Morgunblaðið - 29.08.2003, Qupperneq 46
Morgunblaðið/Sverrir
Dave Grohl, söngvari, gítarleikari og lagasmiður Foo Fighters, var sann-
kölluð rokkhetja á þriðjudagskvöldið og vann hug og hjörtu hallargesta.
ÞAÐ var rokkað í Höllinni á
þriðjudagskvöldið. Rokkað með ein-
hverri vinsælustu – og jafnframt
öflugustu – rokksveit síðasta ára-
tuginn, Foo Fighters. Og rokkhetj-
an var tvímælalaust Dave Grohl
forsprakki sveitarinnar. Það vissi
maður fyrir að maðurinn sá væri
nettur snillingur. Einhver besti
rokktrommari heims sem gerði sér
lítið fyrir og stofnaði sína eigin
sveit, samdi (og semur enn) öll lögin
og sló í gegn eftir að Nirvana lagði
upp laupana við fráfall Kurts Cob-
ains. Og snilli sína staðfesti hann
rækilega á sviði Hallarinnar. Því-
líkur kraftur, þvílík spilagleði, því-
lík útgeislun og þvílík rokkhetja! Til
að kóróna það virðist maðurinn
hvers manns hugljúfi, einstakt val-
menni og kurteisin uppmáluð.
Þær vissu mætavel upphitunar-
sveitirnar að kvöldið væri Foo
Fighters en skiluðu samt sínu með
glans. Fyrst á svið var íslenska
Vínyl, mjög vaxandi rokksveit, sem
maður er farinn að gera töluverðar
væntingar til. Það kom líka vel út í
Höllinni hversu massað rokkið
þeirra er orðið, kafloðið og bassa-
drifið – kryddað gömlum nýbylgju-
frösum U2, Simple Minds (þegar
þeir voru enn svalir vel að merkja)
og jafnvel Bauhaus. Svolítið keimlík
lögin reyndar en drullugrípandi
samt sem áður og ættu að falla vel í
kramið, hvar sem er í heiminum.
„Þetta eru prúðuleikarar“, sagði
kollegi undirritaðs þegar banda-
ríska rokksveitin My Morning
Jacket steig á svið. Hann átti koll-
gátuna, þeir voru prúðuleikarar,
Eins og Dýri trommari, flygsandi
kófsíðu og straumúfnu hárinu sem
huldi andlitið – á öllum í bandinu
nema hljómborðsleikaranum sem
var eins út úr kú með velsnyrtan
drengjakollinn. Og rokkið sem
sveitin lék fimlega var eftir útlitinu,
algjört flassbakk til 8. áratugarins
miðs, þegar Status Quo tröllreið
vinsældalistum, Peter Frampton
var gítargoð númer eitt og Led
Zeppelin enn að. Fjári skemmtileg
nostalgía og lítt alvörugefin sem
virðist algjörlega vera að gera sig
um þessar mundir. Sé því reyndar
ekki fyrir mér að My Morning Jac-
ket verði í sama farinu eftir 5 ár
enda er ekki svo langt síðan sveitin
var í sveitarokkgírnum.
Það ætlaði hreinlega allt um koll
að keyra þegar rokkhetjan Grohl
gekk fram á sviðið með drykkjar-
mál í hönd. Sallarólegur tilkynnti
hann æstum lýðnum að áður en Foo
Fighters stigi á svið þyrfti hann að
efna loforð sitt við unga sveit sem
varð á vegi hans á Stokkseyri og
leyfa henni að taka eitt lag. Nilfisk
steig á svið, 15 og 16 ára gamlir
piltar, sem stóðu sig með stakri
prýði. Tóku nettan og einfaldan
rokkslagara af hreint ótrúlegu ör-
yggi. Einstök uppákoma í sögu tón-
leikahalds erlendra stórsveita á Ís-
landi og einkar göfugmannlega að
verki staðið hjá Grohl.
