Morgunblaðið - 23.08.2003, Blaðsíða 54
ÍÞRÓTTIR
54 LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
KNATTSPYRNA
Laugardagur:
Efsta deild karla, Landsbankadeild:
Akranes: ÍA – Valur ...................................14
Efsta deild kvenna, Landsbankadeild:
Hásteinsvöllur: ÍBV – Þór/KA/KS ...........14
1. deild karla:
Ólafsfj.: Leiftur/Dalvík – Keflavík............16
Víkin: Víkingur – Þór .................................16
2. deild karla:
Garður: Víðir – Tindastóll .........................16
ÍR-völlur: ÍR – Sindri ................................16
Siglufjörður: KS – Selfoss .........................16
Helgafellsv.: KFS – Völsungur .................16
3. deild karla, úrslitakeppni, 8-liða úrslit:
Eskifj.: Fjarðabyggð – Leiknir R.............14
Grenivík: Magni – Víkingur Ó...................14
Sandgerði: Reynir – Höttur ......................14
Tungubakki: Númi – Vaskur.....................17
1. deild kvenna, undanúrslit:
Sauðárk.: Tindastóll – Fjölnir ...................14
Sandgerði: RKV – Sindri...........................17
Sunnudagur:
Efsta deild karla,Landsbankadeild:
Akureyri: KA – Fram ................................18
KR-völlur: KR – Fylkir .............................18
Laugardalsv.: Þróttur – Grindavík...........20
Mánudagur:
Efsta deild karla, Landsbankadeild:
Kaplakriki: FH – ÍBV...........................18.30
UM HELGINA
PATREKUR Jóhannesson
landsliðsmaður í handknatt-
leik er formlega orðinn liðs-
maður Bidasoa á Spáni en í
gær ákvað þýska handknatt-
leikssambandið að skrifa und-
ir félagaskipti Patreks frá
Essen til Bidasoa. Patrekur
var sem kunnugt er dæmdur
í sex mánaða keppnisbann
eftir síðasta leik sinn með
Essen í vor. Félagaskiptin
voru í uppnámi fyrrihluta
sumars en þegar Patrekur
vann mál sem hann höfðaði
gegn þýska handknattleiks-
sambandinu fyrir vinnurétt-
ardómstól í byrjun júlí þá átti
hann ekki von á öðru en að
félagaskiptin myndu ganga
greiðlega í gegn enda úr-
skurðaði dómstóllinn honum í
vil. Þýska handknattleiks-
sambandið gaf sig hins vegar
ekki í fyrstu og ætlaði að
hunsa niðurstöðuna og í byrj-
un vikunnar ákvað lögfræð-
ingur Patreks að kæra málið
til Evrópska handknattleiks-
sambandsins, EHF. Þessi
ákvörðun hefur greinilega
hrist upp í stjórnarmönnum
þýska handknattleiks-
sambandins því í gær var
gengið frá undirskrift vegna
félagaskiptanna og málið fer
því ekki til EHF.
„Ég er feginn að þetta mál
er úr sögunni og get nú ein-
beitt mér alfarið að handbolt-
anum. Ég vissi allan tímann
að þetta færi á þennan veg
og ég var reyndar búinn að
fagna sigri í þessu máli eftir
niðurstöðu vinnuréttardóms-
dólsins,“ sagði Patrekur í
samtali við Morgunblaðið í
gær.
Morgunblaðið/RAX
Patrekur Jóhannesson hefur ástæðu
til að gleðjast um þessar mundir.
Patrekur orðinn
liðsmaður Bidasoa
GAIZKA Mendieta, sem gekk til
liðs við Middlesbrough í vikunni,
segir að ef hann muni ná að leika
jafnvel fyrir Middlesbrough og
hann gerði fyrir Valencia muni
enska liðið hafa gert sín bestu leik-
mannakaup frá upphafi. „Takmark
mitt er að ná að leika jafnvel fyrir
Middlesbrough og ég gerði fyrir
Valencia. Ég hefði getað farið til
annarra liða en mig langaði að leika
fyrir Middlesbrough,“ sagði hinn 29
ára gamli Mendieta sem væntanleg-
ur leikur sinn fyrsta leik fyrir
Middlesbrough á morgun þegar lið-
ið mætir Arsenal í 2. umferð ensku
úrvalsdeildinni á Highbury.
SVEN Göran Eriksson, landsliðs-
þjálfari Englands, segir að Paul
Scholes, leikmaður Manchester
United, þurfi ekki að hafa áhyggjur
af því að missa sæti sitt í landsliðinu
þótt hann hafi ekki skorað fyrir
England í meira en tvö ár. „Paul
Scholes er mjög mikilvægur fyrir
enska landsliðið og það kæmi mjög
á óvart ef sú staða kæmi upp að ég
myndi ekki velja hann í landsliðið,“
sagði Eriksson.
JAMES Beattie hefur sagt að
hann þurfi kannski að yfirgefa
Southampton til þess að fá fleiri
tækifæri með enska landsliðinu.
Beattie skoraði 23 mörk á síðustu
leiktíð í ensku úrvalsdeildinni og
hann er samningsbundinn South-
ampton til ársins 2006. „Ef ég vissi
að það væru meiri líkur á að ég yrði
valinn í landsliðið ef ég spilaði með
öðru liði myndi ég íhuga það vand-
lega að skipta um félag,“ sagði
Beattie.
