Morgunblaðið - 23.08.2003, Síða 56
FÓLK Í FRÉTTUM
56 LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
23. SÝNING LAUGARDAGINN 23/8 - KL. 16 UPPSELT
24. SÝNING LAUGARDAGINN 23/8 - KL. 20 UPPSELT
25. SÝNING FÖSTUDAGINN 29/8 - KL. 20 UPPSELT
26. SÝNING LAUGARDAGINN 30/8 - KL. 16 UPPSELT
27. SÝNING LAUGARDAGINN 30/8 - KL. 20 UPPSELT
28. SÝNING SUNNUDAGINN 31/8 - KL. 16 UPPSELT
29. SÝNING SUNNUDAGINN 31/8 - KL. 20 UPPSELT
30. SÝNING FÖSTUDAGINN 5/9 - KL. 20 UPPSELT
AUKASÝNING LAUGARDAGINN 6/9 - KL. 15 LAUS SÆTI
31. OG 32. SÝNING SUNNUDAGINN 7/9 - KL. 16 og 20 UPPSELT
Sumarkvöld við orgelið
23. ágúst kl. 12.00:
Mark Anderson orgel.
24. ágúst kl. 20.00:
Mark Anderson leikur m.a.
verk eftir Buxtehude, Vierne,
Franck og Messiaen.
Paradísarheimt
(Paradise Found)
Drama
Bretland/Frakkland/Austurríki 2003.
Bergvík. VHS (90 mín.) Öllum leyfð. Leik-
stjóri: Mario Andreacchio. Aðalleik-
endur: Kiefer Sutherland, Nastassja
Kinski, Alun Armstrong, Thomas Heinze,
Chris Haywood.
LÍF málarans Pauls Gauguins er
með miklum ævintýra- og þversagn-
arblæ. Líkt og fleiri snillingar var
hann ekki uppgötvaður fyrr en eftir
dauða sinn og átti stormasama ævi
sem hér eru gerð fremur hvers-
dagsleg skil.
Í upphafi Paradísarheimtar er
Gauguin (Sutherland), velmegandi
verðbréfasali við kauphöllina í Par-
ís. Hugur hans
hneigist til mál-
aralistar, er sí-
málandi þó að
samtíðinni finnist
lítið til hans koma.
Á þessum tíma
(ofanverðri 19.
öld) var lítið svig-
rúm fyrir nýjar
listastefnur en
Gauguin leggur ekki upp laupana,
gefur hins vegar sitt borgaralega líf
upp á bátinn og finnur sjálfan sig,
hamingjuna og köllunina á Suður-
hafseyjum.
Farið er á miklum hraða yfir sögu
þannig að áhorfandinn kemst aldrei
virkilega í tæri við Gauguin, hegðun
hans er ráðgáta í því stikli sem
hendir listamanninn á tjaldinu. Á
hinn bóginn er Paradísarheimt
fjarska vel tekin og Sutherland
stendur sig vel – miðað við efni og
aðstæður og gefur hinum blóðheita
snillingi talsvert líf og lit. Hin
danska eiginkona hans er einnig í
ágætum höndum Kinski, sömuleiðis
málarinn Pissaro (Alun Armstrong).
Lagleg skemmtun þegar upp er
staðið, en það leynist engum að hér
er á ferðinni efni sem á mikilvægari
meðferð skilið. Sæbjörn Valdimarsson
Myndbönd
Stiklað
á stóru
SMEKKLEYSA stendur fyrir óhefð-
bundnum spunatónleikum í Lista-
safni Reykjavíkur í Hafnarhúsinu
undir yfirskriftinni Sirkus Halldórs
Laxness í kvöld. Um er að ræða út-
gáfuhátíð í tilefni nýjustu plötu
hjómsveitarinnar Mínuss. Á sirk-
usnum koma fram ásamt hljómsveit-
inni, Curver, Einar Örn, The Hafler
Trio, Einar Melax og Jóhamar. Von-
ast er til að Hrafn Ásgeirsson saxó-
fónleikari verði með en hann varð
fyrir því óhappi að axlarbrjóta sig í
vikunni og því óvíst að hann geti
mætt. Hrafn spilar einmitt á tveimur
lögum á Halldóri Laxness.
