Morgunblaðið - 23.08.2003, Side 14
ERLENT
14 LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
FINNSKU stjórnarflokkarnir
gengu frá samkomulagi um
fjárlög næsta árs í gær. Eins og
búist var við ætlar stjórnin að
leggja til að álögur á áfengi
verði lækkaðar. Lagt er til að
áfengistollar verði lækkaðir um
33 af hundraði að jafnaði, mest
verður dregið úr álögum á
sterk vín og minnst á létt vín.
Verðið á flösku af finnsku
vodka verður frá og með marz á
næsta ári níu evrur en hún
kostar nú 14 evrur, andvirði um
1.250 kr.
Tengist inngöngu Eist-
lands í Evrópusambandið
Samþykkt var að lækka
áfengistolla vegna inngöngu
grannríkisins Eistlands í Evr-
ópusambandið á komandi vori
og nýrra reglna Evrópusam-
bandsríkja um frjálsari við-
skipti með áfengi en þær taka
gildi á næsta ári. Finnar hafa
stundað mjög áfengisinnkaupa-
ferðir til Eistlands.
Tekjuskattur á alla launþega
verður einnig lækkaður um eitt
prósentustig samhliða aðgerð-
um til að auka neyzlu og skapa
fleiri störf, að því er fram kem-
ur á vef Norðurlandaráðs.
Fjárlögin nema um 37 millj-
örðum evra og eru með halla
sem veldur því að taka verður
lán sem nemur rúmum millj-
arði evra.
Finnar
lækka
gjöld á
áfengi
FYRRVERANDI starfsmaður
áströlsku leyniþjónustunnar sakaði
í gær ríkisstjórn John Howards for-
sætisráðherra um að hafa logið til
um hættuna af gereyðingarvopnum
Íraka til að réttlæta þátttöku Ástr-
ala í Íraksstríðinu.
„Stundum voru ýkjurnar svo
miklar, að þær voru ekkert annað
en hrein lygi,“ sagði Andrew Wilkie
í yfirheyrslu hjá ástralskri þing-
nefnd. „Ríkisstjórnin laug og laug.
Hún afskræmdi staðreyndir, mis-
túlkaði þær og lagaði þær í hendi
sér eftir þörfum.“
Howard, einn einarðasti banda-
maður Bandaríkjastjórnar, vísaði
þessum staðhæfingum Wilkies á
bug og sagði, að ef hann gæti ekki
sannað þær, ætti hann ekki að vera
að niðra heiðarlegt fólk.
Wilkie var áður starfsmaður
ONA, Office of National Assess-
ments, en hún hefur það verkefni að
leggja mat á leyniþjónustuupplýs-
ingar, jafnt innlendar sem erlendar,
fyrir forsætisráðuneytið. Sagði
hann af sér í mars síðastliðnum til
að mótmæla afstöðu stjórnarinnar í
Íraksmálinu.
Wilkie sagði, að upplýsingar
tengdar Írak hefðu farið frá ONA
til skrifstofu Howards þar sem
þeim hefði verið breytt. Kvaðst
hann telja, að ríkisstjórn Howards
hefði verið „tilbúin að ýkja hættuna
af gereyðingarvopnum Íraka og af
hryðjuverkamönnum til að geta
verið samstiga Bandaríkjamönn-
um“.
Á blaðamannafundi eftir yfirlýs-
ingar Wilkies sagði Howard, að mat
á hættunni af Saddam Hussein
hefði verið eðlilegt „á þeim tíma“.
Sagði hann einnig, að ONA hefði
„gefið í skyn“, að Wilkie hefði ekki
haft aðgang að mikilvægustu upp-
lýsingunum um Írak.
„Furðuleg“ þögn
Rannsóknarnefnd þingsins hlýddi
einnig á vitnisburð Richard Butlers
en hann var yfirmaður vopnaeft-
irlitsnefndar Sameinuðu þjóðanna í
Írak frá 1997 til 1999. Sagði hann,
að sér væri verulega „órótt“ vegna
þess, að engin gereyðingarvopn
hefðu fundist. Hann kvaðst þó trúa
því, að þau fyndust að lokum, hvort
sem það yrði í því magni, sem um
hefur verið talað, eður ei.
