Morgunblaðið - 29.09.2003, Blaðsíða 28
DAGBÓK
28 MÁNUDAGUR 29. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Chiyo Maru no. 8,
Goðafoss og Gunnþór
koma í dag. Árni Frið-
riksson og Bjarni Sæ-
mundsson fara í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Selfoss kemur í dag.
Mannamót
Aflagrandi 40. Vinnu-
stofa og leikfimi kl. 9,
boccia kl. 10, kl. 14 fé-
lagsvist, hársnyrting,
fótaaðgerð. Versl-
unarferð í Hagkaup,
Skeifunni, miðvikudag
1. okt. kl.10, kaffi í boði
Hagkaupa.
Árskógar 4. Kl. 9–12
handavinna, kl. 10
söngstund, kl. 13–16.30
smíðar, útskurður, kl.
13–16.30 handavinna,
kl. 13.30 félagsvist kl.
16 myndlist.
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
9–16 handavinna, kl. 9–
12 bútasaumur, kl. 9–
17 fótaaðgerð, kl. 10–
11, samverustund, kl.
13.30–14. 30 söngur við
píanóið, kl. 13–16 búta-
saumur.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist í
Gullsmára 13 kl. 20.30.
Fótaaðgerð kl. 10.
Skrifstofan er opin í
dag kl. 10–11.30.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 9
fótaaðgerð, kl. 10–12
verslunin opin, kl. 13
föndur og handavinna.
Félagsstarfið Dalbraut
18–20. Kl. 10 leikfimi,
kl. 13 brids, kl. 9–16.30
púttvöllurinn opinn.
Félagsstarfið Dalbraut
27. Kl. 9–16 handa-
vinna, kl. 9–12 mynd-
list, kl. 13–16 körfu-
gerð, kl. 11–11.30
leikfimi, kl. 13–16 spil-
að, kl. 10–13 verslunin
opin.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Bað kl. 9–
12, opin vinnustofa, kl.
9–16.30, félagsvist kl.
13.30, kl. 9–12 hár-
greiðsla.
Félagsstarfið Sléttu-
vegi 11. Félagsvist í
dag kl. 14.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Kl. 9.30
stólaleikfimi, kl. 10.20
og 11.15 leikfimi. kl. 13
vinnuhópar gler-
bræðsla.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Félags-
heimilið opnað kl. 9,
dagblöðin, rabb og
kaffi á könnuni. Pútt í
Hraunseli kl 10–11.30
og biljardsalur opnir til
kl. 16. Kóræfing Gafl-
arakórsins kl. 10.30–
12.30, tréútskurður kl.
13, félagsvist kl. 13.30.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Brids kl. 13.
Handmennt, spjall og
kaffi kl. 13.30–15.30.
Silfurlínan opin kl.10–
12, s.588 2111.
Félagsstarf eldri borg-
ara, Mosfellssveit.
Línudans kl. 17.30,
postulínsmálun.
Gerðuberg, fé-
lagsstarf. Á morgun kl.
13 boccia, miðvikudag-
inn 1. október gamlir
leikir og dansar kl.
10.30.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9–17 handavinna,
kl. 9.30 gler og postu-
lín, kl. 13 skák.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9 vefnaður, kl.
9.05 og kl. 9.55 leikfimi,
kl. 10 ganga, kl. 11
boccia, kl. 13 leirmótun
og brids, kl. 20.30 fé-
lagsvist.
Hraunbær 105. Kl. 9
postlín, perlusaumur,
kortagerð og fótaað-
gerð, kl. 10 bænastund,
kl. 13.30 sögustund og
spjall, kl. 13 hár-
greiðsla.
Hvassaleiti 56–58. Kl.
9–15 handmennt, kl. 9–
10 og kl. 10–11 jóga, kl.
13–16 spilað. Fótaað-
gerðir.
Korpúlfarnir, Graf-
arvogi. Á morgun,
þriðjudag, sundleikfimi
í Grafarvogslaug kl.
9.30.
Norðurbrún 1. kl. 9–16
fótaaðgerð, kl. 10–11
ganga, kl. 13–16.45 op-
in vinnustofa, mynd-
list.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerð og hár-
greiðsla, kl. 9–10
boccia, kl. 9–12 mósaik,
kl. 9.15–15.30 handa-
vinna, kl. 9.30–10.30
boccia, kl. 11–12 leik-
fimi, kl. 12.15–13.15
danskennsla, kl. 13–16
kóræfing. Getum bætt
við nemendum í mós-
aik, skinnasaum og
stepp, nánari upplýs-
ingar í síma 562 7077.