Engir venjulegir tónleikar
Mínus hefur áður staðið fyrir
svona óhefðbundnum rokk-
tónleikum, með þriggja og hálfs
tíma tónleikum á Jaðardögum í Ný-
listasafninu í fyrra. Hljómsveitina
langaði til að gera eitthvað svipað í
tilefni útgáfu Halldórs Laxness og
hafði ekki áhuga á að halda „venju-
lega tónleika“. „Við fórum að ræða
þetta þegar við vorum á tónleika-
ferð í Bretlandi í vor,“ segir Birgir
Örn Thoroddsen (Curver), upp-
tökustjóri og náinn samstarfsmaður
hljómsveitarinnar.
„Útaf því að þessi Smekkleysusýn-
ing er í gangi í Listasafni Reykjavík-
ur fannst okkur alveg kjörið að nota
aðstöðuna þar. Hún hentar mjög vel
fyrir svona tónleika því við notum
líka vídeóupptökur, fellum þær inn í
þetta djamm,“ segir hann en það
verður sýnt vídeóverk eftir Frosta
Jón Runólfsson á sirkusnum og líka
áður upptekið efni, sem verður
skeytt inní.
Í anda Grateful Dead og Can
Tónleikarnir byrja á slaginu 19 og
Mínus spilar allan tímann til klukkan
22. „Það eru engin upphitunaratriði
eða slíkt. Fólk verður bara að koma
að fylgjast með,“ segir Birgir Örn en
auk spunans verða líka lög Mínuss í
upprunalegri mynd á tónleika-
dagskránni.
Hljómsveitin vildi fá mikið af gest-
um á tónleikana, bæði fólk sem hef-
ur unnið með henni áður og fólk sem
sveitin lítur upp til og gekk það upp.
Þess má einnig geta að tónleikarnir
verða teknir upp á vegum Smekk-
leysu.
„Það verður gaman fyrir áhuga-
fólk um tónlist að mæta og fygjast
með svona rokkdjammi. Þetta er
ekki algengt með rokkhljómsveitir
því það eru oftast djasshljómsveitir
eða rafhljómsveitir sem halda svona
spunatónleika,“ segir Birgir Örn og
nefnir sem undantekningu að Grate-
ful Dead og Can hafi unnið með
þetta spunaform.
Á meðan á sirkusnum stendur
gefst gestum kostur á að skoða sýn-
ingu Smekkleysu, Humar eða frægð
í A-sal Hafnarhússins. Í tengslum við
sýninguna má minna á Smekkleysu-
bíó á sunnudaginn klukkan 16 þar
sem sýnt verður myndbandið Björk
Unplugged.
Sirkus Halldórs Laxness – Útgáfuhátíð Mínuss í Hafnarhúsinu
Óhefðbundnir spunatónleikar
Ljósmynd/Börkur Sigþórsson
Hljómsveitin Mínus í ham. Hún ætlar að spila ásamt ýmsum gestum í óhefð-
bundnum rokkspuna í Hafnarhúsinu í kvöld.
Morgunblaðið/Kristinn
Birgir Örn Thoroddsen kemur við
sögu í Sirkusi Halldórs Laxness.
Sirkus Halldórs Laxness, út-
gáfuhátíð Mínuss í Listasafni
Reykjavíkur í Hafnarhúsinu, kl.
19–22 í dag. Aðgangseyrir
1.000 krónur.
ingarun@mbl.is
STÓRFURÐULEGT mál er komið
upp í Bretlandi og tengist það Bítl-
unum og sex Brasilíumönnum sem
sögðust vera á leið til Liverpool á
Mathew Street hátíðina, þar sem
fereykinu heimsfræga er fagnað.
Fulltrúar útlendingaeftirlitsins í
Heathrow gerðu sér lítið fyrir og
vísuðu Brasilíumönnum úr landi er
þeir gátu ekki svarað spurningum
sem lutu að Bítlunum. Sexmenn-
ingarnir vissu t.a.m. ekki hver
Yoko Ono var og héldu að Ringo
væri dáinn.
