Morgunblaðið - 29.08.2003, Page 1
STOFNAÐ 1913 232. TBL. 91. ÁRG. FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Evrópuþátt-
töku lokið
Jafntefli í leikjum Grindavíkur
og Fylkis dugðu ekki Íþróttir
Norrænir kennaranemar komu
að hönnun á Víðistaðatúni 17
Gamlar rætur
í miðborginni
Verslanir með sögu og upp-
runalegt nafn Daglegt líf
REKSTRARVANDA Sinfóníuhljómsveitar Ís-
lands má að talsverðu leyti rekja til ákvörðunar
ríkisins árið 1993 um að B-hluta-stofnanir rík-
isins skyldu framvegis sjálfar
standa undir lífeyrishækk-
unum, sem ríkið greiddi áður
beint. Sinfóníuhljómsveitin sat
þar með uppi með þungan
bagga lífeyrisskuldbindinga,
án þess að fá aukin framlög á
móti.
Árið 1997 nam skuldin lið-
lega 570 milljónum króna, en
hefur hækkað jafnt og þétt og
var áætluð tæplega 1,4 milljarðar í árslok 2002.
Í nýrri skýrslu vinnuhóps menntamálaráðu-
neytisins um fjárhag og rekstur Sinfóníu-
hljómsveitarinnar kemur fram að unnið sé að
skiptingu lífeyrisskuldbindingarinnar og upp-
gjöri á milli rekstraraðila hljómsveitarinnar í
samræmi við aðild þeirra að rekstrinum. Ríkið
sjálft er þar stærst með 56%, Ríkisútvarpið með
25%, Reykjavíkurborg með 18% og Seltjarnar-
nesbær með 1%. Þessi skipting fjárframlaga er
bundin í lög.
Reykjavík og Seltjarnarnesbær eru einu sveit-
arfélögin á landinu sem eiga aðild að rekstri
hljómsveitarinnar.
Sinfóníuhljómsveitin
Ógreiddar lífeyr-
isskuldbindingar
1,4 milljarðar
Hver vill starfrækja … /20
TÖLUVERT dró úr lánveitingum nokkurra stórra
lífeyrissjóða til sjóðfélaga á fyrri hluta ársins en for-
svarsmenn sjóðanna vilja þó fara varlega í að túlka
samdráttinn og segja erfitt að átta sig á því hverjar
orsakirnar séu og hvort þessi samdráttur muni
halda áfram.
Fyrstu sex mánuði ársins fækkaði þeim sjóðfélög-
um hjá Lífeyrissjóði verzlunarmanna sem fengu lán
hjá sjóðnum um rúm 17%, lánveitingar voru 896
fyrstu sex mánuðina í fyrra en 743 á fyrra helmingi
þessa árs. Heildarfjárhæð lánveitinganna nam 1,78
milljörðum króna á móti liðlega 1,9 milljörðum í
fyrra sem er 10,6% samdráttur en þess ber að geta
að lánsupphæð til sjóðfélaga var hækkuð úr fjórum í
fimm milljónir í apríl í vor. Þær upplýsingar fengust
hjá sjóðnum að menn hefðu ekki farið í greiningu á
því hverjar ástæður fyrir minni eftirspurn sjóð-
félaga væru, hugsanlegt væri þó að aukin umsvif og
hækkandi lánshlutfall hjá Íbúðalánasjóði skýrðu
þennan samdrátt að einhverju leyti.
Lán hjá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins (LSR)
voru alls 2.331 árið 2001 og heildarupphæð þeirra
5,2 milljarðar króna. Í fyrra dró verulega úr eft-
irspurn og veitt lán voru að upphæð u.þ.b. 4,2 millj-
arðar og fjöldi lána 1.933. Heildarútlán fyrstu sex
mánuði þessa árs voru 12% undir samtölu sömu
mánaða í fyrra og heildarlánafjöldi 16%.
Hjá Framsýn liggja endanlegar tölur um útlán til
sjóðfélaga á fyrri helmingi ársins ekki fyrir en þó
liggur fyrir að eitthvað hafi dregið úr lánveitingum.
Hjá Framsýn nefna menn að verið geti að fólk sé að
bíða eftir að kosningaloforð um hækkandi lánshlut-
fall hjá Íbúðalánasjóði verði efnd eða haldi að sér
höndum vegna óvissu um verðbólgu.
Minni spurn
sjóðfélaga eftir
lánum hjá
lífeyrissjóðum
♦ ♦ ♦
TONY Blair, forsætisráðherra
Bretlands, neitar að stjórnvöld
hafi breytt skýrslu um vopnaeign
Íraka og segir
að hefði frétt
BBC, þar sem
því var haldið
fram, verið
sönn hefði
hann orðið að
segja af sér.
Þá segist hann
bera ábyrgð á
því að nafn
vopnasérfræð-
ingsins Davids Kellys hafi verið
gert opinbert.
Þetta kom fram er Blair bar
vitni fyrir nefnd Hutton lávarðar í
gær en hún rannsakar lát Davids
Kellys sem var heimildamaðurinn
fyrir hinni afdrifaríku frétt BBC
um að stjórnvöld hefðu ýkt hætt-
Stjórnarformaður BBC, Gavyn
Davies, sakaði embættismenn
Blairs um að hafa staðið fyrir
„óviðeigandi“ árásum á hendur
stöðinni er hann bar vitni í gær.
Átti hann einkum við þá staðhæf-
ingu Alastairs Campbells að BBC
hefði logið í fréttinni. Þar hefði
heiðarleiki stöðvarinnar og hlut-
leysi verið dregið í efa.