Vitatorg. Kl. 8.45
smíði, kl. 9 hárgreiðsla,
kl. 9.30 bókband, búta-
saumur og morg-
unstund, kl. 10 fótaað-
gerðir og boccia, kl. 13
handmennt, gler-
bræðsla og spilað.
Gullsmárabrids.
Bridsdeild FEBK,
Gullsmára, spilar í fé-
lagsheimilinu, Gull-
smára 13, mánu- og
fimmtudaga. Skráning
kl. 12.45. Spil hefst kl.
13.
Sjálfsbjörg, félag fatl-
aðra á höfuðborg-
arsvæðinu, Hátúni 12.
Kl. 19 brids.
Minningarkort
FAAS, Félag aðstand-
enda alzheimer-
sjúklinga. Minning-
arkort eru afgreidd
alla daga í s. 533-1088
eða í bréfs. 533-1086.
Í dag er mánudagur 29. sept-
ember, 272. dagur ársins 2003,
Mikjálsmessa, Engladagur. Orð
dagsins: Ég þekki þig af afspurn,
en nú hefir auga mitt litið þig!
(Jb. 41, 5.)
Ögmundur Jónassonþingmaður segir
sögu úr daglega lífinu á
heimasíðu sinni, ogmund-
ur.is. Pistillinn birtist 24.
september.
Ögmundur segir: „Mað-ur stöðvaði mig á
götuhorni í dag og kvaðst
hafa hlustað á samræður
okkar Péturs H. Blöndals
alþingismanns í Kastljósi
Sjónvarps í gær. Þar
hefði Pétur haldið því
fram eina ferðina enn, að
ef fólk væri ekki að sýsla
með eigin fjármuni færi
það illa með þá.
Viðmælandi minn ágötuhorninu sagðist
halda að þessu væri alveg
öfugt farið. Heiðvirt fólk
væri einmitt sérstaklega
varkárt þegar því væri
treyst fyrir annarra
manna fé. Það væri frek-
ar að menn væru óvar-
kárir þegar um peninga
úr eigin pyngju væri að
ræða.
En fyrst kastaði þó tólf-unum, sagði viðmæl-
andi minn, þegar Pétur
H. Blöndal, sem væri for-
maður Efnahags- og við-
skiptanefndar Alþingis,
ræddi um vexti og vaxta-
mun. Hann hefði sagt að
allt hefði færst til betri
vegar eftir að ríkisbank-
arnir voru gerðir að
hlutafélögum.
Viðmælandi minnkvaðst vilja ráðleggja
öllum að fletta upp í sín-
um Mogga og horfa þar á
vaxtatölur. Vel gæti ver-
ið að stórfyrirtækin
fengju vildarkjör en það
ætti ekki við um sig og
sína líka – hinn almenna
borgara.
Meðalútlánsvextirværu 11,9%, drátt-
arvextir 17% en innláns-
vextir á almennar spari-
sjóðsbækur væru
uppgefnir 0,15%! „Kalla
menn þetta lítinn vaxta-
mun? Hvað eru menn eig-
inlega að fara með því að
leggja blessun sína yfir
þetta okur, sem fer síður
en svo minnkandi,“ sagði
viðmælandinn á horninu
og var nú orðið heitt í
hamsi.
Síðan kemur í ljós aðbönkunum finnst
ekki nóg kreist út úr
skuldunautum sínum
nema þeir hafi að
minnsta kosti 20% arð-
semi af bankarekstrinum.
Þetta sagði einn banka-
stjórinn án þess að blikna
þegar tilkynnt var að sá
banki sem hann veitti
forstöðu hefði hagnast
um 3.065 milljónir á
fyrstu sex mánuðum
þessa árs.“
Áður en við kvöddumstbað hann mig
lengstra orða að reyna að
sjá til þess að fjölmiðlar
könnuðu staðhæfingar
þingmannsins. Þeirri
áskorun er hér með kom-
ið á framfæri,“ segir Ög-
mundur Jónasson.
STAKSTEINAR
Viðskiptabankar
og vextir
Víkverji skrifar...
