Morgunblaðið - 23.08.2003, Qupperneq 23
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 2003 23
NÝJAR íslenskar kartöflur hafa nú
verið fáanlegar í stórmörkuðum frá
miðjum júlí. Þær hafa talsvert fallið í
skuggann af pasta og hrísgrjónum
undanfarin ár en þær eru enn fyr-
irtaks meðlæti, og hægt að matreiða
á ýmsan hátt.
Fáar tegundir grænmetis má nota
á jafnmargan hátt og einmitt kart-
öfluna, segir Fríða Rún Þórðardóttir
næringarfræðingur. Kartöflur eru
mest notaðar sem meðlæti; soðnar,
bakaðar, grillaðar, steiktar og mauk-
aðar í kartöflumús eða í mismunandi
tegundir af kartöflusalati. Einnig
eru þær uppistaðan í fjöldanum öll-
um af grænmetisréttum.
Um 3.000 afbrigði kartöflunnar
eru til en þær tegundir sem vaxa á
Íslandi eru gullauga, rauðar íslensk-
ar, (Ólafsrauðar), Bintje, Helga,
möndlukartöflur og Premier.
Uppruna kartöflunnar, sem sumir
kalla jarðepli, má rekja til Suður-
Ameríku og eiga þær ættir að rekja
til tómatplöntunnar. Kartöflur komu
til Evrópu um miðja 16. öld frá Perú
og voru fyrst ræktaðar á Íslandi árið
1758 þó að almenn ræktun hafi ekki
hafist fyrr en um aldamótin 1900.
Kartöflur henta íslensku veðurfari
vel þar sem þær eru harðgerðar og
auðræktanlegar.
Neikvæð umfjöllun
Kartöflur hafa fengið fremur nei-
kvæða umfjöllun að undanförnu og
er talað um það hversu kolvetnarík-
ar þær eru. Kartöflur eru kolvetna-
ríkar, þær eru nær eingöngu kol-
vetni, en kolvetnin eru flókin og gefa
ágætis langtíma orku. Kartöflur eru
mjög fitusnauðar eins og þær koma
frá náttúrunnar hendi en því er oft
breytt með því að steikja og djúp-
steikjar þær en það rýrir hollustu-
gildi þeirra mikið, að sögn Fríðu
Rúnar. Kartöflur eru jafnfram ríkar
af trefjum, C-vítamíni og steinefninu
kalíum sem er mikilvægt fyrir
vökvabúskap líkamans og vöðvasam-
drátt.
Kartöflur eru mikilvægur hluti
holls og fjölbreytts mataræðis, nokk-
uð sem allir ættu að leggja áherslu á
til bættrar heilsu og betri líðanar,
segir Fríða Rún. Með því að auka
hlut kartaflna og grænmetis með að-
alréttum, sérstaklega kjöti, má
lækka fituhlutfall máltíðarinnar en
það er eitt af bestu ráðunum til að
lækka fituhlutfall í líkamanum.
Ekki geyma í ísskáp
Best er að geyma þær á þurrum,
dimmum og köldum stað, helst ekki í
ísskáp. Almennt er matreiðsla á
kartöflum fljótleg og einföld. Kart-
öflur má matreiða á margvíslegan
máta og hvort heldur nota sem for-
rétt, aðalrétt eða sem meðlæti, allt
háð stað, stund og óskum hvers og
eins.
Fegurð bökuðu kartöflunnar ligg-
ur í einfaldleikanum en jafnframt
hinum margvíslegu tilbrigðum og
möguleikum sem hún býður upp á.
Bakaðar kartöflur eru fyrirtaks
meðlæti en geta einnig staðið einar
sér sem léttur, seðjandi aðalréttur.
Næringarlega séð er bökun á kart-
öflum besta leiðin til að varðveita
næringarefni kartöflunnar, segir
Fríða Rún. Algeng mistök sem fólk
gerir þegar kartöflur eru bakaðar
sem er að pakka þeim inn í álpappír.
Þá er kartaflan í raun ekki bökuð,
heldur soðin.
Hægt að nota
kartöflur á mjög
fjölbreyttan hátt
Skammtar: Fyrir 5
Undirbúningur: 15 mínútur
Eldun: 25 til 35 mínútur
Hráefni:
500g bökunarkartöflur
(um 5 stk.)
Smá ólífuolía
Salt, pipar, tímjan, sesamfræ.
Matreiðsla:
Skrælið kartöflurnar
Skerið lítillega af einni hliðinni
svo kartaflan rúlli ekki út um
allt. Skerið niður í hálfa kart
öflum með 2 mm millibili svo
kartaflan líkist nú áströlsku
beltisdýri.
Setjið á bökunarplötu og pensl-
ið með olíu, kryddið með salti, pip-
ar og t.d. sesamfræjum, tímjan
eða öðrum góðum kryddum.
Reynið að fletta rifunum aðeins
opnum svo kryddið fari á milli
laga í kartöflunni.
Bakið við 170 °c í 25 – 30 mín
Ef vill má skræla kartöflurnar
aðeins þykkar og steikja hýðið
sem snakk.
Hazzelback-
kartöflur
Fyrir flottar konur
Bankastræti 11 • sími 551 3930 Síðumúla 34 - sími 568 6076
Antik er fjárfesting
Antik er lífsstíll
mbl.is
STJÖRNUSPÁ
Mjólkurþistill
Nature‘s Bounty
Solgar
Now
100
60
60
kr. 1.798,-
kr. 2.215,-
kr. 1.153,-
105%
25%
175
175
150
Við verðkönnun á bætiefnum kom í ljós að verð á fjölda bætiefna var miklu
lægra í Heilsuhúsinu en í matvöruverslunum, lyfjabúðum og öðrum
sérverslunum. T.d. var verð á mjólkurþistli liðlega tvöfalt hærra í sumum
stórmörkuðum en í Heilsuhúsinu. Gerðu verðsamanburð.
Mjólkurþistill fyrir lifrina
Mjólkuþistill inniheldur efnið silymarin sem örvar
efnaskipti lifrarfrumna. Þess vegna getur mjólkurþistill
gagnast lifrinni, sé hún undir álagi.
Þegar þú kaupir glas af Milk Thistle
færðu annað á hálfvirði!
Helgartilboð
Foxxy Santos
JuwelIvoryLeonKarat
Balu Tobago
Útsalan stendur frá 7-23. ágúst.
ÚTSÖLULOK