Morgunblaðið - 25.08.2003, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. ÁGÚST 2003 29
DAGBÓK
Mörkinni 6 • Sími 588 5518
STÓRÚTSALA
Síðustu dagar
Yfirhafnir í úrvali
Klassa stuttkápur 50% afsláttur
Nýjar vetrarvörur 20% afsláttur
Hattar og húfur
Opnum kl. 10.00
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
MEYJA
Afmælisbörn dagsins:
Töluvert ber á því að þú
þurfir að berjast fyrir því að
hljóta viðurkenningu fyrir
störf þín. Þú lætur þér lynda
vel við aðra og ert sam-
vinnufús. Spennandi val-
kostir eru framundan.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Innan vinnustaðarins er von á
hindrunum. Þú vilt koma viss-
um hlutum í verk en stjórn-
völd eða einhver önnur stofn-
un hefur önnur plön.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Lostinn lætur á sér kræla hjá
þér í dag. Í það minnsta eru
allar líkur til að þú hafir gam-
an af daðri og rómantík í dag.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Heimilið er gott að lagfæra í
dag, sérstaklega ef dytta þarf
að einhverju sem krefst list-
rænnar innsýnar. Ljúktu við
hverskonar skreytingar.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Afar sterk löngun til að hafa
betur í samskiptum þínum við
aðra kemur fram í dag. Þér
liggur margt á hjarta og fólkið
í kringum þig verður sammála
þér á endanum.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Muni þig langa í eitthvað í dag
muntu líklega láta vaða og
kaupa það. Þú kannt líka að
kaupa eitthvað handa ein-
hverjum hjartfólgnum.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Illindi gætu sprottið fram í
dag vegna þess að þú ert hrif-
in(n) af einhverjum en gerir
þér jafnvel ekki grein fyrir
því.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Nú liggur þér sérstaklega á að
koma þínu á framfæri á vinnu-
stað. Þú gerir rétt með því að
setja öðrum fordæmi með
eljusemi og samviskusemi.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Gleðilegt og rómantískt tíma-
bil kann að hefjast í dag. Þig
langar í spennu en að auki
ertu frá náttúrunnar hendi
ástríðufull manneskja.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Jafnaðargeðið skortir þig í
dag og þú einsetur þér að hafa
betur í rifrildi við foreldri eða
yfirmann í dag. Þú vilt ná þínu
fram en mundu að enginn er
eyland.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Umhverfis þig er fólk sem þú
vilt að sé þér sammála, sér-
staklega í trúarlegum eða
heimspekilegum skoðunum.
Öskur duga skammt.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Hverfa viltu til fjarlægra
slóða. Aðstæður í vinnunni eru
farnar að íþyngja þér. Berðu
höfuðið hátt þó að vindar
blási. Það styttir upp um síð.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Líflegar umræður eru fram-
undan við kunningja og vini.
Það er töluverð kynferðisleg
spenna til staðar sem þú gerir
þér ekki grein fyrir.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
RÉTTARVATN
Efst á Arnarvatnshæðum
oft hef ég fáki beitt.
Þar er allt þakið í vötnum,
þar heitir Réttarvatn eitt.
Og undir norðurásnum
er ofurlítil tó,
og lækur líður þar niður
um lágan hvannamó.
Á engum stað ég uni
eins vel og þessum mér.
Ískaldur Eiríksjökull
veit allt, sem talað er hér.
Jónas Hallgrímsson
LJÓÐABROT
ÁRNAÐ HEILLA
90 ÁRA afmæli. Í dag,mánudaginn 25.
ágúst, er níræð Lára Böðv-
arsdóttir, Barmahlíð 54,
Reykjavík. Eiginmaður
hennar er Haukur Eggerts-
son. Þau eru að heiman í
dag.
80 ÁRA afmæli. Í dag,mánudaginn 25.
ágúst, er áttræður Kjartan
Th. Ingimundarson, skip-
stjóri, Flúðaseli 88, Reykja-
vík.
