Morgunblaðið - 23.08.2003, Qupperneq 58
58 LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Miðaverð 500 kr.
Sýnd kl. 10.10. B.i.12 ára. Sýnd kl. 4 og 6. Ísl. tal.
Sýnd kl. 5.50, 8 og Kraftsýning 10.20. B.i.12 .
Frumsýning
Ofurskutlan Angelina Jolie er
mætt aftur öflugri en nokkru
sinni fyrr í svakalegustu
hasarmynd sumarsins!
KRAFT
SÝNIN
G
KL. 10
.20.
I
. .
.
Yfir 30.000 gestir
Sýnd kl. 3.50 og 8.
HUGSAÐU STÓRT
Sýnd kl. 2 og 4.
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i. 14.
Ef þú gætir verið Guð
í eina viku, hvað myndir
þú gera?
Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.20.
kl. 3, 5.30, 8 og 10.20.
Tvær löggur. Tvöföld spenna.
Tvöföld skemmtun.
Miðasala opnar kl. 13.30
Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30. B.i. 12.Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 16 ára.
Sýnd kl. 2, 4 og 6. Ísl. tal.
Yfir 30.000 gestir
J I M C A R R E Y
Miðaverð 500 kr.
Frá leikstjóra Trainspotting kemur hið
magnaða meistaraverk 28 Days Later.
Missið ekki af þessum frábæra
framtíðartrylli.
SV MBL
HK DV
Kvikmyndir.com
Einn sá allra
besti hryllingur
sem sést
hefur í bíó
síðustu
misserin."
Þ.Þ. FBL.
POWERSÝNINGKL. 10.30.
I
. . .
DAGANA 28.–31. ágúst nk. verða
tangódagar í Reykjavík. Hefjast
þeir fimmtudagskvöldið 28. ágúst í
Nasa kl. 22. Þá mun tangósveitin Le
Grand Tango halda útgáfutónleika
vegna hljómdisks, sem út kemur þá
vikuna á Sonetmerkinu íslenska.
Með sveitinni syngur Egill Ólafsson
sem hefur snúið tangótextum yfir á
hið ylhýra og prýða þeir vænt-
anlega plötu. Sama kvöld stígur svo
á svið einn fremsti tangódansari
Argentínu, Cecilia Gonzalez (sem
sést á myndinni þokkafullu sem
fylgir greininni), ásamt Frakkanum
Jean-Sebastien Rampazzi. Tvíeykið
mun sýna tangódans eins og hann er
dansaður í Buenos Aires, höfuðborg
Argentínu um þessar mundir en þar
á dansinn uppruna sinn. Frá föstu-
deginum 29. til og með sunnudeg-
inum 31. mun Cecilia síðan stýra
„tangó-æfingabúðum“ í Kramhús-
inu ásamt þeim Hany Hadaya og
Bryndísi Halldórsdóttur. Þau tvö
hafa kennt tangó hérlendis allt síð-
an 1994 en árið 2000 var Tangó-
félagið stofnað sem er formlegur fé-
lagsskapur með það að markmiði að
efla argentínskan tangódans á Ís-
landi. Námskeið þetta verður öllum
opið.
Á laugardeginum verður svo
„Milonga“ í Iðnó en svo eru tangó-
böllin nefnd um allan heim eins og á
heimaslóðunum í Buenos Aires í
Argentínu. Á því balli verður lifandi
tónlist þar sem öllum verður frjálst
að stíga sporið auk þess sem þau
Cecilia, Jean-Sebastien, Bryndís og
Hany munu sýna tangó.
Snerting, tilfinningar
Tangó er fjölþjóðlegt fyrirbæri.
Form dansins er bæði þokkafullt,
glæsilegt og eggjandi og tónlistin
sem er samfara bæði hröð eða hæg,
sorgbundin eður fjörleg. Bæði dans
og tónlist byggjast mikið til á til-
finningum og dansinn lýtur mjög
svo lögmálum snertingarinnar.
Sögu dansins má rekja til áð-
urnefndrar Buenos Aires en einnig
er svipaður tangó dansaður í
Montevideo, höfuðborg Úrúgvæ.
