Morgunblaðið - 29.08.2003, Side 25
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 2003 25
Ráðgjafi frá Clinique verður í Hagkaup Kringlunni og Hagkaup Smáralind
frá kl. 13-17 í dag föstudag og á morgun laugardag.
GÓÐ
GJÖF
100% ilmefnalaust
Kaupauki!
5 hlutir í tösku!
Ef þú kaupir 2 hluti frá CLINIQUE
er þessi gjöf til þín.*
• Dramatically Diffrent Moisturizing lotion 15 ml.
• NÝTT - Anti-Gravity Firming Lift Mask 30 ml.
• Sparkle Skin Body Exfoliating Cream.
• Soft-Pressed Powder kinnalitur.
• Colour Surge varalitur.
Meðan birgðir endast*
w
w
w
.c
lin
iq
ue
.c
om
HAMRAHLÍÐARKÓRINN
hyggst hleypa heimdraganum og
stefnir til Filippseyja og af því til-
efni hélt kórinn tón-
leika í Háteigskirkju sl.
miðvikudag, undir
stjórn Þorgerðar Ing-
ólfsdóttur. Á efnis-
skránni voru íslensk
þjóðlög og þar var
sálmurinn, sem oft er
sunginn við „drusluna“
Ó, mín flaskan fríða,
sunginn við textann
María meyjan skæra
og féll mjög vel á með
lagi og texta, enda vel
sungið. Ein fallegasta
útsetningin á efnisskrá
tónleikanna er Fagurt
er í fjörðum, í gerð
John Hearne og var
auk þess einstaklega fallega sungið.
Stóðum tvö í túni er ástar- og trega-
kvæði og með hliðsjón af því, er út-
setning Hjálmars H. Ragnarssonar
svolítið gáleysisleg, þótt vel sé unn-
in. Íslenska þjóðlagahlutanum lauk
með klassík Róberts A. Ottóssonar
á Björt mey og hrein. Það þarf í
raun ekkert að tíunda það frekar, að
söngur Hamrahlíðarkórsins, undir
stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur,
snertir á einhvern hátt við hlust-
endum, að ekki verður til neins jafn-
að og þar var túlkun unga fólksins á
Fagurt er í fjörðum algerlega óvið-
jafnanlega fögur.
Norskt þjóðlag, Den dag, í út-
færslu Kaus Egge, var næst á efnis-
skránni og er þar víxlað með karla-
og kvenraddir á skemmtilegan máta
og jafnvel sungið í keðju og endað á
fullri kórskipan sem kórinn skilaði
af öryggi. Vorið dunar, eftir Þorkel
Sigurbjörnsson, var vel sungið en
þar sem söngur kórsins reis hæst í
tónfegurð var í lögunum Kvöldvísur
um sumarmál eftir Hjálmar H.
Ragnarsson og þó sérstaklega í frá-
bæru lagi Jóns Nordal Vorkvæði um
Ísland, við kvæði Jóns
Óskars. Vikivaki Atla
Heimis Sveinssonar
var skemmtilega út-
færður í leik. Alleluja,
eftir Argipino V.
Diestro (1963) er fal-
legt en hefðbundið að
gerð, þó að tónskáldið
leiki sér með að skipta
textanum upp í at-
kvæði og gefa hverri
rödd eitt atkvæði til að
syngja. Þetta hljómaði
ekki illa en að öðru
leyti er tónsmíðin lit-
laus, þrátt fyrir að
vera sérlega vel flutt.
Tónleikarnir enduðu á
Recessional eftir Þorkel Sigur-
björnsson og eftir útgönguna söng
kórinn á tröppum kirkjunnar Hald-
iðún Gróa, eftir Gunnar Reyni
Sveinsson.
Hamrahlíðarkórinn er frábær
kór. Það er með ólíkindum hve Þor-
gerði tekst að laða fram fagran söng
hjá unga fólkinu og snerta við
dýpstu duldum tilfinninganna, eins
og sérstaklega í lögunum Fagurt er
í fjörðum, Kvöldvísum um sumarmál
og Vorkvæðinu um Ísland, er voru
perlur tónleikanna.
Perlur tónleikanna
TÓNLIST
Háteigskirkja
Hamrahlíðarkórinn undir stjórn Þorgerðar
Ingólfsdóttur flutti íslensk þjóðlög og
kórverk eftir Þorkel Sigurbjörnsson,
Hjálmar H. Ragnarsson, Jón Nordal,
Gunnar Reyni Sveinsson og Agripino V.
Diestro. Miðvikudagur 27. ágúst.
KÓRSÖNGUR
Jón Ásgeirsson
Þorgerður Ingólfsdóttir
Listasafn Íslands
Sumarsýningu Listasafns Ís-
lands lýkur á sunnudag. Sýningin
er ágrip af innlendri listasögu, þar
eru sýnd verk frá helstu umbrota-
tímum íslenskrar listasögu. Lista-
safnið keypti verkið Móðir Jörð
eftir Jón Stefánsson nýverið og er
það nú sýnt í fyrsta sinn eftir að
Listasafnið eignaðist það.
Opið alla daga, nema mánudaga,
frá kl. 11–17.
