Morgunblaðið - 29.08.2003, Page 47
náttúrlega ákveðin snilld út af fyrir
sig, að geta gert svona rakið ræfla-
rokk – eins og ömmurnar myndu
kalla þetta – svona yfirmáta að-
gengilegt og létt. Hefur örugglega
eitthvað með áhrifavaldana að gera,
sem koma úr óvenjulegum en um
leið svo viðeigandi áttum; Cheap
Trick, Queen, The Knack, Cars og
Sonic Youth.
Eins heillaður og maður er nú af
hávaðanum sem fylgir rokki sem
þessu verður að segjast sem er að
Höllin var ekki alveg að meika öll
lætin – og það ekki í fyrsta sinn.
Bassaþunginn átti til að yfirgnæfa
allt annað og gítarleikur var á
stundum óþægilega skerandi – án
þess að maður vilji nú fara að
hljóma eins og eitthvað pirrað gam-
almenni, sem manni fannst maður
sannarlega vera innan um skarann
sem í miklum meirihluta var ung-
menni undir tvítugu.
Það er nær ógerlegt að ætla að
gera upp á milli laganna sem leikin
voru en þó ber að geta dásamlega
teygðrar útgáfu á „Stacked Act-
ors“, hins frábæra „Aurora“ (sem
Grohl tileinkaði norðurljósunum
(„Aurora Borealis“) sem hann sá á
himni er hann var á Stokkseyri), ró-
legasta lags kvöldsins „Tired of
You“ (hei hvíld fyrir gamalmennið!)
og svo auðvitað lokalagsins sem var
brjáluð útgáfa af „Everlong“, einu
besta rokklagi liðins áratugar. Hún
var líka ósvikin stemmningin í troð-
fullri Höllinni, svo mikil að maður
man bara ekki annað eins. Það fór
líka um mann sæluhrollur þar sem
maður sat í stúkunni og leit yfir
skarann, hver og einn einasti með
berar hendur á lofti (allir í svörtum
stuttermabolum merktum rokksveit
einni eða annari, eða þá orðnir berir
að ofan), gargandi úr sér lungun af
rokkkæti. Það þarf rokkhetju til að
skapa slíka stemmningu.
Skarphéðinn Guðmundsson
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 2003 47
AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is, sími 569 1111
2001: Í gríni
(2001: A Space Travesty)
Gamanmynd
Kanada/Bandaríkin 2000. Myndform.
VHS (90 mín.) Öllum leyfð. Leikstjóri: All-
an A. Goldstein. Aðalleikendur: Leslie
Nielsen, Ophélie Winter.
TÍMI gamanmynda með Leslie
Nielsen í hlutverki sauðheimskra
garpa er liðinn undir lok. Alla vega
væri það áhorfendum fyrir bestu, nýj-
asta afurðin, 2001:, er ófyndin og
þreytuleg og örugg-
lega endapunktur á
framlengingarvíxli
ferils þessa við-
kunnanlega
B-myndaleikara.
Nielsen er lunkinn
gamanleikari og
stóð sig eftirminni-
lega í myndum
kenndum við Airplane og Naked Gun,
en nú er ballið búið. Karlinn er mann-
borulegur sem fyrr en leikstjórn og
handrit hafa hrapað niður um marga
gæðaflokka. Nielsen leikur að þessu
sinni ofurhetju sem send er til
Tunglsins að bjarga Clinton forseta
úr haldi geimvera.
Nielsen hefur greinilega einhver
ítök og tiltrú í heimalandinu, en
myndin er kanadísk líkt og leikarinn.
Hún er samfelld runa fimmaura-
brandara sem eru oftar en ekki svo
auðvirðilegir að maður tæpast trúir
sínum eigin eyrum.
Myndbönd
2001:
Afturförin
Sæbjörn Valdimarsson