Morgunblaðið - 23.08.2003, Blaðsíða 31
ÚR VESTURHEIMI
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 2003 31
ÁKVEÐIÐ hefur verið að reisa
minnismerki þar sem Þingvalla-
kirkja í Eyford í Norður-Dakóta
stóð og er fjársöfnun hafin af því
tilefni. Kirkjan brann til kaldra
kola í júní sem leið og voru bruna-
rústirnar fjarlægðar á dögunum.
Curtis Olafson, formaður kirkju-
stjórnar og forseti Íslendinga-
félagsins í Norður-Dakóta, segir að
kirkjubruninn hafi snert marga í
Bandaríkjunum, Kanada og á Ís-
landi og margir hafi þegar gefið
peninga í söfnunarsjóð vegna minn-
ismerkis sem til standi að reisa um
kirkjuna, landnemana sem byggðu
hana 1892 og 1983 og íslenska sam-
félagið í Eyford. Í því sambandi má
nefna að Húsafriðunarnefnd Norð-
ur-Dakóta gaf 3.000 dollara (um
246 þúsund kr.) í söfnunina, Sel-
tjarnarneskaupstaður og félagar
úr Rótaryfélagi Seltjarnarness
1.000 dollara (um 82 þúsund kr.) og
hópur íslenskra ferðalanga, „píla-
grímarnir“, 500 dollara.
Söfnun á Íslandi
„Ólafur Ragnar Grímsson, for-
seti Íslands, og fjölmargir aðrir Ís-
lendingar hafa sagt mér að bruni
Þingvallakirkju hafi snert marga á
Íslandi og við metum stuðninginn
frá Íslandi mjög mikils,“ segir
Curtis Olafson.
Nánast ekkert bjargaðist í brun-
anum en því sem bjargaðist verður
haldið til haga vegna minnismerks-
ins. „Ýmsar hugmyndir hafa verið
ræddar og ein er til dæmis að reisa
kirkjuturn svipaðan og var í kirkj-
unni við hliðina á minnismerkinu
um Káinn,“ segir Curtis, sem vann
að því ásamt nokkrum sveitungum
sínum að fjarlægja brunarústirnar
á dögunum.
Söfnunarsjóðurinn „Thingvalla
Church Memorial Fund“ hefur ver-
ið stofnaður hjá Citizens State
Bank, PO Box 25, Edinburg, Norð-
ur-Dakóta, en vegna söfnunarinnar
hefur einnig verið opnuð bók
merkt Þingvallakirkju í Norður-
Dakóta hjá Sparisjóði vélstjóra.
Bankanúmerið er 1175, höfuðbók
nr. 05 og númer bókarinnar
430300. „Gjafir Íslendinga í söfn-
unarsjóðinn sýna hug þeirra til
kirkjunnar og góðvild og við erum
mjög snortin vegna framlags
þeirra, en áætlaður kostnaður
vegna minnismerkisins er um 25
þúsund dollarar,“ segir Curtis Olaf-
son.
Ljósmynd/Shirley J. Olgeirson
Unnið að hreinsun brunarústanna. Frá vinstri: Bjorn Olgeirson, Leslie Geir
og Curtis Olafson. Fyrir aftan þá má sjá minnismerkið um Káinn.
Söfnun hafin
vegna minn-
ismerkis
GERT er ráð fyrir að styrktargolf-
mót Lögbergs-Heimskringlu, The
Icelandic Open, færi vestur-íslenska
vikublaðinu um 17.000 til 20.000 kan-
adíska dollara í hagnað, en það er
um fimmti hluti af veltu blaðsins.
Annað golfmót, sem Vestur-Íslend-
ingar standa einnig að, skilar um
10.000 dollurum árlega í rannsókn-
arsjóð í Manitoba vegna hjartasjúk-
dóma.
Opna íslenska golfmótið fór fram í
tengslum við Íslendingadaginn í
Gimli og var það nú haldið í fjórða
sinn. Um er að ræða liðakeppni.
Hingað til hafa 36 fjögurra manna lið
keppt, en nú var bætt við tveimur
liðum og spreyttu 152 kylfingar sig
því á golfvellinum rétt norðan við
Gimli. ,,Þetta gekk mjög vel að
vanda,“ segir Julianna Bjornson,
stjórnarformaður L-H. ,,Markmiðið
var að safna um 17.000 dollurum fyr-
ir blaðið og svo virðist sem við náum
því og gott betur, en keppendur
skemmtu sér prýðilega og það er
líka tilgangurinn.
Sumarið 2000 stóðu Dan Johnson
og Connie Magnusson-Shimnowski
fyrir sérstökum fjölskyldugolfdegi
til styrktar Menningarmiðstöðinni í
Gimli en síðan hefur þetta árlega
golfmót verið haldið til styrktar Lög-
bergi-Heimskringlu. „Við höfum
safnað miklum peningum fyrir blað-
ið en það reynist stöðugt erfiðara að
fá nógu marga sjálfboðaliða og því
lendir mikil vinna gjarnan á of
fáum,“ segir Dan.
Fjölskylduskemmtun
Dan og Leona, eiginkona hans,
sáu um skipulagninguna en starfs-
menn blaðsins, stjórnarmenn og
fleiri unnu saman að framkvæmd-
inni með þeim. Flestir kylfingarnir
hafa verið með frá byrjun og þar á
meðal eru Keith Sigmundson geð-
læknir, Gwen Kalansky, ástkona
hans, og synir hans, Ian og Trevor.
