Morgunblaðið - 23.08.2003, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 2003 51
DAGBÓK
Kórinn mun starfa í 3 deildum í vetur:
Undirbúningsdeild fyrir yngstu drengi.
Æfingar á laugardögum kl. 11-12.
Aðalkórinn æfir sem fyrr á mánudögum og
miðvikudögum kl. 17-19.
Eldri deild (tenór og bassi) æfir með aðalkórnum
á miðvikudögum kl. 17-19.
Æfingar hefjast mánudaginn 8. september. Prufusöngur og innritun í deildir
verður í Neskirkju mánudaginn 1. sept. kl. 17-19. Skráning og nánari
upplýsingar eftir kl. 16 virka daga í síma 896 4914 (Friðrik S. Kristinsson
kórstjóri) og 863 8305 (Bjarni Frímann Karlsson form. foreldrafél.)
sjá www.neskirkja.is
DRENGJAKÓR NESKIRKJU
REYKJAVÍK
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
MEYJA
Afmælisbörn dagsins:
Athyglisgáfuna skortir þig
ekki og þú átt hægt um vik
með rannsóknir hvers kon-
ar. Framundan er ár spennu
og nýrra byrjana.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Sérkennileg lækningaúrræði
kunna að höfða til þín í dag. Þú
kannt að hugleiða valkosti sem
þér þóttu áður hlægilegir.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Gættu þín sérstaklega í kring-
um börn í dag til að forðast
slys. Engu að síður skaltu
vænta óvæntra uppákomna
tengdra börnum sem og ást-
armálum.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Ekki er ólíklegt að samtal í
dag komi þér í uppnám eða í
opna skjöldu. Hugsanlegt er
að samtalið sé milli þín og yf-
irmanns eða foreldris. Sýndu
rósemi.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Í dag er mikilvægt að sýna ró-
semi og yfirvegun. Teldu upp
að fimm áður en þú gerir eitt-
hvað í fljótfærni og gættu
tungu þinnar.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Rík þörf til að eyða stórri
summu í ákveðinn hlut sækir á
þig í dag. Þig langar að eyða
eins og þig lystir. Líkur eru á
sveiflum í fjárhag.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Baráttuandinn er sterkur í þér
í dag og þú finnur fyrir mikilli
sjálfstæðishvöt sem jafnvel
getur kallað fram í þér upp-
reisnarsegg. Þú kemst alveg
upp með það.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Ef þig langar að þröngva hug-
myndum þínum upp á aðra
skaltu sitja á þér. Þig langar að
ljá máls á bótum á vinnustað
eða spenna músagildru betur.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Sérvitringur eða mjög sér-
stakur einstaklingur mun lík-
lega verða á vegi þínum í dag.
Undarlegir hlutir geta gerst í
tengslum við vini eða kunn-
ingja.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Til að komast af er þér nauð-
synlegt að hafa frelsi. Hjá þér
magnast hvöt til að standa á
þínu og verja skoðanir þínar.
En ekki kunna allir að vera
sammála.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Umferðin kann að reynast þér
skeinuhætt í dag. Sýndu aðgát
við akstur eða á gangi. Óþol-
inmæði þín gæti valdið slysi
sem þú gætir annars forðast.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Rétt er að þú vitir að í dag
verður óstöðugleiki á sviði
eigna þinna og fjármála. En
líkur eru á að eitthvað komi
þér þægilega á óvart.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Ráðríki er mikið hjá þér í dag.
Þú ert ekki í skapi til að fara
bil beggja. Þú ert á iði, skortir
þolinmæði en uppreisn-
argirnin er að sama skapi mik-
il. En hverju mun það áorka?
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
VÖGGUKVÆÐI
Ljóshærð og litfríð
og létt undir brún,
handsmá og hýreyg
og heitir Sigrún.
Vizka með vexti
æ vaxi þér hjá!
Veraldar vélráð
ei vinni þig á!
- - -
Veikur er viljinn,
og veik eru börn.
Alvaldur, alvaldur
æ sé þeim vörn!
Sofðu, mín Sigrún,
og sofðu nú rótt.
Guð faðir gefi
góða þér nótt!
Jón Thoroddsen
LJÓÐABROT
ÁRNAÐ HEILLA
85 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 23.
ágúst, er 85 ára Þorsteinn
Þorsteinsson, Kirkjuvegi 1,
Keflavík. Þorsteinn og kona
hans, Lovísa, ætla að halda
upp á daginn með fjölskyld-
unni.
