Morgunblaðið - 29.08.2003, Síða 20

Morgunblaðið - 29.08.2003, Síða 20
SUÐURNES 20 FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ BÚIST er við að umræður um sam- einingu sveitarfélaga á Suðurnesjum hefjist að nýju á næstu mánuðum en ljóst að skoðanir eru skiptar í sveit- arstjórnunum. Félagsmálanefnd Alþingis var á ferð á Suðurnesjum í gær og fundaði þá meðal annars með sveitarstjórn- armönnum og fulltrúum verkalýðs- félaga og stofnana sem vinna að at- vinnumálum. Á fundinum var sérstaklega fjallað um atvinnumál, verka- og tekjuskiptingu ríkis og sveitarfélaga og sameiningu sveitar- félaga. Greinilegt er að málið er við- kvæmt, það kom fram í viðbrögðum við orðum Guðlaugs Þórs Þórðarson- ar, nefnarmanns í félagsmálanefnd, sem sagði rökrétt að sveitarfélögin rynnu saman. Þau þyrftu að mynda sterkari einingar til að geta tekið við fleiri verkefnum frá ríkinu. Hörður Guðbrandsson, forseti bæjarstjórnar í Grindavík, sagði að skakkur tekjurammi sveitarfélag- anna væri aðalvandamálið. Laga þyrfti tekjuskiptingu ríkis og sveit- arfélaga. Menn væru að byrja á öfug- um enda með því að tala um samein- ingu sveitarfélaga, alveg eins væri hægt að byrja á því að flytja fleiri verkefni til þeirra. Rifjaði Hörður upp að Grindavíkurbær hefði lagt áherslu á að fá heilsugæsluna á staðnum sem tilraunasveitarfélag. „Lögþvinguð sameining er það vit- lausasta sem hægt er að gera, það getur ekki verið skynsamlegt ef menn geta ekki sannfært íbúana um að sameining sé rétt,“ sagði Hörður og bætti því við að samvinna sveitar- félaganna væri aftur á móti af hinu góða. Hjálmar Árnason, formaður fé- lagsmálanefndar, sagði að sveitar- stjórnarmenn á Suðurnesjum kæm- ust ekki hjá því að ræða samein- ingarmál. Rifjaði hann upp skipan nefnda og verkefnisstjórnar félags- málaráðherra sem hafa það hlutverk að útfæra tillögur að nýrri sveitarfé- lagaskipan, laga tekjuskiptingu að því og breytingu á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Hvatti hann sveitarstjórnarmenn til að hefja þessa umræðu. Reykjanesbær reiðubúinn Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, sagði að mörg rök mæltu með sameiningu sveitarfélaga á Suðurnesjum. Nefndi að svæðið væri eitt atvinnusvæði og samvinna um ýmis mál og menn væru sammála um að sameining væri hagkvæm. Rifjaði hann upp að Reykjanesbær hefði orðið til úr þremur sveitar- félögum og sú sameining hefði geng- ið vel. „Við verðum að fara að ræða þetta,“ sagði Árni og gat þess að þótt stjórnendur Reykjanesbæjar væru til í sameiningu vildu þeir ekki pína neinn til þess að sameinast. Fram kom hjá Sigurði Jónssyni, sveitarstjóra í Garði, að sameining hefði ekki komið til umræðu í núver- andi sveitarstjórn, nema hvað sam- þykkt hafi verið ályktun þar sem því var mótmælt að sveitarfélög væru pínd til sameiningar. Sagði hann ljóst að menn væru til viðræðna en vildu ekki hafa lögþvingun vofandi yfir. Sigurður Valur Ásbjarnarson, bæjarstjóri í Sandgerði, sagði ljóst að taka yrði umræðuna upp og það myndi verða gert í Sandgerði. Hann lýsti þeirri skoðun sinni að nauðsyn- legt væri að sameina sveitarfélög því það væri nánast vonlaust að reka sveitarfélög með undir þúsund íbú- um. Hann lét þess jafnframt getið að skiptar skoðanir væru um málið í bæjarstjórn Sandgerðis en það myndi skýrast í umræðunni. Verður að vera hagkvæmt fyrir íbúana Jón Gunnarsson, oddviti Vatns- leysustrandarhrepps, sagði að um- ræður væru hafnar