FÓLK
ÍSLANDSMEISTARAR KR í
knattspyrnu kvenna töpuðu
naumlega fyrir danska meist-
araliðinu Bröndby í Evr-
ópukeppni félagsliða, 1:0, en
leikurinn fór fram í Kaup-
mannahöfn í gær. Úrslitin eru
afar athyglisverð því Bröndby
hefur verið eitt sterkasta
kvennalið Norðurlanda um
margra ára skeið auk þess
sem KR-ingar geta ekki stillt
upp sínu besta liði í keppninni
af ýmsum ástæðum. Fyrir vik-
ið verða því yngri og óreynd-
ari leikmenn að leika stórt
hlutverk og þeir stóðu svo
sannarlega fyrir sínu. Meðal
leikmanna KR sem ekki geta
tekið þátt í mótinu eru syst-
urnar Þóra, markvörður, og
Ásthildur Helgadætur, en Ást-
hildur er á leið til sænska liðs-
ins Malmö FF.
Danirnir skoruðu mark sitt í
fyrri hálfleik í leiknum í gær
en KR-liðið hélt sjó í þeim síð-
ari og varðist með prýði.
Þetta var annar leikur KR í
keppninni en á miðvikudaginn
tapaði liðið fyrir Masinac frá
Serbíu/Svartfjallalandi, 3:1.
Síðasti leikur KR í keppninni
fer fram á morgun er liðið
mætir skoska liðinu Kilm-
arnock, sem í gær gerði jafn-
tefli við Masinac, 1:1.
Bröndby er með fullt hús
stiga í keppninni, vann Kilm-
arnock örugglega í fyrstu um-
ferðkeppninnar, 3:0. Masinac
er með fjögur stig og Kilm-
arnock eitt en KR rekur lest-
ina með ekkert stig. Í ljósi úr-
slita leikjanna í keppninni
verður fróðlegt að sjá hvernig
KR-ingum tekst upp gegn
Kilmarnock á morgun.
Þess má geta að Guðlaug
Jónsdóttir, fyrrverandi leik-
maður KR, lék um nokk-
urtskeið með Bröndby.
KR tapaði
naumlega
fyrir Bröndby
Fylkir spilaði mjög illa í síðastaleik gegn Þrótti en ég hef trú á
því að Fylkismenn taki sig saman í
andlitinu og mæti öflugir til leiks í
Vesturbæinn. Ég held að Evrópu-
leikurinn í Svíþjóð hafi setið í Fylki
gegn Þrótti. Nú hafa Árbæingar
haft góðan tíma til að undirbúa sig
fyrir leikinn gegn KR og eiga því
að koma vel stemmdir til leiks.
Fylkismenn eru vanir því að leika
mikilvæga leiki. Þeir hafa unnið
titla á síðustu árum og sú reynsla
mun hjálpa þeim. KR-ingar eru
auðvitað Íslandsmeistarar og þeir
vita nákvæmlega hvað þeir þurfa að
gera á sunnudaginn. Ég hef trú á
þetta verði hörkuleikur og áhorf-
endur geta átt von á skemmtilegum
leik.
Ég held að aðalhugsun KR verði
að verja stigið sitt en það getur
verið hættulegur hugsunarháttur.
Mörg lið hafa farið flatt á því að
leika upp á jafntefli og því verða
KR-ingar að vera varir um sig.
Þetta er einn af úrslitaleikjum
mótsins en hinsvegar hefur Íslands-
mótið spilast þannig að allir geta
unnið alla. Það má segja að allir
þeir leikir sem eftir eru séu bik-
arúrslitaleikir fyrir öll liðin. Lands-
bankadeildin hefur verið mjög
spennandi í sumar og mótið hefur
spilast mjög undarlega. Það hefur
þróast þannig að alltaf þegar KR
og Fylkir hafa haft möguleika á að
stinga önnur lið af hefur þeim mis-
tekist það. Einnig hefur öðrum lið-
um mistekist að komast upp að hlið
KR og Fylkis þegar það tækifæri
hefur verið fyrir hendi.
Það kæmi mér ekki á óvart að
viðureign KR og Fylkis endaði með
jafntefli og spennan muni haldast
rafmögnuð þar til í síðustu umferð-
inni. Það er hinsvegar ljóst að sama
hvernig fer í Vesturbænum þá eiga
bæði liðin eftir erfiða leiki í síðustu
þremur umferðunum og það mun
ekki ráðast á sunnudaginn hverjir
standa uppi sem Íslandsmeistarar í
haust,“ sagði Bjarni Jóhannsson.
Bjarni Jóhannsson spáir fyrir um viðureign KR og Fylkis
KR-ingar líklega
sáttir við eitt stig
„ÉG hef ekki trú á því að Fylkir komi á KR-völlinn til að leika upp á
jafntefli. Árbæingar verða helst að sigra í þessum leik og ég held að
þeir komi með því hugafari í Vesturbæinn. KR-ingar hafa eins stigs
forystu á Fylki og standa því betur að vígi og það veitir þeim einnig
visst forskot að leikurinn er spilaður í Vesturbænum. Ég held að
Willum Þór Þórsson, þjálfari KR, yrði ekki óánægður með jafntefli
því þá hafa Íslandsmeistararnir örlög sín enn í hendi sér,“ sagði
Bjarni Jóhannsson, þjálfari Grindavíkur, en Morgunblaðið fékk
hann til að spá fyrir um stórleik KR og Fylkis sem fer fram á morg-
un.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Fagna Fylkismenn á KR-vellinum, eða þurfa þeir að játa sig sigraða enn eitt árið?