Morgunblaðið - 29.09.2003, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 29.09.2003, Blaðsíða 27
YFIRMAÐUR Evrópuskrifstofu utanríkisráðuneytis Bretlands, Dominick Chilcott, flytur hádeg- isfyrirlestur í Norræna húsinu í dag, mánudag, kl. 12.00–13.00, sem hann nefnir „Geta eyjabúar verið góðir borg- arar í Evrópu?“ Fyrirlesturinn er öllum opinn og er hann sam- starfsverkefni breska sendiráðsins á Íslandi, Bresk-íslenska verslunarráðsins og Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands. Að loknum fyrirlestrinum gefst tími til fyrirspurna og umræðna. Fundar- og umræðustjóri verður Birgir Ármannsson alþingismaður, en auk hans tekur þátt í umræðum um efni fyrirlestrarins Guðmundur Hálfdánarson, prófessor í sagn- fræði. Í kynningu á viðfangsefni fyrir- lestrarins segir: „Bendir reynsla Breta til þess að þjóðarvitund eyjabúa geti farið saman við aðild að Evrópusambandinu? Er sú sér- staða eyjabúa að vilja vernda eigið fullveldi, náttúruauðlindir og lífs- máta slík, að hún geti ekki farið saman við þær skyldur sem fylgja aðild að Evrópusambandinu? Hafa eyjabúar meiri ávinning eða skaða af því að verða fullgildir aðilar að Evrópusambandinu? Er aðild að Evrópusambandinu eftirsóknar- verð í framtíðinni?“ Dominick Chilcott mun ræða þessi mál út frá þeirri staðreynd að Bretar gengu seint í Evrópubandalagið, út frá árangri og mistökum í stefnu Breta í Evrópumálum og loks af- stöðu breskra stjórnvalda og við- horfum bresks almennings til Schengen, Evrunnar og hins nýja Ríkjaráðs Evrópusambandsins. (The Intergovernmental Council). Hann eftirlætur áheyrendum að draga eigin ályktanir um hvað Ís- lendingar eigi sameiginlegt með Bretum í þessum efnum, auk þess sem á því verður væntanlega tekið í umræðum að loknum fyrirlestr- inum. Dominick Chilcott hefur verið yfirmaður Evrópuskrifstofu utan- ríkisráðuneytis Bretlands frá því í júní sl. Áður var hann yfirmaður þeirr- ar deildar ráðuneytisins sem fór með málefni Íraks, m.a. uppbygg- ingu Íraks eftir stríðið fyrr á þessu ári. Hann hefur starfað í bresku ut- anríkisþjónustunni í 21 ár m.a. sem fulltrúi Bretlands hjá Evrópu- sambandinu þar sem hann stýrði þátttöku Breta í utanríkismála- samstarfi ESB. Hann nam heim- speki og guðfræði við Háskólann í Oxford. Fyrirlestur yfirmanns Evrópuskrifstofu utanríkisráðuneytis Bretlands Geta eyjabúar verið góð- ir borgarar í Evrópu? Dominick Chilcott FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. SEPTEMBER 2003 27 Skipulag kennslu í stærðfræði Michael Maloney heldur fyrirlestur við Kennaraháskóla Íslands mið- vikudaginn 1. október kl. 16.15– 17.30. Í fyrirlestrinum ræðir Mich- ael Maloney um hvernig nýta megi kennsluaðferðir í anda atferlisstefnu í stærðfræðikennslu o.fl. Michael Maloney er kennari, atferl- isfræðingur, skólastjóri og metsölu- höfundur. Árið 1979 stofnaði hann sinn eigin skóla, Quinte Learning Center. Markmið skólans var að leysa vanda nemenda með námsörð- ugleika og mæta þörfum bráðgerra nemenda. Á NÆSTUNNI Íbúi kallaði á slökkviliðið Vegna fréttar um bruna á Ing- ólfsstræti 6 í blaðinu á sunnudag skal tekið fram að það var íbúi í húsinu sem varð reyksins var og kallaði á slökkvilið, en ekki