Fyrir aldamótin 1900 streymdi til
Suður-Ameríku fjöldinn allur af
innflytjendum sem fluttu, eðlilega,
með sér heimaræktaða siði. Úr
þessu öllu varð heljarinnar hræri-
pottur en í argentínska tangóinum
má greina áhrif frá Þýskalandi,
Englandi, Kúbu og Spáni m.a.
Tangóinn er enn fremur barn borg-
arinnar og textarnir einkennast af
harmrænum saknaðarljóðum sem
beint er til heimalandanna. Upp úr
1900 fór fólk í felur með tangóinn
enda þótti hann ósæmilegur. Síðar
átti hann svo eftir að öðlast vinsæld-
ir úti í heimi og þá fóru menn að
þora að taka sporið á gólfum úti á
ný. Gullaldartími tangósins var
þannig í hámarki í Argentínu á ár-
unum 1930–1950.
Síðan þá hefur tangóinn siglt á
milli skers og báru hvað vinsældir
snertir en í dag upplifir hann góða
tíma, og hefur sjaldan eða aldrei
verið vinsælli.
Blaðamaður hittir á þau Eddu Er-
lendsdóttur píanóleikara og Oliver
Manoury bandonéoleikara á heimili
tangósöngvarans Egils en Egill
sjálfur er á fullu í útréttingum
vegna hátíðarinnar sem er hiklaust
það metnaðarfyllsta sem tangóunn-
endur á Íslandi hafa hingað til lagt í.
Edda segir að dagar sem þessir
hafi staðið til lengi vel.
Vaxandi áhugi
„Le Grand Tango hefur verið
starfandi allar götur síðan 1992,
ávallt skipuð sama mannskap,“ seg-
ir Edda. „Undanfarið hefur Egill
svo verið afar duglegur við að snara
textum yfir á íslensku og það hefur
verið frábært að vinna með honum.“
Oliver bætir við að Egill hafi gætt
þess að textarnir falli vel að anda
tangólistarinnar en slíkt sé ekki
vaninn þegar um svona þýðingar er
að ræða, oft séu þær slælegar. Hann
fagnar því innleggi Egils og er sýni-
lega ánægður.
Edda segist hafa fundið fyrir
miklum áhuga gagnvart bæði dans-
inum og tónlistinni undanfarið og
því rakið að tengja þetta saman eins
og gert verður næstu daga.
Hljóðfæri Olivers, bandonéoið, er
eins konar harmonikka af þýskri
gerð og er stundum sagt að það sé
hjarta og sál tangósins.
„Það var næstum aldrei notað í
Þýskalandi en var selt til Buenos Ai-
res,“ segir Oliver. Það var þýski
framleiðandinn Heinrich Band sem
framleiddi bandonéoið og kallaði
hljóðfærið þessu nafni til að skilja
það frá annarri harmonikku sem
fyrirtækið Chemnitz sendi og til
Argentínu.
Edda segir að argentínski tangó-
inn bjóði upp á mikinn sveigjanleika
í hljómfalli og fyrir sig, klassískt
menntaðan tónlistarmann, sé mjög
áhugavert að takast á við tangó-
tónlistina. Frelsið sé meira um leið
og afar mikilvægt sé að fylgja hin-
um spilurunum, hvað takt og hrynj-
anda áhrærir.
Það er greinilegur hugur í þeim
Eddu og Oliver og sýnileg til-
hlökkun eftir því að geta boðið
Reykvíkingum í fjögurra daga, alls-
herjar „Milonga“!
Tangódagar í Reykjavík 28.–31. ágúst
Boðið upp
í tangó
Seiðandi tangó mun leggja undir sig
miðbæ Reykjavíkur í næstu viku. Arnar
Eggert Thoroddsen fræddist um þenn-
an viðburð, tangóinn sem slíkan og
ræddi við nokkra aðstandendur.
Miðar á Nasa-tónleikana eru
seldir í forsölu í verslun Japis,
Laugavegi 13. Upplýsingar um
tangónámskeiðið fást í Kram-
húsinu og miðar á „Milonga“ í
Iðnó verða seldir í miðasölu
Iðnó, Vonarstræti.
-www.tango.is
-www.kramhusid.is
-www.tangomotion.com
arnart@mbl.is
Tangóinn er þokkafullur dans.Le Grand Tango, tilbúin í tangó!