Listasafn Reykjavíkur –
Hafnarhúsi
Sýningunni Humar eða frægð –
Smekkleysa í 16 ár lýkur á sunnu-
dag.
Safnið er opið alla daga kl. 10–
17.
Ljósmyndasafn Reykja-
víkur, Grófarhús
Sýningu á ferðadagbókum Claire
Xuan lýkur á mánudag. Sýningin
nefnist Frumefnin fimm.
Sýningin er opin kl. 12–19 virka
daga, 13–17 um helgar. Aðgangur
er ókeypis.
Gallerí Sævars Karls
Sýningu Karls Kristjáns Davíðs-
sonar og Cesco Soggiu lýkur á
laugardag kl. 16.
Gallerí Hlemmur
Sýningu Guðrúnar Benónýsdótt-
ur lýkur á sunnudag. Guðrún sýnir
ljósmynd og skúlptúra sem fædd-
ust á árunum 2000–2002.
Opið fimmtudaga til sunnudaga
frá kl. 14–18.
Gallerí Skuggi
Málverkasýningu Valgarðs
Gunnarssonar lýkur á sunnudag. Á
sýningunni eru u.þ.b. 20 nýleg verk
sem eru eins konar kvarkhug-
myndir um innri og ytri veruleika
eins og hann birtist listamanninum.
Opið fimmtudaga til sunnudaga
kl. 13–17. Aðgangur er ókeypis.
Sýningum
lýkur
STOPPLEIKHÓPURINN er nú að hefja 8. leikárið en
á verkefnaskránni eru þrjú íslensk leikrit og leik-
gerðir, ætluð miðstigi grunnskóla, unglingadeildum
og leikskólum.
Æfingar eru nú að hefjast á nýju íslensku leikriti
hjá leikhópnum. Það nefnist Landnáma og er eftir
Valgeir Skagfjörð. Verkið fjallar um landnám Íslands
og sögu Ingólfs Arnarsonar, tildrög þess að hann tók
sig upp og hélt til Íslands með allt sitt hafurtask,
með konu sinni, þrælum, búpeningi og síðast en ekki
síst fóstbróður sínum Hjörleifi Hróðmarssyni. Leik-
ritið er ætlað sem innlegg inn í landnámssögukennslu
grunnskólanema á aldrinum 9–12 ára. Leikarar eru
Eggert Kaaber og Katrín Þorkelsdóttir en leikstjóri
Valgeir Skagfjörð. Frumsýnt verður í lok september
2003.
Frá fyrra leikári er tekið upp unglingaleikritið Í
gegnum eldinn eftir Valgeir Skagfjörð sem byggt er
á samnefndri bók eftir Ísak Harðarson og Thollý
Rósmundsdóttur en sl. vetur urðu sýningar 80 talsins
á leikritinu fyrir efstu bekki grunnskólans. Tveir
leikarar fara með 25 hlutverk í sýningunni, þau
Brynja Valdís Gísladóttir og Eggert Kaaber. Leik-
stjóri er Valgeir Skagfjörð.
Fyrir leikskólana og yngstu bekki grunnskólans
sýnir Stoppleikhópurinn síðan barnaleikritið Palli var
einn í heiminum en verkið er ný leikgerð leikhópsins
á hinni vinsælu barnabók eftir Jens Sigsgaard.
Morgunblaðið/Ómar
Stoppleikararnir Katrín Þorkelsdóttir og Eggert Kaaber gefa höfundinum, Valgeiri Skagfjörð, engin grið.
Landnám Stoppleikhópsins
ÞÝSK-ÍSLENSKA menningar-
félagið í Stuttgart hefur gefið út
Isländische Literatur in deutscher
Übersetzung
1860–2000.
Þetta er
safnrit um ís-
lenskar bók-
menntir sem
út hafa kom-
ið í þýskum
þýðingum
tímabilið
1860–2000.
Samantekt
bókarinnar
annaðist Christine Knüppel, safn-
vörður norrænu deildarinnar í há-
skólabókasafninu í Kiel.
Félagið DIS – Þýsk-íslenska
menningarfélagið í Stuttgart var
stofnað árið 1990 og gaf þá út yf-
irlitsrit um allar þýðingar ís-
lenskra bókmennta á þýsku tíma-
bilið 1860–1990. Annaðist
Christine Knüppel einnig þá sam-
antekt. Að sögn Helga B. Sæ-
mundssonar formanns DIS kom
mikill fjöldi nýrra þýðinga út á
þýsku áratuginn 1990–2000 og því
bað félagið Christine að endur-
nýja bókina með viðbættum upp-
lýsingum um allar nýju þýðing-
arnar.
Bókin er 176 blaðsíður, með ít-
arlegum skrám og skýringum
ásamt æviágripi og mynd af öllum
rithöfundum sem nefndir eru í
bókinni. Útgefandi er Seltmann&
Hein í Köln, forsíðumynd er eftir
Ósvald Knudsen og Íslandsmyndir
inni í bókinni eru eftir Maríu Guð-
mundsdóttur.
Ritið er hægt að panta hjá DIS
– Deutsch-Isländisches Kulturfor-
um e.V., D-70197 Stuttgart.
Safnrit um
íslenskar
bókmennt-
ir á þýsku