Morgunblaðið - 23.08.2003, Qupperneq 8
FRÉTTIR
8 LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Sá mikli áhugi á að fá að sjá blóðið fljóta, ætti að geta lyft brúnunum á
hvalaskoðunarforkólfunum.
Alþjóðlegur laugardagur í miðborginni
Heimurinn
mætist í
miðborginni
Markaðsnefnd mið-borgar og aðilar íverslun og þjón-
ustu hafa í sumar staðið að
dagskránni Mögnuð mið-
borg. Alþjóðlegur laugar-
dagur, laugardaginn
23.ágúst, er liður í þeirri
dagskrá. Þá um daginn
verður fjölbreytt dagskrá
um allan miðbæinn, þar á
meðal í Alþjóðahúsinu,
Hverfisgötu. Gerður Gests-
dóttir er verkefnastjóri
fræðsludeildar Alþjóða-
hússins.
Hvað verður um að vera
á alþjóðlegum laugardegi ?
Dagskráin fer að hluta til
fram í Alþjóðahúsinu, þar
verður opið hús og fjöl-
breytt starfsemi þess
kynnt. Á fyrstu hæð húss-
ins munu ýmis félög sem starfa í
tengslum við okkur kynna starf-
semi sína, félög útlendinga verða
þar á meðal. Á kaffihúsinu verður
til sýnis myndasýningin Fólk og
firnindi frá Marokkó og líbanskur
matur verður á borðum. Þá verða
sýndar alþjóðlegar stuttmyndir en
nánari upplýsingar um þá sýningu
má nálgast á www.lundabio.com.
Hvaða hlutverki gegna félög út-
lendinga á Íslandi ?
Hlutverk okkar er að þjónusta
þá útlendinga sem búa á Íslandi og
hjálpa þeim með alls kyns erindi.
Við teljum mikilvægast að efla fé-
lagslíf þeirra bæði innan eigin hóps
og eins við Íslendinga. Öll þau
þjóðafélög sem starfa á Íslandi, t.d.
Félag Pólverja og Nígeríufélagið
hafa aðstöðu til fundahalda hjá
okkur. Hér starfa einnig svokölluð
þverþjóðleg félög t.d. Fjölmenn-
ingarráðið. Hlutverk þess er að
vera umræðuvettvangur þeirra út-
lendinga sem búa á Íslandi og jafn-
framt að vera þeim til ráðgjafar um
málefni þeirra. Í Fjölmenningar-
ráð er reynt að safna saman fólki
alls staðar að úr heiminum sem býr
á Íslandi. Þá eru starfrækt félög á
borð við Afríka 20:20 sem er
áhugamannafélag um Afríku sunn-
an Sahara auk trúarbragðafélaga
eins og Félag múslima og Félag
gyðinga.
Hvaða þjónustu geta innflytj-
endur sótt til Alþjóðahússins?
Alþjóðahúsið er, má segja, upp-
lýsingamiðstöð útlendinga og mál-
efna útlendinga á Íslandi. Það var
opnað í desember árið 2001 og hef-
ur starfsemin vaxið og dafnað frá
upphafi. Starfsemin stendur á
traustum grunni en hún tók við af
Miðstöð nýbúa. Skiptist starfsemi
hennar í nokkrar deildir, þar á
meðal fræðsludeild. Hlutverk
hennar er meðal annars að standa
að fræðslu fyrir innflytjendur um
íslenskt samfélag, réttindi og
skyldur og mannréttindafræðslu
fyrir unga Íslendinga. Yfir sumar-
tímann tökum við t.d. á móti öllum
14 ára unglingum sem starfa í
Vinnuskóla Reykjavík-
ur og leiðbeinendum
ÍTR. Á veturna teygir
starfsemi fræðsludeild-
ar sig inn í grunn- og
leikskóla og fyrirtæki. Í
Alþjóðahúsinu er einnig starfrækt
túlkaþjónusta sem sér t.d. um að
útvega túlka á alla spítala og
heilsugæslustöðvar. Það er svo
samkvæmt lögum um réttindi
sjúklinga að kunni fólk ekki ís-
lensku eigi það rétt á túlki. Þýðing-
arþjónusta er einnig starfrækt inn-
an Alþjóðahússins þar sem er
túlkað og þýtt á yfir 50 tungumál.
