Morgunblaðið - 28.10.2003, Qupperneq 18
Tískuverslun
Föt fyrir unglinga, eiginn innflutningur. Er í glæsilegustu verslunar-
miðstöð landsins.
Prentsmiðja
Prentsmiðja á Suðurlandi í eigin húsnæði. Sér um flest prentverk. Stórt
svæði. Góð tæki.
Dagsala
Til sölu stór dagsöluturn í miðborginni. Stórt húsnæði með ýmsa mögu-
leika. Lítil íbúð fylgir. Góð smurbrauðsaðstaða.
Nýr sportbar
Til sölu glæsilegur nýr sportbar með öll leyfi. Tveir skjávarpar, 15 " sjón-
vörp, poolborð o.fl. Leyfi fyrir 450 manns.
fyrirtaeki.is
Öll fyrirtækjaskráin okkar er nú á netinu í mjög aðgengilegu formi.
Erum með úrval fyrirtækja á skrá hjá okkur
á hverjum tíma.
Upplýsingar aðeins á skrifstofunni.
Einar Örn Reynisson, lögg. fasteignasali.
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100.
Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 897-9706. Akureyri Skapti
Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján
Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is,
sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 862-1169.
Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund skapti@mbl.is
ÞAÐ hefur mikið gengið á í kringum
Grunnskólann á Egilsstöðum undanfarið.
Allt með jákvæðum formerkjum auðvitað,
því nú er búið að setja niður þrjár lausar
kennslustofur á skólaplanið til að auka
kennslupláss og verið er að undirbúa nýtt
leikksvæði við skólann. Til skamms tíma
var malbikað plan, sparkvöllur og dálítið
af leiktækjum utan við skólann, en nú er
verið að breyta fyrrverandi bílastæði í
leiksvæði og á að setja niður eitthvað af
nýjum leiktækjum fyrir svo sem eina
milljón og gera umhverfið vinalegra. Þótti
mörgum sem eiga og hafa átt þarna börn í
skóla mál til komið. Sama máli gegnir um
leikskólann á Egilsstöðum, þar sem að-
staða barnanna til útivistar hefur ekki þótt
mjög litrík eða skemmtileg. Eftir að
þriggja milljóna króna fjárveiting til leik-
tækjakaupa dúkkaði upp fyrir skemmstu,
var gengið í að panta ný leiktæki og mun
eiga að setja þau niður innan skamms og
bæta útivistarsvæði leikskólans verulega.
Kætast nú sjálfsagt hjörtu margra, bæði
stórra og smárra.
Það er skeggrætt um það víða á Mið-
Austurlandi og á Héraði að sauð-
fjárbændur og aukaatvinnumöguleikar
þeirra hafi nú verið teknir kyrkingartaki
eftir að sláturhúsunum var lokað. Sagði til
að mynda einn aldraður bústólpi sinnar
sveitar að fjölskylda hans væri að missa
eitthvað um tvær milljónir árlega í tekjur
og að hann þyrfti um það bil hundrað
lömbum fleira til að hafa sama upp úr sér
í sauðfjárbúskapnum.
Inn í þetta má spyrða að fólk til sveita
hefur í áraraðir haft atvinnu í sláturhúsum
á haustin og missa býlin því umtalsverðar
tekjur við lokun sláturhúsanna í fjórð-
ungnum.
Heimamenn á Egilsstöðum verða
margir alveg dolfallnir þegar þeir koma
inn að virkjunarsvæðinu við Kárahnjúka.
Eftir að aka beinan og eftir atvikum bugð-
óttan slitlagsveginn upp úr Fljótsdal og
inn eftir, blasir við vinnusvæði sem er
blátt áfram krökkt af vinnuvélum og
mannskap. Eins og agnarsmátt, en iðandi
leikfangaland ofan í gljúfrinu. Og heilt
bæjarfélag risið ofan við. Fólk nær hreint
ekki utan um þetta dæmi, enda um
stærstu framkvæmd Íslandssögunnar að
ræða.
