Morgunblaðið - 23.08.2003, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 23.08.2003, Blaðsíða 50
DAGBÓK 50 LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM- AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug- lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Olivia kemur í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Arklow Dusk fer í dag. Mannamót Félag aldraðra Mos- fellsbæ. Skrifstofa fé- lagsins verður lokuð í sumar til 2. sept- ember. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraun- seli, Flatahrauni 3. Morgunganga frá Hraunseli kl. 10. Rúta frá Firðinum kl. 9.50. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði, Glæsibæ. Dagsferð 26. ágúst Kaldidalur- Húsafell o.fl., laus sæti, kaffi í Mun- aðarnesi. Leiðsögn Þórunn Lárusdóttir. Skrifstofa FEB, Faxa- feni 12, opin kl. 10–16, s. 588 2111. Gerðuberg, fé- lagsstarf. Á mánudög- um, miðvikudögum og föstudögum sund og leikfimiæfingar í Breiðholtslaug, kl. 13 boccia. FEBK. Púttað á Lista- túni kl. 10.30 á laug- ardögum. Mætum öll og reynum með okkur. Gönguklúbbur Hana- nú. Morgunganga kl. 10 laugardagsmorgna frá Gjábakka. Krummakaffi kl. 9. Gigtarfélagið. Leik- fimi alla daga vik- unnar. Létt leikfimi, bakleikfimi karla, vefjagigtarhópar, jóga, vatnsþjálfun. Einn ókeypis prufutími fyr- ir þá sem vilja. Uppl. á skrifstofu GÍ, s. 530 3600. Stuðningsfundir fyrr- verandi reykingafólks. Fólk sem sótt hefur námskeið gegn reyk- ingum í Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði, fundur í Gerðubergi á þriðjud. kl. 17.30. GA-Samtök spilafíkla, fundir spilafíkla, Höf- uðborgarsvæðið: Þriðjudagur kl. 18.15 – Seltjarnarneskirkja, Valhúsahæð, Seltjarn- arnesi. Miðvikudagur kl. 18 – Digranesvegur 12, Kópavogur. Fimmtudagur kl. 20.30 – Síðumúla 3–5, Göngudeild SÁÁ, Reykjavík. Föstudag- ur kl. 20 – Víðistaða- kirkja, Hafnarfjörður. Laugardagur kl. 10.30 – Kirkja Óháða safn- aðarins, v/Háteigsveg, Reykjavík. Austur- land: Fimmtudagur kl. 17 – Egilsstaðakirkja, Egilsstöðum. Neyð- arsími GA er opinn all- an sólarhringinn. Hjálp fyrir spilafíkla. Neyðarsími: 698 3888. Samtök þolenda kyn- ferðislegs ofbeldis, fundir mánudaga kl. 20 á Sólvallagötu 12. Stuðst er við 12 spora kerfi AA-samtakanna. Oa samtökin. Átrösk- un / Matarfíkn / Ofát. Fundir alla daga. Upp- lýsingar á www.oa.is og síma 878 1178. Ásatrúarfélagið, Grandagarði 8. Opið hús alla laugardaga frá kl. 14. Kattholt. Flóamark- aður í Kattholti, Stangarhyl 2, er opinn þriðjud. og fimmtud. frá kl. 14–17. Leiðir 10 og 110 ganga að Katt- holti. Minningarkort Samúðar- og heilla- óskakort Gídeon- félagsins er að finna í anddyrum eða safn- aðarheimilum flestra kirkna á landinu, í Kirkjuhúsinu, á skrif- stofu KFUM&K og víðar. Þau eru einnig afgreidd á skrifstofu Gídeonfélagsins, Vest- urgötu 40, alla virka daga frá kl. 14–16 eða í síma 562 1870. Allur ágóði fer til kaupa á Nýja testamentum sem gefin verða 10 ára skólabörnum eða kom- ið fyrir á sjúkra- húsum, hjúkr- unarheimilum, hótelum, fangelsum og víðar. Minningarkort Stóra- Laugardalssóknar, Tálknafirði, til styrkt- ar kirkjubygging- arsjóði nýrrar kirkju í Tálknafirði, eru af- greidd í síma 456-2700. Minningarspjöld Frí- kirkjunnar í Hafn- arfirði fást í Bókabúð Böðvars, Pennanum í Hafnarfirði og Blóma- búðinni