Útlendingaeftirlitið breska neit-
ar að tjá sig um þetta mál, öðruvísi
en svo að „hver sá sem hyggst
koma inn í landið þarf að geta
mætt kröfum þeim sem fulltrúar
útlendingaeftirlitsins gera til
þeirra.“
Ennfremur sagði fulltrúi frá út-
lendingaeftirlitinu að „ef fólk segist
vera í ákveðnum erindagjörðum þá
er okkar fólki uppálagt að sann-
reyna að svo sé.“
Sexmenningarnir voru í 72
manna hópi sem kom frá Rio de
Janeiro. Restinni af hópnum var
hleypt í gegn. Talsmaður Brasilíu-
mannanna er eðlilega ævareiður.
„Þetta er auðvitað fyrir neðan
allar hellur. Verðirnir spiluðu
Bítlalög og létu okkur nefna þau.
Þá létu þeir okkur syngja lögin
líka! Margt af unga fólkinu er ekk-
ert tiltölulega vel að sér í Bítla-
fræðunum. Þau komu aðallega
ferðalagsins vegna.“
Tónlistarsagan getur skipt máli
Brasilíumennirnir hafa þá væntanlega ekki getað keypt sér minjagripi,
líka þeim sem sjást hér.
Það er John, Paul,
George og Ringo
EIN af bestu plötum síðasta árs
var Ekkehard Ehlers Plays með
þýska tónlistarmanninum Ekkehard
Ehlers en á þeirri plötu túlkaði
Ehlers verk listamanna í tónlist,
hvort sem það var saxófónstíll Al-
berts Aylers, blúsandi Roberts
Johnsons, kvikmyndir Johns Cass-
avetes eða ritverk Huberts Fichtes;
frumleg hugmynd og frábærlega út-
færð. Fyrir
skemmstu kom svo
út plata með verk-
um eftir Ehlers,
sem öll voru reynd-
ar samin 2001.
Platan heitir því
skemmtilega nafni Politik Braucht
keinen Feind, stjórnmál þarfnast
ekki óvina, og á umslagi er mynd af
dansandi manni sem er með tví-
turnana í New York á bolnum – tengi
hver sem vill.
Á plötunni eru verk fyrir klarínett,
sellókvartett og rafeindatól sem
Ehlers beitir til að skeyta saman
hljóðfæraleiknum, flétta saman og
margfalda með góðum árangri –
greinilegt að hann stefnir í átt að
meiri einfaldleika eins og tíðkast nú í
þýskri raftónlist, notar æ einfaldari
hljóð og samsetningar. Sérstaklega
er fyrsta verkið, „Maander“, samið
fyrir bassaklarínett, magnað, en það
næsta, sellóverkið „Blind“, kemst
varla á flug þrátt fyrir góða spretti;
þarf kannski meiri hlustun. Loka-
þáttur skífunnar, „Wolf Phrase“, er
svo það besta, enda hljóðaheimurinn
fjölbreyttari.
Tónlist
Meiri
einfaldleiki
Ekkehard Ehlers
Politik Braucht keinen Feind
Staubgold
Ekkehard Ehlers, raftónlistarmaðurinn
snjalli, fylgir Ekkehard Ehlers Playseftir.
Árni Matthíasson
BÚÐARKLETTUR, Borgarnesi:
Þotuliðið leikur við hvurn sinn fing-
ur í kvöld.
MIÐGARÐUR, Innri-Akranes-
hreppi: Harmonikkufélag Vest-
fjarða verður með dansleik í kvöld á
milli kl. 22.00 og 2.00.
VÍDALÍN:
Electric Massive í kvöld. Fram
koma Sunboy, DJ Richard, The
LBH Krew, Exos, DJ Reynir og DJ
Bjarki.
Í DAG
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þau Pollockbörn, Tanya Lind og
Marlon Lee Úlfur eru hluti af LBH
Krew. Sjá einnig Staður og stund á mbl.is