Morgunblaðið - 21.08.2003, Page 52
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 21. ÁGÚST 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
Sími 588 1200
Lágmúla og Smáratorgi
opið kl. 8-24
alla daga
ÞAÐ er fremur dræmur afli í netin í
Faxaflóanum þessa dagana. Hermann
Magnússon og félagar hans í áhöfninni á
netabátnum Hring GK frá Hafnarfirði láta
tregfiskiríið hins vegar ekki á sig fá, enda
alvanalegt að dauft sé yfir aflabrögðunum á
þessum árstíma.
Morgunblaðið/Þorkell
Á netum
í Flóanum
Tregfiskirí/C2–C3
HÓPUR, sem í eru meðal annars
nokkrir hluthafar í SÍF, gerði á
þriðjudag tilboð í öll hlutabréf Ís-
landsbanka í SÍF og SH. Þetta
hefur fengist staðfest hjá Íslands-
banka og Ólafur Ólafsson, varafor-
maður í stjórn SÍF, staðfesti þetta
í samtali við Morgunblaðið í gær.
Tilboðið hljóðaði upp á tæpar
1.960 milljónir króna en það rann
út í gærmorgun án þess að form-
legt svar hefði borist, að sögn
Ólafs. Hann segir að hugsanlega
verði tilboðið endurnýjað.
Ólafur segir hópinn á bak við til-
boðið skipaðan nokkrum aðilum
sem sé umhugað að hagsmunir Ís-
lendinga og þessara tveggja fyr-
irtækja séu varðir.
„Við teljum að margs konar
hagsmunir bankanna kunni að
hanga á spýtunni en þetta mál SÍF
og SH er mjög vandmeðfarið.
Þetta snýr að hagsmunum fjölda
starfsmanna hér heima og erlend-
is. Þetta snýr enn fremur að því að
þetta eru þjónustufyrirtæki sem
eru mjög háð sínum viðskiptasam-
böndum. Annars vegar hjá íslensk-
um og erlendum birgjum og hins
vegar hjá erlendum kaupendum.“
Engin áhætta tekin
„Okkur hefur þótt bankarnir
ganga mjög hart fram í þessu
máli. Þeir hafa kvartað yfir að eiga
mikið í þessum félögum og
Íslandsbanki hefur nefnt erlenda
aðila í því sambandi. Til þess að
losa Íslandsbanka undan þessari
stöðu og til að tryggja að sölu-
samtökin verði áfram á forræði Ís-
lendinga þá buðumst við til að
kaupa hlut Íslandsbanka í báðum
félögunum.
Það skiptir okkur Íslendinga
grundvallarmáli að við ráðum yfir
fiskveiðilögsögu okkar og höfum
sjálfstæði í okkar sjávarútvegs-
stefnu. Það skiptir okkur líka
grundvallarmáli að við ráðum yfir
sölu- og dreifikerfi eigin afurða.
Þessi hópur er ekki tilbúinn til að
taka neina áhættu um eignarhlut
Íslendinga í þessum fyrirtækjum,“
segir Ólafur.
Buðust til að kaupa hluti
Íslandsbanka í SÍF og SH
TVÖ af hverjum þremur tölvuskeytum sem
fóru í gegnum póstþjóna í gær voru tölvuveir-
an SoBig.F@mm, en veiran gerði fyrst vart
við sig á þriðjudag.
Að sögn Friðriks Skúlasonar hjá Friðriki
Skúlasyni ehf. var hlutfallið komið upp fyrir
72% meðal þeirra fyrirtækja sem nýta sér
póstsíu Friðriks Skúlasonar ehf., en venju-
lega er þessi smittala í kringum 2-3%.
Hjá netþjónustu Landssímans höfðu um
160 þúsund skeyti verið stöðvuð um miðjan
dag í gær og tæplega 200 þúsund sýkt skeyti
voru stöðvuð á póstþjóni Og Vodafone í gær.
Mikill fjöldi hafði einnig verið stöðvaður af
Margmiðlun ehf. en póstþjónninn þeirra lá
niðri milli níu og tólf í gærmorgun vegna
álags.
Þá var álagið á póstþjónum Háskóla Ís-
lands meira en áður hefur þekkst og víða löm-
uðust póstkerfi fyrirtækja í lengri eða
skemmri tíma. Viðskiptavinir Kauphallar Ís-
lands þurftu að fara með gögn á disklingum í
gær því póstkerfi Kauphallarinnar annaði
ekki að taka við pósti.
Fékk 40 þúsund tölvuskeyti
„Stærsti skaðinn sem þessi vírus veldur
fólki er að hann fyllir upp pósthólfin,“ segir
Friðrik Skúlason. Hann segist vita til þess að
einn einstaklingur hafi fengið 40 þúsund
tölvuskeyti með veirunni. Friðrik telur að í
versta falli ljúki faraldrinum 10. september
nk., en veiran er forrituð þannig að hún hætt-
ir að virka og eyðir sjálfri sér þann dag.
