Morgunblaðið - 29.09.2003, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 29.09.2003, Blaðsíða 9
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. SEPTEMBER 2003 9 Léttir vattjakkar - 5 litir Engjateigi 5, sími 581 2141. Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—16.00. Peysur og skyrtur Eddufelli 2 Bæjarlind 6 s. 557 1730 s. 554 7030 Opið mán.—fös. frá kl. 10—18 lau. kl. 10—16 – Námskeið – Inngangur að þekkingarstjórnun Námskeið haldið mánudaginn 13. og þriðjudaginn 14. okt. Þekkingarstjórnun eflir vinnustaðinn með því að varðveita betur þekkingu sem verður til við dag- leg störf. Á námskeiðinu er farið yfir leiðir til að efla, vista og miðla þekkingu á vinnustað. Nánari upplýs- ingar í síma 564 4688, netfang skipulag@vortex.is og www.skjalastjornun.is – Minnum einnig á námskeiðið – Inngangur að skjalastjórnun haldið 4. nóv. SKIPULAG & SKJÖL ehf. SKJALASTJÓRNUN – ÞEKKINGARSTJÓRNUN Sími 564 4688 – Hamraborg 1 – 200 Kópavogi skipulag@vortex.is – www.skjalastjornun.is Sigmar Þormar Laugavegi 84, sími 551 0756 Flauelsbuxurnar eru komnar Sængurfataverslun, Glæsibæ • Sími 552 0978 • www.damask.is • Opið mán.-fös. kl. 10-18, lau. kl. 10-16. GRÍPIÐ TÆKIFÆRIÐ! Tilboðsdagar Rúmfatnaður .................................... 10-70% afsláttur Frotté- og jersey lök........................ 30% afsláttur Matardúkar og servéttur.................. 20% afsláttur Ungbarnafatnaður .......................... 50% afsláttur Lyocell það nýjasta í rúmfatnaði .. 20% kynningaverð Síðasta tilboðsvika! ENGIN lagaheimild er fyrir því að skattstjórar taki saman lista yfir hæstu skattgreiðendur í hverju um- dæmi í byrjun ágúst ár hvert og sendi fjölmiðlum til birtingar. Er það gert samhliða framlagningu álagningarskráa þar sem upplýs- ingar um skattgreiðslur allra ein- staklinga eru birtar. Skattstjórar vísa til hefðar sem hafi skapast, að- allega vegna spurnar fjölmiðla eftir þessum upplýsingum. Indriði H. Þorláksson, ríkisskatt- stjóri, segir þessa framkvæmd ekki hafa orðið fyrir atbeina hans. Ekk- ert í lögum segi að skattstjórum beri að gera þetta en í fljótu bragði sjáist ekki heldur að þetta sé bann- að. Hann segir að skattstjórarnir sjálfir verið að svara fyrir þetta og líklega líti þeir svo á að samantekt þessara upplýsinga sé heimil þar sem þær liggi frammi um ákveðinn tíma og ekki séu hömlur á meðferð þeirra. Sigmundur Stefánsson, skatt- stjóri Reykjaness, segir áratuga- hefð fyrir þessari framkvæmd. Stuðst sé við það lagaákvæði að upplýsingar í álagningarskrám séu opinberar í 15 daga í ágúst ár hvert. Upphaflega hafi verið litið á þetta sem þjónustu við fjölmiðla, engin leynd hvíli yfir þessum upplýsing- um á meðan þær liggi frammi og fjölmiðlar hafi aldrei afþakkað þessa lista. Hann viðurkennir að engin skýr fyrirmæli kveði á um að skattstjór- um beri að gera þetta og það komi til greina að breyta þessu fyrir- komulagi. Þetta sé álitamál sem hann veltir fyrir sér eins og hver annar borgari. Birting orkar tvímælis Gunnar Karlsson, skattstjóri Norðurlands eystra, segir eins og Sigmundur að hefð hafi skapast fyrir því að taka þessar upplýsingar saman og senda fjölmiðlum, enda eigi þeir rétt á því að fá upplýsingar úr álagningarskrám á meðan þær liggi frammi. Samantekt listanna sé í samræmi við þær reglur. Gunnar segir það geta vel verið að þetta orki tvímælis og það þyrfti að endurskoða þetta. Það sé þá angi af annarri umræðu sem sé réttmæti framlagningar álagningarskráa. Hans persónulega skoðun sé að sú framlagning hafi ekki sama gildi og áður. Gestur Steinþórsson, skattstjóri Reykjavíkur, segir enga beina heimild í lögum fyrir vinnslu þess- ara lista hjá embættum skattstjóra. Litið hafi verið þannig á málið að þar sem