Morgunblaðið - 23.08.2003, Qupperneq 49
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 2003 49
SKÁKÞING Íslands 2003 í lands-
liðs- og kvennaflokki hefst sunnu-
daginn 24. ágúst klukkan 13 í Hafn-
arborg í Hafnarfirði. Dregið hefur
verið um töfluröð:
1. Hannes H. Stefánsson (2.560)
2. Þröstur Þórhallsson (2.444)
3. Davíð Kjartansson (2.320)
4. Stefán Kristjánsson (2.404)
5. Ingvar Þór Jóhannesson (2.247)
6. Jón Viktor Gunnarsson (2.411)
7. Ingvar Ásmundsson (2.321)
8. Guðmundur Halldórsson
(2.282)
9. Björn Þorfinnsson (2.349)
10. Róbert Harðarson (2.285)
11. Sigurður Daði
Sigfússon (2.323)
12. Sævar Bjarnason (2.269)
Eins og sjá má er þetta góð
blanda af skákmönnum á öllum
aldri. Hátt í 50 ára aldursmunur er á
yngsta og elsta keppandanum, sem
er Ingvar Ásmundsson. Hann hefur
náð frábærum árangri á undanförn-
um árum og er meðal sterkustu
skákmanna í sínum aldursflokki í
heiminum. Hann varð Íslandsmeist-
ari árið 1979. Alls tefla fimm tit-
ilhafar á mótinu, þar af tveir stór-
meistarar, núverandi
Íslandsmeistari, Hannes Hlífar
Stefánsson, og Þröstur Þórhallsson.
Alþjóðlegu meistararnir eru Jón
Viktor Gunnarsson, Stefán Krist-
jánsson og Sævar Bjarnason. Sævar
er einn allra virkasti skákmaður
okkar, sérstaklega á mótum hér inn-
anlands og hefur oft náð að setja
strik í reikninginn með góðum ár-
angri gegn stórmeisturunum okkar.
Jón Viktor varð Íslandsmeistari í
skák árið 2000, og Stefán Kristjáns-
son telur það örugglega tímabært að
fá Íslandsmeistarabikarinn í sína
vörslu. Hann hefur verið í stöðugri
framför allt frá því hann hóf skák-
iðkun og spurningin er hvort næsta
stökkið fram á við komi á þessu
móti. Ef það gerist, þá gæti ýmislegt
óvænt gerst þótt fyrirfram verði
Hannes Hlífar að teljast líklegastur
til að hampa titlinum í fjórða skipti.
Í fyrstu umferð mótsins mætast:
Hannes - Sævar
Þröstur - Sigurður Daði
Davíð - Róbert
Stefán - Björn
Ingvar Þór - Guðmundur
Jón Viktor - Ingvar Ásmundsson
Það er ljóst að það skapast strax
töluverð spenna í fyrstu umferðinni.
Nái Hannes ekki að sigra Sævar þá
verður á brattann að sækja fyrir
hann í næstu umferðum til að ná for-
ystunni. Sigurður Daði er rúmum
100 stigum lægri en Þröstur en hef-
ur hins vegar teflt meira að und-
anförnu og er því til alls líklegur.
Ómögulegt er að segja hvor hefur
betur Davíð eða Róbert. Það eina
sem er öruggt er að hart verður bar-
ist. Ein af mest spennandi viður-
eignum umferðarinnar verður á
milli baráttujaxlanna Stefáns og
Björns sem er þekktur fyrir vægast
sagt ævintýralega taflmennsku.
Þetta er mikilvæg skák fyrir þá
báða. Áhorfendur ættu að hafa auga
með átökunum. Ingvar Þór og Guð-
mundur hafa líklega sjaldan mæst í
kappskák áður og ómögulegt er að
segja til um hvernig sú skák fer.
Ingvar Þór hefur þó það forskot að
hafa teflt meira að undanförnu held-
ur en Guðmundur. Það leið 21 ár frá
því að Ingvar hreppti sinn Íslands-
meistaratitil þar til Jón Viktor gerði
slíkt hið sama. Báðir þessir skák-
menn eru í góðri æfingu og tilbúnir
til að leggja það á sig sem þarf til að
sigra. Það verður spennandi að
fylgjast með þessari viðureign Jóns
Viktors, sem gæti orðið okkar næsti
stórmeistari, og Ingvars sem á stífa
skákdagskrá fyrir höndum í haust
og hefur örugglega undirbúið sig af
kostgæfni.
Ekki liggur fyrir keppendalisti í
kvennaflokki.
Fyrsta umferð hefst kl. 13 á
sunnudag í Hafnarborg, Strand-
götumegin. Tímamörkin eru sem
hér segir: 2 klst. á 40 leiki, 1 klst. á
20 leiki og 30 mín. til
að klára.