Burkna. Minningakort Ás- kirkju eru seld á eft- irtöldum stöðum: Kirkjushúsinu, Lauga- vegi 31, þjón- ustuíbúðum aldraðra við Dalbraut, Norð- urbrún 1, Apótekinu Glæsibæ og Áskirkju, Vesturbrún 30, sími 588-8870. KFUM og KFUK og Samband íslenskra kristniboða. Minning- arkort félaganna eru afgreidd á skrifstof- unni, Holtavegi 28, í s. 588-8899 milli kl. 10 og 17 virka daga. Gíró- og kredidkortaþjónusta. Minningarkort Graf- arvogskirkju. Minn- ingarkort Grafarvogs- kirkju eru til sölu í kirkjunni, s. 587 9070 eða 587 9080. Hægt er að nálgast kortin í Kirkjuhúsinu, Lauga- vegi 31, Reykjavík. Í dag er laugardagur 23. ágúst, 235. dagur ársins 2003, Hunda- dagar enda. Orð dagsins: Ég er Drottinn, Guð yðar, lifið eftir boð- orðum mínum og haldið lög mín og breytið eftir þeim. (Esk. 20, 20.)     Vefþjóðviljinn gerirvegaframkvæmdir að umtalsefni í nýlegum pistli: „Það hlaut að koma að því, þverun Mjóa- fjarðar er komin á dag- skrá. Fyrir skattgreið- endur er það það eina jákvæða við þá frétt að þetta skuli vera Mjói- fjörður en ekki til dæmis Breiðafjörður, þótt eng- inn skyldi hrökkva við þegar þverun hans ber á góma eftir nokkur ár.     Það er þegar búið aðþvera Gilsfjörðinn og verið er að vinna að þver- un Kolgrafarfjarðar, svo það er ekki nema eðlilegt framhald að hringnum um Breiðafjörð verði á endanum lokað með þver- un fjarðarins sjálfs. En þverun Mjóafjarðar verð- ur sem sagt líklega eitt af næstu verkefnum ríkisins í vegamálum og er þar ekki um síðra verkefni að ræða en þverun Kolgraf- arfjarðarins, sem fyrir um 700 milljónir króna styttir veginn á norð- anverðu Snæfellsnesi um heila 6,2 kílómetra, eða svona á að giska 5 mín- útur í akstri … Þverunin styttir leiðina um Ísa- fjarðardjúp öllu meira en þverun Kolgrafarfjarðar styttir veginn á norð- anverðu Snæfellsnesi, en þar með er ekki sagt að brúin og vegafram- kvæmdirnar séu réttlæt- anlegar. Það er eins með þessa framkvæmd og ýmsar aðrar vegafram- kvæmdir að þær borga sig ekki nema ef til vill þegar þær hafa verið settar inn í forritið sem reiknar út „þjóðhagslega hagkvæmni“, sem þýðir yfirleitt sóun á skattfé á mannamáli.     Til að finna út hvortvegaframkvæmdir eru hagkvæmar eða ekki er hægt að láta notendur greiða fyrir notkun mannvirkjanna, en með þeirri aðferð kæmi fljótt í ljós að býsna mörg verk- efni í vegamálum eru alls ekki hagkvæm, jafnvel þótt „þjóðhagsleg hag- kvæmni“ þeirra sé ótví- ræð og jafnvel gríðarleg. Samgönguráðuneytið gaf á dögunum út ritið Samgöngur í tölum, þar sem birt eru línu- og súlu- rit yfir allt milli himins og jarðar. Þar er meðal ann- ars athyglisvert súlurit sem ber nafnið „Fjárveit- ingar í þúsundum kr. á hvern kílómetra í kjör- dæmunum 2002“ og þar sést að kostnaðurinn er langmestur í Reykjavík og á Reykjanesi, en yf- irstjórn og tilraunir telj- ast raunar til þessara svæða eins og getið er um annars staðar í ritinu. Það sem þó er athygl- isverðara er að hvergi er birt súlurit sem sýnir notkun veganna eða kostnað við ekinn kíló- metra. Engin tilraun er gerð til að sýna lesendum að sumir vegir eru sára- lítið notaðir en aðrir mik- ið, sem þó væru mik- ilvægar upplýsingar fyrir þá sem verða að greiða fyrir vegina, hvort sem þeir aka eftir þeim eða ekki.