LÍKT og aðrir landsmennfylgist Víkverji grannt með
þeim sögulegu atburðum sem
nú eiga sér stað á vettvangi
íslensks fjármála- og við-
skiptalífs. Sem fjárfestir og
frumkvöðull fer Víkverji nú
betur en áður yfir portfólíóið;
eins gott að verða ekki
yfirviktaður í ákveðnum stöð-
um.
Þessi bransi tekur á taug-
arnar.
Víkverji treystir einkum á
sjónvarpsfréttir af þessum
stóratburðum. Honum líður
jafnan betur þegar hann sér myndir
af Bjarna Ármannssyni, Björgólfi
Guðmundssyni og hinum tíu eig-
endum Íslands á leið á enn einn
fundinn. Þá veit Víkverji að mik-
ilvægustu menn þjóðarinnar eru enn
á sínum stað alveg eins og kvöldið
áður þegar sjónvarpsstöðvar sýndu
af þeim myndir þar sem þeir komu
til afar þýðingarmikils fundar.
Þetta skapar festu í lífi Víkverja
og ekki veitir nú af á þessum ólgu-
tímum.
Taugar Víkverja róast þó fyrst
þegar hann sér í sjónvarpinu sínu að
Landsbankinn er enn á sínum stað
rétt eins og höfuðstöðvar Skeljungs,
Kaupþings og hinna þjóðþrifa-
fyrirtækjanna. Víkverja finnst þetta
öldungis heillandi sjónvarpsefni og
hann er afar þakklátur sjónvarps-
stöðvunum fyrir að sýna honum á
hverjum degi myndir af höfuð-
stöðvum stærstu fyrirtækja lands-
ins. Fátt er meira róandi en að horfa
á hús.
Víkverji hefur veitt því athygli að
einn er sá hópur fólks á Íslandi sem
ekki gerir sér grein fyrir hvílík um-
skipti orðið hafa. Þar ræðir um börn
undir 12 ára aldri. Sem frumkvöðull
hefur Víkverji því kynnt þá við-
skiptahugmynd sína að fram-
leiddar verði myndir af helstu
forkólfum íslensks fjármála-
lífs og þeim komið fyrir í
tyggjópökkum. Hugmynd
Víkverja er að koma upp
skiptimarkaði hjá börnunum.
Fjöldi mynda í umferð verði
mismunandi til að skapa
mælanleg verðmæti. Þannig
gæti t.a.m. einn Björgólfur
Guðmundsson verið á upp-
hafsgenginu níu Bjarnar Ár-
mannssynir o.s.frv. Mynd af
höfuðstöðvum Landsbank-
ans með andlitsmyndum af
eigendum hans gæti verið þriggja
Skeljunga virði.
Þessi viðskiptahugmynd Víkverja
hefur hlotið heldur dræmar und-
irtektir. Víkverja finnst það lýsa
lítilli framsýni að menn skuli ekki
hafa áhuga á að fræða börnin um
burðarvirki þjóðskipulagsins og búa
þau undir það sem þeirra bíður með
því að gera þau að virkum þátttak-
endum á heilbrigðum markaði. En
Víkverji veit svo sem betur en flestir
aðrir að „þolinmótt fjármagn“ er
vandfundið á Íslandi. Honum hefur
t.d. enn ekki tekist að finna útgef-
anda að „Grillvísum“ sínum.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Róandi myndefni.
Í PALERMO á Sikiley er
nú reynt að auka snyrti-
mennsku og góða um-
gengni í borginni. 24. sept-
ember segir blaðið
Giornale di Sicilia frá öku-
manni nokkrum, sem lét
notaðan pappírsvasaklút
detta út um bílgluggann
hjá sér, en var svo óhepp-
inn að lögreglan var í
næsta bíl fyrir aftan og
stöðvaði hann samstundis
og sektaði á staðnum fyrir
sóðaskapinn. Og sektin?
206 evrur! (18.000 kr.)
Sumir losa sig við hvað
sem er á staðnum, láta það
bara „la falla“ – tyggjó,
sígarettustubba, pylsubréf
– enn aðrir troða í holur.
Að þessu kveður eins og
kunnugt er mjög rammt í
þéttbýli hér á landi en er
heldur ekki óþekkt á fjöl-
sóttum ferðamannastöðum
og jafnvel í óbyggðum. Í
sumar sá ég t.d. nokkra
pappírsvasaklúta á flögri á
Sprengisandi og ýmiss
konar gúmmulaði í
sprungu á Þingvöllum.