,,Ég ólst upp í Gimli en flutti til
Bresku Kólumbíu 1987 til að starfa
að geðlækningum,“ segir Keith.
,,Síðan hef ég komið til Gimli að
minnsta kosti 10 til 15 sinnum á ári
og nú eyði ég mestum hluta sumars-
ins í Gimli. Ég á heimili í Gimli, fæ
börnin mín hingað og við tökum þátt
í golfmótinu til að treysta íslenska
upprunann og hitta alla ættingja
okkar og vini sem skipta okkur svo
miklu máli. Ég spila ekki mikið golf
en golf er fjölskylduíþrótt og í þess-
ari keppni og matnum á eftir hitti ég
margt fólk sem ég annars sé sjaldan.
Flestir eiga upprunann sameiginleg-
an og því er þetta hin besta skemmt-
un, jafnt innan sem utan vallar.
Þetta er dásamlegur tími og synir
mínir koma frá Vancouver til þess að
efla íslensku tengslin. Arfleifðin lifir,
að minnsta kosti í huga mínum, og
það skiptir miklu máli.“
Trevor segir að aðalástæða heim-
sóknar hans til Gimli sé að heim-
sækja ömmu sína en síðan sinni hann
öðrum mikilvægum menningarstörf-
um eins og að taka þátt í golfmótinu.
,,Ég kem fyrst og fremst til Gimli til
að heimsækja ömmu því ég elska
hana svo mikið. Margir aðrir í fjöl-
skyldunni búa í Gimli og fjölskyldan
dregur okkur hingað.“ Ian tekur í
sama streng. ,,Ég kem hingað vegna
íslensku menningarinnar og til að
treysta íslenska upprunann. Það
skiptir máli hvaðan ég kem og hver
ég er og það er ástæða þess að ég hef
heimsótt Gimli á hverju ári síðan ég
fæddist. Ég hef ekki misst af Íslend-
ingadeginum í 32 ár og það er ekki á
dagskrá fyrr en ég verð 102 ára.“
Gwen segir að það sé gaman að
taka þátt í þessu golfmóti og því geri
hún það. ,,Ég er frá Rainy River í
Ontario og Gimli minnir mig á gamla
heimabæinn minn. Íslenska opna
golfmótið er skemmtilegt og það er
það eina sem skiptir máli.“
Léttleikinn í fyrirrúmi
Um nýliðna helgi fór fram golfmót
í Árnesi í Manitoba til styrktar rann-
sóknum vegna hjartasjúkdóma og
söfnuðust um 10.000 dollarar. „Við
höldum mótið til minningar um Eric
Stefanson og Frank Arnason, sem
báðir létust vegna hjartasjúkdóma,
aðeins 64 ára að aldri,“ segir Dennis
Stefanson, helsti skipuleggjandi
mótsins en í mótsnefndinni með hon-
um eru bræður hans Eric, Tom og
Kristján og bræðurnir Ron, Brett og
Barry Arnason.
Um liðakeppni er að ræða þriðja
laugardag í ágúst og geta 22 fjög-
urra manna lið verið með hverju
sinni. Mikill áhugi er á keppninni,
ekki endilega vegna keppninnar sem
slíkrar heldur léttleikans sem ein-
kennir hana, og í ár var skráningu til
dæmis lokið í júní. Dennis Stefanson
segir að faðir sinn, Eric, hafi dáið
1977 en Frank 10 árum síðar. „Við
vildum minnast þessara mætu
manna á sérstakan hátt og styrkja
hjartarannsóknir í leiðinni en mótið
fór nú fram í 11. sinn og því höfum
við lagt dágóða upphæð í rannsókn-
irnar með þessum hætti,“ segir
Dennis.
Vinsæl styrktar-
golfmót í Manitoba
Tvö „íslensk“ styrktar-
golfmót eiga vinsældum
að fagna í Manitoba.
Steinþór Guðbjartsson
fór hringinn og ræddi
við keppendur.
Morgunblaðið/Steinþór Guðbjartsson
Á 10. holu. Trevor fyrir framan Keith, Gwen og Ian.
Morgunblaðið/Steinþór Guðbjartsson
Sjö synir Franks og Erics. Frá vinstri: Ron, Brett og Barry Arnason en þeir
eiga auk þess einn bróður og eina systur. Síðan koma bræðurnir Eric,
Dennis, Tom og Kristján Stefanson.
steg@mbl.is
ÍSLAND á nú kjörræðismenn gagnvart öllum tíu
fylkjum Kanada í fyrsta sinn, en Íris Lana Birg-
isdóttir var skipuð kjörræðismaður Íslands í fylkj-
unum New Brunswick og Prince Edward Island fyr-
ir skömmu.
Fyrr í vikunni afhenti Hjálmar W. Hannesson,
sendiherra Íslands í Kanada frá 2001, Írisi Lönu
Birgisdóttur kanadísk og íslensk gögn, þ.m.t. skip-
unarbréfið, undirritað af Halldóri Ásgrímssyni utan-
ríkisráðherra á heimili nýja ræðismannsins í St.
John, New Brunswick.
Þetta er eitt af síðustu embættisverkum Hjálmars
sem sendiherra í Kanada, en í september tekur
hann við stöðu fastafulltrúa Íslands hjá SÞ. Guð-
mundur Eiríksson, sem var dómari við Hafrétt-
ardómstól SÞ, tekur þá við starfi sendiherra Íslands
í Kanada.
Kjörræðismenn
í öllum fylkjum
Íris Lana Birgisdóttir og Hjálmar W. Hannesson, sendiherra, á heimili nýja kjörræðismannsins.