Morgunblaðið - 29.08.2003, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 29.08.2003, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 2003 41 DAGBÓK STJÖRNUSPÁ Frances Drake MEYJA Afmælisbörn dagsins: Kjarkinn skortir afmæl- isbarn dagsins ekki, heldur er það sem klettur. Eins vantar ekki peningavitið og skipulagshæfileikana. Þú nýtur virðingar annarra. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Á þig leggst meiri vinnu- skylda en áður, en það plagar þig ekki að ráði því þetta leiðir til bætts skipulags. Þú veist þú uppskerð laun erfiðisins. Naut (20. apríl - 20. maí)  Ráðagerðir þínar sem varða sköpun munu bera ávöxt í dag. Þér kann líka að bjóðast tækifæri til að kenna barni mikilvæga lexíu. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Inntu af hendi í dag verkefni sem lúta að fasteignamálum. Ef þú fæst við slíkt í dag, eða viðgerðir og lagfæringar, mun það bera góðan ávöxt. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Tímabært er að ganga frá gömlum viðskiptamálum. Dagurinn hentar vel til við- skipta, sérstaklega ef það er tengt listum og sköpun. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Úrvalsdagur er til að fjárfesta í listum með langtímafjárfest- ingu í huga. Hvernig sem þú verð peningum þínum í dag muntu njóta góðs af því til langframa. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Láttu ekki hjá líða að sinna samböndum þínum við þá sem standa þér næst. Nú er rétti tíminn til að setjast niður með ástvinum og ræða málin. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Búast má við að þú þurfir að vinna annarra manna verk í dag, en þú tekur þessu með já- kvæðum hug. Þú vinnur verk- ið vel og hratt fyrir vikið. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Eiga máttu von á góðum ráð- um frá gömlum vini. Öll sam- skipti við fólk þér eldra munu í dag færa þér mikilvægan fróðleik sem nýtast mun vel. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Sinntu yfirmanni þínum í dag. Gott er að ræða saman því samskiptaskortur veldur því oft að hvorugur veit til hvers er ætlast. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Tilvalið er að verja deginum í að styrkja vináttubönd eða kynda ástarbálið. Þú hefur orkuna til að sjá hlutina frá mörgum sjónarhornum. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Undirstaða gjörða þinna í dag er vandvirkni og alúð. Þér reynist létt að ganga skrefi lengra til að gera betur og já- kvætt viðhorf gerir það enn auðveldara. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Reyndu að nota daginn til að sýna kunningjum og ástvinum nákvæmlega hvers þú ætlast til af samböndum þínum við þá. Það mun gagnast þér vel. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. SÓLBRÁÐ Sólbráðin sezt upp á jakann, sezt inn í fangið á hjarni. Kinn sína leggur við klakann, kát eins og augu í barni. Seytlan úr sporunum sprettir, spriklar sem glaðasta skrýtla. Gutlandi, litlir og léttir, lækirnir niðr eftir trítla. Ólöf Sigurðardóttir frá Hlöðum LJÓÐABROT ÁRNAÐ HEILLA 75 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 29. ágúst, er 75 ára Sigurjón Friðriksson, bóndi, Ytri- Hlíð í Vopnafirði. Eigin- kona hans er Guðrún Björg Emilsdóttir. Þau verða að heiman með fjölskyldunni á afmælisdaginn. Á AÐ dúkka eða drepa? Það vandamál þekkja spil- arar vel í