Morgunblaðið - 28.10.2003, Side 22

Morgunblaðið - 28.10.2003, Side 22
AUSTURLAND 22 ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ Breiðbandið | Á síðustu árum hafa ljós- leiðarar verið lagðir í flest hús á Egils- stöðum. Síminn mun þó ekki hafa uppi áform um að koma breiðbandsþjónustu á í bænum á næstunni. Ástæðan er sögð sú að ekki borgi sig ennþá að senda sjónvarps- rásir um breiðband utan höfuðborgarsvæð- isins. Sem dæmi um aðra þjónustulausa breiðbandsbæi má nefna Akureyri, Reykja- nesbæ og Stykkishólm.    Egilsstöðum | Flugfélag Íslands hefur í fyrsta sinn hafið reglulegt áætlunarflug frá Akureyri og Egils- stöðum til Keflavíkurflugvallar og er flugið ætlað farþegum í milli- landaflugi. Þá opnast að nýju flug- leiðin milli Egilsstaða og Akureyrar, en hún var aflögð fyrir nokkrum ár- um. Flogið verður tvisvar í viku, á fimmtudögum og sunnudögum og eru það sömu dagar og Grænlands- flug flýgur beint milli Akureyrar og Kaupmannahafnar. Lagt er upp frá Akureyri kl. ell- efu á fimmtudögum og sunnudög- um, komið til Egilsstaða rúmlega tólf og lent í Keflavík rúmlega eitt eftir hádegi. Brottför þaðan er svo um kl. fimm síðdegis, vélin er á Eg- ilsstöðum klukkustundu síðar og komin til Akureyrar laust fyrir kl. hálfátta um kvöldið. Farþegar frá Akureyri og Egils- stöðum þurfa að bóka sig í flugið er- lendis á Keflavíkurflugvelli, en far- angur þeirra fer beint um borð í tengiflugið. Tollskoðun og vopnaleit fer fram á Keflavík. Fimm áhafnir munu starfa á hinni nýju flugleið. Stórframkvæmdir forsenda flugsins Jón Karl Ólafsson, fram- kvæmdastjóri Flugfélags Íslands, segir að stórframkvæmdirnar við Kárahnjúka séu ein helsta forsenda flugsins, en aukin eftirspurn sé eftir tengingu við millilandaflug frá Eg- ilsstöðum, án þess að þurfa að hafa viðkomu í Reykjavík. Það stytti enda ferðatímann verulega. Gert er ráð fyrir að fjölga ferðum, verði við- brögð við þjónustunni góð. Flogið er á Metro vél sem tekur 19 í sæti og segir Friðrik Adolfsson markaðs- og sölustjóri að Flugfélagið þurfi að jafnaði 60% nýtingu á vélina til að þetta gangi. „Ég á von á að flug- leiðin muni bera sig með tímanum,“ segir Friðrik. „Við gefum okkur að þetta sé mikil búbót fyrir landsbyggðina og að við náum þessari 60% nýtingu. Við ætlum að auglýsa og kynna þetta vel og munum skoða gang mála eftir árið. Uppgangurinn á Austurlandi verður fram til ársins 2007–8 og við vonumst til að geta fylgt þessu eftir og gert það vel að Egilsstaðabúar komi til með að nota þetta áfram.“ Menn eiga ekki að missa af flugvélinni út Hvorki Friðrik, né flugmennirnir í fyrsta beina fluginu á Keflavík, þeir Þór Arnarsson og Kjartan Sæv- ar Magnússon, hafa áhyggjur af því að veður raski áætluninni. „Kost- urinn við staði eins og Egilsstaði og Keflavík er sá að þar eru mjög ná- kvæm aðflugstæki og hægt að leyfa sér að lenda þar við velflest veð- urskilyrði,“ segir Þór. „Sé um veru- lega slæmt veður að ræða er það þá yfirleitt yfir öllu landinu en ekki ein- stökum landshlutum og þá lokast allt samtímis. Við reiknum með því að það verði mjög sjaldgæft að leið- in lokist vegna veðurs.