Morgunblaðið - 29.08.2003, Page 37
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 2003 37
ATVINNUHÚSNÆÐI
Skrifstofuherbergi/leiga
Til leigu rúmgóð, nýinnréttuð skrifstofu-
herbergi í 104 Reykjavík. Beintengt
öryggiskerfi. Sameiginleg kaffistofa.
Upplýsingar í síma 896 9629.
NAUÐUNGARSALA
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum sem hér segir:
Búðavegur 35, Fáskrúðsfirði ásamt öllum rekstrartækjum (217-7808),
þingl. eig. Hermann Steinsson og Þóra Kristjánsdóttir, gerðarbeið-
endur Búnaðarbanki Íslands hf., Byggðastofnun, Glitnir hf. og Lands-
banki Íslands hf., aðalstöðvar, mánudaginn 1. september 2003
kl. 10:50.
Fagrihvammur, Djúpavogshreppi (159-105), þingl. eig. Guðbjörg
Stefánsdóttir og Jón Sölvi Ólafsson, gerðarbeiðendur Byko hf.,
Íbúðalánasjóður, Íslandsbanki hf., útibú 526, Landsbanki Íslands
hf., útibú, Landssími Íslands hf., innheimta og Sparisjóður Hafnar-
fjarðar, mánudaginn 1. september 2003 kl. 14:00.
Hamarsgata 15, Fáskrúðsfirði (217-7930), þingl. eig. Guðfinna Erlín
Stefánsdóttir, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður, Landsbanki Íslands
hf., aðalstöðvar og Sjóvá-Almennar tryggingar hf., mánudaginn
1. september 2003 kl. 10:30.
Heiðmörk 13, Stöðvarfirði (217-8347), þingl. eig. Kristín Bjarney
Ársælsdóttir og Sveinn Orri Harðarson, gerðarbeiðendur Kaupfélag
Héraðsbúa, Landssími Íslands hf., innheimta og Verkmenntaskóli
Austurlands, mánudaginn 1. september 2003 kl. 11:40.
Hlíðarendavegur 4B, Eskifirði, þingl. eig. Kristjana Guðnadóttir,
gerðarbeiðandi Búnaðarbanki Íslands hf., mánudaginn 1. september
2003 kl. 9:15.
Sýslumaðurinn á Eskifirði,
28. ágúst 2003.
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins á Strandgötu
52, Eskifirði, sem hér segir á eftirfarandi eign:
Búðareyri 6, Reyðarfirði, auk rekstrartengds búnaðar og tækja, þingl.
eig. Hótel 730 ehf., gerðarbeiðendur Byggðastofnun, Ferðamálasjóð-
ur og Fjarðabyggð, mánudaginn 1. september 2003 kl. 9:00.
Sýslumaðurinn á Eskifirði,
28. ágúst 2003.
TILKYNNINGAR
Auglýsing
Breyting á deiliskipulagi í Hálsabyggð
fyrir frístundahús í landi Laufáss,
Borgarbyggð.
Um er að ræða stækkun frá núverandi upp-
drætti þ.a. rými verður fyrir fleiri frístundahús.
Samkvæmt ákvæðum 26. gr skipulags- og
byggingarlaga nr. 73/1997, er hér með lýst eftir
athugasemdum við ofangreindar breytingar
á deiliskipulaginu.
Tillagan mun liggja frammi á Bæjarskrifstofu
Borgarbyggðar frá 27. ágúst 2003 til 24. sept-
ember 2003.
Athugasemdum skal skila á bæjarskrifstofuna
fyrir 8. október 2003 og skulu þær vera skrifleg-
ar.
Borgarnesi, 15. ágúst 2003.
Bæjarverkfræðingur Borgarbyggðar.
SKIPULAGS- OG BYGGINGARSVIÐ
Auglýsing um breytingu
á deiliskipulagi í Reykjavík
Í samræmi við og 25. gr. skipulags- og
byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari
breytingum, eru hér með auglýst til kynningar
tillaga að breytingu á deiliskipulagsáætlun í
Reykjavík:
Rimaskóli.
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi vegna
Rimaskóla stækkun lóðar og viðbygginga við
skólann.
Tillagan gera m.a. ráð fyrir að lóð stækki til
norðurs inn á lóð sem áður var skilgreind sem
lóð fyrir skóla og leikskóla við Sóleyjarrima.
Fyrirhugað er að byggja við Rimaskóla rými
fyrir skóla- og leikskólastarfsemi. Leiksvæði
verða í tengslum við viðbyggingu. Hæð við-
byggingar er ein til tvær hæðir, gerður er nýr
byggingareitur fyrir viðbyggingu og afmark-
aður reitur fyrir núverandi byggingu.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Tillagan liggur frammi í upplýsingaskála
skipulags- og byggingarsviðs í Borgartúni 3, 1.
hæð, virka daga kl. 08:20 – 16.15, frá 27.
