Morgunblaðið - 25.08.2003, Side 1
Tími
sveppanna
Vel hefur viðrað fyrir
sveppi í sumar 10
Á leið til
Genk
Indriði Sigurðsson á leið í belg-
íska fótboltann Íþróttir B1
Lært að
hanna
Iðnhönnuðir segja frá námi
og starfi Listir 14
ALLS eru 87% landsmanna andvíg
því að neysla hass verði leyfð á
Íslandi, ef marka má niðurstöður
nýrrar könnunar. Sömuleiðis telja
79% svarenda að neysla kannabis-
efna myndi aukast ef notkun þeirra
yrði leyfð hér á landi. Þar að auki
kemur fram að 72% aðspurðra
hefðu engan áhuga á að prófa efnin
þótt þau væru lögleg. Könnunin,
sem IMG Gallup gerði fyrir áfeng-
is- og vímuvarnaráð í júní síðast-
liðnum, varpar ljósi á afstöðu og
viðhorf til kannabisefna hér á landi.
Hringt var í 1.250 manns á aldr-
inum 16 til 75 ára, og svarhlutfall
var 67,2%.
Þorgerður Ragnarsdóttir, fram-
kvæmdastjóri áfengis- og vímu-
varnaráðs hjá Lýðheilsustöð, segir
að samkvæmt þessu megi ætla að
íslenskt samfélag sé því andsnúið
að notkun kannabisefna verði leyfð.
„Sú umræða sem farið hefur fram
hér á landi um lögleiðingu efnanna
virðist ekki hafa aukið stuðning við
að þau verði leyfð,“ sagði Þorgerður
í samtali við Morgunblaðið. Hún
telur, að óráðlegt sé að íslenskt
samfélag geri tilraunir í þessa átt á
meðan nágrannalöndin séu mjög
hikandi gagnvart rýmri reglum um
notkun efnanna. „Samfélag okkar á
fullt í fangi með að takast á við
ýmsar breytingar, og við teljum
skýrt, að ekki eigi að lögleiða efnin
og koma þannig enn frekara róti á
samfélagið,“ sagði Þorgerður.
Fleiri karlmenn en konur
hafa neytt kannabisefna
Í könnuninni kemur fram að
24,7% svarenda hafa einhvern tím-
ann prófað hass eða maríjúana, og
8% önnur ólögleg vímuefni. Aðeins
tvö prósent þeirra, sem prófað hafa
kannabisefni, eru yfir 55 ára aldri.
Flestir, eða 36% þeirra sem prófað
hafa kannabisefni, eru á aldrinum
25–34 ára. Miðað við sambærilega
könnun frá í lok ársins 2001 sést, að
hlutfall þeirra sem prófað hafa hass
eða maríjúana hefur hækkað lítil-
lega, en það var þá 23,5%. Ef skoð-
aður er bakgrunnur þeirra sem ein-
hvern tímann hafa prófað efnin
kemur í ljós að fleiri karlmenn en
konur hafa neytt ólöglegra vímu-
efna, eða 32% karla á móti 17%
kvenna þegar spurt var um kann-
abis og 12% karla og 5% kvenna
þegar spurt var um önnur ólögleg
vímuefni. Sömuleiðis er prófun
kannabisefna algengari meðal íbúa
höfuðborgarsvæðisins en lands-
byggðarinnar, 28% á móti 20%.
87% landsmanna andsnúin
lögleiðingu kannabisefna
!
"!
#$
!
%$ &
" !
#$
'(!
STOFNAÐ 1913 228. TBL. 91. ÁRG. MÁNUDAGUR 25. ÁGÚST 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
DEMÓKRATINN Cruz Bust-
amante, vararíkisstjóri Kali-
forníu, fengi 13% meira fylgi en
repúblikaninn og kvikmynda-
stjarnan Arnold Schwarzen-
egger ef kosið væri um embætti
ríkisstjóra í Kaliforníu nú. Þetta
sýnir skoðanakönnun sem dag-
blaðið Los Angeles Times birti í
gær en kosningarnar fara fram
7. október næstkomandi.
Bustamante fengi 35%
atkvæða en Schwarzenegger
einungis 22%. Repúblikanarnir
Tom McClintock, Peter Uber-
roth og auðkýfingurinn Bill
Simon komu næstir með 12%,
7% og 6% en rúmlega 1.350 voru
spurðir í könnuninni.
Álit kjósenda á Schwarzen-
egger virðist afar tvíbent, 46%
segjast líta hann jákvæðum
augum en 44% neikvæðum.
Simon, sem tapaði naumlega
fyrir Gray Davis, núverandi rík-
isstjóra, í ríkisstjórakosningun-
um í fyrra, hefur ákveðið að
hætta við að bjóða sig fram.
