Morgunblaðið - 23.08.2003, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 23.08.2003, Qupperneq 42
✝ Vilhjálmur Em-ilsson fæddist í Hátúni við Seyðis- fjörð 8. febrúar 1920. Hann lést á Landspít- alanum 14. ágúst síð- astliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Guðný Guðmunds- dóttir og Emil Guð- jónsson. Nýfæddur var hann tekinn í fóstur af Björgu Sig- urðardóttur og Vil- hjálmi Árnasyni á Hánefsstöðum og ólst hann þar upp. Systk- ini Vilhjálms voru ellefu og eru sex á lífi. Fóstursystkini voru sjö og eru öll látin. Árið 1945 kvæntist Vilhjálmur Ingibjörgu Stefánsdóttur frá Mýr- um í Skriðdal, f. 25.3. 1916, d. 7.3. sl. Börn þeirra eru: a) Björg, f. 28.7. 1946, börn hennar eru Emel- ie Deinlein, f. 5.4. 1973, og Robert Deinlein, f. 12.3. 1976, og b) Vilhjálm- ur Emil, f. 12.4. 1949, kvæntur Sig- ríði Bragadóttur, f. 7.3. 1954, dætur þeirra eru Sara Vil- hjálmsdóttir, f. 8.2. 1979, Eyrún Þór- hallsdóttir, f. 23.1. 1975, og Steinunn Þórhallsdóttir, f. 10.2. 1972. Systkinin eru bæði búsett í Sví- þjóð. Vilhjálmur lauk prófi frá Al- þýðuskólanum á Eiðum. Einnig var hann á Íþróttaskólanum í Haukadal. Þá sótti hann námskeið tvo vetur á Eskifirði í vélgæslu. Útför Vilhjálms verður gerð frá Egilsstaðakirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. Fyrir u.þ.b. sex vikum heimsótti ég Villa frænda minn á Egilsstöðum. Þá stóð hann í því ásamt syni sínum, sem var í heimsókn frá Svíþjóð, að fella gríðarmikil tré á lóðinni sinni. Ég geri ráð fyrir að þau hjón Villi og Inga hafi sett þessi tré niður þegar þau reistu hús sitt, Vindás, eitt af fyrstu húsun- um í nýrri byggð á Egilsstöðum. Trén eru fallin. Nú eru bæði hjónin fallin frá. Inga, Ingibjörg Stefánsdóttir, fór frá okkur 7. mars sl. og nú fimm mán- uðum síðar fylgdi frændi minn henni eftir. Hjónaband þeirra hafði staðið í 58 ár og var óendanlega fallegt. Börn- in þeirra Björg og Emil bera þeim glöggt vitni, svo og barnabörnin. Þau búa öll í Gautaborg. Fjarlægðin skipti ekki meginmáli. Ferðir voru tíðar fram og tilbaka. Eftir að Inga dó sl. vetur hafa börnin skipst á um að vera hjá pabba þeirra og fyrirhuguð var ferð Villa til Svíþjóðar í haust. En hann fór í aðra og lengri ferð. Fullu nafni hét hann Vilhjálmur og var Emilsson. Hann var fóstursonur afa míns og ömmu, Bjargar Sigurð- ardóttur og Vilhjálms Árnasonar frá Hánefsstöðum. Villi var mikið eftir- læti þeirra hjóna. Lífforeldrar hans og fjöldi systkina bjuggu „hinumegin við lækinn“ og var því stutt að fara í stóran systkinahóp til leika, enda var samkomulag og einlæg vinátta mikil og góð milli heimilanna Hánefsstaða og Hátúns. Villi var lengst af vélstjóri við slát- urhús Kaupfélags Héraðsbúa. Áður en hann gifti sig hafði hann stundað sjó og önnur störf er til féllu, aðallega á Austurlandi, en einnig fyrir sunnan. Villi var gæddur góðri lund og kær- leika til alls er lifði og var því vinsæll af samferðamönnum sínum. Hann var eftirsóttur skemmtikraftur á yngri árum sínum, en hann gat hermt eftir mönnum og dýrum á þann hátt að engan særði og allir höfðu gaman af. Nú er allt hljótt í Vindási og ferð- inar þangað verða ekki fleiri. Kveðju- stundin er komin og ekkert eftir ann- að en að þakka fyrir sig og syni mína tvo sem eiga þessum elskulegu hjón- um svo ótal margt gott upp að unna. Dýpstu samúðarkveðjur til barna þeirra og barnabarna. Guðbjörg Þórhallsdóttir. Vilhjálmur Emilsson var fæddur á Landamótum á Hánesfsstaðaeyrum 