Morgunblaðið - 23.08.2003, Side 1
Úr músík
í nám
Botnleðjudrengir hefja
kennaranám 18
Seiðandi
dans
Tangóhátíð hefst í Reykjavík í
næstu viku Fólkið 58
Stefnir á
úrslitin
Þórey Edda keppir í stangar-
stökki á HM í dag Íþróttir 52
KOFI Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóð-
anna, sagði í gær að stofnunin ætti að taka meiri þátt
í aðgerðum í Írak en að ólíklegt væri þó að ný álykt-
un Bandaríkjamanna, um aukna
þátttöku annarra þjóða, yrði sam-
þykkt í öryggisráðinu nema
Bandaríkjastjórn féllist á að gefa
eftir stjórn mála í Írak að ein-
hverju leyti.
„Ef það gerist ekki, tel ég að
mjög erfitt verði að ná samkomu-
lagi um nýja ályktun,“ sagði Ann-
an í gær. Hann útilokar ekki að
SÞ sendi alþjóðlegar sveitir til Írak.
Bandaríkjastjórn virðist sannfærð um að
sprengjuárás á höfuðstöðvar SÞ í Bagdad á þriðju-
dag hafi breytt umræðunni um hið umdeilda stríð og
stjórnar Colin Powell utanríkisráðherra nú herferð
þar sem embættismenn kynna sjónarmið Banda-
ríkjanna fyrir ráðamönnum annarra ríkja.
Vilja ekki starfa undir bandarískri stjórn
Fjölmargar þjóðir hafa lýst yfir vilja til að taka
þátt í aðgerðum í Írak í umboði SÞ, en sætta sig ekki
við að vinna undir yfirstjórn Bandaríkjamanna í
landinu. Bandaríkjastjórn segir hins vegar útilokað
að hún láti stjórn af neinu tagi í annarra hendur.
Þjóðverjar forðuðust að svara spurningum um
hvort þeir hyggðust senda lið til Írak. „Bandamenn
bera ábyrgð á öryggi og stöðugleika í Írak og Þjóð-
verjar tilheyra ekki bandamönnum,“ sagði Joschka
Fischer, utanríkisráðherra Þýskalands. Hann úti-
lokaði þó ekki þátttöku. Frakkar hafa gefið í skyn að
þeir muni ekki styðja nýja ályktun nema Bandaríkin
ætli líka að deila „upplýsingum“ og „valdi“ með öðr-
um. Arabaþjóðir hafa einnig hafnað þeim möguleika
að þær taki þátt í aðgerðum í Írak.
Annan vill
að SÞ fái
stærra hlut-
verk í Írak
Washington, París. AFP.
Kofi Annan
Öryggisverðirnir/14
ÓSLÓ hefur leyst Tókýó af hólmi sem dýrasta
borg í heimi. Kemur það fram í könnun sviss-
neska stórbankans UBS.
Tókýó er nú í þriðja sæti á eftir Hong Kong
en í fjórða sæti er New York, þá Zürich,
Kaupmannahöfn og London. Bombay og
Buenos Aires eru ódýrastar af 70 borgum.
Í þeim kafla könnunarinnar, sem heitir
„Verðlag og tekjur“, er miðað við 111 tegundir
vöru og þjónustu og þá kemur í ljós, að kaup-
máttur er mestur í svissnesku borgunum
Zürich, Genf og Basel og síðan í Los Angeles
og Lúxemborg.
Ósló er dýr-
asta borgin
Genf. AP.
SEXTÁN manns létust er gervihnöttur sprakk í
Alcantara-geimferðastöðinni í Norðaustur-Brasilíu
í gær. Um tuttugu særðust í sprengingunni, sam-
kvæmt upplýsingum frá varnarmálaráðuneyti
landsins. Mikill eldur gaus upp en slökkviliðsmenn
höfðu náð nokkrum tökum á honum í gærkvöldi.
Gervihnettinum átti að skjóta á loft 25. ágúst.
16 létust er gervi-
hnöttur sprakk
Brasilía. AFP.
ÞAÐ má með sanni segja að það
hafi ríkt rafmögnuð stemmning
í íþróttahúsinu á Digranesi í
Kópavogi í gærkvöld þegar
þriðja Skjálftamótið á þessu ári
hófst. Það er Síminn Internet
sem stendur fyrir mótinu. Þar
verður keppt í tölvuleikjunum
Counter-strike og Quake. Mikill
hugur var í keppendum, sem
voru alls 528 talsins. Keppnin
mun standa fram á sunnudags-
kvöld. „Við verðum hérna alla
helgina,“ sögðu þeir Gunnar,
Hjörtur, Viktor, Daníel og
Ebenezer, sem voru í óða önn að
vígbúast fyrir keppnina. Lið
þeirra heitir Kotr og höfðu sum-
ir þeirra komið á fjögur síðustu
mót Skjálfta. Þær Regína og
Sigríður, úr liðinu Love, voru
einnig mjög uppteknar við
Counter-strike spil, og sögðust
hlakka til helgarinnar.
