Morgunblaðið - 29.08.2003, Side 49
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 2003 49
Mörkinni 3, 108 Reykjavík
sími 588 0640
Það er komið að því
Útsala Útsala
Opið mánud.–föstud. 11–18 • Laugardag 11–15
15-60% afsláttur
Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100
VetrarPlús
Plúsfer›a
er kominn út
Bóka›u
fyrir
1. sept.
og fá›u
bestu
kjör!
33.442 kr.
38.830 kr.
Ver›dæmi Kanarí - sta›greitt
á mann m.v. 2 fullorðna og 2 börn,
2ja-11 ára í 7 nætur 10. janúar.
á mann ef 2 ferðast saman.
Innifalið: Flug, gisting á Verilplaya, ferðir til
og frá flugvelli erlendis og flugvallarskattar.
39.242 kr.
69.930 kr.
Ver›dæmi Benidorm - sta›greitt
á mann m.v. 2 fullorðna og 2 börn,
2ja-11 ára í 14 nætur 5. nóvember.
á mann ef 2 ferðast saman.
Innifalið: Flug, gisting á Halley, ferðir til
og frá flugvelli erlendis og flugvallarskattar.
STEINAR Berg Ísleifsson er með
reyndustu mönnum sem komið
hafa að útgáfumálum á Íslandi.
Hann var lengstum höfuð útgáf-
unnar Steinar hf. en fyrir einu og
hálfu ári sagði hann starfi sínu
lausu hjá Norðurljósum, sem yf-
irtók Steinar hf. á sínum tíma.
„Það halda margir að ég hafi
hætt lífsstarfi mínu er ég sagði
skilið við Norðurljós. En það stóð
aldrei til,“ segir Steinar sem nú
hefur stofnað útgáfuna Steinsnar
og eru þrír titlar væntanlegir undir
merkjum hennar í haust.
Lifandi, jarðneskur blær
„Ætli sú staðreynd að ég fluttist
til Borgarfjarðar hafi ekki ýtt und-
ir þessar ranghugmyndir,“ segir
Steinar og dæsir. „Fólk í höfuð-
borginni virðist oft leggja einhvern
útlegðarskilning í það þegar menn
flytja sitt hafurtask út fyrir borg-
armörkin.“
Steinar segist hafa verið að þróa
ákveðna hugmynd síðustu misseri
sem snýr að ferðaþjónustu. „Út-
gáfa, sem mun heyra undir Stein-
snar, er svo þáttur í þessari hug-
mynd,“ útskýrir hann. „Staðsetning
fyrirtækisins, sem er í Borgarfirði,
er því afar hentug. Það koma út
þrjár plötur í haust undir merkjum
Steinsnar. Tvær þeirra byggjast á
hugmyndum sem ég hef þróað.
Annars vegar er sótt í þann grunn
sem er Vísnabók Iðunnar en á sín-
um tíma voru gerðar tvær plötur
sem byggjast á henni (Einu sinni
var og Út um græna grundu). Sú
seinni kom út fyrir 25 árum. Plata
þessi mun bera heitið Vísnaplatan
og byggist á áðurnefndri bók en þó
ekki alfarið. Platan er unnin með
Jóni Ólafssyni upptökustjóra og
einnig Jónatani Garðarssyni, mín-
um gamla samstarfsmanni. Hug-
myndin er sú að endurskapa og
gefa lögunum vægi sem gefur þeim
gildi fyrir nútímann og vonandi alla
framtíð. Útsetningarnar eru því
mjög „lifandi“ og sígildar um leið
og reynt er að nálgast lögin frá
öðrum sjónarhornum. Ég ákvað að
velja til söngvara sem væru fæddir
eftir seinni Vísnaplötuna, svona til
að hafa eitthvað viðmið, og eru þeir
fimm, þau Ragnheiður Gröndal,
Þórunn Antonía, Jóhanna Guðrún,
Jónsi úr Í svörtum fötum og Sverr-
ir Bergmann úr Daysleeper.“
Steinar segir að þessi nálgun
fylgi ákveðnum ramma sem hann
hefur mótað fyrir útgáfuna; óraf-
magnaður eða „akústískur“ blær
verði einkennandi.
Önnur platan heitir Íslensk ást-
arljóð og er hugmynd hennar
sömuleiðis sótt í bók.
„Samnefnd bók var tekin saman
af Snorra Hjartarsyni fyrir nokkr-
um áratugum og geymir eins og
nafnið gefur til kynna úrval ís-
lenskra ástarljóða, alveg aftur í
aldir. Nokkur af þessum ljóðum
eiga sér þegar lög en svo bað ég
nokkra höfunda um að semja ný
lög við ljóð sem mér vitanlega eru
ekki til lög við eða alltént ekki lög
sem hafa náð almenningshylli.
Söngvararnir hér koma víða að en
þeir eru Stefán Hilmarsson, Páll
Rósinkranz, Andrea Gylfadóttir,
Björn Jörundur, Eiríkur Hauksson,
Ragnheiður Gröndal, Friðrik Ómar
Hjörleifsson og Hera Hjartardótt-
ir.“
Þriðja platan lýtur sömu lögmál-
um og Steinar hefur áður reifað en
það er ný plata með Ríó Tríó.
„Þeirra hljóðfærasláttur verður
mikið til í forgrunni hér. Með þeim
verður upptökustjórinn þeirra,
Gunnar Þórðarson, og svo Björn
Thoroddsen.“
Lögin verða öll frumsamin og er
höfundur þeirra Gunnar Þórðarson.
„Upptökum á þessum plötum er
að ljúka um þessar mundir,“ segir
Steinar að lokum.
„Ef það er eitthvað sem ég hef
lært í þessum bransa þá er það að
betra er að vera fyrr á ferðinni en
ekki. Ég vil svo að endingu upplýsa
að þetta nýja fyrirtæki mun gera
hið gamla slagorð Steinars hf. að
sínu: „Með lögum skal land
byggja!“
Steinar Berg hefur útgáfustarfsemi á nýjan leik
Morgunblaðið/Ásdís
Ragnheiður Gröndal mun verða
áberandi í útgáfu Steinsnar.
Morgunblaðið/Þorkell
Steinar Berg Ísleifsson
Stein-
snar af
stað