Morgunblaðið - 29.08.2003, Qupperneq 2
FRÉTTIR
2 FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Ný Lína Langsokkur sprettur fram á fjölum Borgarleik-
hússins 14. september. Anna G. Ólafsdóttir spjallaði
við Línu, leikstjórann og þýðandann.
Á kafi í tónlist
Védís Hervör Árnadóttir tók sér hlé frá íslenskum tón-
listarheimi og vann að list sinni í London. Hún ræddi
við Ragnhildi Sverrisdóttur um tónlistina og fleira.
Net milli plánetnanna
Vinton G. Cerf er einn af „feðrum Netsins“. Svavar
Knútur Kristinsson ræddi við Cerf um möguleika fram-
tíðarinnar.
Sterkasta stelpa í heimi
á sunnudaginn
BLAIR BER VITNI
Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, bar vitni fyrir rannsókn-
arnefnd Hutton lávarðar í gær. Þar
neitaði hann að hafa átt við leyni-
þjónustuskýrslu um vopnaeign
Íraka til að geta réttlætt stríðið og
sagði að ef svo hefði verið hefði hann
orðið að segja af sér sem forsætis-
ráðherra.
Hljómsveit í vanda
Ógreiddar lífeyrisskuldbindingar
Sinfóníuhljómsveitar Íslands námu
um 1,4 milljörðum króna í árslok
2002. Nam skuldin liðlega 570 millj-
ónum árið 1997.
Harmar niðurrif á stokki
Fornleifavernd ríkisins harmar að
langstærstur hluti hitaveitustokks
milli Mosfellsbæjar og Reykjavíkur
verði rifinn og aðeins skilinn eftir
stuttur bútur til varðveislu í miðbæ
Mosfellsbæjar. Fornleifaverndin
fær enga fjármuni til varðveislu yfir
700 minja víða um land.
Hækkun bílatrygginga
Verð bifreiðatrygginga hefur
hækkað um 86,6% frá því í árs-
byrjun 1999, þó mest á fyrri hluta
þessa tímabils. Á sama tíma hefur
vísitala neysluverðs hækkað um rúm
20%. Talsmaður FÍB segir að
iðgjöldin hafi verið óeðlilega há.
Langt seilst í niðurstöðum
Niðurstöður bandarískrar rann-
sóknar á sambandi bekkjarstærðar
og námsárangurs, þar sem m.a.
kemur fram að íslenskir kennarar
hafi ónóga menntun til að hafa
stjórn á fjölmennum bekkjum, eru
gagnrýndar hér á landi. Telja menn
höfunda rannsóknarinnar seilast
mjög langt í túlkun á niðurstöðum.
Þær byggist m.a. á vanþekkingu á
íslensku samfélagi.
Lesblinda vegna erfðagalla
Finnskir vísindamenn telja að les-
blinda orsakist af galla í erfðaefni
eftir að hafa gert rannsókn á 20
finnskum fjölskyldur þar sem les-
blinda er algeng. Þeir telja að sé
kenning þeirra rétt verði jafnvel
hægt að þróa lyf gegn henni.
Gamlar
búðir
F Ö S T U D A G U R 2 9 . Á G Ú S T 2 0 0 3 B L A Ð B
TYGGJÓKLESSURNAR BURT!/2 DAÐUR Í DULARGERVI/2
Í QAQORTOQ Á GRÆNLANDI – HREINDÝRASTEIK Á TUNNUVERK-
STÆÐINU/6 AUÐLESIÐ EFNI/8
GAMLAR búðir með sögu ogupprunalegt nafn erunokkrar í miðborginni.Hver kannast ekki við Ey-
mundsson, Guðstein, Bernhöfts-
bakarí og Liverpool, að ekki sé talað
um Lífstykkjabúðina eða Andrés?