„Það eru of margir repúblikanar
í framboði,“ sagði hann og bætti
við að ekki mætti hætta á að
demókratar ynnu. Schwarzen-
egger sagðist fagna ákvörðun
hans.
Cruz M.
Bustamante
Arnold
Schwarzenegger
Með
forskot á
Schwarz-
enegger
LATWP. Los Angeles.
MIKIL dreifing manndómsmeðals-
ins viagra í heiminum hefur leitt til
þess að dregið hefur úr ólöglegum
viðskiptum
með líkams-
parta og aðrar
afurðir unnar
úr dýrum í
útrýmingar-
hættu, að sögn
kanadískra vís-
indamanna.
Ýmsar dýra-
tegundir, svo
sem tígrisdýr
og nashyrningar, hafa lengi verið
veiddar, ekki sízt vegna þess hve
margir – einkum í Kína og öðrum
Asíulöndum – eru reiðubúnir að
greiða hátt verð fyrir afurðir af
dýrunum sem trúað er að verki sem
frjósemislyf. Í kínverskri lækninga-
hefð eru t.d. horn af hreindýra-
törfum gjarnan notuð mulin í slíkar
manndómsaukandi mixtúrur.
Frank von Hippel, sem starfar
við Alaska-háskóla í Anchorage, og
bróðir hans William, prófessor við
Nýja Suður-Wales-háskóla í Sydney
í Ástralíu, hafa m.a. komizt að því
að mikið hefur dregið úr sölu á
hornum hreindýra frá Alaska og
getnaðarlimum kanadískra sela
eftir að viagra-lyfið kom á markað
árið 1998. Bræðurnir vonast til að
þetta gildi um mörg dýr sem eru í
útrýmingarhættu.
„Viagra er ódýrara en mörg
þekkt meðul unnin úr dýrum,“
hefur Berlingske Tidende eftir
Frank von Hippel. Lyfjafyrirtækið
Pfizer styrkti rannsókn bræðranna.
Ian Osterloh, maðurinn að baki
uppfinningu viagra-lyfsins, segist
þó efast um að niðurstöðurnar séu
réttar. „En sé svo gleður það mig.“
Viagra
bjargar
dýrum
Bengaltígurinn er í
útrýmingarhættu.
PAUL Bremer, sem hefur yfirum-
sjón með uppbyggingarstarfi í Írak
fyrir hönd Bandaríkjastjórnar, sagði
í gær að hundruð „alþjóðlegra
hryðjuverkamanna“ væru nú í Írak;
þar lægi nú fremsta víglína „stríðs-
ins gegn hryðjuverkum“ sem Banda-
ríkjastjórn lýsti yfir í kjölfar hryðju-
verkaárásanna 11. september 2001.
Þá viðurkenndi formaður banda-
ríska herráðsins, Richard Myers
hershöfðingi, í gær að það væri
nokkuð „teygt á“ liði Bandaríkjahers
í Írak, en hann sagði að ef þörf krefði
yrði fjölgað í herliðinu þar.
Sprengjuárás sem gerð var í gær á
háttsettan sjíta-klerk í Najaf, helgri
borg sjía-múslima, bar ólgunni í
landinu frekara vitni. Þrír menn biðu
bana í tilræðinu.
Hernámslið Bandaríkjamanna og
Breta sætir tíðum árásum þessa
dagana. Myers stóð fast á því í viðtali
hjá bandarísku sjónvarpsstöðinni
NBC að þeir 150.000 hermenn sem
Bandaríkjaher hefði í Írak væru
nægilega fjölmennt lið til að ráða við
verkefnið. En hann sagði að færu
yfirmenn liðsins fram á liðsauka
væri hægt að kalla út varalið.
Myers tók einnig undir orð sem
bæði George W. Bush Bandaríkja-
forseti og Bremer „landstjóri“ hafa
látið falla um að Írak væri að verða
lykilvettvangur „stríðsins gegn
hryðjuverkum“. Sagði Myers að
Írak væri orðið „mjög mikilvægur
vettvangur fyrir [herskáa vígamenn
frá ýmsum löndum] til að kljást við
Bandaríkjamenn“.
„Við erum þjóð sem á í stríði,“
tjáði Myers sjónvarpsáhorfendum.
„Að mínu áliti er hér um að ræða
stærstu ógnina við land vort í eins
langan tíma og mig rekur minni til.“
Reuters
Íraskir sjía-múslimar hrópa vígorð gegn veru bandarísks setuliðs í Írak á mótmælafundi í Bakuba, norður af Bagd-
ad, í gær. Kröfðust mótmælendurnir þess að sjíta-klerkurinn Abdul Karim Al Madani yrði látinn laus úr haldi.
Segir hundruð hryðju-
verkamanna í Írak
Bagdad. AP, AFP.