Morgunblaðið - 28.10.2003, Page 21
SUÐURNES
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER 2003 21
Fram til 24. nóvember vinna Og Vodafone og Ericsson að
uppbyggingu GSM kerfis Og Vodafone á höfuðborgarsvæðinu.
Við biðjumst velvirðingar á truflunum sem farsímanotendur
okkar kunna að verða fyrir á meðan vinna stendur yfir.
www.ogvodafone.is
Við eflum GSM þjónustu okkar
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
O
G
V
2
25
90
10
/2
00
3
Reykjanesbæ | Hann er gjarnan
kallaður Suðurnesjavíkingurinn,
enda er Böðvar Gunnarsson hand-
verksmaður sem smíðar muni að
hætti víkinganna úr málmi og tré.
Hann hefur nú stofnað víkinga-
félag í Reykjanesbæ og mættu um
20 manns á stofnfund félagsins síð-
asta fimmtudag.
Böðvar er nú með smiðju á Berg-
inu í Keflavík, en segist vonast til
að hann fái aðstöðu í víkinganausti
sem ráðgert er að byggja í Innri-
Njarðvík. Þar verður víkingaskipið
Íslendingur til sýnis og því væri
skemmtilegt að vera með smiðju
þar, segir Böðvar. Hann vonast til
að geta gert smíðarnar að að-
alstarfi sínu í framtíðinni, og sam-
einað þannig áhugamál sitt og at-
vinnu.
„Það er um það bil eitt ár síðan
ég hitti fyrst víkinga á Ljósanótt-
inni í fyrra,“ segir Böðvar. „Einn af
þeim var bandarískur eldsmiður af
Vellinum. Ég heillaðist bara af
þessu, þeir voru að smíða hnífa og
ýmsa smáhluti. Ég spurði þá hvort
þeir yrðu með eitthvert námskeið.
Það átti nú að vera en svo var það
aldrei haldið. En ég komst í smiðj-
una hjá honum uppi á velli þar sem
hann kenndi mér ýmislegt. Við er-
um góðir vinir í dag.“
Þegar þarna var komið var neist-
inn kviknaður hjá Böðvari og hann
fór að prófa að smíða. Hann fór
einnig að hitta hafnfirska víkinga í
félaginu Rimmugýg reglulega þar
sem hann berst við aðra víkinga
með sverð og skjöld að vopni. „Ég
er að vinna í því að koma mér upp
hringabrynju, en þegar maður er
að gera það í fyrsta skipti tekur
það alveg marga mánuði,“ segir
Böðvar.
Með mörg járn í eldinum
Böðvar segir að sú hugmynd hafi
kviknað fyrir nokkru að stofna fé-
lag í Reykjanesbæ þar sem hand-
verki víkinganna er hampað. Fé-
lagið var svo formlega stofnað á
fimmtudaginn. „Ég smíða úr járni,
sker í tré og geri rúnir og mót úr
leir. Ég er að gera svo marga hluti
að ég er að komast á það stig að
mig langar kannski að fara að ein-
beita mér að einhverju einu, ekki
að vera að gera allt einn.“
Talsverður áhugi virðist vera á
félaginu, enda mættu um 20 manns
á stofnfundinn, þrátt fyrir að hann
hefði lítið verið auglýstur, segir
Böðvar. Félagið hefur ekki enn
fengið nafn, og segir Böðvar að það
verði að sjálfsögðu valið lýðræð-
islega af áhugasömum, þó að lík-
legt sé að nafnið tengist goðafræði
eða fornsögunum á einhvern hátt.
Böðvar er hagur smiður og á
nokkurt safn af hnífum, Þórs-
hömrum og öðrum skrautmunum
sem hann hefur smíðað. Hann seg-
ist hafa selt nokkuð af munum, til
bæjarbúa og aðkomumanna. Þórs-
hamrarnir sem hann smíðar eru
vinsælir og eitthvað hefur selst af
svokölluðum konuhnífum, sem kon-
ur báru t.d. í streng um hálsinn.
„Það eru engir tveir hlutir eins,
þeir einfaldlega geta ekki orðið
það nema ég færi að fastmóta þetta
eitthvað, en ég vil það ekki. Það
þurfa allir að vera með sitt sér-
kenni.
Ég hita járnið upp á steinkolum,
en sem víkingur í víkingaþorpi
mun ég nota viðarkol. Þau neista
bara svo mikið að það er verra að
nota þau inni í byggð. Þegar fer að
skyggja þá eru eldglæringarnar
langt upp í loftið af viðarkolunum.
Ég hringi í slökkviliðið í hvert
skipti sem ég er að byrja að smíða,
það kemur svo mikill svartur reyk-
ur,“ segir Böðvar brosandi.
Handverki forfeðranna hampað
Böðvar: Engir tveir hlutir eru eins og þeir eiga ekki að vera það heldur á hver hlutur að hafa sitt sérkenni.
Hér má sjá sýnishorn af því sem hann smíðar, konuhnífa, Þórshamra og sax sem stungið er í trédrumbinn.