EINMENNINGUR var
meðal keppnisgreina á Sum-
arleikunum í Kaliforníu í síð-
asta mánuði. Þekktur töflu-
skýrandi og keppnisstjóri,
Chris Compton að nafni, fór
með sigur af hólmi, en hann
er augljóslega mikill einleik-
ari og óhræddur að spila
„gegn salnum“.
Vestur gefur; enginn á
hættu.
Norður
♠ 109
♥ D10
♦ G8642
♣Á543
Vestur Austur
♠ G73 ♠ 65
♥ 62 ♥ G8743
♦ 109753 ♦ KD
♣G97 ♣K862
Suður
♠ ÁKD842
♥ ÁK95
♦ Á
♣D10
Compton var með sterku
spilin í suður og stýrði sögn-
um í þrjú grönd eftir létta
opnun austurs á hjarta í
þriðju hendi:
Vestur Norður Austur Suður
Pass Pass 1 hjarta Dobl
Pass 2 tíglar Pass 3 grönd
Pass Pass Pass
Auðvitað gerði Compton
sér grein fyrir því að flestir
myndu spila spaðasamning,
fjóra spaða eða jafnvel
slemmu. Compton bjóst hins
vegar við útspili í hjarta og
ákvað á þeirri forsendu að
freista gæfunnar í grandinu í
þeirri von að það skilaði jafn-
mörgum slögum og spaðinn.
Vestur hafði enga ástæðu
til annars en að spila út
hjarta og þá blöstu við sagn-
hafa 12 slagir. En Compton
lét ekki þar við sitja og nældi
sér í þann þrettánda með
víxlþingun. Hann tók fjóra
slagi á hjarta og sex á spaða.
Svona var staðan áður en síð-
asta spaðanum var spilað:
Norður
♠ –
♥ –
♦ G8
♣Á5
Vestur Austur
♠ – ♠ –
♥ – ♥ –
♦ 109 ♦ KD
♣G9 ♣K8
Suður
♠ 8
♥ –
♦ Á
♣D10
Compton spilaði spaðaátt-
unni og lét laufi úr borði.
Austur á ekkert svar við
þessu; ef hann hendir tígli
verður gosi binds slagur,
annars drottning suðurs í
laufi. Sagnhafi tekur ásinn í
þeim lit sem austur hendir
frá og ásinn í hinum litnum
er innkoma á fríslaginn.
BRIDS
Guðmundur
Páll Arnarson
GULLBRÚÐKAUP. Í dag, mánudaginn 25. ágúst, eiga 50
ára hjúskaparafmæli hjónin Bára Jónsdóttir og Sigurður
Hjartarson, bakarameistari, Álfaskeiði 96, Hafnarfirði.
Þau eru erlendis á þessum merkisdegi.
1. d4 d5 2. Rf3 Rf6 3. c4 c6 4.
e3 Bg4 5. Rc3 e6 6. Db3 Db6
7. c5 Dc7 8. Be2 Rbd7 9. Bd2
g6 10. Dd1 Bg7 11. b4 O-O
12. O-O Hfe8 13. Hc1 h5 14.
h3 Bxf3 15. Bxf3 e5 16. dxe5
Rxe5 17. Be2 Had8 18. Db3
g5 19. Dc2 g4 20. Hcd1 gxh3
21. gxh3 Dc8 22. Kh2 Rg6
23. f4 d4 24. exd4 Hxd4 25.
Bd3 Rh4 26. Re2 Hdd8 27.
Rg3 Kf8 28. Hf2 Dd7 29.
Bc3 He3 30. Bxf6 Bxf6 31.
Be2 De6 32. Hxd8+
Bxd8 33. Bxh5 Bc7
34. Dh7 Df6
Staðan kom upp á
alþjóðlegu móti sem
lauk fyrir skömmu í
Málmey. Hinn risa-
vaxni danski al-
þjóðlegi meistari Ole
Jakobsen (2381)
hafði hvítt gegn koll-
ega sínum úr Svía-
ríki, Johan Hellsten
(2511). 35. Bxf7!