Leiðtogi Íhaldsflokksins, Iain
Duncan Smith, sakaði Blair um að
hafa stjórnað „undirförulli“ og
„skammarlegri“ meðferð á Kelly
bæði fyrir og eftir meint sjálfs-
morð hans. Hann hefði vitað um og
verið sáttur við hvernig reynt var
kerfisbundið að eyðileggja mann-
orð Kellys. „Það er hið skammar-
legasta við þessa sorglegu sögu,“
sagði Smith.
una af vopnaeign Íraka til að rétt-
læta stríð. „Þetta var stórmerkileg
ásökun og fram úr hófi alvarleg,“
sagði Blair um fréttina. Hann telur
að sú ákvörðun að gera nafn Kel-
lys opinbert hafi verið rétt.
Þegar hann var spurður hvort
Kelly hefði ekki verið beittur of
miklum þrýstingi svaraði hann að
hann vissi ekki annað en Kelly
hefði verið vanur að fást við fjöl-
miðla og hefði því átt að hafa nokk-
uð harðan skráp. Blair talaði í tvær
klukkustundir og þótti rólegur og
öruggur.
Hefði sagt af sér
væri fréttin sönn
Blair segist bera
ábyrgð á því að
nafn Kellys var
opinberað
Lundúnum. AP, AFP.
Tony Blair
Varðist/16
HAGVÖXTUR í Bandaríkjunum
var meiri en vonir stóðu til á öðr-
um ársfjórðungi en í gær til-
kynnti ríkisstjórnin að hann hefði
verið 3,1% á ársgrundvelli. Spár
gerðu ráð fyrir 2,4% hagvexti.
Þykir aukningin gefa til kynna að
þetta stærsta hagkerfi heimsins
sé að taka við sér og hagvöxtur
verði jafnvel enn meiri á næst-
unni.
Landsframleiðsla hefur ekki
verið jafnmikil síðan á öðrum
ársfjórðungi í fyrra og kom það
hagfræðingum á óvart. „Þetta er
frábært. Þetta er góður grund-
völlur fyrir uppbyggingu á næstu
fjórum ársfjórðungum,“ sagði
David Littman, hagfræðingur
Comerica-banka. Hann spáir
áframhaldandi aukningu og segir
stórtækar skattalækkanir og
lága vexti hafa þar mest að segja.
Hagvöxt-
ur 3,1%
í Banda-
ríkjunum
HUNDRUÐ þúsunda íbúa Lundúnaborgar
komust hvorki lönd né strönd þegar rafmagn
fór af borginni á háannatíma í gærkvöldi
með þeim afleiðingum að stór hluti lestar-
kerfa borgarinnar stöðvaðist. Þúsundir far-
þega þurftu að leita annarra leiða til þess að
komast heim en rafmagnið fór af rétt eftir
klukkan sex þegar fólk var á leið heim úr
vinnu. Það byrjaði þó að koma aftur á eftir
um klukkustund. Ekki er vitað um slys á fólki
en lögregla bjargaði um 100 manns sem voru
fastir í lyftum. Þá duttu 270 umferðarljós út
og skapaðist mikið öngþveiti vegna þess.
Rafmagnsleysið varð nákvæmlega tveimur
vikum eftir að rafmagn fór af stórum svæð-
um í Bandaríkjunum og Kanada og þótti
ástandið í gær minna á þann atburð í fyrstu.
Ekki er vitað hvað olli rafmagnsleysinu.
AP
Öngþveiti er rafmagn fór af London
Lundúnum. AFP.
UNGT par og barn þeirra á öðru aldursári
lentu í miklum háska þegar Land Rover-
jeppi þeirra festist hálfur í kafi í Jökulsá
vestari við Ingólfsskála norðan Hofsjökuls í
gærmorgun. Fólkið, sem er frá Þýskalandi,
komst með naumindum upp á topp bílsins,
sem var kominn 25 metra frá árbakkanum.
Þar beið samferðafólk á öðrum jeppa en
gat ekkert aðhafst. Maðurinn gerði tilraun
til að vaða í land en litlu munaði að straum-
hörð jökuláin hrifsaði hann með sér.
„Fyrir tilviljun voru þau með bát á toppn-
um, en ekki hinn bíllinn sem varð eftir á
bakkanum, og það bjargaði þeim,“ sagði
Ingvar Ingólfsson úr björgunarsveitinni
ólfur, sem var með hugann við barnið.
Hann segir að fólkinu hafi liðið ágætlega
þegar björgunarmenn komu á vettvang en
hafi greinilega orðið mjög hrætt. Það hafi
farið út í ána á vitlausu vaði og sokkið þeg-
ar um tíu metrar voru eftir yfir. „Það var
glórulaust að ætla sér yfir ána. Ég held því
fram að hún hafi verið ófær öllum ökutækj-
um.“
Þrjá tíma tók að ná jeppanum upp úr
ánni og komu björgunarmenn til byggða
rétt fyrir klukkan ellefu í gærkvöldi.
Ferðalangarnir ákváðu að gista í Ingólfs-
skála í nótt og ætluðu með bílinn niður í
Skagafjörð í dag.
Dalbjörg í Eyjafirði,
sem kom á slysstað við
fjórða mann klukkan
fjögur í gærdag. Þá
hafði fólkinu tekist að
komast til baka í land
á bátnum og hafðist
við í Ingólfsskála stutt
frá ánni.
„Hefðu þau ekki
haft bátinn hefði at-
burðarásin orðið sú, að þau hefðu orðið að
fara í land hinum megin við ána, hund-
rennandi blaut, og ekki haft neitt húsaskjól.
Það hefði getað farið alla vega,“ segir Ing-
Ferðafólk bjargaðist úr jökulá
Litrík athöfn
í Hraungerði