Morgunblaðið/Kristinn
Þeir Gunnar, Hjörtur, Viktor, Daníel og Ebenezer voru í góðum gír við upphaf Skjálftamótsins á Digranesi í gærkvöldi.
Ungmenni vígbúast til tölvuleikja
SIGMAR B. Hauksson, formaður
Skotveiðifélags Íslands, segir félagið
hafa bent á hættuna af fjölgun veiði-
korta fyrir gæsaveiði strax þegar
veiðibann á rjúpu var tilkynnt.
„Rjúpnaveiðibannið mun hafa veru-
legar hliðarverkanir, sérstaklega að
grágæs og blesgæs verði ofveiddar.
Veiðiálag á grágæs mætti ekki vera
meira, og stofn blesgæsarinnar hef-
ur dregist saman. Sömuleiðis mun sá
gagnagrunnur sem skapast hefur
með veiðikortakerfinu skemmast,“
sagði Sigmar í samtali við Morg-
unblaðið í gær.
Hann telur að gæsaveiðimönnum
geti fjölgað um allt að tvö þúsund
með rjúpnaveiðibanninu. „Við höfum
bent á að það séu afar fá veiðidýr á
Íslandi, og af þeim sökum geti veiði-
álag á gæs orðið of mikið með
rjúpnaveiðibanninu. Innan þriggja
ára gætum við því þurft að horfast í
augu við veiðibann á gæs vegna of-
veiða. Þá yrðu fuglaveiðar úr sög-
unni hér á landi.“
Meðalveiði grágæsa á ári und-
anfarin fimm ár hefur verið rúmlega
37 þúsund fuglar. Á móti kemur að
einungis rúmlega 13 þúsund heiða-
gæsir hafa veiðst á ári. Til sam-
anburðar má geta þess að með-
alveiði á rjúpu var rúmlega 150
þúsund fuglar á ári undanfarin fimm
ár.
Veiðimenn
óttast of-
veiði á gæs
ANNASAMT hefur verið hjá
veiðistjórnunarsviði Umhverfis-
stofnunar undanfarið en gæsa-
veiðitímabilið er að hefjast og
veiðimenn því að endurnýja
veiðikort sín.
Áki Ármann Jónsson, for-
stöðumaður veiðistjórnunar-
sviðs, segir að búið sé að gefa út
ríflega 7.000 veiðikort og að 25–
30% fleiri hafi sótt um kort fyrir
veiðitímabilið í ár en venja er.
Áki telur að rjúpnaveiðibannið
muni hafa í för með sér aukna
aðsókn í gæs og að þetta mikla
álag sem hefur verið á veiði-
stjórnunarsviði megi rekja til
þess.
Að sögn Áka er þetta ekki
áhyggjuefni á meðan veiðimenn
sækja í heiðagæsina. Hins veg-
ar gæti það talist vandamál ef
þeir auka aðsókn í grágæs og
blesgæs.
„Við bendum mönnum á að
heiðagæsin er stór vannýttur
stofn. Hins vegar eru teikn á
lofti um að blesgæsin eigi undir
högg að sækja og það eru til-
mæli til veiðimanna að þeir
reyni að hlífa henni eins og
kostur er. Síðan er ekki leyfi-
legt að veiða helsingja í Skafta-
fellssýslum því að þar er kom-
inn íslenskur varpstofn sem við
reynum að vernda. Venjulega
er helsinginn umferðarfarfugl
sem stoppar hérna. “
Að sögn Áka eru gæsateg-
undirnar mjög svipaður matur
og því ætti ekki að skipta veiði-
mennina máli hvaða tegundir
þeir veiða. „Útivist og hreyfing
eru helmingurinn af skotveið-
inni. Það er rétt að vekja athygli
á því að með lögum frá því í vet-
ur eru fjórhjól bönnuð við veið-
ar og það á líka við um gæsa-
veiðar,“ segir Áki og bendir á að
þessi lög séu sett til að tak-
marka veiðigetu veiðimanna.
„Ef við myndum nota öll tæki
og tól sem okkur standa til boða
yrði leikurinn mjög ójafn.“
Rjúpnaveiðibannið
eykur sókn í gæsina
25–30% fleiri
hafa sótt um
veiðikort í ár
STOFNAÐ 1913 226. TBL. 91. ÁRG. LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is