Úr
bæjarlífinu
EGILSSTAÐIR
EFTIR STEINUNNI ÁSMUNDSDÓTTUR
BLAÐAMANN
Lögreglu á Dalvíkbarst um helginabeiðni vegna
manns sem kominn væri í
sjálfheldu í fjallinu sunnan
og ofan við Kóngsstaði í
Skíðadal en maðurinn var
þar við smalamennsku.
Reynt var að ná í einhvern
úr björgunarsveitinni til
að koma búnaði til manns-
ins en hann komst af eigin
rammleik niður úr fjallinu
áður en það tókst að því er
fram kemur í dagbók lög-
reglu.
Þrír ökumenn voru
staðnir að of hröðum
akstri á Akureyri og einn
var grunaður um ölvun við
akstur. Sex árekstrar
urðu um helgina, slysa-
lausir, en þó kenndi fólk
sér eymsla eftir tvo þeirra.
Einnig kemur fram í
dagbók að tveir árekstrar
urðu á Akureyri á föstu-
daginn, annar allharður en
engin slys urðu á fólki.
Í sjálfheldu
Mývatnssveit | Við hátíð-
ardagskrá í tilefni 50/30
ára afmælis virkjana við
Laxá vakti mikla athygli
tónlistarflutningur nem-
enda Hafralækjarskóla.
Sérstaklega var magn-
aður leikur slagverks-
sveitar en þar léku sjö
nemendur úr 8. bekk á
jafnmörg marimba-
ásláttarhljóðfæri undir
stjórn Roberts Faulkners.
Flutningur þeirra var
kynngimagnaður og seið-
andi svo undir tók í
gljúfrasal. Enda hljómur
Afríku ekki hversdags-
hljóð í eyrum flestra sam-
komugesta. Að sögn Juli-
et Faulkner gerðist það
fyrir milligöngu norskra
unglinga sem heimsóttu
skólann að marimba-
hljóðfæri voru pöntuð frá
Simbabve fyrir um ári.
Eftir það hafa margir
nemendur við skólann til-
einkað sér áslátt þeirra
með ótrúlegum árangri.
Morgunblaðið/BFH
Marimba í gljúfrasal
Á laugardaginnhéldu hjónin Ár-þóra Ágústsdóttir
og Þorsteinn Gunnarsson,
háskólarektor á Ak-
ureyri, upp á 50 ára af-
mæli þeirra beggja í Ket-
ilhúsinu á Akureyri.
Ræðu sína hóf Halldór
Blöndal forseti Alþingis
með þessari vísu undir
stuðlafalli:
Til vinateitis margur bauð af
minna.
Hjónin ekki illa þokkuð
aldargömul. Það er nokkuð!
Síðar gerði hann að um-
talsefni nemendafjölgun
Háskólans á Akureyri og
þann árangur sem þar
hefði náðst:
Aðsóknin er meiri og meiri
megi svo verða enn um sinn.
Háskólinn á Akureyri
er öfundsverður Þorsteinn minn.
Það er nokkuð!
Laugarvatni | Dr. Sigurbjörn
Árni Arngrímsson kennari við
Íþróttabraut KHÍ, sem kunnur
er af að lýsa hlaupagreinum á
Gullmótunum í frjálsum með
Samúel Erni, hélt á dögunum-
upp á þrjátíu ára afmæli sitt í
sal íþróttahúss íþróttabrautar
KHÍ á Laugarvatni. Meðal dag-
skráratriða sem auglýst höfðu
verið var glíma Kjartans Lár-
ussonar húsvarðar og glímu-
frömuðar HSK við sauðkindina.
