMMTUDAGUR 21. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Harðsoðið egg
(Ovosodo)
Gamandrama
Ítalía 1997. Skífan. VHS (100 mín.) Öll-
um leyfð. Leikstjóri: Paolo Virzì Aðalleik-
endur: Edoardo Gabriellini, Alessio Fant-
ozzi, Pietro Fornaciari.
TITILLINN þýðir víst harðsoð-
ið egg en táknar tilfinningalíf
söguhetjunnar Piero sem fylgst er
með frá bernsku til tvítugs. Piero
á erfiða æsku, missir móður sína á
unga aldri, bróðir hans er gáfna-
sljór og faðirinn smákrimmi sem
dúsir mestmegnis
í fangelsum en
hefur þó tíma til
að gera nýja vin-
konu sína ólétta.
Kemur með hana
inn á heimilið áður
en hann hverfur
inn fyrir múrana
næstu fimm árin.
Piero er skyn-
samur strákur sem lætur kring-
umstæðurnar ekki trufla sig en á
létt með að líta á björtu hliðarnar,
gengur vel í skóla þar sem hann
kynnist furðufuglinum Tommoso.
Hann víkkar sjóndeildarhring
Pieros sem er tiltölulega fljótur að
ná áttum í hörðum heimi, finnur
stúlkuna sína og staðfestir ráð sitt.
Slíkar sögur sem þessi eru eilíf-
lega að gerast um allan heim, það
sem skiptir máli er hvernig þær
eru sagðar. Þroskasagan hans
Pieros er vafalaust byggð á lífs-
reynslu leikstjórans og handrits-
höfundarins Virzi, sem tekst það
svo listavel að hann sópaði til sín
verðlaunum á Feneyjahátíðinni og
víðar fyrir árangurinn. Ovosodo
geislar af smitandi lífsgleði sem er
rauði þráðurinn í ljóslifandi mann-
lífs- og persónulýsingum og gam-
ansemin ávallt í fyrirrúmi og
minnir myndin að því leyti meira
en lítið á Amarcord meistara Fell-
ini.
Virzi nýtur einstaklegra hæfi-
leikaríkra, ungra leikara þar sem
ber sérstaklega að geta Nicolettu
Breschi í hlutverki hinnar óham-
ingjusömu Giovönnu. Ovosodo flyt-
ur með sér ferskan andblæ og
framandi mannlíf – innsýn í tifinn-
ingahitann á Ítalíu. Sæbjörn Valdimarsson
Myndbönd
Gangur
lífsins í
Livorno
SÁRAFÁ kvennabönd hafa litiðdagsins ljós hér á landi og ennfærri slík bönd sem spila enn í
dag. Þannig hafa Grýlurnar hafa dag-
að uppi og Kolrassa krókríðandi er ei
meir. Tvö eru þó bönd sem enn heyr-
ist í og laus eru við alla ypsilon-litn-
inga. Það eru Dúkkulísurnar og
Rokkslæðan. Þessar hljómsveitir
tvær hafa nú tekið saman höndum og
undirbúa tónleikahrinu um suðvest-
urhorn landsins en ævintýrið hefst í
Grindavík á Sjávarperlunni á laugar-
dag.
„Við erum að hefja samstarf sem
standa mun fram á haust,“ segir
Kidda úr Rokkslæðunni. „Báðar
hljómsveitirnar munu spila, Rokk-
slæðan á undan og Dúkkulísurnar á
eftir. Við ætlum síðan að taka fleiri
svona böll ef þetta gengur vel.“
Enn liggur dagskrá samstarfsins
ekki fyrir í smáatriðum en Kidda seg-
ir að ætlunin sé að halda nokkra tón-
leika í hæfilegum radíus við höfuð-
borgina fram að jólum.