Þótt útlendingar séu
ekki allir saklausir held ég
að hér á landi sé innfædd-
um aðallega um að kenna.
Hvernig væri nú að taka
Sikileyinga sér til fyrir-
myndar? – Og líka að
íhuga sektir – en þó ekki
svona háar.
SVÁ (leiðsögumaður).
Mislæg gatnamót
GATNAMÓTIN við
Stekkjarbakka og Reykja-
nesbraut. Ég bý í
Stekkjarhverfinu og þarf
að keyra um Grænastekk.
Það er búið að breyta hon-
um, gera beygju út á
hringtorg. En það er möl
og sandur í beygjunni sem
ekki er hreinsað í burtu.
Ég hef tvisvar séð bílstjóra
átta sig ekki á þessari möl
og missa stjórn á bílnum.
Væri þörf á því að þetta
væri hreinsað.
Íbúi í Stekkjunum.
Góð þjónusta
hjá Tölvuvirkni
ÉG verð að koma á fram-
færi innilegum þökkum til
starfsmanna Tölvuvirkni í
Hlíðarsmára, sérstaklega
Inga. Ég varð alveg agn-
dofa á þeirri frábæru þjón-
ustu sem ég fékk þar fyrr í
þessari viku. Þannig var að
tölvan mín var farin að láta
öllum illum látum og ég í
miðri lokaritgerð.
Ég hafði áður keypt hjá
þeim stærra vinnsluminni
og þeir buðu mér þá að
koma með tölvuna og þeir
myndu máta það í hana til
að ég fengi það sem myndi
passa (þessi þjónusta kost-
ar á bilinu 3–4.000 annars
staðar þar sem ég athugaði
það). Ég hringdi í þá og
vildi vita hvað nýr harður
diskur myndi kosta og að
vírushreinsa gamla disk-
inn. 13.575 kr. var svarið
og þeir myndu gera þetta
fyrir mig ef ég kæmi með
tölvuna.
Starfsmaður að nafni
Ingi fékk tölvuna í hendur
og hélt að þetta yrði ekki
mikið mál, en mínúturnar
urðu að klukkutímum og
klukkutímarnir að heilum
degi og ég sá fyrir mér
bunka af seðlum sem ég
þyrfti að borga fyrir alla
þessa vinnu, en viti menn:
Upphaflega verðið stóð,
mínus 5% stgr.afsláttur,
samtals 12.897 kr.
Þetta kallar maður fyr-
irmyndarþjónustu og
mættu fleiri taka þá hjá
Tölvuvirkni sér til fyrir-
myndar.
Hulda.
Drasl um allt
ÉG fór í Kringluna nýlega
og lagði á bílastæði á 1.
hæð. Þar var mjög sóða-
legt og drasl um allt og
krot á veggjum. Brá mér
við að sjá þetta því þarna
hefur alltaf verið þrifalegt.
Vil ég benda þeim í Kringl-
unni á að mála og þrífa
þarna.
Kringluviðskiptavinur.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
Snyrtimennska
á Sikiley
Morgunblaðið/Golli
Túristar í miðborg Reykjavíkur.
LÁRÉTT
1 hetjur, 8 fallegur, 9 ilm-
ur, 10 ungviði, 11 harma,
13 gremjist, 15 korgur,
18 öflug, 21 verkfæri, 22
ganga, 23 dýrsins, 24
þrönga
LÓÐRÉTT
2 ótti, 3 tré, 4 yndis, 5
hryggð, 6 eldstæðis, 7
elskaði, 12 tannstæði, 14
kærleikur, 15 karldýr, 16
írafár, 17 stólpi, 18 komst
undan, 19 eru í vafa, 20
sóp.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 gljúp, 4 kappa, 7 orðar, 8 rukka, 9 tap, 11 tuða,
13 hrós, 14 fitla, 15 þjál, 17 lund, 20 far, 22 aðför, 23 eld-
ur, 24 kerið, 25 narra.
Lóðrétt: 1 glott, 2 jóðið, 3 part, 4 karp, 5 pukur, 6 aðals,
10 aftra, 12 afl, 13 hal, 15 þjark, 16 álfar, 18 undur, 19
dýrka, 20 fróð, 21 regn.
Krossgáta 6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16