Bxf4 36. Dg8+ og
svartur gafst upp
enda mát í næsta leik.
Frægt er þegar Ole Jak-
obsen tefldi við þáverandi
heimsmeistara, Anatoly
Karpov, á Ólympíuskákmóti
fyrir aldarfjórðungi að allir
blaðaljósmyndarar héldu að
sá danski væri heimsmeist-
arinn í skák og beindu ein-
göngu myndavélum sínum
að honum. Skýringin á þess-
um misskilningi ljósmynd-
aranna stafaði að því að Ole
var mikill vöxtum og með
kokhrausta framkomu á
meðan Anatoly var agn-
arsmár og lítillætið upp-
málað!
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynn-
ingar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga fyr-
irvara fyrir sunnudagsblað.
Samþykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmæl-
istilkynningum og/eða
nafn ábyrgðarmanns og
símanúmer. Fólk getur
hringt í síma 569-1100, sent
í bréfsíma 569-1329, eða
sent á netfangið ritstj
@mbl.is. Einnig er hægt að
skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1,
103 Reykjavík
LANDSPÍTALI – HÁSKÓLASJÚKRA-
HÚS
SLYSA- OG BRÁÐADEILD, Fossvogi sími 543 2000.
BRÁÐAMÓTTAKA, Hringbraut sími 543 2050.
BRÁÐAMÓTTAKA BARNA, Barnaspítala Hringsins sími
543 1000.
BRÁÐAMÓTTAKA GEÐDEILDA, Hringbraut sími
543 4050.
NEYÐARMÓTTAKA v/nauðgunarmála, Fossvogi sími
543 2085.
EITRUNARMIÐSTÖÐ sími 543 2222.
ÁFALLAHJÁLP sími 543 2085.
LÆKNAVAKTIR
BARNALÆKNIR er til viðtals á stofu í Domus Medica á
kvöldin v.d. kl. 17–22, lau., sun. og helgid., kl. 11–15.
Upplýsingar í s. 563 1010.
LÆKNAVAKT miðsvæðis fyrir heilsugæsluumdæmin í
Reykjavík, Seltjarnarnesi, Kópavogi, Garðabæ og Hafn-
arfirði, í Smáratorgi 1, Kópavogi. Mótttaka kl. 17–23.30
v.d. og kl. 9–23.30 um helgar og frídaga. Vitjanabeiðni og
símaráðgjöf kl. 17–08 v.d. og allan sólarhringinn um
helgar og frídaga. Nánari upplýsingar í s. 1770.
TANNLÆKNAVAKT – neyðarvakt um helgar og stórhá-
tíðir. Símsvari 575 0505.
VITJANAÞJÓNUSTA læknis í heimahús. Alla v.d. kl. 10–
16. Símapantanir og ráðgjöf kl. 8–20 í síma 821 5369.
LÆKNALIND, Bæjarlind 12, Kópavogi. Einkarekin lækn-
isþjónusta. Vaktþjónusta alla virka daga kl 08–17. Uppl.
í síma 520 3600 og á heimasíðu www.laeknalind.is
APÓTEK
LYF & HEILSA: Austurveri við Háaleitisbraut. Opið kl. 8–
24, virka daga, kl. 10-24 um helgar. Sími 581 2101.
LYFJA, Lágmúla: Opið alla daga ársins kl. 8–24. S.
533 2300.
LYFJA, Smáratorgi: Opið alla daga ársins kl. 8–24. Sími
564 5600.
NEYÐARÞJÓNUSTA
BAKVAKT Barnaverndarnefndar Reykjavíkur er starf-
rækt eftir kl. 16.15 virka daga, allan sólarhringinn aðra
daga. Sími 892 7821, símboði 845 4493.