Skákfélagið Hrók-
urinn, Taflfélag
Reykjavíkur, Tafl-
félag Vestmannaeyja
og Skákdeild Hauka
eru komin í undanúr-
slit, þ.e. þriðju um-
ferð, hraðskákkeppni
taflfélaga. Hróks-
menn lögðu Helli að
velli í annarri umferð.
Þetta var fyrsta tap
Hellis, meistara síð-
ustu þriggja ára, síð-
an í júní 1999. Jóhann
Hjartarson stóð sig
best Hróksmanna en
Hannes Hlífar Stefánsson stóð sig
best í Hellisliðinu. Ivan Sokolov
tefldi með Hróksmönnum og stóð
sig einnig vel. Eins og oft áður varð
hann þó að sætta sig við að láta í
minni pokann gegn Helga Ólafssyni.
Sokolov fékk ½ vinning gegn 1½
vinningi Helga. Auk þess lagði
Kristján Eðvarðsson meistarann.
Úrslit annarrar umferðar:
TV – Taflf. Kópavogs 72*-0*
TR - Skákfélag Akureyrar
50½-21½
Skákf. Reykjanesb. -
Skákdeild Hauka 19-53
Hellir - Hrókurinn 30½-41½
Í undanúrslitum mætast:
TV - Skákdeild Hauka
TR - Hrókurinn
Atkvöld Hellis
Taflfélagið Hellir heldur fyrsta
atkvöld eftir sumarhlé mánudaginn
25. ágúst. Mótið hefst kl. 20. Fyrst
eru tefldar 3 hraðskákir þar sem
hvor keppandi hefur 5 mínútur til að
ljúka skákinni og síðan þrjár at-
skákir, með tuttugu mínútna um-
hugsun.
Sigurvegarinn fær verðlaun, mat
fyrir tvo frá Dominos Pizzum. Þá
verður annar keppandi dreginn út af
handahófi, sem einnig fær máltíð
fyrir tvo hjá Dominos Pizzum. Þar
eiga allir jafna möguleika, án tillits
til árangurs á mótinu.
Þátttökugjald er kr. 300 fyrir fé-
lagsmenn (kr. 200 fyrir 15 ára og
yngri) og kr. 500 fyrir aðra (kr. 300
fyrir 15 ára og yngri). Teflt verður í
Hellisheimilinu, Álfabakka 14a í
Mjódd. Allir eru velkomnir.
Skákþing Íslands að hefjast
Hannes Hlífar
Stefánsson
Þröstur
Þórhallsson
SKÁK
Hafnarborg, Hafnarfirði
SKÁKÞING ÍSLANDS 2003
24.8. – 4.9. 2003
dadi@vks.is
Daði Örn Jónsson
Ódýrt fyrir alla!
Ódýrt fyrir alla! LYNGHÁLSI 4 - SKÚTUVOGI 2
LÁGT OG
STÖÐUGT
VÖRUVERÐ!
Leikandi
létt
1495-
HLAUPAHJÓL
barna
OPIÐ
11-20
ALLA DAGA
LANDHELGISGÆSLA Íslands stóð fyrir ráðstefnu
strandgæslustofnana Norðurlandanna í gær og fyrra-
dag. Megináherlsa var lögð á umhverfismál á ráðstefn-
unni að þessu sinni en hún er haldin árlega og löndin
skiptast á að halda hana. Auk fyrirlestra og umræðna
var ýmislegt annað í boði fyrir ráðstefnugesti, þ.á m.
var þeim boðið til Vestmannaeyja en þangað var hóp-
urinn á leiðinni þegar ljósmyndari Morgunblaðsins
hitti hann á Reykjavíkurflugvelli í fyrradag.
Á myndinni eru í fremri röð frá vinstri: Kurt Birger
Jensen (Danmörku), Hafsteinn Hafsteinsson, Marie
Hafström (Svíþjóð), Hannu Ahonen (Finnland), Geir O.
Skorstad (Noregi), Gylfi Geirsson og Steve Olsen (Nor-
egi). Aftari röð frá vinstri: Carsten Munk (Danmörk),
Kauko Lehtinen (Finnlandi), Dan Thorell (Svíþjóð),
Dagmar Sigurðardóttir og Sigurður Steinar Gíslason.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Norræn ráðstefna á vegum
Landhelgisgæslunnar
VEGNA greinar á Austur-
landssíðu í gær um ástand mála
í vinnubúðum Impregilo við
Kárahnjúka vill Friðfinnur K.
Daníelsson verkfræðingur, eig-
andi fyrirtækisins Alvars ehf.,
gera eftirfarandi athugasemd:
Fyrirtækið Alvar ehf. hefur
síðan í apríl sl. leitað að neyslu-
vatni á Kárahnjúkasvæðinu.