Butler sagði, að líklega gætu
Bandaríkjamenn bundið enda á
óvissuna um gereyðingarvopnin
með því að skýra frá því hvað komið
hefði fram í yfirheyrslum yfir Tariq
Aziz, fyrrverandi aðstoðarforsætis-
ráðherra Íraks.
„Hvers vegna segja þeir ekki
sannleikann um þetta?“ spurði
Butler og bætti við, að honum fynd-
ist þessi þögn „furðuleg“.
„Um hvað hafa þeir samið við
Tariq Aziz? Hann vissi allt.“
Ástralskur sérfræðingur ber vitni
Segir ríkis-
stjórnina hafa
logið til um Írak
Canberra. AP, AFP.
Andrew Wilkie John Howard
ÞAÐ var undir brezkum dómurum
komið í gær, hvort fyrrverandi
sendiherra Írans í Argentínu, Hadi
Soleimanpur, yrði framseldur frá
Bretlandi til Argentínu, en þar í
landi hefur verið gefin út ákæra á
hendur sendiherranum fyrrverandi
í tengslum við sprengjutilræði í
menningarmiðstöð gyðinga í Buen-
os Aires árið 1994, sem banaði 85
manns og slasaði hátt í 300.
Soleimanpur kom stuttlega fyrir
dóm í Lundúnum í gær og hafnaði
dómarinn því að hann fengi lausn
úr varðhaldi gegn greiðslu trygg-
ingar.
Soleimanpur, sem er nú skráður
námsmaður við Durham-háskóla á
N-Englandi, er ákærður í Argent-
ínu fyrir aðild að samsæri í kring-
um bílsprengjutilræðið. Hann hef-
ur dvalið í Bretlandi með
námsmannadvalarleyfi frá því í
febrúar 2002, en var handtekinn á
þriðjudag á grundvelli framsals-
kröfu argentínskra yfirvalda.
Ráðamenn í Argentínu og leið-
togar gyðingasamfélagsins þar í
landi hafa lengi talið að Íranar hafi
staðið að baki tilræðinu, en tals-
menn stjórnvalda í Teheran hafa
ávallt vísað á bug öllum ásökunum
þar að lútandi.
Talsmenn Íransstjórnar brugð-
ust í gær illa við fréttunum af
handtöku sendiherrans fyrrver-
andi. Sögðu þeir alþjóðlega hand-
tökuskipun byggða á úrskurði
dómstóla í Buenos Aires vera lög-
leysu.
„Ákvörðun argentínska dóm-
stólsins [um útgáfu handtökuskip-
unarinnar] er pólitísk ráðstöfun af
pólitískum rótum runnin, undir
áhrifum frá síonistastjórninni [þ.e.
Ísraelsstjórn], tekin í þeim tilgangi
að gera henni greiða,“ lét Hamid-
Reza Asefi, talsmaður íranska ut-
anríkisráðuneytisins, hafa eftir sér.
Argentínuforseti
vill sjá árangur
Argentínski rannsóknardómar-
inn Juan José Galeano hefur gefið
út handtökuskipanir á hendur sjö
öðrum írönskum stjórnarerindrek-
um vegna grunsemda um að þeir
hafi átt þátt í samsærinu að baki
tilræðinu. Í marz sl. gaf Geleano út
hliðstæðar handtökuskipanir á
hendur fjórum Írönum, þ.á m.
fyrrverandi ráðherra leyniþjón-
ustu- og öryggismála í Íran, Ali
Fallahijan.
Í síðasta mánuði lét Nestor
Kirchner, forseti Argentínu, svo
ummælt að það væri „þjóðar-
skömm“ hve lítið miðaði í réttar-
rannsókninni á tilræðinu. Hét for-
setinn því að gera það sem í sínu
valdi stæði til að hafa hendur í hári
þeirra sem ábyrgð báru á tilræðinu
er hann tók þátt í minningarathöfn
um fórnarlömb þess, sem haldin
var er rétt níu ár voru frá því það
var framið.
AP
Frá vettvangi sprengjutilræðisins í menningarmiðstöð gyðinga í Buenos
Aires 18. júlí 1994. Þáverandi sendiherra Írans í Argentínu er nú í haldi.
Fyrrverandi
sendiherra
framseldur?