Það þarf ekki að fara mörgum
orðum um frammistöðu Foo Fight-
ers. Þeir voru einu orði sagt frá-
bærir og það óumdeilanlega. Dave
Grohl er algjörlega með það á
hreinu hvað rokk og ról gengur út á
og fáa hefur maður séð sem virðast
hafa eins innilega gaman af því að
rokka. Honum varð tíðrætt um
hversu mikil synd það væri að sveit-
in hafi ekki komið fyrr til Íslands og
fyrir vikið væri það ætlunin að bæta
landanum það upp á þessum tón-
leikum. Og það gerði hún svo sann-
arlega, var á sviðinu í rétt tæpa tvo
tíma og renndi í gegnum nánast alla
helstu slagara af plötunum fjórum
sem Foo Fighters hefur sent frá sér
síðan 1995. Keyrslan var stöðug,
nær engin pása á milli laga, bara
beisik rokk og ról út í eitt. Af þeim
Chris Shiflett gítarleikara og Nate
Mendel bassaleikara ólöstuðum
voru þeir í algjöru aðalhlutverki
Grohl og trommarinn Taylor Hawk-
ins sem fór algjörum hamförum bak
við settið og hélt tempóinu gang-
andi.
Allra hörðustu rokkhundar hafa
viljað bauna svolítið á Foo Fighters,
sagt tónlistina helst til of hættu-
lausa og útvarpsvæna og hefur
komið fyrir að ég sjálfur hafi látið
nokkrar baunir vaða. En við baun-
arar fengum baunirnar í hausinn í
gær því sveitin sannaði vigt sína svo
um munaði og lék í nær öllum til-
fellum mun þyngri, hrárri og kröft-
ugri útgáfur af þessum útvarps-
vænu smellum sínum. Þetta er
Rokkhetjan mín
Tónleikar
LAUGARDALSHÖLL
Tónleikar í Laugardalshöll þriðjudags-
kvöldið 26. ágúst 2003. Fram komu
bandaríska sveitin Foo Fighters, breska
sveitin My Morning Jacket og íslensku
sveitirnar Vínyl og Nilfisk.
Foo Fighters
FÓLK Í FRÉTTUM
46 FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Vöggusæn
gur
vöggusett
PÓSTSENDUM
Skólavörðustíg 21 sími 551 4050 Reykjavík
Moggabúðin
Reiknivél, aðeins 950 kr.
BORGARSKJALASAFN REYKJAVÍKUR
www.rvk.is/borgarskjalasafn
Sími 563 1770
Hver var Lárus? - Síðustu sýningardagar
Sýning um Lárus Sigurbjörnsson,
skjala- og minjavörð
Reykjavíkurbæjar 1954-1968
á 3. hæð, Tryggvagötu 15.
Opin alla virka daga kl. 10-16.
Aðgangur ókeypis.
Minjasafn Reykjavíkur
Árbæjarsafn - Viðey
www.arbaejarsafn.is - s. 577 1111
ÁRBÆJARSAFN
Síðasta opnunarhelgin í sumar:
Lárus og sjötti áratugurinn
Haustmarkaður og messa
Ljúffengar veitingar í Dillonshúsi
VIÐEY:
Upplýsingar um leiðsögn í Viðey
í síma 568 0535 og 693 1440
www.listasafnreykjavikur.is
sími 590 1200
HAFNARHÚS, 10-17
Smekkleysa í 16 ár, lýkur 31.08
Alþjóðleg samtímalist á Íslandi, Erró - Stríð
Leiðsögn alla sunnud. kl. 15.00
KJARVALSSTAÐIR, 10-17
Hringekjur lífsins (opnar 29.8.), Kjarval
Leiðsögn alla sunnud. kl. 15.00
ÁSMUNDARSAFN, 10-16
Ásmundur Sveinsson - Nútímamaðurinn
Menningarmiðstöðin Gerðuberg.
Sími 575 7700. Gerðubergi 3-5, 111 Rvík
Brýr á þjóðvegi
Hvað viltu vita?
Sýningarnar standa til 21. sept.
Á döfinni:
Kogga á Sjónþingi
lau. 27. sept. kl. 13.30
Leitum að hlutum eftir Koggu úr
einkasafni fólks. Uppl. í s: 868 1851
Lokað um helgar frá
31. maí-1. september.
www.gerduberg.is
s. 563 1717
Upplýsingar um afgreiðslutíma
s. 552 7545 og á heimasíðu
BÆKUR Í FRÍIÐ
til að lesa úti í sólinni
eða inni í rigningunni.