8. febrúar 1920. Foreldrar hans voru hjónin Emil Guðjónsson, kenndur við Hátún í sömu sveit, og Guðný Guð- mundsdóttir. Þau voru sómafólk, en fátæk og áttu fjölda barna, að ég ætla 13 talsins. Þegar Vilhjálmur fæddist var þröngt í búi hjá þeim og þar við bættist, að hann var tvíburabróðir Guðmundar, sem er látinn. Amma mín, Björg Sigurðardóttir, kona Vil- hjálms afa á Hánefsstöðum bauð Lóu, en Guðný var alltaf kölluð Lóa, að taka annan drenginn í fóstur. Hann var skírður Vilhjálmur og ólst upp á Hánefsstöðum. Foreldrar mínir bjuggu einnig á Hánefsstöðum á ár- unum 1920–1930. Við systskinin vor- um því alin upp í sama húsi og hann. Vorum við því nánast eins og systkini á þessum árum. Alla tíð hefir verið lit- ið á Vilhjálm sem einn af fjölskyld- unni. Hann hafði þó alltaf mikil og góð samskipti við foreldra sína og systk- ini. Villi Emils eins og hann var jafnan nefndur var í miklu uppáhaldi hjá afa og ömmu, svo miklu að okkur þótti stundum nóg um og fannst hann fá litlar ákúrur, ef eitthvað bar út af. Vil- hjálmur gekk ungur til vinnu við landbú og útgerð afa míns, eins og þá var siður. Þegar Hjálmar, fósturbróð- ir hans, Vilhjálmsson var sýslumaður í Rangárvallasýslu og bjó í Gunnars- holti var Vilhjálmur vinnumaður á búi hans. Þegar hann kemur austur gengur hann á Eiðaskóla og vorum við þar saman einn vetur. Við lentum í villum og hrakningum á leið til Seyð- isfjarðar til að vera heima um jólin 1939. Við vorum sex saman og ætl- uðum að fara Fjarðarheiði, en villt- umst í stórhríð og vonskuveðri. Í stað þess að komast inn á Fjarðarheiði lentum við allar götur yfir á Gilsárdal, en þá birti til svo við náðum með naumindum austurbrún Vestdals- heiðar, þegar náttmyrkrið og hríðin skall yfir. En þá var okkur borgið. Í þessari ferð stóð Vilhjálmur sig frá- bærlega vel, því þar hefði getað farið illa. En þessi þolraun sýndi best, hve vaskur og hygginn Vilhjálmur var. Eftir þetta var Villi Emils við ýmis störf, þar til hann tók við ævistarfi sínu sem vélstjóri og afgreiðslumaður við frystihús Kaupfélags Héraðsbúa á Egilsstöðum. Auk náms á Eiðum tók Villi meirapróf í bifreiðaakstri og stundaði um sinn leigubílaakstur. Þá gekk hann á íþróttaskólann í Hauka- dal hjá Sigurði Greipssyni, lands- kunnum íþróttafrömuði. Villi Emils var lágvaxinn, en sam- svaraði sér vel, fríður sýnum og ein- staklega geðfelldur maður. Á Eiðum var hann ágætur fimleikamaður og frægur fyrir sínar handgöngur. Hann var glaðsinna og hafði næmt auga fyr- ir glensi og gamansemi. Villi tók tals- verðan þátt í leiklistarstarfsemi á Eg- ilsstöðum. Hann var í raun og veru leikari af guðs náð. Snemma tók hann að herma eftir ýmsum sérkennilegum körlum heima og grétu menn af hlátri. Ég held, að hann hefði hæglega getað orðið atvinnuleikari, hefði hann lagt fyrir sig leiklist. Árið 1947 gekk Vilhjálmur í hjóna- band með Ingibjörgu Stefánsdóttur frá Mýrum í Skriðdal, systur Einars Stefánssonar, sem kvæntur var Sig- ríði föðursystur minni Vilhjálmsdótt- ur frá Hánefsstöðum. Hjálmar Vil- hjálmsson gaf þau saman. Þetta var mikill hamingjudagur í lífi þeirra beggja. Inga var mikil mannkostakona og lifðu þau í hamingjusömu hjónabandi þar til Inga lést á sl. vetri. Syrgði Villi konu sína mjög og vildi halda öllu sem minnst breyttu heima við. Þau voru fádæma samhent í öll- um efnum og máttu vart hvort af öðru sjá. Þau eignuðust tvö börn, Björgu og Vilhjálm Emil, sem bæði eru bú- sett í