Morgunblaðið/Brjánn Jónasson
Lærði eldsmíðar víkinganna af Bandaríkjamanni
Reykjanesbæ | Fyrirhuguð friðlýs-
ing 113,1 ferkílómetra svæðis á suð-
vesturhorni Reykjaness þarfnast
mikillar endurskoðunar og ekkert
samráð hefur enn verið haft við
heimamenn. Þetta var meðal þess
sem fram kom í máli fundarmanna á
aðalfundi Sambands sveitarfélaga á
Suðurnesjum (SSS) á laugardag.
Siv Friðleifsdóttir umhverfisráð-
herra sagði á fundinum að til standi
að friðlýsa svæðið á yfirstandandi
þingi. Hún lagði áherslu á að friðlýs-
ingin sem slík væri ekki eiginleg frið-
un svæðisins, heldur væri um að
ræða viljayfirlýsingu þingsins til frið-
unar, eftir væri að hafa samráð við
alla hagsmunaaðila. Í framhaldi af
því verði svo tekin endanlega ákvörð-
un um hvort friðað verði og hvaða
reglur muni gilda á friðaða svæðinu.
Fundarmenn virtust flestir sam-
mála um að þeir hefðu ónógar upp-
lýsingar um það ferli sem málið væri
í og hver tilgangur friðlýsingarinnar
væri, ef hann væri ekki að friða svæð-
ið. Á fundinum var ályktað um málið
og minnt á að samráð við heimamenn
sé enn ekki orðið að veruleika.
Í ályktuninni segir m.a.: „Friðlýs-
ingin gæti torveldað að hinn öflugi og
endurnýjanlegi háhitageymir verði
nýttur á varfærinn og hagkvæman
hátt til hagsbóta fyrir Suðurnes og
landið allt. Með friðlýsingunni gæti
verið lagður steinn í götu sjálfbærrar
þróunar á borð við þá sem fram fer í
auðlindagarðinum í Svartsengi og
eftir er tekið víða um heim. Með frið-
lýsingunni gæti einnig verið að koma
í veg fyrir djúpboranir á svæðinu
sem er nauðsynlegur og brýnn áfangi
í sjálfbærri þróun Suðurnesja og
landsins alls auk þess sem verulega
er vegið að samkeppnishæfi Hita-
veitu Suðurnesja gagnvart öðrum
orkufyrirtækjum.“
Alfreð Alfreðsson, aðstoðarfor-
stjóri Hitaveitu Suðurnesja, gagn-
rýndi náttúruverndaráætlun ráð-
herra á fundinum, og sagði hana
gallaða því hún komi ekki að landnýt-
ingu heildstætt. Hann sagði lögin um
friðun of þröng og þau hafi of slök
tengsl við aðra lagabálka.
„Fyrir mér er fegurð jarðhita-
svæðisins á Reykjanesi enn meiri
þegar undir yfirborðið er komið held-
ur en það sem ég sé ofan á,“ segir Al-
freð, og gagnrýnir hann einsleita sýn
jarðfræðinga sem gáfu álit á friðlýs-
ingunni.
Siv sagði það sína skoðun að það
séu meiri möguleikar fyrir heima-
menn fólgnir í því að vernda en
vernda ekki. „Það er mín skoðun að
það eigi að gera þetta í sátt við fólk-
ið,“ sagði Siv á fundinum. Hún sagð-
ist enn fremur vilja skoða hvernig
verndun og nýting geta farið saman,
og horfði í því sambandi einkum til
þess að starfsemi hitaveitunnar geti
farið fram á svæðinu þó að það yrði
lokað fyrir iðnaði sem gæti alveg eins
verið staðsettur annars staðar.
Morgunblaðið/Brjánn Jónasson
Alfreð Alfreðsson: Fegurð jarðhitasvæðisins enn meiri undir yfirborðinu.
1- /%, /9 " .
!
"
#
2+
Telja friðlýsingu þarfnast endurskoðunar
„Lagður steinn í
götu sjálfbærrar
þróunar“
Grindavík | Geimálfurinn Gígur frá
Varslys mætti á árlegan haustfund
Slysavarnardeildarinnar Þórkötlu
og sýndi meðal annars hvers vegna
nauðsynlegt er að nota hjálma,
stjórnaði söng og fleira. „Geimálfur-
inn Gígur ætlar síðan að fara í heim-
sókn í grunnskóla landsins. Hann
ætlar að ræða við krakkana á mið-
stigi en til stendur að hann fylgi eftir
námsefni sem er verið að gefa út af
Landsbjörg. Þetta námsefni fjallar
um slysavarnir og miðað við hve
skemmtilega geimálfurinn kom
þessu til skila hjá okkur þá höldum
við að hann eigi ekki í vandræðum
með að heilla krakkana,“ sagði Gerð-
ur Gunnlaugsdóttir frá slysavarn-
ardeildinni.
Morgunblaðið/Garðar
Geimálfurinn mætir
í grunnskólana