Morgunblaðið - 28.10.2003, Qupperneq 17
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER 2003 17
ÞJÓÐARFLOKKUR Jose
Maria Aznars, forsætisráðherra
Spánar, sigraði í sveitarstjórn-
arkosning-
um í Madr-
idar-héraði í
fyrradag og
hefur nú
meirihluta
þar. Var sig-
urinn minni
en skoðana-
kannanir
höfðu gefið
til kynna en flokkurinn fékk
rúm 48% atkvæða og 56 menn
kjörna. Sósíalistaflokkurinn
fékk rúm 39% og 46 menn og
kommúnistar fengu níu. Kosn-
ingar voru einnig í héraðinu í
maí og þá fengu sósíalistar og
kommúnistar tveggja sæta
meirihluta. Þegar til kom fengu
sósíalistar þó ekki meirihluta
fyrir kjöri nýs forseta þingsins
vegna þess, að tveir þingmenn
þeirra mættu ekki við atkvæða-
greiðslu. Kom síðar í ljós, að
þeim hafði verið mútað til þess
af fasteignafyrirtæki nátengdu
Þjóðarflokknum. Af þessum
sökum var ákveðið að boða aftur
til kosninga.
CIA
gagnrýnd
Í SKÝRSLU sem verið er að
vinna fyrir öldungadeild Banda-
ríkjaþings er bandarísku leyni-
þjónustunni CIA legið á hálsi
fyrir að ýkja hættuna sem staf-
aði af vopnum og meintum
hryðjuverkatengslum Íraks-
stjórnar Saddams Husseins.
Greindi The Washington Post
frá þessu. Í skýrslunni, sem er í
vinnslu hjá þeirri nefnd þingsins
sem sinnir leyniþjónustumálum,
er undrun lýst yfir því hve mikið
er fullyrt á grundvelli ágizkana
og veiks upplýsingagrunns.
Hefur blaðið þetta eftir nefnd-
arfulltrúum úr báðum flokkum,
repúblikana og demókrata.
Um 70%
sátu heima
FLOKKUR fyrrverandi komm-
únista vann sigur í sveitar-
stjórnarkosningum í Búlgaríu
um helgina og þykja úrslitin
endurspegla mikla óánægju
með stjórn Simeons Saxe-Cob-
urgs, forsætisráðherra og fyrr-
verandi konungs. Hafði flokkur-
inn fengið 33% atkvæða er
talning var hálfnuð í gær en
næstur honum kom Lýðræðis-
fylkingin, sem er hægriflokkur,
með 21% atkvæða. Hreyfing
Simeons II var þá aðeins með
10%. Kosningaþátttakan var sú
minnsta eftir fall kommúnism-
ans í Búlgaríu, aðeins rúmlega
30%, sem þýðir, að næstum 70%
kjósenda sátu heima. Er litið á
það sem mótmæli við fátækt og
spillingu í landinu.
Svíar hagnast
HAGNAÐUR Svía af viðskipt-
unum við útlönd sló öll fyrri met
í september síðastliðnum þrátt
fyrir hátt gengi sænsku krón-
unnar. Var hann um 165 millj-
arðar ísl. kr. en tæpir 112 millj-
arðar í sama mánuði fyrir ári. Út
var flutt fyrir 735 milljarða kr.,
10% meira en í september í
fyrra, en inn fyrir 569 milljarða.
Er það aðeins 3% meira en fyrir
ári.
STUTT
Flokkur
Aznars
sigraði
Aznar