Er Kjartan þekktur af áhuga-
málum sínum, glímunni og sauð-
fjárrækt. Þegar kom að atriði
Kjartans var Sigurbjörn feng-
inn á sviðið og færðu starfs-
menn íþróttahússins honum
tveggja vetra hrút hinn vænsta,
með stór og fagurlega snúin
horn og mikinn hvítan ull-
arlagða. Hrúturinn heitir í höf-
uðið á Rögnvaldi Ólafssyni fv.
formanni GLÍ og landskunnum
glímudómara. Rögnvaldur hrút-
ur hafði fengið fyrstu verðlaun
sem vetrungur með einkunnir;
Þungi og mál = 50 – 83 – 19 –
106. Stig: 8 – 8 – 9 – 8,5 – 9 – 17,5
– 8 – 8 – 8,5 = 84,5 og ómmæling
á vöðva sýndi 28 mm af vöðva, 4
mm fitu og 4 í lögun á skalanum
1–5 þar sem 5 er best.
Kjartan rakti ættartölu
Rögnvaldar allt aftur til fjár-
skiptanna 1952 þegar fé kom í
Laugardalinn aftur eftir mæðu-
veikiniðurskurð. Skyldi nú dokt-
orinn og Þingeyingurinn sjálfur
hafa það verkefni að rekja ættir
móðurinnar þingeysku aftur til
landnáms. Mátti afmælisbarnið
hafa sig allan við að halda í hrút-
inn. Sigurbjörn Árni heldur nú
hrút þennan í húsum Kjartans í
Austurey en hefur á honum leð-
urskjóðu bundna yfir lendarnar
svo hann gagnist eigi ánum án
viðeigandi þóknunar, enda mik-
ill kostagripur.
Morgunblaðið/Kári
Glímdi við verðlaunahrút
Afmæli
Garðabæ | Aðalfundur Samtaka sveitarfé-
laga á höfuðborgarsvæðinu var haldinn í
Garðabæ 17. október síðastliðinn. Á fund-
inum flutti Árni Magnússon félagsmála-
ráðherra ávarp og
einnig gerði Magn-
ús Jóhannesson
ráðuneytisstjóri
grein fyrir nýrri
náttúruverndar-
áætlun en tvö af
fjórtán svæðum
sem eru inni á
henni eru á höfuð-
borgarsvæðinu,
Skerjafjörður og
Álftanes.
Á fundinum var
rætt um mikilvægi þess að halda utan um
og safna áfram gögnum til þess að hægt sé
að halda áfram að vinna að svæðisskipulagi
höfuðborgarsvæðisins án þess að þurfa að
hefja nýja vinnu við gagnasöfnun fyrst.
Ennfremur var samþykkt einróma
ályktun þar sem ítrekað var að tekjustofn-
ar sveitarfélaga skuli vera í samræmi við
verkefni þeirra og lögbundnar skyldur.
Í ályktuninni var einnig lögð áhersla á
eftirfarandi:
Að ríkið greiði kostnað vegna tónlistar-
fræðslu á framhaldsskólastigi og allan
stofnkostnað vegna byggingar fram-
haldsskóla.
Að felldir verði niður allir skattar sem
ríkið innheimtir af rekstri almennings-
samgangna í þéttbýli.
Að afnumdar verði að mestu undanþág-
ur frá greiðslu fasteignaskatta.
Að sveitarfélögum verði bættur tekju-
missir vegna breytinga úr einkarekstri í
einkahlutafélög.
Að sveitarfélögum verði bættur mikill
kostnaðarauki vegna fráveitumála og
nýrra reglugerða um meðhöndlun úr-
gangs.
Að fjármagn til uppbyggingar stofn-
vegakerfis höfuðborgarsvæðisins sé í
samræmi við þær miklu þarfir sem þar
eru og að hlutverk Vegagerðarinnar
gagnvart afleiðingum aukinnar umferð-
ar, s.s. hljóðmengunar, verði ótvírætt.
Að áhersla verði lögð á úrbætur í heil-
brigðisþjónustu og þjónustu við aldraða.
Tekjur
sveitarfé-
laga verði í
samræmi
við verkefni
Egilsstöðum | Um helgina
var á Egilsstöðum opn-
aður nýr veitingastaður,
Yfir borðið, áður Pizza
67. Eigendur eru þeir
sömu og áfram er boðið
upp á pizzur auk fjöl-
breytts matseðils.
Yfir borðið