Dúkkulísurnar hafa síðustu misseri
verið að vakna til lífs á ný og tróðu
þær meðal annars upp á hátíðardag-
skrá Hinsegin daga í miðbæ Reykja-
víkur fyrr í mánuðinum. Nýtt lag með
þeim er komið í spilun og unnið að
myndbandi við það. Dúkkulísurnar
komu fyrst fram á sjónarsviðið 1983 á
Músíktilraunum Tónabæjar og reis
ferill þeirra hæst næstu árin með
plötunum Dúkkulísurnar (1984) og Í
léttum leik (1986). Eftir þær liggja
lög á borð við „Svarthvíta hetjan
mín“, „Skítt með það“ og auðvitað
lagið um stúlkuna sem vildi verða eins
og Pamela í Dallas, sælla minninga.
Rokkslæðan varð til í mars fyrir
tæpum tveimur árum. „Rokkslæðan
átti aldrei að verða neitt meira en
einnar nætur hljómsveit,“ segir
Kidda. „Við lögðum af stað með tvo
kassagítara og slagverk en hugmynd-
in var að spila hetjurokk á þessi þrjú
hljóðfæri. Þetta var því í raun grín-
fyrirbæri.“
Fyrstu tónleikar bandsins á Sirkús
gengu hins vegar með endemum vel
og fengu þær í kjölfarið boð um að
halda tónleika á hinum og þessum
skemmtistöðum. Vatt ferill hljóm-
sveitarinnar þannig upp á sig.
Hljómsveitirnar sameinast í gítar-
leikaranum Grétu Sigurjónsdóttur en
annars er Rokkslæðan skipuð þeim
Kristínu Eysteins, Kiddu „Rokk“,
Dísu „Marley“, og Grétu. Dúkkulís-
urnar eru Erla Ingadóttir, Erla
Ragnarsdóttir og Guðbjörg Pálsdótt-
ir, að ógleymdri Grétu.
Tvær kvennahljómsveitir saman í tónleikaferðalag
Morgunblaðið/Ómar
Dúkkulísurnar í þá gömlu góðu daga.
http://rokkslæðan.-
blogspot.com
asgeiri@mbl.is
Rokkslæðan og Dúkku-
lísurnar fara á túr
Stúlkurnar í Rokkslæðunni eru
óþreytandi í rokkinu. Hér skemmta
þær í Ráðhúsinu þegar afmæli Sam-
takanna 78 var fagnað fyrr á árinu.
22.SÝNING FIMMTUDAGINN 21/8 - KL. 20 UPPSELT
23. SÝNING LAUGARDAGINN 23/8 - KL. 16 UPPSELT
24. SÝNING LAUGARDAGINN 23/8 - KL. 20 UPPSELT
25. SÝNING FÖSTUDAGINN 29/8 - KL. 20 UPPSELT
26. SÝNING LAUGARDAGINN 30/8 - KL. 16 UPPSELT
27. SÝNING LAUGARDAGINN 30/8 - KL. 20 UPPSELT
28. SÝNING SUNNUDAGINN 31/8 - KL. 16 UPPSELT
29. SÝNING SUNNUDAGINN 31/8 - KL. 20 UPPSELT
30. SÝNING FÖSTUDAGINN 5/9 - KL. 20 ÖRFÁ SÆTI
31. OG 32. SÝNING SUNNUDAGINN 7/9 - KL. 16 og 20 LAUS SÆTI
ATHUGIÐ ÓSÓTTAR PANTANIR SELDAR DAGLEGA!
Kringlunni - SmáralindSmáralind
NÝ SENDING
AF GAB BUXUM 3.990
Skólafötin
sem krakkarnir vilja
NÝ SENDING - NÝJA
Sumarkvöld við orgelið
21. ágúst kl. 12.00:
Veronica Osterhammer sópran og
Friðrik Vignir Stefánsson orgel.
23. ágúst kl. 12.00:
Mark Anderson orgel.
24. ágúst kl. 20.00:
Mark Anderson leikur m.a.
verk eftir Buxtehude, Vierne,
Franck og Messiaen.