starfsmaður ljósmyndavöruverslunar í húsinu. Beðist er velvirðingar á mistökun- um. LEIÐRÉTT LÖGREGLAN í Reykjavík lýs- ir eftir vitnum að umferðar- óhappi á Suðurlandsvegi við Rauðhóla 25. september um kl. 15.15. Þar mættust Mitsubishi Pajero jeppi og vörubifreið með grjótfarm en um leið og bifreiðirnar mætt- ust, féll grjót af vörubifreiðinni með þeim afleiðingum að það braut framrúðu jeppans og hafnaði á gólfi hans. Vörubif- reiðin hélt áfram för sinni og hvorki náðist skráninganúmer hennar né tegund. Er ökumað- urinn beðinn um að gefa sig fram við lögreglu svo og hugs- anleg vitni. Þá lýsir lögreglan eftir vitn- um að ákeyrslu á gráa Audi fólksbifreið sem stóð mannlaus á bílastæði við Eiðistorg, 27. september um kl. 14.30. Tjón- valdur fór af vettvangi án þess að tilkynna tjónið. Ökumaðurinn og hugsanleg vitni eru beðin um að gefa sig fram. Lýst eftir vitnum Leiðrétt uppskrift Í uppskrift að Thai Panang-karrí- kjúklingi féll niður í upptalningu hráefnis að nota ætti eina dós af til- búnu Panang-karríi í dós. Af þessum sökum birtum við upp- skriftina aftur og biðjumst velvirð- ingar á mistökunum. Thai Panang-karríkjúklingur 1 dós tilbúið Panang-karrí 3–4 kjúklingabringur skornar í þunna strimla olía kramið hvítlauksrif 2 litlar dósir bambusstrimlar 2 tsk. sykur ½ tsk. fiskisósa nokkrar tsk. kókosmjólk Steikið hvítlauk á pönnu í olíu og bætið út á pönnuna kjúklingi. Þegar kjúklingurinn hefur fengið að steikj- ast aðeins er papriku bætt á pönnu og bambusstrimlum. Hrært er upp í sósunni og bætt út í sykri og fiski- sósu. Hellið yfir kjúkling og græn- meti. Í lok suðutímans, sem er um 10 mínútur, er kókosmjólk bætt út í. LANDSSAMBAND framsóknarkvenna (LFK) leggur til að sú breyting verði gerð á almennum hegningarlögum að kaup á vændi verði gerð refsiverð. Landssambandið hafnar því að líkami karls, konu eða barns geti verið söluvara og andlag í viðskiptum og telur breytinguna til þess fallna að vinna gegn mansali og klámvæðingu. Ályktun þessa efnis var gerð á landsþingi LFK sem lauk sl. laugardag. Fimmtíu og sjö framsóknarkonur hvaðanæva af landinu tóku þátt í þinginu. Una María Óskarsdóttir úr Kópa- vogi var endurkjörin formaður LFK. Í stjórn voru kjörnar Bryndís Bjarnarson, Mosfellsbæ, Margrét Þórðardóttir, Snæfellsbæ, Jóhanna Guðmundsdóttir, Egilsstöðum og Kolbrún Ólafs- dóttir, Reykjavík. Meðal annarra ályktana, sem samþykktar voru á þinginu má nefna að Landssamband framsóknarkvenna fagnar þeirri atvinnuupp- byggingu sem ráðist hefur verið í á Austurlandi til hagsbóta fyrir þjóðarhag. Við Álverið í Reyð- arfirði eitt sér skapast 450 framtíðarstörf. Þar af eru um 400 störf sem krefjast framhalds- eða háskólamenntunar og skapa tækifæri fyrir kon- ur jafnt og karla. LFK hvetur stjórnvöld og hlutaðeigandi stofnanir eins og Þróunarstofu Austurlands til að kynna sérstaklega konum þau atvinnutækifæri sem uppbyggingin skapar. Ennfremur skorar LFK á stjórnvöld að vinna ákveðið og markvisst að því að útrýma kyn- bundnum launamun. Lögð er áhersla á að ríkið sem atvinnuveitandi gangi á undan með góðu fordæmi og eru aðilar vinnumarkaðarins hvattir til að ráðast sérstaklega gegn þessu misrétti. Einnig samþykkti landsþingið