60 ÁRA afmæli. Á morgun, sunnudaginn 24. ágúst,verður sextug Pálína Helga Imsland, kirkjuvörður,
Safamýri 50, Reykjavík. Eiginmaður hennar er Hilmar
Símonarson, málarameistari, en hann verður 66 ára sama
dag. Þau taka á móti gestum í Safnaðarheimili Breiðholts-
kirkju í dag, laugardag, kl. 15–19.
SVEIT undir forystu
Hjördísar Eyþórsdóttur
vann bikarkeppni kvenna á
bandarísku sumarleikunum
í Kaliforníu í síðasta mán-
uði. Hjördís var fyrirliði án
spilamennsku (npc), en liðs-
menn hennar voru: Karen
McCallum, Beth Palmer,
Kerri Sanborn, Lynn Deas,
Lynn Baker og Debbie Ros-
enberg. Úrslitaleikurinn var
æsispennandi: það var jafnt
upp á IMPa eftir 64 spil og
réðust úrslitin því í fram-
lengingu. Þetta var eitt af
stóru spilunum:
Suður gefur; enginn á
hættu.
Norður
♠ ÁD6
♥ --
♦ ÁD1075
♣107532
Vestur Austur
♠ G108 ♠ K7542
♥ ÁKD762 ♥ 4
♦ 6 ♦ G9842
♣K94 ♣Á6
Suður
♠ 93
♥ G109853
♦ K3
♣DG8
Vestur Norður Austur Suður
McCallum Meyers Sanborn Montin
-- -- -- 2 tíglar *
3 hjörtu 3 spaðar * Dobl Pass
Pass 3 grönd Dobl Pass
Pass Pass
Opunun suðurs á tveimur
tíglum var hindrun í öðrum
hálitnum (multi) og vestur
sýndi góð spil og sexlit í
hjarta því að stökkva í þrjú
hjörtu. Meyers í norður sló
því föstu að hindrun Montin
væri byggð á spaðalit og
sagði þrjá spaða „leitandi“.
Þar með var hún föst í gildr-
unni og gjaldið var 1100 fyr-
ir fimm niður. (Útspilið var
hjarta upp á drottningu og
spaðagosi til baka.)
Sveit Hjördísar vann 14
IMPa á spilinu, en á hinu
borðinu spiluðu AV tvö
hjörtu, sem unnust slétt.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4
4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. Be3
e6 7. f3 b5 8. g4 Rfd7 9. Dd2
Rb6 10. O-O-O R8d7 11. Bd3
Bb7 12. Kb1 Hc8 13. Bg5
Dc7 14. Hhe1 Re5 15. f4
Rec4 16. Dc1 h6
Staðan kom upp í atskák-
einvígi Visw-
anathan Anand
(2774) og Judit
Polgar (2718) sem
lauk fyrir skömmu
í Mainz í Þýska-
landi. Sú ung-
verska hrærði
rækilega upp í
stöðunni með vafa-
samri mannsfórn.
17. Rd5?!! Dc5?
17...Rxd5 18. exd5
Bxd5 hefði tryggt
svörtum peði meira
og betra tafl fyrir
utan það að hann gat
unnið mann eftir 17...Rxd5
18. exd5 hxg5 19. dxe6 gxf4
og ekki verður séð að hvítur
hafi næg færi fyrir mann-
inn. Í framhaldinu reynist
staða svarts gjörtöpuð. 18.
Rb3! Df2 19. Hf1 Dg2 20.
Rxb6 Rxb6 21. De3! Rc4 22.
Da7 Bxe4 23. Dxa6 Hb8 24.
Hg1 hxg5 25. Hxg2 Bxg2
26. Bxc4 bxc4 27. Da4+ og
svartur gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
Jú, ég gleymdi flaut-
unni minni og hvað
með það?
Hvað get ég fengið
margar tölvur fyrir 40
bleika flöskutappa?
80 ÁRA afmæli. ÁgústaSigurdórsdóttir frá
Götu í Hrunamannahreppi
er áttræð í dag, laugardag-
inn 23. ágúst. Eiginmaður
hennar er Stefán Scheving
Kristjánsson. Þau verða að
heiman í dag.