HJÁLPARSÍMI Rauða krossins, fyrir þá sem þjást af dep-
urð og kvíða og eru með sjálfsvígshugsanir. Fullum
trúnaði heitið. Gjaldfrjálst númer: 1717, úr öllum símum.
TRÚNAÐARSÍMI RAUÐAKROSSHÚSSINS. Ráðgjafar-
og upplýsingasími ætlaður börnum, unglingum og að-
standendum þeirra. Nafnleynd. Opið allan sólarhr.
Gjaldfrjálst númer: 1717 – Netfang: husid@redcross.is
VINALÍNA Rauða krossins, s. 561 6464. Grænt númer
800 6464, er ætluð fólki 20 og eldri sem þarf einhvern til
að tala við. Svarað kl. 20–23.
BILANAVAKT BORGARSTOFNANA, sími 5 800 430 tek-
ur við tilkynningum um bilanir og liðsinnir utan skrif-
stofutíma.
NEYÐARSÍMI FORELDRA 581 1799 er opinn allan sólar-
hringinn. Vímulaus æska-Foreldrahús.
Neyðarnúmer fyrir
allt landið - 112
Lægstu laun hækkuð
Vegna fréttar á laugardag um
launabreytingar á almennum vinnu-
markaði skal leiðrétt að Sigurður
Bessason, formaður Eflingar, segir
að lagt hafi verið upp með það í síð-
ustu kjarasamningum að hækka
meira lægstu laun umfram önnur.
Það hafi skilað sér í auknum kaup-
mætti kvenna þar sem þær séu fleiri
en karlar í lægstu launaflokkum.
Gaf Pétri og
Agli tíu krónurnar
Gústaf Adolf, Svíaprins og síðar
konungur, sendi Pétri Ámundasyni
skipstjóra og Agli Egilssyni vél-
stjóra hvorum sínar tíu krónurnar í
þakklætisskyni fyrir bátsferð um
Þingvallavatn árið 1930 en rangt var
farið með þetta í greininni „Mann-
flutningar á Þingvallavatni“ sem
birtist í Morgunblaðinu í gær,
sunnudag. Beðist er velvirðingar á
þessu.
LEIÐRÉTT
FRÉTTIR
OPINN skógur er samstarfsverk-
efni skógræktarfélaganna í land-
inu, Olís og Alcan á Íslandi. Hrútey
í Austur-Húnavatnssýslu við
Blönduós er annar skógurinn sem
er opnaður almenningi í þessu
verkefni. Það voru frú Vigdís
Finnbogadóttir, fyrrum forseti Ís-
lands, Páll Ingþór Kristinsson, for-
maður Skógræktarfélags Austur-
Húnvetninga, Hermann Guð-
mundsson frá Olís, Lind Einars-
dóttir frá Alcan á Íslandi og
Magnús Jóhannesson, formaður
Skógræktarfélags Íslands, sem
opnuðu Hrútey formlega nýverið.
Ávörp voru flutt og Jón Ísberg,
fyrrverandi sýslumaður Húnvetn-
inga, var heiðraður af Skógrækt-
arfélagi Austur-Húnvetninga fyrir
störf í þágu skógræktar. Jón Ís-
berg og skátar gróðursettu veg-
legt birkitré og skátasöngvar voru
sungnir. Hrútey er 11 hektarar að
stærð, þar er fjölbreytt gróðurfar
og fuglalíf auðugt. Hrútey var frið-
uð sem fólkvangur árið 1975, hún
var friðuð fyrir búfé 1933 og vorið
1942 hófst skógrækt í eynni. Voru
fyrstu trén gróðursett af skátum
undir handleiðslu Jóns Ísberg. Nú-
verandi brú var vígð árið 1988.
Fjölmenni var athöfnina í blíðskap-
arveðri.
Opinn skógur í Hrútey
Þau voru fimm skærin sem hafin voru á loft þegar skógurinn var opnaður.