ágúst 2003 - til 10. október 2003. Einnig má
sjá tillöguna á heimasíðu sviðsins, skipbygg.is.
Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta
hvattir til að kynna sér tillöguna. Ábendingum
og athugasemdum við hana skal skila
skriflega til skipulagsfulltrúa eigi síðar en 10.
október 2003.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan
tilskilins frests, teljast samþykkja tillöguna.
Reykjavík, 29. ágúst 2003.
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
✝ Eva SigríðurBjarnadóttir
fæddist í Reykjafirði
við Ísafjarðardjúp 6.
júlí 1919. Hún lést á
Borgarspítalanum
20. ágúst síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Bjarni Hákonar-
son, f. 28. apríl 1890,
d. 20.5. 1965, og Guð-
rún Ólafsdóttir, f.
14.12.1892, d. 5.5.
1957. Systkini Evu
Sigríðar eru Arndís,
f. 10.4. 1918, Jó-
hanna, f. 13.7. 1922,
Steinunn Gróa, f. 9.9. 1924, d. 7.8.
1987, Hákon, f. 29.2. 1928, Kristín
Sólborg f. 15.2. 1929, d. 19.1. 1931,
og Ólafur Friðrik f. 27.10. 1933.
Eiginmaður Evu var Ólafur
Bjartdal Þórðarson kjötiðnaðar-
maður, f. á Hellissandi 24.10. 1917,
d. 21.4. 1995. Foreldrar hans voru
hjónin Þórður Árnason sjómaður
á Hellissandi, f. í Flatey á Breiða-
firði 24.3. 1880, d. 30.11. 1922, og
María Guðbjörg Sigurgeirsdóttir,
f. í Haga í Staðarsveit á Snæfells-
nesi 2.6. 1885, d. 28.5. 1967.
Eva og Ólafur eiga tvær dætur,
þær eru: 1) Guðrún, f. 24.4. 1949,
gift Pétri Friðrik
Þórðarsyni, f. 25.5.
1951. Dætur þeirra
eru: a) Guðný Eva, f.
29.6. 1972, sambýlis-
maður Anders Már
Þráinsson, f. 7.7.
1970, b) Kolbrún
Hrönn, f. 3.9. 1975,
sambýlismaður Árni
Árnason, f. 7.11.
1973, sonur þeirra er
Árni Pétur, f. 2.1.
2002, og c) Hanna
Björg, f. 11.9. 1981,
d. 16.8. 1999. 2)
Kristín Sólborg, f.
11.8. 1954, d. 14.9. 1999. Eigin-
maður Kristínar er Ingi Arnar
Pálsson, f. 26.6. 1952. Sonur þeirra
er Ólafur Ragnar, f. 19.11. 1974,
sonur hans og fyrri sambýliskonu
hans, Sunnu Óskar Logadóttur, f.
8.11. 1973, er Arnar Logi, f. 11.2.
1993. Eiginkona Ólafs Ragnars er
Steinunn Rut Ægisdóttir, f. 3.4.
1976, dóttir þeirra er Kristín Sól-
borg, f. 13.1. 2000. Dóttir Stein-
unnar Rutar er Sonja Lára, f. 6.2.
1995.
Útför Evu Sigríðar verður gerð
frá Bústaðakirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 15.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(Vald. Briem.)
Elsku amma.
Það er erfitt að skilja við þá sem
hafa verið hornsteinar í lífi manns, í
sorg jafnt sem gleði. Frá því við mun-
um eftir okkur varstu alltaf til staðar
en við vitum að þú varðst hvíldinni
fegin og að það hefur verið tekið vel á
móti þér.
Þú varst sterk eins og klettur og
stóðst af þér hvert áfallið á fætur
öðru síðustu árin þrátt fyrir að heils-
unni væri farið að hraka, en um síðir
verður allt undan að láta.
Við minnumst þín sem sterkrar og
fórnfúsrar konu sem setti fjölskyld-
una ofar öllu. Þið afi elskuðuð bæði að
ferðast og ókuð landshornanna á
milli oft á ári til að vera hjá dætrum
og barnabörnum á hátíðum og við
ýmis tækifæri. Gestrisni og hlýja ein-
kenndu þig og báðar nutum við þess
sérstaklega þegar við bjuggum hjá
ykkur afa, hvor í sínu lagi, fyrstu
menntaskólaárin. Við munum ætíð
minnast ykkar beggja með söknuði
og hlýju og alls sem þið gáfuð okkur
og kennduð.