Svíþjóð. Þrátt fyrir það var mik- ill samgangur með þeim. Börnin og og barnabörnin komu oft í heimsókn í Vindás og Villi og Inga dvöldu lang- dvölum hjá þeim í Svíþjóð. Villi og Inga voru meðal þeirra fyrstu, sem byggðu íbúðarhús á Egilsstöðum, sem fljótlega þróaðist í fjölmenna og blómlega byggð. Þau nefndu húsið sitt Vindás, en er formlega Laufás nr. 7. Húsið er vinalegt, umvafið fögrum trjágarði, sem þau hafa ræktað. Inga var bæði smekkleg og dugleg hús- móðir, en starfaði lengi sem ljósmóð- ir. Villi var auk þess handlaginn og lagvirkur. Þau voru dugleg að halda öllu vel við og undu sér við ræktun, m.a. í litlu gróðurhúsi og verkstæði, þar sem Villi vann ýmsa vélavinnu o.fl. Þá komu þau sér upp sumarbústað við Lagarfljót í landi Höfða. Meðan ég gegndi þingmennsku í Austurlands- kjördæmi gisti ég oft hjá þeim hjón- um. Var notalegt að koma þangað ferðalúinn og njóta hvíldar hjá þess- um yndislegu hjónum. Villi var bæði kíminn og gaman- samur og Inga hafði ánægju af að gera gestum til góða. Geymi ég marg- ar ljúfar minningar um þessa sam- fundi, sem aldrei verða fullþakkaðir. Þeirra er sannarlega saknað af öllum, sem þeim kynntust. Vilhjálmur andaðist á Landspítal- anum 14. ágúst sl. eftir aðeins nokk- urra daga veikindi. Að leiðar- lokum viljum við vinir þeirra hjóna þakka þeim ævilanga vináttu og tryggð og biðja þeim guðs blessunar. Börnun- um og barnabörnum sendum við hlýj- ar samúðarkveðjur. Tómas Árnason. Hann Villi Emils er dáinn. Fyrir örfáum vikum rifjuðum við saman upp gömlu góðu dagana þegar Egilsstaðaþorp var að byrja að byggj- ast og hluti þess kom í útvarpsþætti. Það var ekki seinna vænna. Á laugardag var hann í góðu yf- irlæti í áttræðisafmæli Garðars mágs síns á sunnudegi í grillveislu hjá tengdafólki og vinum en á mánudags- morgni fékk hann svima og höfuðverk sem reyndist stafa af heilablæðingu og á fimmtudag var hann allur. Þegar eg heimsótti hann á Sjúkra- hús Egilsstaða á þriðjudagsmorgni var hann enn með fullri rænu en átti erfitt með að tala. Eg sagði við hann að hann myndi hafa þetta af, en hann brosti góðlátlega og nú finnst mér eg skilja hvað í því lá: Líklega hefur hann skynjað nærveru konu sinnar, Ingi- bjargar Stefánsdóttur, föðursystur minnar, sem dó eftir stutta legu á sama sjúkrahúsi fyrr á þessu ári, að hún hefði ekkert á móti því að fá hann til sín, svo samrýnd sem þau alltaf voru. Hann hét fullu nafni Vilhjálmur Emilsson og fæddist á Hánefsstaða- eyrum við Seyðisfjörð hinn 8. febrúar árið 1920. Kornabarn var hann tekinn í fóstur af afa mínum og ömmu á Há- nefsstöðum. Eftir barnaskóla fór hann í Eiðaskóla og síðar í íþrótta- skóla Sigurðar Greipssonar í Hauka- dal, en Villi var fimur maður og gekk á höndum meira og betur en flestir aðrir menn. Hann tók meirapróf og aflaði sér síðar vélstjóraréttinda, stundaði leigubílaakstur hjá Steindóri í Reykjavík um skeið, fór á síld nokk- ur sumur og einn vetur var hann vél- stjóri á bát sem sigldi með ísfisk til Englands. Að þessu loknu kom vél- stjórinn upp á Hérað og vann í tæpa hálfa öld við frystihús KHB á Egils- VILHJÁLMUR EMILSSON MINNINGAR 42 LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Yngvi Guð-mundsson, fv. rafmagnseftirlits- maður hjá Orkubúi Vestfjarða, fæddist í Reykjavík 12. febrúar 1926. Hann lést á Sjúkrahúsinu á Ísafirði 15. ágúst síðastliðinn. For- eldrar hans voru hjónin Geirþóra Ástráðsdóttir hús- freyja, f. 1892, d. 1979, og Guðmund- ur Kr. Guðjónsson verslunarmaður, f. 1893, d. 1977. Systur Yngva eru Ingibjörg Ásta f. 1922, d. 1978, Gunnhildur Stein- unn, f. 1924, og Áslaug, f. 1929. 