“ Friðrik segir að ef það komi fyrir verði fólki komið á næstu mögulegu flugvél á eftir og sé það hluti af sam- komulagi milli flugfélaga og fólki að kostnaðarlausu. Þar sem flugvélin byrjar á Ak- ureyri og flýgur um Egilsstaði til Keflavíkur býðst nú aftur kostur á beinu flugi milli Akureyrar og Egils- staða. Þeir Flugfélagsmenn telja það áhugaverðan kost fyrir þá sem vilji fara í dagsferðir frá Akureyri til Egilsstaða. Farþegunum vísað frá vegna skorts á atvinnuleyfi Í fyrstu ferðinni á sunnudag voru meðal farþega úr Keflavík bókaðir fimm útlendingar til Egilsstaða. Nokkrar tafir urðu á brottför meðan verið var að kanna skilríki fjögurra þeirra, en það munu hafa verið verkamenn á leið í Kárahnjúkavirkj- un. Voru þrír þeirra ekki með til- skilin atvinnuleyfi og var ekki hleypt lengra. Neitaði þá sá fjórði að taka flugið til Egilsstaða og varð eftir hjá félögum sínum. Þegar til Egilsstaða kom reyndist ekki unnt að halda áfram til Ak- ureyrar vegna ókyrrðar í lofti og rættist ekki úr fyrr en í gærmorgun. Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Fyrsti farþeginn: Bókað í Keflavík á leiðinni í Kárahnjúkavirkjun. Fyrsta flugið á Keflavík: Flugmennirnir Kjartan Sævar Magnússon og Þór Arnarsson. Friðrik Adolfsson, markaðs- og sölustjóri, í miðið. Beint flug til Keflavíkur og þaðan til útlanda Flugfélag Íslands hefur reglulegar ferðir á flugleiðinni Akureyri– Egilsstaðir–Keflavík tvisvar í viku Héraðsskógar | Helgi Gíslason, fram- kvæmdastjóri Héraðsskóga, hefur sagt starfi sínu lausu og er nú leitað að nýjum fram- kvæmdastjóra. Helgi var framkvæmdastjóri Héraðsskóga frá árinu 1990 og Austurlands- skóga frá stofnun þeirra árið 2001. Þá hefur Níels Árni Lund látið af störfum sem stjórn- arformaður Héraðsskóga og hefur Þorvald- ur Jóhannsson tekið við stjórnarfor- mennsku. Hann er framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga á Austurlandi. Héraðsskógar hafa nú opnað nýja heima- síðu á slóðinni www.heradsskogar.is.    Ný hús | Þorsteinn Bjarnason bygging- arverktaki er nú að undirbúa byggingu tveggja íbúðarhúsa á Fáskrúðsfirði. Verða þau númer 1 og 3 við Króksholt. Húsin hafa ekki verið seld ennþá. Nýlokið er smíði húss við Álfabrekku, en það var fyrsta nýja húsið sem byggt er á Fáskrúðsfirði í rúman ára- tug. Var það byggt af sama byggingarverk- taka og nú reisir húsin við Króksholt.    Ný þjónusta | Arkitekta- og verk- fræðiþjónusta Austurlands hefur opnað skrifstofu á Reyðarfirði. Það eru þrjú reyk- vísk fyrirtæki sem standa að stofunni: Al- menna verkfræðistofan, Verkfræðistofan Hnit og arkitektastofan Arkþing. Fram- kvæmdastjóri Arkitekta- og verkfræðiþjón- ustu Austurlands er Geir Sigurpáll Hlöð- versson, fyrrum bæjarverkfræðingur Fjarðabyggðar. … batnar hún bara með aldrinum,“ sagði Jón Björn Hákonarson, sérlegur kynnir Blús-, rokk- og jazzklúbbsins á Nesi til margra ára, þegar hann lýsti tónlistarsýningum BRJÁN frá upphafi og eru það orð að sönnu. Að minnsta kosti höfðaði sýningin og