Morgunblaðið - 29.08.2003, Blaðsíða 48
KVIKMYNDIR
48 FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Borgfirsk helgi með
Stuðbandalaginu í kvöld
ATH! Tónleikar með Halla Reynis 4. september
ÞAÐ má með sanni segja að fyrstu
tvær myndirnar um bandarísku
böku-vinina hafi gætt unglingamynd-
ir nýju lífi. Sú fyrsta sló hressilega í
gegn 1999 og það öllum að óvörum
enda virtist sem unglingamyndir
væru þá orðnar dauðadæmdar til
þess að vera algjör formúla í einu og
öllu og fráhrindandi öllum þeim sem
lausir voru við graftarkýlin. En með
Bökunum kom nýr vinkill á þessar
myndir, ferskur húmor, þar sem gert
var út á vandamál unglingsáranna á
hvassari og um leið fyndnari máta en
áður.
Aðal myndanna var skrautlegur
vinahópurinn, með kolruglaðan Stiffl-
er fremstan í flokki, en miðpunkt-
urinn þó Jim Levinstein, vinsæll
náungi og smellinn en óöruggur mjög
í kvennamálunum. Um síðir tókst
honum þó að ná í hina einu réttu en
hún kom úr óvæntustu átt, Michelle
Flaherty erkinörd, sem reyndist hin
mesta bomba er Jim kynntist henni
nánar.
Og eins og í öllum góðum sam-
böndum kom að því að þau Jim og
Michelle vildu festa ráð sitt, staðfesta
ást sína fyrir Guði – eða kannski bara
upplifa steggja- og gæsadag?
Þriðja myndin um bökugengið
gengur út á brúðkaupið og sér í lagi
undirbúninginn og steggja- og gæsa-
partíið. Og hver haldiði að hafi tekið
að sér að undirbúa steggjadæmið?
Nú auðvitað Stiffler.
Bandarískt brúðkaup var frum-
sýnd í júlí vestra og hefur gengið vel,
eins og fyrri myndirnar.
Bandarísk brúð-
kaupsterta
Þegar Stiffler skipuleggur steggjaveislu setur hann á oddinn að blóma-
skreytingar séu í lagi.
Sambíóin frumsýna í dag bandarísku gamanmyndina Bandarískt brúðkaup (Americ-
an Pie – The Wedding). Leikstjóri Jesse Dylan (How High). Aðalhlutverk Jason Biggs
(American Pie 1 og 2), Sean William Scott (American Pie 1 og 2, Bulletproof Monk,
Old School), Eugene Levy (American Pie 1 og 2, Bringing Down The House), Alyson
Hannigan (American Pie 1 og 2).
SÝNINGAR hefjast í dag á vinsæl-
ustu og umtöluðustu myndinni í
Bandaríkjunum í dag, hrollvekjunni
þar sem þeim er att saman mar-
tröðinni Freddy Krueger úr Mar-
tröð á Álmstræti-myndunum og
grímuklædda Jason Voorhees úr
Föstudeginum þrettánda-mynd-
unum.
Freddy Krueger er ferlega
spældur yfir því að geta ekki leng-
ur hrellt unglingana á Álmstræti í
draumum þeirra. En hann er út-
smoginn djöfull
og finnur leið til
þess að plata
keppinaut sinn
Jason til að
hrella krakkana
fyrir sig og láta
þá þannig halda
að hann sjálfur
sé snúinn aftur.
En þegar Jason tekur upp á göml-
um ósið og fer að myrða krakkana
hans Krueger fýkur í þann fingra-
beitta og þeir fara í hár saman.
Þurfa því krakkarnir í Álmstræti
að taka til sinna ráða og koma þeim
aftur, Jason í sumarbúðirnar og
Freddy úr draumunum.
Hrollvekjuunnendur hafa margir
hverjir beðið með óþreyju eftir
henni þessari og hefur hún nú
vermt toppsæti bandaríska bíólist-
ans í tvær vikur.
Þess þarf svo vart að geta að
myndin er stranglega bönnuð börn-
um innan 16 ára.
Freddy og Jason elda grátt silfur í kvikmyndinni Freddy
á móti Jason.
Hrollvekjandi
einvígi
Smárabíó og Regnboginn frumsýna í dag hryllingsmyndina
Freddy á móti Jason (Freddy vs. Jason). Leikstjóri Ronny Yu
(51st State). Aðalhlutverk Robert Englund (Nightmare on Elm
Street 1–7) Ken Kirzinger, Kelly Rowland (Destiny’s Child).
FÁTT er vinsælla hjá yngstu áhorfendunum en
Bangsímon og félagar hans í Hundraðekruskógi, teikni-
myndir úr smiðju Walts Disneys byggðar á sígildum
barnasögum A.A. Milne. Myndin gamla um Bangsímon
er til á ófáum heimilum þannig að börnin tóku því fagn-
andi þegar vinur hans Tumi tígur fékk sína eigin mynd
fyrir þremur árum. Sú mynd gerði það aldeilis gott í bíó
og hefur gengið enn betur á myndböndum og mynd-
diskum svo að nú hefur Grislingur litli líka fengið sína
mynd.
Myndin er spánný, var frumsýnd í Bandaríkjunum
fyrr í sumar og fjallar um það þegar Grislingur greyið
týnist.