Fullt verslunarfrelsi frá einok-
unarverslun Dana komst á hérlendis
á árunum 1854-1855, en nokkurt
frelsi fékkst fyrr. Í bókinni Íslenzk
verslun eftir Vilhjálm Þ. Gíslason frá
1955, kemur fram að í Reykjavík var
Knudtzonsverzlun elst, stofnuð 1792
en Knudtzon þessi stofnaði fyrsta
brauðgerðarhúsið í Reykjavík sem
Daníel Bernhöft stjórnaði og er
grunnur hins góðkunna Bernhöfts-
bakarís, sem talið er að sé elsta
starfandi verslun í Reykjavík, stofn-
uð árið 1834.
Bókaverslun Sigfúsar Eymunds-
sonar á sér eins og Bernhöftsbakarí
langa sögu og hefur gengið í gegn-
um miklar breytingar en verslunin
var stofnuð á áttunda áratug
nítjándu aldar. Annað fyrirtæki er
gengið hefur í gegnum miklar breyt-
ingar frá stofnun, heitir nú TVG-
Zimsen og er flutningafyrirtæki, en
rætur þess liggja allt til ársins 1894
þegar Jes Zimsen stórkaupmaður
hóf rekstur verslunar í Reykjavík.
Um og upp úr aldamótunum 1900
stofnuðu Íslendingar verslanir í
auknum mæli og enn er t.d. starf-
andi Jón Sigmundsson skartgripa-
verslun á Laugavegi sem var stofn-
uð árið 1904. Kjörbúðin Vísir er
blómstra enn
Morgunblaðið/Jim Smart
einnig meðal elstu starfandi versl-
ana í Reykjavík og fleiri eiga sér
langa sögu.
Á tímum innflutningshafta og
gjaldeyrisskorts á krepputímum og
fram eftir liðinni öld, voru klæð-
skerar á meðal þeirra sem gátu gert
mikið úr litlu með því að flytja inn
efni og sauma í stað þess að flytja
inn tilbúin föt eins og nú. Andrés
Andrésson klæðskeri og síðar Bern-
harð Laxdal klæðskeri voru á meðal
þeirra sem ráku saumastofur og
verslanir. Verslanirnar starfa enn
og eru þekktar undir upphaflegum
nöfnum. Á sama hátt var rekin
saumastofa samhliða Lífstykkjabúð-
inni sem stofnuð var árið 1916, en
lífstykkjasaumur er nú aflögð iðn-
grein.
Nöfnin þekkt að góðu 4
Yf ir l i t
Í dag
Sigmund 8 Viðhorf 32
Viðskipti 11/15 Minningar 32/37
Erlent 16/17 Bréf 38
Höfuðborgin 17 Dagbók 40/41
Akureyri 18 Staksteinar 40
Suðurnes 20 Sport 43/45
Landið 21 Leikhús 46
Austurland 22 Fólk 46/53
Listir 23/25 Bíó 50/53
Umræðan 26/27 Ljósvakamiðlar 54
Forystugrein 28 Veður 55
* * *
Kynningar – Morgunblaðinu í dag
fylgir Dagskrá vikunnar. Blaðinu er
dreift á landsbyggðinni.
SENN líður að september en þrátt fyrir það er enn
sumarlegt um að litast á Austurvelli. Gott er að
tylla sér á bekkina og virða fyrir sér fjölskrúðugt
mannlífið. Ekki er verra að hafa sjónauka við hönd-
ina ef sjá þarf umhverfið í höfuðborginni í skýrara
ljósi.
Morgunblaðið/Ómar
Kíkt á mannlífið á Austurvelli
FRYSTITOGARINN Venus HF
hefur verið í ágætri karfaveiði rúm-
lega 500 km suður af Hvarfi á Græn-
landi síðustu fimm daga. Haraldur
Árnason skipstjóri sagði í gærkvöldi
að veiðin hefði aðeins dottið niður þá
um daginn. Þó hefur hann verið að
fá um 25 tonn í hali og segist sáttur
nái hann tveimur til þremur tonnum
fyrir hvern klukkutíma sem togað
er.