Yfir 72% tölvu-
skeyta sýkt
Tvö/4
Póstsía Friðriks Skúlasonar
VERÐ á svínakjöti hefur lækkað
um rúmlega 25% á einu ári. Mjög
góð sala hefur verið í svínakjöti, en
að sama skapi hefur dregið úr sölu
á lambakjöti. Birgðir af lambakjöti
voru 11% meiri 1. ágúst sl. en á
sama tíma í fyrra. Útlit er fyrir að
auka verði útflutning á kjöti, en
það hefur í för með sér kjararýrn-
un fyrir bændur sem kemur til við-
bótar þeirri lækkun sem afurða-
stöðvar hafa boðað á verði til
bænda.
„Staðan er hrikaleg. Það er ekk-
ert hægt að orða það á annan hátt.
Kjötmarkaðurinn er allur í upp-
námi vegna offramboðs á kjöti,“
segir Ari Teitsson, formaður
Bændasamtaka Íslands, um stöð-
af allri framleiðslu yrðu flutt á er-
lenda markaði, en miðað við
birgðastöðu þyrfti þetta hlutfall að
fara upp í a.m.k. 35%. Óvíst er hins
vegar hvort gerð verður tillaga um
svo mikla hækkun, en á síðasta ári
fór ráðherra ekki að tillögu
Bændasamtakanna um að hafa
hlutfallið 28%.
„Birgðir eru of miklar. Það
þyrfti að ákveða útflutningsskyldu
með tilliti til þess og flytja þessar
birgðir út, en það væri ákveðin
uppgjöf gagnvart markaðinum að
láta svínakjötið flæða inn á und-
irverði og flytja út lambakjöt í
staðinn,“ sagði Ari.
ur lækkað um rúmlega
25% á einu ári. Verð á
kjúklingum í júlí var
21% lægra en í sama
mánuði í fyrra. Verðið
hefur hins vegar hækk-
að að undanförnu. Af-
koma framleiðenda í
þessum tveimur grein-
um er slæm og telja
svínabændur að verð til
þeirra, sem í dag er
120–130 kr. á kíló, þyrfti
að hækka um 100 kr. til að þeir fái
fyrir framleiðslukostnaði.
Ekki liggur fyrir hvaða tillögu
Bændasamtökin gera til ráðherra
um útflutningsskyldu lambakjöts í
haust. Í fyrra var ákveðið að 25%
una sem nú blasir við
sauðfjárbændum.
Sala á lambakjöti er
8,4% minni á síðustu
tólf mánuðum en á tólf
mánuðum þar á und-
an. Um síðustu mán-
aðamót voru til í land-
inu um 2.000 tonn af
lambakjöti en það er
11% meira en á sama
tíma í fyrra. Eftir er
að flytja út 160 tonn af
kjöti á erlenda markaði.
Þarf að flytja meira út
Skýringin á minni sölu er ekki
síst mjög lágt verð á svínakjöti og
kjúklingum. Verð á svínakjöti hef-
Ari Teitsson segir stöðuna í sauðfjárrækt vera hrikalega
Svínakjöt hefur lækk-
að um 25% á einu ári
*!##/-5!(6
-&0"> ;#(#0">
6*/#0">
#$9#0">
(#0">
//#0">6>(
-&!0
EF
'GFH
'IFI
'GFJ
'KFK
'HF
'1FL
EHFG
M
M
M
M
M
M
M
M
Lambakjötsbirgðir í landinu eru 11% meiri nú en í fyrra
Verð til/26
AFURÐIR af fyrstu hrefnunni
verða seldar í kjötborðum Hag-
kaupa í dag en samkvæmt upp-
lýsingum Morgunblaðsins mun
kílóið kosta 1.098 krónur.
Halldór Sigurðsson ÍS veiddi
stóra hrefnu norður af landinu í
gær að sögn forstjóra Hafrann-
sóknastofnunar. Halldór ætlaði
að halda áfram veiðum og reyna
að ná fleiri hrefnum. Njörður
var ekki á sjó í gærkvöldi og
slæmt veður var fyrir sunnan
land þar sem Sigurbjörgin var.
Hrefnan
kostar 1.098
kr./kg
Kílóið/6
ÍSLENSKA landsliðið í knattspyrnu sigraði
Færeyinga, 2:1, í miklum baráttuleik í 5. riðli
undankeppni Evrópumótsins í Þórshöfn í
gærkvöldi. Eiður Smári Guðjohnsen og Pétur
Hafliði Marteinsson skoruðu mörk íslenska
liðsins og skoraði Pétur sigurmarkið 20 mín-
Íslendingar eiga eftir að mæta Þjóðverjum
tvívegis, á Laugardalsvelli 6. september og
ytra 11. október.
Á myndinni fallast markaskorararnir Pétur
H. Marteinsson og Eiður Smári Guðjohnsen í
faðma eftir sigurmark þess fyrrnefnda.
útum fyrir leikslok. Með sigrinum skutust Ís-
lendingar á topp riðilsins og eiga þar með enn
von um að komast í úrslitakeppnina í Portú-
gal á næsta ári. Íslendingar hafa tólf stig eftir
sex leiki, Þjóðverjar hafa ellefu stig og Skotar
átta, en báðar þjóðir hafa lokið fimm leikjum.
Morgunblaðið/Kristinn
Íslendingar í efsta sæti 5. riðils
♦ ♦ ♦