í sveitarfélaginu um hugsanlega sameiningu. Ljóst lægi fyrir að stærri sveitarfélög væru hagkvæmari í rekstri en þau minni. Á móti vakti hann athygli á því að tekjur sameinaðs sveitarfélags af framlögum Jöfnunarsjóðs sveitarfé- laga yrðu minni en samanlögð fram- lög til þeirra sitt í hvoru lagi. Það gengi ekki og nauðsynlegt að breyta reglum Jöfnunarsjóðs. Jón gat þess einnig að skiptar skoðanir kynnu að vera um það í hvora áttina Vatnsleysustrandar- hreppur ætti að leita fyrir sér um sameiningu, til Reykjanesbæjar eða Hafnarfjarðar. Flestir íbúarnir hefðu flust úr sveitarfélögunum í suðurhluta höfuðborgarsvæðisins og margir sæktu þangað vinnu og vildu því líta þangað. Þar væri hins vegar yfir kjördæmamörk að fara. Málið væri því ekki einfalt. Í lokin varaði Jón Gunnarsson við umræðum um lögþvingun samein- ingar og það gerðu fleiri fundar- menn, sagði hann hætt við því að menn hrykkju í skotgrafirnar þegar málið væri rætt á þeim grundvelli. Ómar Jónsson, formaður bæjar- ráðs Grindavíkur, tók undir með Jóni að þegar rætt væri um sameiningu væri ekki bara um einn kost að ræða. Hún gæti orðið víðtækari en bara á Suðurnesjum og jafnvel í allt aðrar áttir en nú væri mönnum efst í huga. Gat hann þess að Grindavík væri á bak við fjöllin gagnvart öðrum sveit- arfélögum á Suðurnesjum. Með nýj- um Suðurstrandarvegi yrði greið leið til Þorlákshafnar og síðan ættu Vest- mannaeyjar og Grindavík saman sjó. Þessir bæir væru báðir öflugir á sviði sjávarútvegs og ættu margt sameig- inlegt. Einar Jón Pálsson, sveitarstjórn- armaður úr Garði, lagði áherslu á að sveitarfélögin á Suðurnesjum hefðu unnið vel saman. En ef hann ætti að greiða atkvæði með sameiningu yrði hann að hafa markmiðið skýrt og sjá að íbúar sveitarfélagsins fengju eitt- hvað út úr sameiningunni. „Það verð- ur að vera hagkvæmni í þessu fyrir fólkið, ekki bara fyrir ríkið,“ sagði Einar Jón. Þegar Hjálmar Árnason sleit fundi ítrekaði hann hvatningu sína til sveit- arstjórnanna að ræða sameiningar- málið og komast að niðurstöðu. Sveitarstjórnarmenn hvattir til að ræða sameiningu Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Böðvar Jónsson, formaður Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum, situr á milli Hjálmars Árnasonar, formanns félagsmálanefndar Alþingis, og Jóhönnu Sigurðardóttur nefndarmanns á fundi félagsmálanefndar með sveitarstjórnarmönnum. „Lögþvingun er það vitlaus- asta sem hægt er að gera“ Suðurnes BÆJARRÁÐ Grindavíkur hefur heimilað bæjarstjóra að vinna að greiningu á kostum og göllum þess að stofna eignarhaldsfélag fyrir fasteignir bæjarins í félagi við sveitarfélögin á Suðurnesjum, önn- ur en Reykjanesbæ. Að frumkvæði forystumanna í hreppsnefnd Vatnsleysustrandar- hrepps hefur málið verið rætt óformlega milli stjórnenda Grinda- víkurbæjar, Sandgerðisbæjar, Gerðahrepps og Vatnsleysustrand- arhrepps. Hugmyndin er að stofna eignarhaldsfélag sem yfirtæki fast- eignir sveitarfélaganna fjögurra ef það þykir fýsilegt en Reykjanes- bær stóð síðastliðinn vetur að stofnun slíks félags í samvinnu við banka og sveitarfélög á höfuðborg- arsvæðinu. Ólafur Örn Ólafsson, bæjarstjóri í Grindavík, segir að nú sé einungis verið að heimila formlega vinnu við þessa athugun en samþykktin sé gerð án nokkurra skuldbindinga af hálfu Grindavíkurbæjar. Hugmynd um stofnun eignarhaldsfélags Grindavík Fjögur sveitarfélög í viðræðum EIGANDI Suðurvarar 1 fékk aðalverðlaun