1975. 3) Auður ökukennari og um- boðsmaður Morgunblaðsins, f. 1963. Börn hennar eru Anna, f. 1981, d. 1981, Guðmundur Geir, f. 1985, og Sigrún, f. 1993. 3) Einar Ágúst rafiðnfræðingur, f. 1963, kvæntur Emelíu Þórðardóttur frá Djúpuvík. Börn Einars eru Kon- ráð, f. 1988, Daníel Ágúst, f. 1997, og Katrín Ósk, f. 1999, og stjúp- sonur, Kristinn Ísak, f. 1981. Yngvi ólst upp á Lindargötunni í Reykjavík. Hann og Sigrún bjuggu í um 40 ár á Ísafirði, þar sem hann starfaði sem rafmagnseftirlits- maður hjá RARIK og síðan Orkubúi Vestfjarða. Hann kenndi í 20 ár í Iðnskólanum og vélskólan- um á Ísafirði, og var formaður sveinsprófsnefndar öll árin. Yngvi og Sigrún bjuggu síðustu 9 árin í Mosfellsbæ, en fluttust síðan aftur til Ísafjarðar, nú í vor á þessu ári. Útför Yngva verður gerð frá Ísafjarðarkirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. Yngvi kvæntist hinn 28. júní 1952 Sigrúnu Einarsdóttur frá Ísa- firði, f. 11.12. 1927. Kjörforeldrar hennar voru Þuríður S. Vigfús- dóttir húsfreyja, f. 1900, d. 1987, og Einar Ágúst Guðmundsson klæðskerameistari, f. 1894, d. 1961. Börn Yngva og Sigrúnar eru: 1) Þuríður vefjaræktar- fræðingur, f. 1952, gift Guðmundi Jónssyni bónda á Reykjum í Mos- fellsbæ. Börn þeirra eru Málfríð- ur, f. 1977, Yngvi, f. 1984, og Ingi- björg Ásta, f. 1987. 2) Guðmundur Geir stálskipasmiður, f. 1953, d. Vinur og tengdafaðir, Yngvi Guð- mundsson, er látinn eftir erfiðan sjúkleika 77 ára að aldri. Eftir tæp- lega 30 ára kynni er efst í huga að minnast velvilja og vináttu hans í minn garð, þannig að aldrei bar skugga á. Auðvitað kemur sitthvað upp í hugann, þegar rifjaður er upp sá tími sem liðinn er án þess að það verði rakið nánar. Yngvi var Reykvíkingur að upp- runa, fæddur og uppalinn á Lindar- götu 6 og var hann í Reykjavík sín æsku- og uppvaxtarár. Hann var vel liðtækur íþróttamaður, liðsmaður ÍR í handknattleik á sínum yngri árum. Hann kvæntist Sigrúnu Einarsdóttur frá Ísafirði 1952 og bjuggu þau fyrst í Reykjavík. Þau fluttust svo til Ísa- fjarðar nokkrum árum síðar og bjuggu þar allt til þess tíma er þau fluttust í Mosfellsbæinn fyrir nokkr- um árum. Yngvi valdi sér þann starfsvett- vang á unga aldri að gerast opinber starfsmaður og starfaði hjá Raf- magnsveitum ríkisins og síðar Orkubúi Vestfjarða á Ísafirði alla sína starfsævi. Ekki hefur það verið vandalaust að flytjast úr miðbæ Reykjavíkur til Vestfjarða og fást þar við bilaðar raflínur í vondum veðrum, enda er veðurfar Vestfjarða harðara og verra að vetri til en almennt þekk- ist hér á Suðvesturlandi. Af frásögn- um hans að dæma gekk stundum á ýmsu að halda rafmagninu í lagi og aðstæður erfiðar. Þegar Yngvi komst á eftirlaunaald- ur fyrir nokkrum árum fluttu þau Sigrún suður á æskuslóðir hans til að eyða ellinni. Því miður varð hún styttri en við mátti búast miðað við heilsufar hans um ævina, sem alla tíð hafði verið gott. Eftir var þó sælureit- ur fyrir vestan, sumarbústaðurinn í Tungudal, sem var nýendurbyggður eftir snjóflóðið mikla. Undi Yngvi sér þar hið besta hvert sumar og fluttu þau hjón þangað hvert vor eins og þau höfðu ávallt gert, nú síðast í byrj- un sumars. Dvöl hans entist því mið- ur ekki sumarið en við því var fátt að gera. Yngvi var heilsteyptur maður og virtist mér hann hafa í heiðri gildi sem ávallt