Morgunblaðið - 29.08.2003, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 2003 39
Framhaldsskólinn á Laugum
650 Laugar, sími 464 6300, fax 464 3163
Framhaldsskólinn á Laugum verður settur
sunnudaginn 31. ágúst kl. 18.00 í íþróttahúsi
skólans. Heimavistir verða opnaðar kl. 13.00
sama dag.
Allir velunnarar skólans hjartanlega velkomnir.
Skólameistari Framhalds-
skólans á Laugum.
Trésmiðir - Píparar
Byggingaverkamenn
Vegna aukinna verkefna óskar JB Bygg-
ingafélag eftir að ráða trésmiði, pípara
og byggingaverkamenn. Nánari upp-
lýsingar gefa Magnús Kristjánsson í
síma 544 5333 og Kristján Yngvason í
síma 693 7005
Umsóknir berist á skrifstofu JB Bygg-
ingafélags, Bæjarlind 4. Einnig er hægt
að sækja um á heimasíðu félagsins
www.jbb.is eða senda umsókn með
tölvupósti á magnus@jbb.is.
Hjá JB Byggingafélagi er boðið er upp
á góða starfsaðstöðu og líflegt starfs-
mannafélag. Næg verkefni eru fram-
undan.
JB Byggingafélag, Bæjarlind 4,
s. 544 5333.
Umsóknir um styrki
Kristnihátíðarsjóður, sem starfar samkvæmt lögum nr. 12 frá 28. febrúar 2001, var stofnaður
til að minnast þess að 1000 ár eru liðin frá því að kristinn siður var lögtekinn á Íslandi. Hlutverk
sjóðsins er tvíþætt:
- að efla fræðslu og rannsóknir á menningar- og trúararfi þjóðarinnar og stuðla að umræðum
um lífsgildi hennar, siðferði og framtíðarsýn;
- að kosta fornleifarannsóknir á helstu sögustöðum þjóðarinnar, m.a. á Þingvöllum, í Skálholti
og á Hólum.
Starfstími sjóðsins er til ársloka 2005. Ríkissjóður leggur sjóðnum til 100 m. kr. fyrir hvert
starfsár.
Stjórn Kristnihátíðarsjóðs auglýsir hér með eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum. Í samræmi
við hlutverk sjóðsins verða styrkir veittir til tveggja sviða, menningar- og trúararfs og fornleifa-
rannsókna. Á árinu 2003 verður 55% af úthlutunarfé sjóðsins veitt til fornleifarannsókna en
45% til menningar- og trúararfs.
Þeir sem fengu styrk úr sjóðnum á síðastliðnu starfsári hans þurfa að sækja um á ný, óski
þeir eftir áframhaldandi stuðningi Kristnihátíðarsjóðs. Sjóðurinn mun leitast við að styðja
þau verkefni sem hlutu styrk við síðustu úthlutun, enda uppfylli þau kröfur um framvindu
og árangur.
Menningar- og trúararfur
Sjóðurinn veitir styrki til að efla þekkingu og vitund um menningar- og trúararf þjóðarinnar.
Einkum verður litið til margvíslegra verkefna er tengjast almenningsfræðslu, umræðum og
rannsóknum og skulu verkefnin m.a.
a. miðla fróðleik um siðferðis- og trúarhugmyndir sem mótað hafa þjóðina, t.d. með gerð
fræðslu- og námsefnis;
b. stuðla að umræðum um lífsgildi þjóðarinnar, siðferði og framtíðarsýn, t.d. fyrir tilstilli mennta-
og menningarstofnana eða fjölmiðla; og
c. efla rannsóknir á menningar- og trúararfi íslensks samfélags.
Fornleifarannsóknir
Sjóðurinn veitir styrki til fornleifarannsókna, bæði uppgraftar og skráningar fornleifa, auk
kynningar á niðurstöðum rannsókna. Einkum verður litið til rannsóknarverkefna er varða:
a. mikilvæga sögustaði þjóðarinnar, m.a. Þingvelli, Skálholt og Hóla í Hjaltadal;
b. aðra staði tengda sögu kristni á Íslandi, m.a. klaustur og kirkjustaði;
c. aðra mikilvæga sögustaði, s.s. verslunarstaði, miðaldabæi og þingstaði.
Einnig verður tekið tillit til samvinnu umsækjenda við innlendar og erlendar rannsóknarstofnanir
eða fræðimenn og áhersla verður lögð á þjálfun og handleiðslu ungra vísindamanna á sviði
fornleifafræði á Íslandi.
Umsóknir
Gerðar eru skýrar faglegar og fræðilegar kröfur til umsækjenda. Miðað er við að verkefnin,
sem styrkt eru við næstu úthlutun, verði unnin á árinu 2003. Umsóknir skulu taka til eins árs
í senn en Kristnihátíðarsjóður mun styrkja verkefni sem unnin eru á starfstíma sjóðsins og
á árinu 2006. Ekki verða veittir styrkir til verkefna sem þegar er lokið.
Einungis verður tekið við umsóknum á þar til gerðum eyðublöðum. Þau má finna á heimasíðu
forsætisráðuneytis (raduneyti.is, sjá forsætisráðuneyti, Kristnihátíðarsjóður). Enn fremur
má nálgast eyðublöð á skrifstofu ráðuneytisins, Stjórnarráðshúsinu við Lækjartorg (sími 545
8400, netfang kristnihatidarsjodur@for.stjr.is). www.forsaetisraduneyti.is.
Umsóknarfrestur er til 19. september 2003 og verður úthlutað úr sjóðnum hinn 1. desember
2003. Umsóknir til Kristnihátíðarsjóðs skal senda forsætisráðuneytinu, Stjórnarráðshúsinu
við Lækjartorg, 150 Reykjavík.
Stjórn Kristnihátíðarsjóðs 28. ágúst 2003.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
Ísaumur - Bróderingar
Þekkt og framsækið fyrirtæki á höfuðborgar-
svæðinu óskar eftir duglegum starfskrafti við
ísaum (bróderingar), helst vanur, þó ekki skil-
yrði. Góð vinnuaðstaða og vinnuandi á reyk-
lausum vinnustað. Ef þú ert áhugasamur/
(söm), stundvís og tilbúin(n) að takast á við
ýmis krefjandi verkefni, sendu þá inn umsókn
til augldeildar Mbl. merkta: „0220 Atv“ með
uppl. um aldur og fyrri störf.
Öllum umsóknum verður svarað.
UPPBOÐ
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni sjálfri
sem hér segir:
Sumarbústaður í landi Yzta-Skála II og IV, Rangárþingi eystra, talinn
eigandi Sigurjón Eyþór Einarsson, gerðarbeiðandi sýslumaðurinn
á Hvolsvelli, fimmtudaginn 4. september 2003 kl. 11.00.
Sýslumaðurinn á Hvolsvelli,
28. ágúst 2003.
Uppboð
Uppboð mun byrja á skrifstofu embættisins á Austurvegi
6, Hvolsvelli, sem hér segir á eftirfarandi eign:
Spilda úr landi Drangshlíðar I, Rangárþingi eystra, lnr. 192023, fnr.
219-1054, þingl. eig. Jón Guðmundsson, gerðarbeiðendur sýslumað-
urinn á Hvolsvelli og Tollstjóraskrifstofa, þriðjudaginn 2. september
2003 kl. 11:00.
Sýslumaðurinn á Hvolsvelli,
28. ágúst 2003.
KENNSLA