Argentínsk yfirvöld vilja rétta yfir
írönskum stjórnarerindrekum vegna
tilræðis í Buenos Aires fyrir níu árum
Lundúnum. AFP.
ÞEIR sem lögðu á ráðin um mann-
skæða bílsprengjuárás á höfuð-
stöðvar Sameinuðu þjóðanna í
Bagdad nutu líklega aðstoðar
manna sem störfuðu í bygging-
unni. Var þetta haft eftir tveimur
lífvörðum æðsta fulltrúa SÞ í Írak
sem lét lífið í árásinni, í viðtali í
franska blaðinu Le Monde í gær.
Gabriel Pichon og Alain Cherg-
eui, fyrrverandi hermenn í franska
hernum sem Sergio Vieira de
Mello valdi til að fara fyrir níu
manna lífvarðaliði sínu, sögðust
vera sannfærðir um að yfirmaður
þeirra hefði verið aðalskotmark til-
ræðisins sl. þriðjudag. 23 fórust og
um 100 manns særðust í tilræðinu.
Tilræðismennirnir hefðu „fengið
innanhússupplýsingar“ tjáðu tví-
menningarnir blaðinu.
„Ég er viss um að mennirnir að
baki þessu tilræði voru þarna á
staðnum þegar sprengingin varð,“
sagði Pichon. „Hefði öryggis-
myndavélakerfi verið þarna hefð-
um við væntanlega miklu betri
upplýsingar um það hvert eiginleg
markmið þessa tilræðis var, sem
tilræðismennirnir vildu að yrði
stórbrotið. Þeim varð því miður að
ósk sinni,“ sagði hann.
Chergeui bætti við að áður en
þetta gerðist hefðu menn haft á til-
finningunni að SÞ-skrifstofurnar
gætu orðið skotmark, eftir að bíl-
sprengja sprakk við jórdanska
sendiráðið í Bagdad 7. ágúst og
eftir „nokkrar aðrar vísbending-
ar“. „Við skynjuðum að eitthvað
væri á seyði,“ sagði Chergeui.
Íraskir öryggisverðir
sagðir sekir
Þessi orð lífvarðanna styðja
kenningu sem embættismenn SÞ
og bandarískir rannsóknarlög-
reglumenn sem vinna að rannsókn
á tilræðinu höfðu þegar sett fram.
Ónafngreindur fulltrúi SÞ í Bagd-
ad tjáði AFP-fréttastofunni að til-
ræðismennirnir hefðu „klárlega
notið aðstoðar íraskra öryggis-
varða inni í byggingunni sem láku
upplýsingum út til skipuleggjenda
árásarinnar.“
Fulltrúinn bætti við: „Þetta var
þrautskipulögð árás. Skotmarkið
var Segio Vieira de Mello, svo mik-
ið er víst.“
Írakar sem ráðnir voru til að
sinna öryggisgæzlu á SÞ-skrifstof-
unum í Bagdad eru grunaðir um að
hafa tengzt öryggissveitum Sadd-
ams Husseins á sínum tíma.
The New York Times sagði frá
því í gær, að menn frá bandarísku
alríkislögreglunni FBI, sem ynnu
að rannsókn tilræðisins í Bagdad,
hefðu sagt að verið væri að skoða
þann möguleika að tilræðismenn-
irnir hefðu notið innanhússaðstoð-
ar. „Við teljum að öryggisreglur
við SÞ-skrifstofurnar hafi verið
þverbrotnar,“ hefur blaðið eftir
einum FBI-fulltrúanum. Öðru vísi
sé ekki hægt að skýra hvernig til-
ræðismennirnir gátu komizt með
bílsprengjuna svo nálægt skot-
marki sínu.
AP
Fáni Sameinuðu þjóðanna blaktir yfir rústum byggingarinnar sem hýsti
aðalstöðvar samtakanna í Bagdad. Hún hrundi í bílsprengjutilræði á
þriðjudag, sem banaði 23 og særði um 100 manns.
Öryggisverðir sagð-
ir viðriðnir tilræðið
Tilræðismenn
fengu upplýs-
ingar úr höfuð-
stöðvum SÞ í
Bagdad fyrir
sprenginguna
París. AFP.