“ STAKSTEINAR Þrætt um þveranir Víkverji skrifar... VÍKVERJI lifir og hrær-ist í dægurmenning- unni. Það er – músík, bíó og teiknimyndir eru hans heimahagar í menning- arlegu tilliti. Eitthvað af þessu hlýtur að hafa með ungan aldur að gera. Hann hefur alla vega aldrei kveikt almennilega á sjálfri menningunni, sem leynt og ljóst þykir nú fínni. Vík- verji hugsar hins vegar á eftirfarandi hátt. Óperur: Leiðinlegar. Sígild tónlist: Hljómar allt eins. Myndlist: Leið- inleg. Ljóð: Leiðinleg. Nútímadans: Jaa … kannski. Já, svona er að vera ungur árþúsundamótamaður. x x x NÚ, það sem fylgir því að veradægurmenningarmaður er að vera sí og æ að glápa á sjónvarp, skreppa reglulega í kvikmyndahús og vera stöðugt með dægurtónlist í eyrunum. Og fletta í Séð og heyrt eða þess háttar tímaritum stöku sinnum, þá sjaldan sem lesturinn knýr á. Allt í lagi, þetta síðasta er kannski dálítið orðum aukið. Vík- verji trúir því hins vegar einlæglega að það sé verið að gera góða og vonda hluti í öllum listum, hvort sem þær eru „háar“ eða „lágar“. Nei, póstmódernistar, það er ekki allt jafnrétthátt! Það er til góður og vondur smekkur, innan alls. Það er hægt að hafa góðan og vondan smekk fyrir klassík, það er hægt að hafa góðan og vondan smekk fyrir kvikmyndum, það er hægt að hafa góðan og vondan smekk fyrir poppi. Að þessum orðum sögðum ætlar Víkverji að snúa sér að íslenskri kvikmyndamenningu. Og hitnar þá í kolunum, x x x MIKIÐ afskaplega kemur mikiðaf vondum myndum í íslensk kvikmyndahús um þessar mundir. Það er endalaust keyrt á með- almyndum fyrir meðalmanninn og úrvalið algerlega skyni skroppið! Víkverji gerir sér grein fyrir því að það er ávallt verið að kvarta undan drasli frá Hollywood en aldrei er góð (vond?) vísa of oft kveðin. Þetta er alltof einsleitt úrval og fólk alið upp á efni sem er hugsandi fólki vart bjóðandi. Vík- verja þykir gott og gaman að fara endrum og eins á heilalausar gamanmyndir en hann vill fá að rækta hugsandi hliðina á sér líka. Það þarf vísast að fara til útlanda til að geta notið góðra kvik- mynda í kvikmyndahúsum. Svona er að búa á eyju! x x x LJÓSIÐ finnst því helst í gamlagóða viðtækinu. Víkverji sá sér- deilis frábæran þátt á dögunum, breskt drama er ber heitið Verk- smiðjulíf eða Clocking Off og er sýndur í Sjónvarpinu. Bretarnir eiga það til að vera naskir í framleiðslu á fyrirtaks framhaldsþáttum og var sá þáttur sem Víkverji barði augum ekkert minna en snilld. Alls kyns fólk; ófrítt, renglulegt, stælt, fallegt að takast á við hluti sem hægt var að samsama sig með. Kannski ættu Bandaríkjamenn að reyna að læra eitthvað af gömlu herraþjóðinni? Verksmiðjulíf: Alvöru þáttur um alvöru fólk. Bankaútibúi lokað í Efra-Breiðholti NÚ á að fara að loka útibúi Íslandsbanka í Lóuhólum og flytja það í Mjóddina. Er ég mjög sár og leið yfir þessu því ég hef verið við- skiptavinur þessa útibús í fjölda ára og þar hefur starfað yndislegt fólk. Ef af þessu verður er ekkert bankaútibú í Efra- Breiðholti sem hægt er að sækja í, sækja þarf alla bankaþjónustu niður í Mjódd. Það er ómögulegt fyrir eldri borgara að þurfa að taka strætó til að fara í banka og margir sem ekki treysta sér til þess. Og svo er líka búið að taka af okkur póstútibúið sem var í Efra-Breiðholti. Ellilífeyrisþegi. Ágætt í bítið Í VELVAKANDA sunnu- daginn 17. ágúst birtist grein sem kölluð er