Hugmyndir að sumarlestri á heimasíðu
Borgarbókasafns
www.borgarbokasafn.is
Minjasafn Orkuveitu í Elliðaárdal
Opið 13-17 alla daga
ÍRAFOSSVIRKJUN
AFMÆLISSÝNING
Ljósmyndasafn Reykjavíkur
www.ljosmyndasafnreykjavikur.is
Frumefnin Fimm -
Ferðadagbækur Claire Xuan
24. maí-1. sept. 2003. Síðasta sýningarhelgi.
Tekið er á móti hópum eftir samkomulagi, nánari
upplýsingar í síma 563 1790.
Afgreiðsla og skrifstofa
opin virka daga frá 10-16.
Opnunartími sýninga virka daga 12-19
og 13-17 um helgar.
Aðgangur ókeypis.
25. SÝNING FÖSTUDAGINN 29/8 - KL. 20 UPPSELT
26. SÝNING LAUGARDAGINN 30/8 - KL. 16 UPPSELT
27. SÝNING LAUGARDAGINN 30/8 - KL. 20 UPPSELT
28. SÝNING SUNNUDAGINN 31/8 - KL. 16 UPPSELT
29. SÝNING SUNNUDAGINN 31/8 - KL. 20 UPPSELT
30. SÝNING FÖSTUDAGINN 5/9 - KL. 20 UPPSELT
AUKASÝNING LAUGARDAGINN 6/9 - KL. 15 LAUS SÆTI
31. og 32 SÝNING SUNNUDAGINN 7/9 - KL. 16 og 20 UPPSELT
33. SÝNING FÖSTUDAGINN 12/9 - KL. 20 LAUS SÆTI
34. SÝNING SUNNUDAGINN 14/9 - KL. 20 LAUS SÆTI
fim, 4. sept kl. 21,
opnunarsýning í IÐNÓ, örfá sæti,
lau 13. sept kl. 21,
Félagsheimilinu Hnífsdal,Ísafirði
Miðasölusími í IÐNÓ 562 9700
og sellofon@mmedia.is
Gríman 2003
"..Besta leiksýning," að mati áhorfenda
Stóra svið
LÍNA LANGSOKKUR e. Astrid Lindgren
forsala aðgöngumiða er hafin
Forsýning lau 13/9 kl 14 - kr. 1.000
FRUMSÝNING su 14/9 kl 14
Lau 20/9 kl 14,Su 21/9 kl 14. Lau 27/9 kl 14
Su 28/9 kl 14, Lau 4/10 kl 14, Su 5/10 kl 14
ÖFUGU MEGIN UPPÍ e. Derek Benfield
Lau 13/9 kl 20, Lau 20/9 kl 20
KVETCH e. Steven Berkoff
Í kvöld kl 20 UPPSELT,
Mi 3/9 kl 20 UPPSELT, Fi 4/9 kl 20, - UPPSELT
Fö 5/9 kl 20 - UPPSELT
Mi 10/9 kl 20,Fi 11/9 kl 20,Fö 12/9 kl 20
Aðeins þessar aukasýningar
Nýja sviðið
NÚTÍMADANSHÁTÍÐ - Sex danshöfundar
frumflytja sex sólódansa
Lau 6/9 kl 20
Su 7/9 kl 20
Lau 13/9 kl 20
Su 14/9 kl 20
SUMARÓPERAN - POPPEA
Lau 30/8 kl 20
Su 31/8 kl 20 - Síðustu sýningar
RÓMEÓ OG JÚLÍA e. Shakespeare
í samstarfi við VESTURPORT og ÍD
Lau 30/8 kl 20,
Su 31/8 kl 20
Lau 6/9 kl 20,
Su 7/9 kl 20
Litla sviðið
Endurnýjun áskriftarkorta er hafin.
Sex sýningar: Þrjár á Stóra sviði, og þrjár aðrar að eigin vali. kr. 9.900
VERTU MEÐ Í VETUR
Miðasala: 568 8000
Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga.
Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is
HARMONIKUBALL
Eldfjörugt harmonikuball í ÁSGARÐI, Glæsibæ við Álfheima í Reykjavík
laugardagskvöld 30. ágúst 2003 frá kl. 22:00.
Söngvarar: Corina Cubid og Ragnheiður Hauksdóttir.
Fjölbreytt danslög • Margar hljómsveitir • Dansleikur fyrir alla.
Aðgangseyrir kr. 1.200.
HARMONIKUFÉLAG REYKJAVÍKUR