Morgunblaðið - 29.08.2003, Qupperneq 21
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 2003 21
UNDANFARNA daga hefur verið
unnið að því að taka eitt íbúðar-
húsið við Lambanes-Reyki í Fljót-
um í tvennt og það var síðan flutt.
Fyrsti áfangastaður hússins er
Lambeyri í áður Lýtingsstaða-
hreppi þar sem unnið verður við
breytingar á því. Þaðan verður það
svo flutt til Sauðárkróks. Þar verð-
ur það sett á lóðina við gamla
barnaskólann og notað sem skóla-
dagheimili.
Húsið sem nú er komið á flakk
um Skagafjörð var upphaflega
byggt árið 1988 og er um 150 fer-
metrar að stærð. Það er byggt úr
timbri svokallað húseiningahús
sem framleidd voru á Siglufirði á
sínum tíma. Það var upphaflega
byggt í tengslum við starfsemi
Miklalax hf. Síðar eignaðist Fljóta-
hreppur húsið og við sameiningu
sveitarfélaga í Skagafirði varð það
eign sveitarfélagsins Skagafjarðar.
Húsið hefur verið leigt út vegna
þess fiskeldis sem hefur verið í
gangi á Lambanes-Reykjum síð-
ustu misseri en þeirri starfsemi
lýkur senn. Óvissa um áframhald-
andi nýtingu þess í Fljótum er m.a.
ástæða þess að sveitarfélagið réðst
í að flytja húsið og breyta því í
skólamannvirki.
Friðrik Rúnar Friðriksson bygg-
ingameistari sá um að taka húsið í
sundur. Hann sagði í samtali að
stærri hluti hússins væri hefðbund-
inn kassi og svo væri útbygging
um 50 fermetrar að stærð. Byrjað
var á að taka útbygginguna frá
hinum hlutanum.
Sagað neðan af húsinu
Friðrik sagðist hafa verið búinn
að brjóta talsvert heilann um hvort
það væri mögulegt og borgaði sig
kostnaðarlega að taka húsið svona í
sundur, flytja það og setja saman á
ný. Til að gera þetta mögulegt varð
að saga smávægilega neðan af hús-
inu, þannig var unnt að komast að
tengijárnum sem festu það við
sökkulinn. Síðan var komið fyrir
öflugum lyftubúnaði undir sperru-
endum hússins og það tjakkað upp
og rennt undir það stálbitum sem
það mun standa á í framtíðnni.
Friðrik Rúnar sagði að verkið hefði
í raun gengið ágætlega og eftir
áætlun, hins vegar væri mikil vinna
eftir því bæði þarf að breyta inn-
réttingum með tilliti til breyttrar
notkunar og svo kemur alveg nýtt
gólf í húsið. Hann treysti sér því
ekki til að segja hvenær það yrði
tekið í notkun á Sauðárkróki. Þess
má að lokum geta að Friðrik Rún-
ar hefur byggt nokkur timburhús á
undanförnum árum og flutt þau
nánast fullfrágengin til kaupenda
víðsvegar á Norðurlandi.
Ljósmynd/Örn Þórarinsson
Eins og sjá má var flutningabílnum bakkað undir stærri hluta hússins eftir
að búið var að taka það í sundur. Vel gekk að slaka því niður á bílinn.
Íbúðarhús
tekið í tvennt
og flutt um
Skagafjörð
Fljót
RÉTTAÐ verður í báðum skilarétt-
um Mývetninga sunnudaginn 31.
ágúst. Heildarfjártala í sumarhögum
er á þrettánda þúsund. Búast má við
að um 1.500 fjár verði á Baldurs-
heimsrétt og 2–3 þús á Hlíðarrétt, þó
er þetta óviss tala en nokkrir bænd-
ur hafa sitt fé alfarið í heimalöndum.
Nú eru göngurnar aðeins tveggja
daga og breytingar verða á fyrir-
komulagi, til dæmis eru menn farnir
að leita á fjórhjólum og torfæruhjól-
um þótt enn séu hestar einnig not-
aðir. Hér er gömul hestavísa mý-
vetnsk:
Meðan sprettur ull á ám
Austur skal ég ríða Glám
Víða á fjöllin tylla tám
Teiga af lindum himinblám
Að venju eru kaffisala á Hlíðarrétt
á vegum svd. Hrings. Þar eru ætíð
úrvals veitingar.
Þótt fénu fækki, fjölgar fólkinu
sem hefur ánægju af að fylgjast með
á réttinni. Mest líf er á réttum frá um
kl. 9. Bændur í Mývatnssveit slátra
að mestu hjá Norðlenska á Húsavík
en eitthvað er um slátrun haust-
lamba héðan, á Kópaskeri og jafnvel
á Sauðárkróki.
Réttir í Mý-
vatnssveit
Mývatnssveit
Morgunblaðið/Birkir Fanndal