Ágætt í bítið. Sá sem skrifar grein- ina segist sjá mikinn mun síðan sumarfólkið tók við. Í greininni er bætt við að ekki sé jafnmikið um kukl sem hefði verið mikið um í vetr- arþáttum og alls kyns anda- særingamenn og gott að það væri búið að kúpla þessu út. Ég hef séð og hlustað á alla þættina Ísland í bítið á Stöð 2 og fannst mér vetr- arþættirnir bæði fróðlegir og skemmtilegir. Þau Jó- hanna og Þórhallur, sem eru bæði greind og skemmtileg, stjórnuðu þessum þáttum með prýði. María Sigurðardóttir. Rifsber og rabarbari GÓÐVILJAÐIR garðeig- endur, þeir sem eiga rifsber og rabarbara aflögu og vilja leyfa öðrum að tína vinsam- lega hringið í síma 581 6885. Tapað/fundið Stálstrengjagítar týndist á þjóðhátíð YAMAHA-stálstrengjagít- ar týndist á síðustu þjóðhá- tíð í Vestmannaeyjum. Hans er sárlega saknað. Hann er merktur með nöfn- um Rollinganna á hlið og laginu Ruby Tuesday á baki. Skilvís finnandi hafi samband í síma 562 4742 eða vs. 587 6666. Myndavél týndist VIÐ urðum fyrir því óhappi að týna stafrænni myndavél Fuji Film 6800 á ferðalagi fyrir norðan um miðjan júlí. Trúlega hefur myndavélin týnst í Vaglaskógi eða á Ak- ureyri. Vélarinnar er sárt saknað og þá sérstaklega vegna myndanna sem í henni voru. Skilvís finnandi hafi sambandi í s. 822 9926. Úr í óskilum SILFURLITAÐ úr (lítið) fannst í Austurstræti 19. ágúst sl. Þeir sem kannast við úrið vinsamlega hafi samband í síma 552 2908. Næla týndist NÆLA með mynd af Múm- ínmömmu týndist sl. þriðju- dag í vesturbæ, Hlíðum eða á Holtavegi. Skilvís finnandi hafi samband í síma 553 1486. Dýrahald Birta er týnd BIRTA, sem er hvít, loðin, persnesk læða, týndist frá Fellasmára 1 í Kópavogi laugardaginn 5. júlí sl. Birta er með brotna vígtönn, eyrnamerkt en ólarlaus. Fólk er beðið um að svipast um í skúrum og kjöllurum ef hún hefur komist þar inn. Hennar er sárt saknað og hafa eigendur áhuga á að vita hvort hún sé lífs eða lið- in. Þeir sem hafa orðið varir við Birtu hafi samband í síma 564 2001 eða 690 3920 og 820 7050. Fundarlaun. Átt þú þennan kött? ÞESSI læða sem er svört, grá og brúnröndótt með hvítan maga, loppur og háls kom til okkar um verslunar- mannahelgina svöng og villt. Hún var ekki með ól og er ekki eyrnamerkt. Ef þú telur þig eiga hana vinsam- lega hafðu samband við okk- ur í Dverghömrum 38 í Grafarvogi eða í síma 587 5231. Kettlingar fást gefins ÞRÍR kettlingar í Mos- fellsbæ fást gefins. Þeir eru 10 vikna og kassavanir. Áhugasamir hafi samband í síma 866 5772. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15  Netfang velvakandi@mbl.is LÁRÉTT 1 slitur, 4 útlimir, 7 sam- einað, 8 krók, 9 guð, 11 numið, 13 vaxa, 14 fljót, 15 heilaspuni, 17 atlaga, 20 frost- skemmd, 22 grafa, 23 fatnaður, 24 stétt, 25 veisla. LÓÐRÉTT 1 gististaður, 2 hófdýr, 3 auðvelt, 4 líf, 5 tíu, 6 kind, 10 góla, 12 álít, 13 illkvittin, 15 durts, 16 næða, 18 innheimti, 19 fari, 20 maður, 21 ófríð. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU Lárétt: 1 liðleskja, 8 unnum, 9 eykur, 10 pól, 11 skúti, 13 leiti, 15 skalf, 18 öldur, 21 lús, 22 tegla, 23 komma, 24 langvinna. Lóðrétt: 2 innbú, 3 lampi, 4 svell, 5 jakki, 6 aurs, 7 þrái, 12 tel, 14 ell, 15 sýta, 16 angra, 17 flagg, 18 öskri, 19 Dímon, 20 róar. Krossgáta 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.