Morgunblaðið - 29.08.2003, Side 10
FRÉTTIR
10 FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÍSLAND liggur ekki á heitum mött-
ulstrók eins og jarðfræðikenningar
sem teknar hafa verið trúanlegar í 30
ár segja okkur, og í raun eru kenn-
ingar um alla heita bletti á jarðskorp-
unni rangar, að sögn þekkts jarð-
fræðings.
„Það er mjög líklegt að þetta sé
stærsta jarðfræðigabb sögunnar,“
segir dr. Gillian R. Foulger, sem er
prófessor í jarðfræði við Durham-há-
skóla í Bretlandi. Hún stýrir ráð-
stefnu um 60 jarðfræðinga sem nú
stendur á Hótel Örk í Hveragerði.
Kenningin um möttulstróka geng-
ur út á að á heitum reitum undir jarð-
skorpunni, t.d. undir Íslandi, Hawaii
og Yellowstone-þjóðgarðinum í
Bandaríkjunum, sé uppstreymi heits
efnis sem stígur upp úr möttlinum,
djúpt í iðrum jarðar. Þegar þetta
heita efni nálgast jarðskorpuna
minnkar þrýstingurinn og hluti af
efninu byrjar að bráðna, og stígur því
kvika reglulega upp á yfirborðið.
„Endurskrifa þyrfti skólabækur
og hætta að kenna fólki að kenningin
um heita reiti sé rétt,“ segir Foulger.
Hún segir rannsóknir sínar, sem m.a.
mæla bylgjuhraða í gegnum jarð-
skorpuna undir Íslandi, sýna fram á
að það svæði sem áður hafi verið talið
vera öflugur möttulstrókur sé í raun
bara um 400 km djúpt, en til að kenn-
ingar um möttulstróka geti staðist
þyrfti það að vera meira en sjö sinn-
um dýpra, eða um 3.000 km á dýpt.
Foulger segir að þessum hug-
myndum um að möttulstrókakenn-
Jarðfræðikenningum sem taldar eru skýra myndun Íslands hefur verið snúið á haus
Morgunblaðið/Brjánn Jónasson
Dr. Gillian R. Foulger segir hugmyndir um möttulstróka rangar.
„Líklega stærsta jarð-
fræðigabb sögunnar“
ingin sé röng sé að vaxa fiskur um
hrygg, en hún sé jafnóvinsæl hjá
mörgum jarðfræðingum í dag og þró-
unarkenning Darwins var hjá líf-
fræðingum þegar hún kom fram.
„Menn hafa verið tregir til að hafna
kenningunni um möttulstróka, marg-
ir eru óánægðir með að verið sé að
brjóta niður þessa fallegu kenningu
sem menn hafa trúað svona lengi.
Kenningin um möttulstróka hefur í
raun ekki verið staðfest í 30 ár. Hún
fylgdi inn í viðteknar hefðir jarðfræð-
innar með flekakenningunni og menn
hafa ekki almennilega þorað að gagn-
rýna hana þar til í dag,“ segir Foulg-
er.
Aðrar skýringar á jarðhita
Foulger segir að í stað þess að ein-
hver heitur reitur sé undir Íslandi,
sem og annars staðar á jarðskorp-
unni, sé fremur líklegt að bræðslu-
mark möttulsins undir landinu sé
lægra, sem skýri aukna eldvirkni.
Hún segir efnagreiningu á grjóti,
bæði frá Íslandi og hafsbotninum
langt frá hinum svokallaða heita reit,
sýna að grjótið bráðni allt við svipað
hitastig, en til að kenningar um heita
reiti standist ætti grjótið sem varð til
undir landinu að hafa myndast við um
300°C hærri hita. „Þannig höfum við
sýnt fram á að það er ekki heitara
undir Íslandi en annars staðar,“ segir
Foulger.
ÍSLENSKIR jarðvísindamenn eru
margir hverjir vantrúaðir á kenn-
ingar Gillian Foulgers og félaga, og
segja þennan hóp vísindamanna
eiga mikið verk fyrir höndum við
að sannfæra aðra vísindamenn.