hljóta að teljast mikils virði en það eru heiðarleiki, trúmennska og æðruleysi þótt móti blási. Sýndist mér hann hafa öll mál á hreinu. Fjöl- skylda hans hafði forgang í lífi hans og farnaðist honum vel. Genginn er drengskaparmaður og vinur sem söknuður er að, blessuð sé minning hans. Guðmundur Jónsson. Nú er hann Yngvi afi okkar dáinn. Afi var okkur alla tíð mjög góður og stjanaði við okkur hvort sem við heimsóttum hann á Engjaveginn, inn í Skóg eða á Fálkahöfðann. Hann var alltaf tilbúinn til að skutla okkur hingað og þangað já eða bara lána okkur bílinn ef svo bar við. Afi var mjög fróðleiksfús maður og var alltaf gaman að fara í heimsókn og spjalla um heima og geima. Hann var mjög áhugasamur um allt sem við tókum okkur fyrir hendur og spurði oft og mikið um hvernig okkur gekk í skól- anum og hvað við værum að læra. Afi var mjög góður kennari og kenndi okkur stærðfræði og rafmagnsfræð- ina eins og hann gat. Jafnvel þegar hann var hættur að geta talað við okkur sjálfur eða hringt bað hann ömmu um að hringja og athuga hvernig okkur gekk í prófunum. Afi var líka íþróttamaður mikill og hvatti okkur eindregið áfram í öllum íþróttum sem við stunduðum. Hann var alltaf tilbúinn að keyra okkur á skíði upp á Dal næstum sama hvernig viðraði. Á sumrin dvöldum við oft hjá ömmu og afa inni í Skógi og þar var hann einnig duglegur að spila við okkur fótbolta og á milli var hann sí- fellt að æfa okkur í frjálsum íþróttum. Ekkert okkar hefur þó náð langt í þessum greinum en við höfðum öll mikið gaman af. Fyrir um fjórum ár- um var um það rætt að við myndum öll ganga á Esjuna en úr því varð svo ekkert því sjúkdómurinn fór að gera vart við sig um þetta leyti. Afi var mikill fjölskyldumaður og vildi hafa okkur sem flest hjá sér. Hann kenndi okkur margt. Hann vildi alltaf að við værum heiðarleg og kláruðum það sem við tókum okkur fyrir hendur og gerðum það vel. Hans er sárt saknað. Fríða, Yngvi, Ingibjörg og Geir. Vinur minn og samstarfsmaður til margra ára Yngvi Guðmundsson hef- ur kvatt. Það var árið 1943 sem leiðir okkar lágu fyrst saman, við vorum báðir félagar í ÍR og áttum marga sameiginlega kunningja í hópi ÍR- inga . Yngvi var m.a. í meistaraflokki ÍR í handbolta og stundaði líka frjálsar íþróttir. Síðan skildu leiðir vegna starfa okkar, Yngvi nam rafiðn og að því námi loknu hóf hann nám við raf- magnsdeild Vélskóla Íslands. Yngvi kvæntist Sigrúnu Einars- dóttur sem er Ísfirðingur. Þau settust að á Ísafirði og þar stundaði Yngvi ýmis raffræðileg störf. Hann vann m.a. við rafmagnseftirlit, formennsku í prófnefnd rafiðnaðar á Ísafirði og við kennslu í Iðnskóla Ísafjarðar. Leiðir okkar Yngva lágu að nýju saman árið 1962 er ég fluttist á Vest- firði. Næstu tuttugu árin störfuðum við saman að orkumálum og iðnskóla- störfum. Það var afar gott að vinna með Yngva, margar umræðustundir áttum við m.a. þegar verið var að leita bestu lausna á ýmsum tæknilegum vandamálum eða rekstrarlegum, og alltaf var gott að leita til hans um ábendingar eða ráð. Ekki var í kot vísað að heimsækja Yngva og Sigrúnu á heimili þeirra eða í sumarhús þeirra inni í skógi. Marga ánægjulega áramótafagnaði áttum ég og kona mín með Sigrúnu og Yngva og fleiri góðkunningjum. En nú er Yngvi farinn, en hann mun áfram lifa í mínu minni. Ég votta Sigrúnu, börnum þeirra og öðrum afkomendum innilega sam- úð mína. Aage Steinsson. YNGVI GUÐMUNDSSON
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.