Okkur þykir vænt um að litli lang-
ömmustrákurinn, Árni Pétur, hafi
fengið að kynnast þér þótt samveran
yrði stutt. Við erum líka þakklátar
fyrir allar samverustundirnar sem
við áttum með þér og sögurnar frá
gömlu dögunum sem þú sagðir okk-
ur.
Farðu í friði, elsku amma. Við
munum sakna þín.
Guðný Eva og
Kolbrún Hrönn.
Elsku langamma.
Takk fyrir allar góðu stundirnar
sem við áttum saman. Takk sérstak-
lega mikið fyrir að taka á móti mér á
fimmtudögum síðasta vetur, spila við
mig rússa og baka fyrir mig heimsins
bestu pönnukökur þó að þú værir
þreytt. Nú getur þú hvílt þig vel. Ég
sakna þín.
Þinn
Arnar Logi.
Það sækir margt á hugann á tíma-
mótum sem þessum.
Elskuleg móðir og tengdamóðir
kveður eftir erfið veikindi. Æðruleysi
hennar algjört og kom ekki á óvart.
Þannig var hún alltaf.
Heimili hélt hún þar til síðastliðið
vor og þar var þjóðbraut þver fjöl-
skyldunnar. Einstök móðir dætra
sinna og tengdasona. Ömmu- og
langömmubörnin finna sárt til miss-
isins.
Í bernsku ólst hún upp í Reykja-
firði við Ísafjarðardjúp með foreldr-
um sínum en fluttist með þeim til Ak-
ureyrar árið 1931, þá tólf ára gömul.
Þar bjó hún unglingsárin en fluttist
síðan með foreldrum sínum til
Reykjavíkur.
Hún gekk í Húsmæðraskólann í
Reykjavík veturinn 1942–1943 og þar
eignaðist hún nokkrar af sínum bestu
vinkonum. þaðan átti hún ánægjuleg-
ar minningar sem hún rifjaði stund-
um upp með sínum nánustu.
Eftir námið í Húsmæðraskólanum
dreymdi hana um að fara til Noregs
til frekara náms, en aðstæður komu í
veg fyrir þá fyrirætlan. Hún var list-
feng og saumaði af einstakri smekk-
vísi klæðnað á sig og sína. Hún veikt-
ist af berklum og átti í því lengi og fór
í meðferð á Vífilsstaði.
Í Reykjavík kynntist hún Ólafi
Bjartdal síðar eiginmanni sínum sem
hún giftist 14. maí 1948. Þau byggðu
ásamt foreldrum Evu hús við Efsta-
sund og bjuggu þau þar uns þau flutt-
ust í Löngubrekku í Kópavogi árið
1963. Þaðan lá svo leiðin í Gyðufellið
og loks í Neðstaleiti, en þar keyptu
þau íbúð 1992 sem varð heimili þeirra
síðustu árin.
Eva var dugnaðarforkur. Eftir að
námi lauk vann hún um tíma á skrif-
stofu Strætisvagna Reykjavíkur en
eftir að hún stofnaði eigið heimili með
eiginmanni sínum sá hún um veislur í
Borgartúni 7 árum saman. Síðar
vann hún ýmis störf, lengst við
sauma. Hún þótti alls staðar vand-
virk og framúrskarandi starfsmaður.
Ólafur og Eva voru dugleg að
ferðast. Meðan dæturnar voru á
barnsaldri voru flestar helgar að
sumarlagi nýttar til ferðalaga um ná-
grenni höfuðborgarinnar. Í sumarfrí-
um óku þau um landið þvert og endi-
langt og komu til flestra staða í
byggð. Meðan dæturnar bjuggu með
fjölskyldum sínum á sínu landshorn-
inu hvor létu þau sig ekki muna um
að koma í heimsókn í öllum fríum,
ýmist akandi eða fljúgandi.
Við fórum saman í mörg ferðalög
innanlands og utan. Minnistætt er
ferðalag sem öll stórfjölskyldan fór
til Englands þar sem dvalist var í
hálfan mánuð og farið í fljótasiglingu
í stórum fljótabáti sem við tókum á
leigu.
Elsku mamma. Við söknum þín og
þökkum fyrir okkur og börnin okkar.
Við færum læknum og öðru starfs-
fólki sjúkrahússins sem annaðist
hana bestu þakkir.
Guðrún og Pétur.
EVA SIGRÍÐUR
BJARNADÓTTIR
MINNINGARGREINUM þarf
að fylgja formáli með upplýsing-
um um hvar og hvenær sá sem
fjallað er um er fæddur, hvar og
hvenær dáinn, um foreldra
hans, systkini, maka og börn og
loks hvaðan útförin verður gerð
og klukkan hvað. Ætlast er til að
þetta komi aðeins fram í formál-
anum, sem er feitletraður, en
ekki í greinunum sjálfum.
Formáli
minningar-
greina