Þá getur fólk fengið hjá okkur lög-
fræðiráðgjöf sér að kostnaðar-
lausu. Þar fær fólk aðstoð við að út-
vega sér þau leyfi og pappíra sem
það þarfnast. Alþjóðahúsið gefur
bæði út fréttabréf og heldur úti
heimasíðu á ýmsum tungumálum.
Er kaffihús Alþjóðahússins
vanalega þétt setið?
Kaffihúsið hefur yfir sér mjög
svo alþjóðlegan brag. Þangað
sækja bæði Íslendingar sem hafa
búið erlendis og þeir útlendingar
sem búsettir eru á Íslandi. Á kaffi-
húsinu hafa orðið til óformlegir tal-
hópar, en þá myndar fólk sem hef-
ur sama móðurmál og hittist
gjarnan á ákveðnum dögum vik-
unnar og spjallar saman. Fólk
sækist í félagsskapinn og notar að-
stöðuna til að efla félagslífið hjá
sér. Ýmiss konar menningarupp-
ákomur fara fram á kaffihúsinu,
sýningar, tónleikar og dans svo
eitthvað sé nefnt.
Hvað er á döfinni hjá Alþjóða-
húsinu í vetur?
Vetrardagskráin fer aftur í gang
af fullum krafti. Hér koma t.d.
saman talhópar sem æfa sig að tala
saman á íslensku. Í vetur ætlum
við aftur að bjóða upp á námskeið
sem var mjög vinsælt í fyrra, lopa-
peysunámskeiðið, þar sem fólk
lærir að prjóna lopapeysur. Ís-
lenska er einnig kennd í Alþjóða-
húsinu á veturna. Veigamikill þátt-
ur vetrardagskrárinnar er fræðsla
um íslenskt samfélag. Fer hún
fram á ensku, rússnesku, pólsku og
kínversku. Þar fáum við sérfræð-
inga á sviðum húsnæðismála, at-
vinnu- og dvalarleyfa og
vinnumála til að spjalla
við fólk. Þessir fundir
voru afar vel sóttir í
fyrra og greinilega er
ekki vanþörf á slíkri
þjónustu.
Sækir fólk mikið til ykkar ?
Það sýnir sig að starfsemi okkar
er mikilvæg fyrir fólk sem er að
koma sér fyrir á Íslandi. Hjá okkur
getur það fengið næstum allar þær
upplýsingar sem það þarfnast, ef
ekki þá vísum við því á rétta leið.
Við leitumst við að vera miðpunkt-
ur fræðslu og upplýsingaöflunar
innflytjenda á Íslandi.
Gerður Gestsdóttir
Gerður Gestsdóttir er fædd ár-
ið 1969 í Reykjavík. Hún lauk BA
prófi í mannfræði frá Háskóla Ís-
lands árið 1994 og mastersprófi í
mannfræði frá University of
Manchester árið 1997. Und-
anfarin ár hefur hún starfað sem
ráðgjafi við þróunarverkefni í
Nikaragua. Gerður tók nýverið
við starfi verkefnastjóra fræðslu-
deildar Alþjóðahússins. Gerður
er gift Saúl Gutierrez.
Ýmis félög
kynna starf-
semi sína
LÖGREGLAN í Reykjavík verður með sérstakt um-
ferðareftirlit við grunnskóla í Reykjavík og Mosfellsbæ
á mánudag vegna setningar þeirra. Hvetur lögreglan
ökumenn eindregið til að sýna varkárni í nánd við
skólana. Mörg hundruð börn eru að stíga sín fyrstu
skref í umferðinni og segir lögreglan mikilvægt að
sýna börnunum sérstaka tillitssemi. Ökumenn þurfa að
draga úr hraða og vera viðbúnir því að börn hlaupi
óvænt út á götuna. Æskilegt er að foreldrar fylgi börn-
um sínum í skólann fyrstu dagana og leiðbeini þeim
með öruggustu leiðina í skólann. Á fimmtudag hófst
ennfremur átak hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörg í
notkun endurskinsmerkja og var 5 þúsund endurskins-
merkjum dreift í bókabúðir á Akureyri og í Reykjavík.
Ökumenn aki var-
lega við skólana
Lögreglan hvetur ökumenn til sérstakrar varkárni nú
þegar börn eru í þann veginn að flykkjast í skólana.
Morgunblaðið/Kristinn