álagningarskrárnar séu á annað borð birtar opinberlega þá sé heimilt að taka út úr þeim þær upp- lýsingar og koma á framfæri. Aðspurður hvort opinberum starfsmönnum sé heimilt að vinna þetta með þessum hætti, sé þess ekki sérstaklega getið í lögum, seg- ir Gestur margar framkvæmda- venjur hafa skapast sem lögin segi ekki nákvæmlega til um. Það mundi hafa mikinn tímasparnað í för með sér fyrir starfsmenn skattstjóra ef álagningarskrár væru ekki birtar og þeim veitti ekkert af tímanum í önnur verkefni. Birting álagningar- skráa væri ekkert sérstakt áhuga- mál þeirra. Hreinn Sveinsson, skattstjóri Suðurlands, var ekki tilbúinn að svara spurningum um þessa fram- kvæmd fyrir hönd síns embættis. Skattstjórar vinna upplýsingar úr álagningarskrám Birting lista yfir hæstu skattgreiðendur umdeild FRAM til 5. desember næstkomandi verða íslenskar sjávarafurðir frá Iceland Seafood, lambakjöt frá Norðlenska og Iceland Spring-vatn frá Agli Skallagrímssyni á boð- stólum á þremur helstu matsölu- stöðum í aðalstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York. Daglega snæða á milli níu og tíu þúsund gestir á þessum stöðum, jafnt starfsfólk Sameinuðu þjóðanna og stjórnarerindrekar. Halldór Ás- grímsson utanríkisráðherra var viðstaddur þegar kynningin var formlega opnuð. Fjölmenni var við- statt opnunarhátíðina og margir lögðu leið sína á matsölustaðina þrjá í aðalstöðvunum þar sem boðið var upp á íslensku afurðirnar. Íslenskur fiskur án efa á boðstólum framvegis Að sögn Benedikts Sveinssonar, framkvæmdastjóra Iceland Sea- food í Bandaríkjunum, hefur Ice- land Seafood verið nokkuð lengi í viðskiptum við fyrirtækið Aramark sem stendur að kynningunni á mat- sölustöðum SÞ. Að hans sögn er Aramark stærsta veitingakeðja N-Ameríku en hún sérhæfir sig í að þjónusta stór eldhús fyrir stofnanir, fyrirtæki, verksmiðjur og fleiri að- ila. Benedikt segir kynninguna vera skemmtilega nýjung og að ís- lenskur fiskur verði án efa á boð- stólum framvegis í eldhúsum SÞ. Benedikt minnir á að Iceland Sea- food vinni stöðugt að því að koma nýjum vörum á markað og á hverju ári bætist ein eða tvær nýjungar við framleiðslulínuna. „Þegar við spyrjum okkur hvernig við ætlum að ná árangri þá segjum við það sé fernt sem þurfi að vera í lagi: í fyrsta lagi þjónusta, í öðru lagi gæði, í þriðja lagi að það séu stöð- ugt að koma fram einhverjar nýj- ungar, þannig að fólk hafi áhuga á því sem við erum að gera, og í fjórða lagi þarf verðið að vera rétt.“ Benedikt segist ekki í vafa um að kynningin á íslenskum afurðum hjá SÞ sé fyrst og fremst að þakka Ice- land Naturally-verkefninu og bend- ir á að starfsmenn þess hafi unnið mjög ötullega að því að kynna ís- lenskar afurðir. Halldór hefur átt fjölmarga fundi í New York á síðustu dögum. Hann sat í vikunni óformlegan fund utan- ríkisráðherra Norðurlandanna. Ráðherrarnir ræddu m.a. þörfina á endurbótum og endurskipulagn- ingu á stofnunum Sameinuðu þjóð- anna og fögnuðu frumkvæði Kofi Annan, aðalframkvæmdastjóra að setja á fót nefnd háttsettra ein- staklinga til að koma með tillögur um þetta mál. Ennfremur átti Hall- dór tvíhliða fundi með utanríkis- ráðherrum Mósambík, Úganda, Namibíu, Malaví, Óman, Jórdaníu, Jamaica, Kúbu, auk forsætisráð- herra Sri Lanka. Umræðuefni þess- ara funda var samstarf ríkjanna og möguleikar á frekari samvinnu milli þeirra. Starfsmenn gæddu sér á fiski og vatni Utanríkisráðherra opnaði matar- kynningu í höfuðstöðvum SÞ Ljósmynd/Björg Vigfúsdóttir Gillian Landsberg framkvæmdastjóri í aðalstöðvum Sameinuðu þjóðanna, þar sem matarkynningin fór fram, ásamt Halldóri Ásgrímssyni utanríkisráðherra og Benedikt Sveinssyni, framkvæmdastjóra Iceland Seafood.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.