Um 10 skip voru á þessu svæði
seint í gær. Sex þeirra voru íslensk
og nokkrir rússneskir togarar. Har-
aldur segir aflann ágætis hráefni en
að úthafskarfinn sé eins og venju-
lega svolítið smár. Það taki þá allt að
20 daga að fylla skipið og til þess
eigi þeir næga hlutdeild í úthafs-
karfakvóta Íslendinga utan fisk-
veiðilögsögunnar.
Haraldur segir að þessi ágæta
veiði nú komi ekki á óvart þrátt fyrir
að rannsóknarleiðangur Hafrann-
sóknastofnunar hafi komist að þeirri
niðurstöðu í júlí sl. að stofn úthafs-
karfans væri í algjöru lágmarki.
Samkvæmt nýjum mælingum á
stærð stofnsins að vera aðeins um
5% af því sem hann var árið 1994
eða um 100.000 tonn.
Haraldur segir að hann hafi ekki
tekið mikið mark á þessum tölum.
Hafsvæðið þarna sé það stórt að erf-
itt sé að „telja alla fiskana í sjónum“.
Símon Jónsson, skipstjóri á Örfir-
isey, var að koma á miðin í gær og
nýlega búinn að kasta trollinu þegar
Morgunblaðið hafði samband. Hann
sagði að veiðin væri róleg í augna-
blikinu en hefði verið góð undan-
farna viku.
Ágæt úthafskarfaveiði
síðustu daga við Hvarf
ELDUR kom upp í íbúð á þriðju
hæð í fjölbýli við Gyðufell í
Reykjavík í gær. Lögregla rýmdi
allar íbúðir í stigaganginum en
enginn var í íbúðinni þar sem eld-
urinn kom upp. Slökkviliði tókst
að ráða niðurlögum eldsins á um
þrjátíu mínútum. Skemmdir á
herberginu voru miklar og tölu-
verðar reykskemmdir í íbúðinni
en aðrar íbúðir í húsinu virðast
ekki hafa skemmst. Talið er að
eldurinn hafi kviknað út frá sjón-
varpstæki. Lögreglubifreið lenti í
óhappi á leið á staðinn og slösuð-
ust tveir lögregluþjónar lítillega.
Eldur út frá sjónvarpstæki
SAMTÖK atvinnulífsins og Alþýðu-
sambandið funda á mánudag um
stöðu mála á Kárahnjúkasvæðinu að
beiðni ASÍ, en eins og fram hefur
komið vill ASÍ funda bæði með Sam-
tökum atvinnulífsins og ríkisstjórn
um málið.
„Ég get staðfest að forystumenn
ASÍ hafa óskað eftir fundi með Sam-
tökum atvinnulífsins til að ræða um
virkjanamálefni. Fundurinn mun fara
fram eftir helgina, en ekki er meira
um það að segja á þessu stigi,“ segir
Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA.
Árni Magnússon félagsmálaráð-
herra segir að ekki hafi verið tekin
ákvörðun um fund með ASÍ. Á fund-
inum muni skýrast í hverju gagnrýni
ASÍ-forystunnar sé fólgin.
Árni segir að ekki hafi verið tekin
nein ákvörðun um að veita aukið fé til
eftirlitsaðila á Austurlandi eins og
þeir hafa farið fram á. Hann segir að
sumar eftirlitsstofnananna séu rekn-
ar fyrir hluta af tryggingargjaldi sem
aukist með auknum umsvifum í sam-
félaginu. „Eftir því sem umsvifin
aukast hækka því tekjur þeirra.“
Árna sagði að ekkert mál sem varð-
ar meint brot á kjarasamningum hjá
erlendum starfsmönnum hafi komið
inn á borð í félagsmálaráðuneytinu.
„Það er alls konar orðrómur og gagn-
rýni uppi úr ýmsum áttum en það hef-
ur ekki komið inn á borð hjá okkur.“
Fundað um
Kárahnjúka
eftir helgi