umhverf- isnefndar Grindavíkurbæjar fyrir árið 2003. Verðlaun og viðurkenningar nefndarinnar fyrir fallegustu garðana voru afhent fyrr í vikunni. Sigríður Sigurðardóttir fékk verðlaun nefndarinnar fyrir fallegan, vel gróinn og vel hirtan garð að Suð- urvör 1. Nokkrar viðurkenningar voru einnig veittar. Þannig fengu Þórný Harðardóttir og Guðjón Hauks- son að Baðsvöllum 18 viðurkenningu fyrir snyrtilega og stílhreina útfærslu á garði og innkeyrslu. Guð- munda Kristjánsdóttir og Páll J. Pálsson í Stafholti fengu viðurkenningu fyrir endurbyggingu gamals húss. Þá fengu Svæðisstjórn fatlaðra og íbúar í sam- býlinu við Túngötu 15 til 17 viðurkenningu fyrir snyrtilega umgengni húss og lóðar. Jóna Rut Jónsdóttir, formaður umhverfisnefndar sagði að það væri aðdáunarvert hve margir ein- staklingar í Grindavík hefðu verið duglegir við að fegra garða sína og frábært að sjá hvað trjágróður hefði vaxið vel undanfarin ár. „Það var alltaf talað um að það ætti ekki að vera hægt að rækta neitt hér útaf sjávarseltunni. En það hefur nú heldur betur afsannað sig. Hér í Grindavík eru margir fallegir garðar og margir enn í vinnslu og með hverju árinu sem líður munum við í nefndinni eiga sífellt erfiðara með að veita þessar viðurkenningar, úrvalið er að verða svo mikið. Einnig komum við með nýja viðurkenningu að þessu sinni en það er fyrir end- urbyggingu gamals húss. Það hefur orðið aukning í því að einstaklingar taka sig til og framkvæmi af hug- sjón slík verk. Teljum við að svona viðurkenningar geti verið hvatning til þeirra,“ sagði Jóna Rut. Umhverfisnefnd veitir árleg verðlaun og viðurkenningar Fallegasti garðurinn er að Suðurvör 1 Morgunblaðið/Garðar Páll Vignisson Fallegasti garðurinn er að Suðurvör 1. Þar ræður Sigríður Sigurðardóttir ríkjum. Þórný Harðardóttir og Guðjón Hauksson fengu viður- kenningu fyrir garðinn á Baðsvöllum 10. Grindavík Sandgerðisdagar verða settir við upphaf dagskrár í safnarðarheim- ilinu klukkan 20 í kvöld. Söngsveitin Víkingar og Kirkjukórinn koma fram á dagskránni í safnaðarheim- ilinu auk ýmissa annarra tónlistar- atriða og ljóðalesturs. Í kvöld verður einnig sundlaugarpartí, leiksýning í Púlsinum og dansleikur í Vitanum. Í DAG HÚSAGERÐIN ehf. í Keflavík átti lægsta tilboð í byggingu húss í miðbæ Sandgerðis sem hýsa mun bæjarskrifstofur, íbúðir Búmanna og fleira. Með samningum við Sandgerð- isbæ hefur húsnæðissamvinnu- félagið Búmenn tekið að sér að byggja upp hús í miðbæ Sandgerð- is, svokallað Miðnestorg, og annast rekstur fasteignanna. Byrjað verð- ur á byggingu húss þar sem fjórtán íbúðir Búmanna verða á efstu hæð, bæjarskrifstofur á miðhæð og bókasafn, salur og aðstaða fyrir þjónustufyrirtæki á jarðhæð. Fimm verktökum var gefinn kostur á að bjóða í byggingu húss- ins. Þegar tilboð voru opnuð kom í ljós að Húsagerðin ehf. í Keflavík átti lægsta tilboðið, liðlega 369,5 milljónir kr. sem er rúmlega 94% af kostnaðaráætlun verkkaupa. Bragi Guðmundsson í Garði átti lít- ið eitt hærra tilboð, rúmlega 370 milljónir, sem og Keflavíkurverk- takar sem voru tveimur milljónum þar fyrir ofan. Tilboð Hjalta Guð- mundssonar í Keflavík og Ís- lenskra aðalverktaka voru yfir kostnaðaráætlun sem hljóðaði upp á 392,5 milljónir kr. Fyrirhugað er að stjórnendur Búmanna og Sandgerðisbæjar hitt- ist í dag til að ákveða framhald málsins. Útboð Miðnestorgi Lægsta tilboð var 94% af áætlun Sandgerði

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.