Fyrirtækið hefur borað nokkr-
ar holur, þá dýpstu um 400
metra. Er allt neysluvatn tekið
úr borholum og er það 1. flokks.
Forráðamenn Impregilo hafa
lagt mikla áherslu á að afla 1.
flokks neysluvatns fyrir starfs-
menn á svæðinu og hafa ekkert
sparað í þeim efnum.
Athuga-
semd
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi yfirlýsing frá Barna-
verndarstofu vegna fréttar ríkis-
sjónvarpsins 20. ágúst sl.:
„Barnaverndarstofa vísar á bug
þeim aðdróttunum sem fram komu í
kvöldfréttum ríkissjónvarpsins þann
20. ágúst um að Barnaverndarstofa
hafi ekki rækt lögboðna eftirlits-
skyldu sína með aðgerðarleysi í máli
barns, sem Héraðsdómur Vestfjarða
hefur nú staðfest að hafi sætt kyn-
ferðisofbeldi.
Af þessu tilefni vill Barnavernd-
arstofa taka fram eftirfarandi:
1. Í dómi Héraðsdóms Vestfjarða
kemur fram að umrædd stúlka hafi
sagt frá áreiti í sinn garð árið 2001,
hvaða opinberir aðilar komu að því
máli og staðfest að ekki hafi verið
óskað rannsóknar lögreglu á meintu
refsiverðu broti. Barnaverndarstofu
var á þessum tíma með öllu ókunn-
ugt um framvindu og afgreiðslu þess
máls.
2. Eins og fram kemur í dómnum
var mál stúlkunnar aftur tilkynnt
barnaverndarnefnd árið 2002 og í
kjölfarið réð nefndin Herdísi Hjör-
leifsdóttur félagsráðgjafa til að vinna
við málið. Fram kom í fréttaviðtalinu
við félagsráðgjafann að hún hafi leit-
að eftir ráðgjöf hjá Barnaverndar-
stofu eftir að hún hóf vinnslu máls-
ins.
3. Ekkert kom fram í viðtali við fé-
lagsráðgjafann sem bendir til að er-
indi hennar hafi verið að óska eftir
aðgerðum af hálfu Barnaverndar-
stofu vegna málsmeðferðar viðkom-
andi barnaverndarnefndar á fyrri
stigum málsins, þ.e. áður en fé-
lagsráðgjafinn hóf störf fyrir nefnd-
ina. Úrlausnarefni stofunnar var því
að leggja sitt af mörkum í því skyni
að tryggja að vinnsla málsins á þess-
um tíma væri í samræmi lög og góð-
ar verklagsreglur þannig að best
þjónaði barninu.
4. Sá sérfræðingur Barnaverndar-
stofu, sem veitti félagsráðgjafanum
ráðgjöf á þessum tíma, kannast ekki
við að málsmeðferð nefndarinnar á
fyrri stigum hafi komið til umræðu
árið 2002 enda var þá rétt og eðlilegt
að leggja höfuðáherslu á að tryggja
hagsmuni telpunnar við þá rannsókn
sem hafin var á máli hennar og
tryggja málinu réttan farveg. Verð-
ur ekki annað ráðið af dómi Héraðs-
dóms Vestfjaða en að það hafi tekist.
5. Ranglega var haft eftir forstjóra
Barnaverndarstofu að málið hefði
farið „ranga boðleið“ til stofnunar-
innar, og er þar um að ræða eigin
vangaveltur fréttamanns.
Barnaverndarstofa harmar ómál-
efnalega umfjöllun og óvönduð
vinnubrögð fréttastofu Sjónvarps í
þessu máli,“ segir í yfirlýsingunni.
Barnaverndarstofa
gagnrýnir frétta-
stofu Sjónvarps
ELLERT B. Schram, forseti ÍSÍ, og
eiginkona hans Ágústa Jóhannsdótt-
ir eru stödd um þessar mundir í
Færeyjum í boði Færeyska íþrótta-
sambandsins. Í kvöldverðarboði á
Hótel Hafnia 19. ágúst sl. sæmdi
Héðin Mortensen, forseti Færeyska
íþróttasambandsins, Ellert Gull-
merki sambandsins. Gullmerkið er
æðsta heiðursorða sem veitt er á
vegum sambandsins.
Í stuttu ávarpi sem Héðinn flutti
við afhendinguna var forseta ÍSÍ
þakkað fyrir vinskap og einstaklega
góðan stuðning í garð Færeyska
íþróttasambandsins, m.a. í tengslum
við baráttu sambandsins við að fá að-
ild að Alþjóða Ólympíunefndinni svo
og öðrum alþjóðlegum íþróttasam-
tökum, segir í fréttatilkynningu.
Heiðraður í
Færeyjum