FRÉTTIR
VÆNTANLEG vöktun á samfélags-
legum áhrifum stórframkvæmda á
Austurlandi var meðal þess sem
rætt var á aðalfundi Sambands
sveitarfélaga á Austurlandi,
SSA, sem var haldinn á
fimmtudag og föstudag á
Breiðdalsvík. 49 kjörnir
þingfulltrúar sátu fundinn,
auk allra þingmanna kjör-
dæmisins, félagsmálaráð-
herra og formanns Sam-
bands íslenskra
sveitarfélaga. Alls sóttu um
70 manns aðalfundinn.
Smári Geirsson í Neskaupstað
hættir nú formennsku í samtökun-
um eftir fimm ára setu og tekur
Soffía Lárusdóttir, forseti bæjar-
stjórnar Austur-Héraðs, við.
Smári sagði í samtali við Morg-
unblaðið að þingið hefði tekið á
mörgum stórum málum. „Við fjöll-
uðum um væntanlega vöktun á sam-
félagslegum áhrifum stórfram-
kvæmda hér eystra og um áhrif
framkvæmdanna á norður- og suð-
ursvæði landshlutans, en þeirra
gætir mest á miðsvæðinu. Það er
umhugsunarefni hvernig fyrirtæki á
norður- og suðursvæðinu ætla að
undirbúa sig fyrir þátttöku í þessu.
Mjög brýnt er að menn byggi upp
samstarf og það er þegar hafið með
mjög formlegum hætti á suðursvæð-
inu.“
Á aðalfundinum var einnig tekin
fyrir starfsemi Fræðslunets Austur-
lands og væntanlegt háskólanáms-
setur á Egilsstöðum, en Fræðslunet-
inu hefur verið falið að byggja upp
Háskólanámssetrið og reka það. Þá
var fjallað um sameiningu sveitarfé-
laga. „Þau mál eru auðvitað núna
mjög á dagskrá og farið var yfir
stefnu Sambands íslenskra sveitar-
félaga í þeim efnum,“ segir Smári.
„Talsvert langt er síðan til sérstaks
átaks var efnt af hálfu stjórnvalda til
sameiningar sveitarfélaga. Nú er
hins vegar stefnt að því að fara í slíkt
og gert ráð fyrir víðtækum samein-
ingarkosningum í landinu
árið 2005. Það er ljóst að
menn gera sér góðar vonir
um að fækka sveitarfélög-
um verulega, vegna þess að
sveitarstjórnarmenn gera
sér svo vel grein fyrir því að
sveitarfélögin verða að vera
einingar í ákveðinni lág-
marksstærð til að geta átt
möguleika á að sinna þeim
verkefnum sem verið er að fela þeim
í lögum.“ Smári segist telja að sveit-
arfélögin verði miklu sterkari fé-
lagslegar einingar ef þau eru stærri.
„Ég er nokkuð sammála þeirri fram-
setningu sem Samband íslenskra
sveitarfélaga hefur sett fram sem
umræðugrunn, að raunhæft sé að
gera ráð fyrir þremur til fjórum
sveitarfélögum á Austurlandi.“
Fiskeldi einn meginþátta
í austfirsku atvinnulífi
Verkefni SSA nú eru fjölþætt,
segir Smári. „Menn hafa verið að
sigla í höfn mjög mörgum stórmál-
um, sem SSA hefur unnið að eða
stutt.“ Hann nefnir sem dæmi alla
meginsamninga varðandi virkjana-
og stóriðjumál, menntamál, þjóð-
garðs- og verndarsvæðamál, saming
milli sveitarfélaganna eystra og rík-
isins varðandi menningarmál, jarð-
gangaframkvæmdir og fiskeldi.
„Eldið gengur mjög vel,“ segir
Smári. „Við erum þeirrar skoðunar
að fiskeldi á Austurlandi geti verið í
framtíðinni einn meginþáttur í aust-
firsku atvinnulífi. Ef menn ná góðum
tökum á eldinu og gæta fyllsta ör-
yggis getur þetta orðið hér við aust-
firskar aðstæður gríðarlega öflugur
atvinnuvegur.“
Aðalfundur Sambands sveitarfélaga á
Austurlandi fór fram á Breiðdalsvík
Samfélagsleg
áhrif stórfram-
kvæmda vöktuð
Breiðdalsvík. Morgunblaðið.
Smári Geirsson
Grennri
BOGENSE TAFLAN
Örugg hjálp í baráttunni við aukakílóin
Súlumót frá formaco
● úr pappa
● einföld og þægileg í notkun
● fæst í mörgum lengdum
og breiddum
Gylfaflöt 24-30 • 112 Reykjavík
Sími 577 2050 • Fax 577 2055
formaco@formaco.is • www.formaco.is