að LFK boði til málþings vorið 2004 til að ræða sérstaklega stöðu kvenna innan Framsóknarflokksins og stöðu þingkvenna við þær breytingar sem gerð- ar verða á ríkisstjórn næsta haust. Loks sam- þykkti þingið að skipa nefnd til að endurskoða lög og hlutverk sambandsins fyrir næsta lands- þing. Ályktun Landssambands framsóknarkvenna Kaup á vændi verði refsiverð Borgarnesi | Nýr vefur Borg- arbyggðar og Borgarfjarð- arsveitar hefur verið tekinn í notkun, en honum er ætlað að veita gagnlegar og fræðandi upp- lýsingar til ferðafólks sem og heimamanna um Borgarfjarð- arsvæðið. Vefurinn sem er bæði á ensku og íslensku, inniheldur upplýs- ingar um helstu sögu- og ferða- mannastaði á svæðinu, upplýs- ingar um öll helstu fyrirtæki í héraðinu auk þess sem hann prýða margar myndir. Hægt er að senda beinar fyrirspurnir á vefinn og beinar tengingar eru inn á vefsíður beggja sveitarfé- laganna. Það var DesignEuropA- .com sem hannaði vefinn en um textagerð sá bæjarráð Borg- arbyggðar í sameiningu. Vef- slóðin er http//:www.borg- arfjordur.com Morgunblaðið/Guðrún Vala Helga Halldórsdóttir, forseti bæjarráðs Borgarbyggðar, og Sveinbjörn Eyjólfsson, oddviti Borgarfjarðarsveitar. Borgarbyggð og Borgarfjarðarsveit Sameinast um nýja vefsíðu FRAMBOÐ Bolla Thorodd- sen, sem býður sig fram til formanns Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, og ellefu annarra einstaklinga sem bjóða sig fram í stjórn hefur opnað kosningaskrifstofu í Skipholti 19 fyrir ofan Ruby Tuesday. Ný stjórn Heimdallar verð- ur kosin á aðalfundi félagsins nk. miðvikudag. Kosninga- skrifstofan verður opin frá kl. 15 til 22 fram að aðalfundinum og eru allir velkomnir. Boðið verður upp á heitt kaffi, með- læti og upplýsingar um fram- bjóðendur og helstu stefnumál þeirra. Hægt er að nálgast nánari upplýsingar um framboðið á heimasíðunni www.blatt.is. Kosningar í Heimdalli Bolli Thor- oddsen opnar kosninga- skrifstofu Grundarfirði | Það fer ekki lengur mikið fyrir göngum í Eyrarsveit. Enn eiga menn þó fé sem þarf að sækja í göngum. Nokkur ár eru síð- an síðast var réttað í Grundarrétt sem er hlaðin steinrétt innst á Grundarbotni. Þess í stað hefur hin síðari ár verið rekið inn á nokkrum bæjum í Eyrarsveit og þangað er féð sótt af eigendum. Göngur í Eyrarsveit taka ekki nema einn dag og eru það raunveru- legar göngur því ekki er hægt að komast á hestum til að smala sökum brattlendis. Það viðraði illa á gangnamenn rigndi fyrst mikilli úr- hellisrigningu sem síðan varð að snjókomu til fjalla. Leitarmenn við Kolgrafafjörð á Eyrar- og Hrafnkelsstaðabotni ráku féð sem þeir fundu heim að Hömrum og þegar þangað var komið og féð komið inn í fjárhús beið leitarmanna sjóðheitt kakó og meðlætið var ekki af verri endanum, flatkökur með hangikjöti, rjómapönnukökur og fleira góðgæti framreitt af húsmóð- urinni Guðlaugu Guðmundsdóttur. Morgunblaðið/Gunnar Kristjánsson Það var ekki amalegt að fá heitt kakó og meðlæti þegar komið var með rekst- urinn og allir orðnir blautir og kaldir. Guðlaug ásamt tengdadóttur sinni Kol- brúnu og sonardótturinni Birnu sáu um að allir fengju eitthvað ofan í sig. Í gangnakaffi á Hömrum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.