Ingi Þorleifur Bjarnason, jarð-
eðlisfræðingur á Raunvísinda-
stofnun Háskóla Íslands, hefur
rannsakað jarðskorpu Íslands,
heita reitinn og möttulstrók lands-
ins undanfarin ár: „Mér finnst þau
skilgreina möttulstrók of þröngt,
þ.e. halda sig alveg við kenningu
Morgans um að möttulstrókur nái
niður að kjarna og ef þeir geri það
ekki séu þeir ekki til. Aðalatriðið í
skilgreiningu eða lýsingu á mött-
ulstróki tel ég vera að það sé upp-
streymi heits efnis, sem hefur svona
sívala lögun að neðan en hatt að of-
an þegar hann nálgast yfirborð,
svona í laginu eins og sveppur.“
Ingi bendir á að allar sannanir
fyrir nýstárlegum kenningum
Foulgers og félaga um lægra
bræðslumark á ákveðnum svæðum
vanti: „Meirihluti vísindamanna tel-
ur að möttulstrókar séu flæði heits
efnis þótt þeir taki ekki endilega af-
stöðu til þess hvort hitunin eigi sér
stað í öllum tilvikum á mörkum
möttuls og kjarna.“
Magnús Tumi Guðmundsson
jarðeðlisfræðingur tekur í sama
streng: „Það er ljóst að þessi hópur
sem er með þessar hugmyndir á
mikið verk fyrir höndum við að
sannfæra aðra um að hann hafi eitt-
hvað til síns máls.“
Ingi segir ennfremur að Foulger
komi inn í umræðuna um möttul-
strók mest sem jarðskjálftafræð-
ingur sem skimi möttulinn með
jarðskjálftabylgjum. „Strókarnir
eiga að sjást sem efni með minni
bylgjuhraða svona svipað og bein
sést á röntgenmynd vegna deyf-
ingar röntgengeislans. Hún hefur
fullyrt að sínar mælingar á Íslandi
sýni að möttulstrókurinn nái ekki
niður í neðri möttul. Hún fullyrðir
að aðrar rannsóknir sýni það sama,
en það er því miður rangt hjá
henni.“
Íslenskir vísindamenn
vantrúaðir á kenninguna
PÁLMI Gunnarsson, tónlistarmaður
og dagskrárgerðarmaður, veiddi mik-
inn hæng í Hafralónsá í Þistilfirði fyr-
ir nokkru. Pálmi sagði í samtali við
Morgunblaðið að laxinn, sem hann
sleppti, hefði mælst 104 cm en hann
hefði verið mjög leginn og byrjaður að
þynnast. „Ég get ekki sagt um hversu
þungur hann var, en nýgenginn er lík-
legt að hann hafi verið nálægt 24
pundum,“ sagði Pálmi, en samkvæmt
þumalputtareglu sem þeir nota sem
sleppa löxum, stenst sú ágiskun.
Pálmi veiddi laxinn á þurrflugu,
svokallaðan Bomber, sem er Amerísk
laxaþurrfluga. Eru Bomberflugurnar
stórar og miklar og ýmist látnar fljóta
á dauðareki eða dregnar með rykkj-
um eftir yfirborðinu. Þetta er lítið
reynd tækni í íslenskum ám, en hefur
gefið góða raun áður og gerði greini-
lega nú. Tökur eru tilkomumiklar er
laxar steypa sér á þurrflugur, boðaföll
og gusugangur, hvað þá þegar um 104
cm löng ferlíki er að ræða, enda taldi
Pálmi að minningin myndi ylja hon-
um til æviloka. Laxinn kom á land úr
fallegum hyl í ofanverðri ánni. Þetta
var um miðjan mánuðinn og voru þá
komnir um 120 laxar á land að sögn
Pálma. Síðan hefur veiði verið í góðu
lagi, m.a. var eitt holl með 50 laxa.
Pálmi og félagi hans fengu annars sjö
laxa saman, alla stóra utan einn.
Hver verður hæst?
