Morgunblaðið - 28.10.2003, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 28.10.2003, Blaðsíða 20
AKUREYRI 20 ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ Til sölu nýleg glæsileg húsgögn Ítalskur leðurhornsófi 205x260 cm + pulla, koníakslitur, í góðu ástandi. Nývirði 250 þús. Verð aðeins 80 þús. Útskorin hillusamstæða. Lýsing í efstu hillunum. 160 cm br., 225 cm hár. Nývirði 160 þús. Verð aðeins 80 þús. Tveir glæsilegir leðursófar 215 cm br. frá IDP (Ítalíu), keyptir hjá Öndvegi, 2,5 ára og eins og nýir. Dökkbrúnt, þykkt nautsleður. Nývirði 230 þús. hvor. Verð aðeins130 þús. hvor Upplýsingar í síma 896 5222 eða 896 6186 Þórhildur Sandholt lögfr. og lögg. fastsali. Gsm 898 8545 Gísli Sigurbjörnsson sölumaður FAX 568 3231 KLEPPSVEGUR Stór og falleg 4ra herb. íbúð 121 fm auk sérgeymslu á 2. hæð í góðu fjölbýli. Stór stofa, borðstofa, tvö stór svefnherbergi, flísalagt bað- herbergi, gott eldhús með þvottaherb. og búri inn af. Áhvíl. 3,4 millj. Verð 15,5 millj. BRÓÐURPARTUR Akureyringa, eða um 70%, hugsar fremur hlýlega til hátíðarinnar „Ein með öllu“ sem haldin var um síðustu versl- unarmannahelgi. Bæjarráð Akureyrar ákvað í lok ágúst að láta gera könnun á viðhorfi bæjarbúa til hátíðahalda um versl- unarmannahelgi og fól Gallup verk- efnið. Könnunin var gerð í sept- ember, dagana 16. til 29. þess mánaðar, og var úrtakið 860 manns, 16–75 ára búsettir á Akureyri. Svar- hlutfallið var 67,2%. Sigríður Ólafsdóttir hjá Gallup kynnti niðurstöðurnar en meðal þess sem fram kom er að um 93% bæj- arbúa töldu sig hafa orðið fyrir litlu eða engu ónæði af völdum hátíð- arinnar. Þá leiddi könnunin í ljós að rúm 80% bæjarbúa voru á Akureyri um verslunamannahelgina og um 60% þeirra sem voru í bænum sóttu einhvern af þeim skipulögðu við- burðum sem í boði voru. Meðal þess sem um var spurt var hvort menn væru hlynntir eða and- vígir því að staðið væri fyrir hátíða- höldum á Akureyri um versl- unarmannahelgi. Mikill meirihluti íbúa, um 80% var hlynntur hátíða- höldunum og 13% andvígir. Sigríður nefndi að marktækur munur hefði reynst á viðhorfum íbúa eftir kyni, aldri og búsetu í bænum. Þannig væru fleiri í hópi hinna yngri fylgj- andi hátíðahöldum um versl- unarmannahelgi og karlar voru einnig jákvæðari en konur. Þeir sem helst voru neikvæðir í garð hátíð- arinnar voru þeir sem bjuggu á svæðinu frá Mýrarvegi og að miðbæ. Spurt var af hverju viðhorf við- komandi væri jákvætt/neikvætt og þeir jákvæðu nefndu að gott væri fyrir bæjarfélagið að halda slíka há- tíð, fleira fólk kæmi í bæinn, hátíðin hefði heppnast vel og unglingarnir verið heima en neikvæðu fylgifiskar hátíðarinnar voru að mati þátttak- enda unglingadrykkja og mikil drykkja almennt, ekki hefði verið nægilegt eftirlit og löggæsla, dag- skráin ekki nógu spennandi, þetta hafi ekki verið fjölskylduhátíð og loks nefndu menn ónæði og sóða- skap. Þá leiddi könnunin í ljós að meiri- hluti bæjarbúa vill að hátíðahöldin nái til breiðs hóps fólks og flestir eða 47,5% nefndu að hátíðin ætti að vera fyrir fjölskyldufólk. Flestir Akureyringar segjast ánægðir með „Eina með öllu“ Morgunblaðið/Kristján Ánægja: Könnun Gallup leiðir í ljós að langflestir Akureyringar eru ánægð- ir með að efnt er til hátíðahalda í bænum um verslunarmannahelgi. „ÞAÐ ER mjög ánægjulegt hversu afgerandi niðurstaðan er og sér- staklega þykir mér gott að fá stað- festingu á því hversu margir bæj- arbúar taka þátt í hátíðahöldunum,“ sagði Kristján Þór Júlíusson bæj- arstjóri um niðurstöður könnunar Gallups um viðhorf bæjarbúa til há- tíðarinnar „Ein með öllu“ um versl- unarmannahelgina. Bæjarstjóri nefndi einnig að greinilegt væri að ríkur vilji væri meðal íbúa að halda hátíðahöldum áfram, „því þrátt fyrir ýmis minni háttar tilvik sem upp komu og koma ævinlega upp þar sem mikill fjöldi fólks er saman kominn tókst hátíðin vel.