lagaval mjög vel til viðstaddra. Fjórtánda sýning BRJÁN, Enska úrvals- deildin í rokki, var frumsýnd fyrir fullu húsi í Egilsbúð fyrsta vetrardag eins og venja er. Þemað þetta árið, eins og nafnið gefur til kynna, eru ensk rokklög. M.a. var boðið upp á lög með Queen, Rolling Stones, David Bowie, Bítlunum, Pretenders, Eurythmics og Spice Girls. Spurður um þemað sagði Ágúst Ár- mann Þorláksson að verið væri að rétta amer- íska slagsíðu síðustu ára. Vel heppnuð nýliðun Sýningin í ár þykir verulega vel heppnuð, en um þrjátíu tónlistarmenn, dansarar og að- stoðarfólk taka þátt í uppsetningunni á einn eða annan hátt. Í bland við reynslubolta BRJÁN, sem sumir hverjir hafa sungið í sýn- ingum klúbbsins frá upphafi, gaf að líta ný andlit sem léðu sýningunni ferska blæ. Nýliðarnir komu víðs vegar af Austurlandi og má þar nefna til sögunnar Björt Sigfinns- dóttur frá Seyðisfirði, Tinnu Árnadóttur frá Eskifirði og Jóhann Búason frá Eskifirði. Þá má ekki gleyma nýliðanum Hafþóri Helgasyni frá Borgarfirði eystri, sem spilaði á áslátt- arhljóðfæri. Í gulum jakkafötum uppi um alla veggi Ágætis stemning var í salnum og náði gamli refurinn Smári Geirsson að koma fólki upp á stóla og borð þar sem hann flutti lagið „Glad all over“ í gulum jakkafötum. Þá var mikil stemning þegar Bjarni Ágústsson flutti Queen-syrpu í lok sýningarinnar. Sýningin á laugardagskvöld var sú fyrsta af fjórum sem fyrirhuguð er í Neskaupstað og er nú þegar uppselt og biðlisti á þrjár þeirra. Venju samkvæmt er fyrirhugað að setja upp sýningu í Broadway í Reykjavík á nýju ári. Rokkarar í Neskaupstað hrokknir í gírinn í fjórtándu sýningu BRJÁN „Eins og gott viskí … Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir Austfirskar Spice Girls: Tinna Árnadóttir, Laufey Sigurðardóttir, Björt Sigfinnsdóttir og Berg- lind Ósk Guðgeirsdóttir tjútta og tralla. Gestir í Egilsbúð voru vel með á nótunum. Neskaupstað | Í tengslum við orkuátak Latabæjar var síðasta vika heilsuvika í Fjarðabyggð. Á hverjum degi var ákveðið þema sem fól í sér hvatningu til allra íbúa í sveitarfélaginu um að taka upp heilbrigðari lífshætti. M.a. var bíllaus dagur þar sem allir voru hvattir til að ganga til vinnu og í skólann. Þá var íbúum bent á að huga að mataræði sínu og undir slagorðinu: „Gott er að borða gulrótina“ var tilboð á grænmeti og ávöxtum í mat- vöruverslunum. Skólar lögðu áherslu á útiveru og útikennslu og m.a. fóru leik- skólabörn frá Leikskólanum Sól- völlum í Neskaupstað í skoð- unarferðir um bæinn. Á fimmtudeginum var sjónvarpslausi dagurinn endurvakinn og í stað sjónvarpsgláps efnt til fjöl- skyldugöngu um kvöldið. Heilsuvikan mæltist vel fyrir meðal íbúa og þátttaka í við- burðum var nokkuð góð. Svo verð- ur að koma í ljós hvort þessi vakn- ing skili sér í heilbrigðari íbúum, en sumir voru á því að gera ætti þessa viku að árlegum viðburði í Fjarðabyggð. Morgunblaðið/Ágúst Blöndal Leikskólabörn í Neskaupstað spáss- era um bæinn ásamt fóstrum sínum. Gott er að borða gulrótina

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.