Það gerðist þegar vinir hans fara að leita sér að hun-
angi og leyfa honum ekki að koma með vegna þess að
hann er svo lítill. Grislingur verður voða leiður yfir því að
fá ekki að vera með vinum sínum og ráfar í burtu. Þegar
þeir komast að því að Grislingur er horfinn hefja þeir leit
að honum; Bangsímon, Tumi tígur, Eyrnaslappur, Rúgi
og Kanínka. Þá komast þeir að því að í litla vini þeirra
býr stór hetja.
Teikninmyndin er uppfull af söngvum og er talsett á
íslensku af hinum sömu og töluðu fyrir Tuma tígur;
Ladda, Hjálmari Hjálmarssyni, Sigga Sigurjóns o.fl.
góðum sem fóru þá algjörlega á kostum.
Grislingur litli reynist hin mesta hetja.
Sambíóin frumsýna í dag teiknimyndina Grislingur – Stór-
mynd (Piglet’s Big Movie). Leikstjórn Francis Glebas (Fant-
asia 2000). Leikraddir Hjálmar Hjálmarsson, Laddi, Edda
Heiðrún Backman, Jóhann Sigurðarson, Óskar Völundarson,
Sigurður Sigurjónsson og Guðmundur Felixson. Leikstjóri tal-
setningar er Jakob Þór Einarsson.
Leitin að Grislingi
Nói albínói
Frumleg og vel gerð mynd í alla staði. Magn-
að byrjandaverk. Nú sýnd með enskum
texta. (S.V.) Háskólabíó.
28 dögum síðar
(28 Days Later)
Vægðarlaus, markviss hrollvekja sem fær
hárin til að rísa. Ein besta mynd ársins.
(S.V.) Smárabíó.
Sinbad sæfari (Sinbad)
Vel gerð fjölskylduskemmtun mettuð andblæ
gamla sagnaheimsins. (S.V.) Sambíóin, Háskólabíó, Laugarásbíó.
Sjóræningjar Karíbahafsins
(Pirates of the Caribbean)
Ribbaldar, romm og ræningjar. Fín, of löng,
gamaldags sjóræningjamynd með góðum
brellum og leikurum. (S.V.) Sambíóin, Háskólabíó.
Tortímandinn 3
(Terminator 3)
Skopskynið er horfið en átökin jafnhressileg
sem fyrr. (S.V.) Regnboginn, Smárabíó, Laugarásbíó,
Borgarbíó.
Grundvallaratriði (Basic)
Kvikmyndin er ekki sá dæmigerði hernaðar-
tryllir sem hún lítur út fyrir að vera, heldur
nokkurs konar ráðgáta. (H.J.) Háskólabíó, Sambíóin.
Ástríkur og Kleópatra
Gallar í banastuði í byggingarbransanum í
Egyptalandi. Og nóg að drekka af göróttum
galdramiði. (S.V.) ½
Háskólabíó, Sambíóin
Lara Croft 2: Vagga lífsins
(Lara Croft Tomb Raider:
The Cradle of Life)
Á köflum feiknavel gerð og spennandi della.
(S.V.) Sambíóin.
Hulk
Útlitslega er Hulk vel útfærður en það vantar
í hann þyngdartilfinninguna. (H.J.) Sambíóin, Háskólabíó.
Það sem stúlka þarfnast
(What A Girl Wants)
Fjölskyldumynd sem fær draumaverksmiðj-
una til að standa undir nafni. (S.V.) Sambíóin.
Löggilt ljóska (Legally
Blonde 2)
Í fyrri myndinni er kvikindislegri grínhugmynd
snúið upp í væmna hetjusögu. Í annarri at-
rennu verður ferlið talsvert langdregnara.
(H.J.) Regnboginn, Smárabíó
Brúsi almáttugur (Bruce
Almighty)
Dæmisagan í Brúsa almáttugum reynist
merkilega þröngsýn og heimsk.Unnið er með
trúarspurningar sögunnar á yfirborðskennd-
an hátt og nær boðskapurinn um náunga-
kærleik aldrei lengra en út fyrir garðshliðið.
(H.J.) Laugarásbíó/Regnboginn/Smárabíó/
Borgarbíó.
Englar Kalla gefa í botn
(Charlie’s Angels: Full
Throttle)
Kvenhetjur sem virðast ekki vera annars
megnugar en að geta sparkað hátt. (H.J.)
Smárabíó, Regnboginn.
Tumi þumall og Þumalína
(Tom Thumb and Thumbe-
lina )
Teiknimynd um smáfólkið kunna er stílað á
yngsta áhorfendahópinn eingöngu. Góð, ís-
lensk talsetning. (S.V.) Laugarásbíó, Smárabíó.
Hættulíf í Hollywood
(Hollywood Homicde)
Hér fara saman vondir leikarar og vont
handrit og útkoman sú að augnlokin byrja
að síga skömmu eftir að myndin byrjar og
eini hasarinn sem finnst í námunda við
löggutvíeykið er baráttan við að halda þeim
opnum. (H.J.) Smárabíó, Regnboginn, Borgarbíó.
BÍÓIN Í BORGINNI
Sæbjörn Valdimarsson/Hildur Loftsdóttir/Heiða Jóhannsdóttir
Meistaraverk Ómissandi Miðjumoð Tímasóun 0 Botninn
Vægðarlaus einsemdarhrollvekja
Danny Boyle, 28 dögum síðar, er að
margra mati ein besta mynd ársins.