“ Kristján Þór sagði að mun fleiri ungmenni hefðu sótt bæinn heim nú um síðustu verslunarmannahelgi en árið á undan og það sett sinn svip á hátíðina. Vissulega hefðu nokkir bæjarbúar verið óánægðir, en oft væri það svo að hærra heyrðist í þeim hópi en hinum ánægðu. „Ég held að umræðan sem hér varð um að allt hefði farið úr böndunum hafi ekki endurspeglað hátíðina, né held- ur að það hafi verið upplifun bæj- arbúa almennt.“ Umræðan endurspeglaði ekki hátíðina „ÉG FAGNA þessum niðurstöðum,“ sagði Bragi Bergmann, talsmaður Vina Akureyrar, sem stóðu fyrir há- tíðinni „Ein með öllu“. „Þær eru al- veg í samræmi við það sem við fund- um fyrir, fólk var almennt mjög ánægt.“ Bragi sagði að umræður um að Akureyringar væru almennt óánægðir með hátíðahöld um versl- unarmannahelgi og að þau þyrftu endurskoðunar við hefðu ítrekað heyrst í fjölmiðlum um og eftir þessa helgi, en þá skoðun sagði hann helst hafa komið frá starfandi bæjarstjóra og ákveðnum varðstjórum lögregl- unnar. „Þessir menn töluðu um al- mennt svall og þeir sköðuðu ímynd hátíðarinnar mjög.“ Hann nefndi að þetta hefði verið stærsta hátíð lands- ins, ekki undir 12 þúsund manns hefðu tekið virkan þátt, „og í ljósi þess er ótrúlegt hve vel hátíðin gekk. Sumir heimamenn gerðu hins vegar í því að varpa út rangri mynd af hátíðinni, en hún er að hluta til leiðrétt með þessari könnun.“ Í samræmi við það sem við fundum Hæstiréttur | Garðar Gíslason hæstaréttardómari fjallar um það hvernig niðurstaða Hæstaréttar er fengin í erindi sem hann flytur á Lögfræðitorgi félagsvísinda- og lögfræðideildar Háskólans á Ak- ureyri í dag, þriðjudag. Hann verð- ur í húsakynnum háskólans í Þing- vallastræti 23, stofu 14 og hefst kl. 16.30. Á liðnum árum hefur Hæstiréttur verið nokkuð stöðugt í kastljósi fjölmiðla vegna umdeildra dóma segir í frétt um fyrirlesturinn og að Garðar muni fjalla um það hvernig Hæstaréttur kemst að niðurstöðu í málum sem fyrir hann eru lögð. Hæstiréttur hefur undanfarið þurft að taka á mörgum stórum og vandasömum málum sem valdið hafa miklum deilum í samfélaginu. Nægir þar að nefna kvótamálið, stöðuveitingu sem snerti jafnrétti kynjanna og mál sem snerist um svokallaðan einkadans. Niðurstaða Hæstaréttar gengur oft þvert á skoðanir hins almenna borgara sem og skoðanir stjórnmálamanna og fjölmiðlafólks. Það kemur og fyrir að niðurstaða Hæstaréttar gangi þvert gegn úrskurði héraðsdóms. ÁRBAKI, einum þriggja ísfisktog- ara ÚA, var siglt áleiðis til Gdynia í Póllandi í gær, en þar á að ráð- ast í töluverðar endurbætur og breytingar á skipinu. Gert er ráð fyrir að Árbakur verði frá veiðum fram að jólum að því er fram kem- ur hjá Stefáni Finnbogasyni verk- stjóra vélaverkstæðis ÚA á heima- síðu félagsins, en hann mun fara til Póllands um næstu helgi til að hafa eftirlit með breytingum ytra. Brú skipsins verður hækkuð um sem nemur einni hæð en þannig skapast rými fyrir setustofu, íbúð og sjúkraaðstöðu. Settur verður veltitankur í skipið, nýtt peru- stefni, nýr skutur og kjölurinn verður sömuleiðis endurnýjaður. Loks verður skipið sandblásið og það málað. Gangi áætlanir eftir mun verkið taka fimm vikur og Árbakur því kominn til Akureyrar aftur um miðjan desember. Eftir að heim verður komið er að sögn Stefáns gert ráð fyrir að fara í lagfæringar á millidekki skipsins, m.a. að setja þar upp flokkara og ískrapavél. Árbakur í endur- bætur til Póllands    ENGU er líkara en skipverjar á Mánafossi séu að sigla heim í hlað á Halllandsnesi á Svalbarðs- strönd. Hafa kannski ætlað sér að heilsa upp á heimafólk og spyrja almæltra tíðinda. Sú var þó ekki raunin, þeir Mánafossmenn voru líkt og vanalega að sigla frá Oddeyrarbryggju og tóku stefnuna beint úr Eyjafjörðinn, en skipið er hið eina sem nú um stundir sinnir strandsiglingum við Íslandsstrendur. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Heilsað upp á heimafólk!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.