Nú líður að lokum vertíðar og
hvaða á skyldi enda með hæstu töl-
una? Þverá/Kjarrá hefur leitt hópinn í
allt sumar og hafa nú veiðst um 1.800
laxar í ánni. Veitt er fram þar til vika
er liðin af september og hefur veiði
gengið vel að undanförnu, meira að
segja brögð að því að nýir fiskar hafi
verið í aflanum. Veitt er mun lengur
fram í september í Langá og Laxá í
Kjós og gætu þar með báðar skotist
fram úr, en Langá er með um 1.700
laxa nú, Laxá í Kjós um 1.500 stykki
og gengur veiði vel í báðum. Eftir dá-
lítið hlé, er nú farið að reytast aftur úr
Rangánum, en veiði þar dofnaði um
tíma, m.a. vegna vatnavaxta og
gruggs. Báðar hafa nú gefið um 1.400
laxa og þar sem veitt er í þeim til loka
september gætu þær einnig saumað
að Þverá/Kjarrá. Aðrar ár eru tæp-
lega inni í myndinni, Selá er komin
með á þrettánda hundrað laxa, en þó
að veiði þar gangi einnig vel þessa
dagana sýnist bilið vera of breitt.
Þessar ár munu skipa efstu sætin, að-
eins spurning hvernig röðin verður
þegar upp er staðið.
ERU
ÞEIR AÐ
FÁ’ANN?
Morgunblaðið/Golli
Veiðimaður við efri fossinn
í Brynjudalsá í Hvalfirði.
Tröll á þurrflugu
úr Hafralónsá
NOKKRAR tafir urðu á umferð
um Miklubraut síðdegis á mið-
vikudag vegna malbikunarfram-
kvæmda á gatnamótum Löngu-
hlíðar og Miklubrautar. Umferð í
vestur var beint um Stakkahlíð og
af Bústaðavegi um Snorrabraut
meðan á framkvæmdunum stóð.
Þá urðu einnig tafir á umferð um
Bústaðaveg vegna framkvæmda
við Bústaðabrúna.
Samkvæmt upplýsingum um-
ferðardeildar lögreglunnar í
Reykjavík sjá verktakar sem taka
að sér vegaframkvæmdir um
merkingar varðandi lokun gatna
og það getur komið fyrir að þeim
sé ábótavant að mati vegfarenda.
Við þeim er brugðist af lögreglu
sem á, samkvæmt upplýsingum
Gatnamálastofu, að hafa eftirlit
með merkingum við vegafram-
kvæmdir og samþykkja þær. Ein-
hverjar kvartanir bárust lögregl-
unni vegna framkvæmdanna á
gatnamótunum á miðvikudag en
samkvæmt upplýsingum umferð-
ardeildar gekk verkið vel og tók
fljótt af. Eingöngu ef um meiri-
háttar framkvæmdir er að ræða
eru þær gerðar á nóttinni en að-
eins lítinn kafla Miklubrautar
þurfti að malbika á miðvikudag.
Einar Jónasson, upplýsinga-
fulltrúi umferðaröryggissviðs hjá
Umferðarstofu, segir að ábending-
ar frá vegfarendum sem berist
Umferðarstofu lúti fyrst og fremst
að því að fólki finnist framkvæmd-
ir ekki vera merktar með nógu
góðum fyrirvara. Hann segir mjög
marga aðila koma að framkvæmd-
um í þéttbýli og að misvel sé að
merkingum vegna þeirra staðið.
Ábendingum sem berast Umferð-
arstofu er komið á framfæri við
Gatnamálastofu, lögreglu eða aðra
þá sem málið snerta. „Það er oft
sem fólk kvartar undan því að
framkvæmdir séu ekki merktar
með nógu góðum fyrirvara svo
fólk geti valið aðrar leiðir,“ segir
Einar. „En yfirleitt eru merkingar
ágætar við framkvæmdasvæðin
sjálf, hraðatakmarkanir og þess
háttar en oft er fólk svolítið pirr-
að, sérstaklega hérna í borginni,
að merkingar séu ekki hafðar
fyrr.“
Samkvæmt upplýsingum Gatna-
málastofu eru til reglur um merk-
ingar við framkvæmdir sem verk-
takar eiga að fara eftir.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Umferð um Miklubraut gekk hægt á miðvikudag vegna framkvæmda á mótum Lönguhlíðar og Miklubrautar.
Miklar umferðartafir
vegna malbikunarfram-
kvæmda í borginni
Vegfarendur
vilja sjá merk-
ingar tímanlega
Mynd/Harro Schmeling
Hér sést skýringarmynd af möttul-
strók eins og kennslubækur hafa
sýnt þá undanfarin ár. Strókurinn
er svipaður og sveppur í laginu og
er mun heitari en möttullinn í kring.