ýmsum blæbrigð- um, en hin almenna regla er sú að óhætt sé að dúkka þegar sagnhafi er að sækja líflitinn sinn, því hann mun væntanlega spila litnum áfram. Vestur fylgdi þess- ari almennu reglu, en þeg- ar til kom var „lífliturinn“ hrein aukageta: Suður gefur; enginn á hættu. Norður ♠ K ♥ Á108 ♦ K97 ♣D108654 Vestur Austur ♠ 642 ♠ 10985 ♥ -- ♥ D765432 ♦ DG106532 ♦ -- ♣K32 ♣Á7 Suður ♠ ÁDG73 ♥ KG9 ♦ Á84 ♣G9 Vestur Norður Austur Suður -- -- -- 1 grand 3 tíglar 3 grönd Pass Pass Pass Spilið kom upp á sum- arleikum Bandaríkja- manna í júlí, í svokölluðum „Live Masters“ tvímenn- ingi. Bandaríska landsliðs- konan Shawn Quinn var í sæti sagnhafa í suður og hún nýtti sér vel tækifærið sem vestur gaf henni. Út- spilið var tíguldrottning. Quinn tók slaginn í heima, fór inn í borð á spaðakóng og spilaði þaðan laufi á gosann. Hún hugðist gefa tvo slagi á ÁK í laufi og fá 11 slagi. En vestur var ekki með stöðuna á hreinu og dúkkaði laufgosann!? Það leit út fyrir að sagn- hafi yrði að gera sér mat úr laufinu og ef suður átti ÁG í tvíspili, gat verið gott fyrir vörnina að dúkka til að þyngja samgang sagn- hafa. Ouinn tók næst þrjá slagi á ÁDG í spaða og spilaði svo laufi. Austur átti aðeins hjarta eftir og varð að spila því upp í gaff- alinn. Quinn tók þrjá slagi á hjarta og spilaði síðan síðasta spaðanum í þessari stöðu: Norður ♠ -- ♥ -- ♦ K9 ♣D Vestur Austur ♠ -- ♠ -- ♥ -- ♥ D765 ♦ G10 ♦ -- ♣K ♣ -- Suður ♠ 7 ♥ -- ♦ 84 ♣ -- Vestur lenti í vandræð- um með laufkónginn og valdið á tíglinum og Quinn átti restina. Tólf slagir og hreinn toppur. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson Þessar ungu stúlkur komu með föt og gáfu Rauða krossi Íslands. Þær heita Marta Bára Guðmundsdóttir og Guðrún María Pálsdóttir. 1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rc3 Bb4 4. e5 Re7 5. a3 Bxc3+ 6. bxc3 c5 7. Dg4 O-O 8. Bd3 Da5 9. Bd2 Rbc6 10. dxc5 f5 11. Dg3 b6 12. cxb6 axb6 13. Re2 Rg6 14. f4 Ba6 15. O-O Hfb8 16. Kh1 Da4 17. h4 Rf8 18. Hfb1 Bxd3 19. cxd3 Dc2 20. De3 Staðan kom upp á Norð- urlandamóti taflfélaga á Netinu sem Taflfélagið Hellir stóð að og lauk fyrir skömmu. Stef- án Krist- jánsson (2404) hafði svart gegn Erik Gullaksen (2369). 20...Hxa3! við þetta vinnur svartur peð og stuttu síðar skákina. 21. Hxa3 Dxb1+ 22. Kh2 Db5 23. Rd4 Rxd4 24. Dxd4 Db2 25. Db4 Dxd2 26. Kh3 Dxd3+ 27. g3 Hc8 28. h5 Hc4 29. De7 Hxf4 og hvítur gafst upp. 6. umferð Skák- þings Íslands hefst í dag kl. 17.00 í Hafnarborg í Hafn- arfirði. SKÁK Helgi Áss Grétarsson Svartur á leik. MORGUNBLAÐIÐ birt- ir tilkynningar um af- mæli, brúðkaup, ætt- armót og fleira lesendum sínum að kostnaðarlausu. Til- kynningar þurfa að ber- ast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnudagsblað. Samþykki afmæl- isbarns þarf að fylgja afmælistilkynningum og/eða nafn ábyrgð- armanns og síma- númer. Fólk getur hringt í síma 569-1100, sent í bréfsíma 569- 1329, eða sent á net- fangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavík HLUTAVELTA En okkur grunaði ekki að þú hefðir dottið í sjóinn. Við héldum að þú værir ennþá að syngja … Þegar við lokum fyrir rafmagnið þá gerum við það almennilega! MEÐ MORGUNKAFFINU Læknirinn segir að það eigi að hressa þig við. Auðvitað vil ég dansa, en maðurinn minn er hræðilega afbrýði- samur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.